Morgunblaðið - 12.12.1961, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. des. 1961
Svefnsófar
Getum afgreitt fyrir jólin svefnsófa.
Vandaðir, smekklegir. — Vmsamlegast
skoðið sýnishorn í verzlun okkar
Greiðsluskilmálar: Jafnar afborganir.
Kristlán Siggeirsson h.f.
Laugavegi 13 — Sími !3879
LOKSIIMS geta flestir
eignast það bezta
Kynnið yður nýju verðin
FAST
HJÁ
FLESTUM
ursmíðaverzlunum
BUSSE
garnið
Husmæður!
Spyrjið um góða garnið
mað hagstæða verðinu
OG ÞAÐ
FÁIÐ ÞÉR í EFTIRTÖLDUM
VERZLUNUM :
Skemmunni
Hafnarfirði
Sigríði Skúladóttur,
Keflavík
S. Ó. Ólafsson & Co.
Selfossi
Kaupf. N-Þingeyinga
Kópaskeri
Hafnarbraut 1
Norðfirði
Sigurbjörgu Ólafsd.,
Vestmannaeyjum
Sigurði Ágústssyni,
Stykkishólmi
Þórði Ásmundssyni
Akranesi
E. Guðfinnssyni,
Bolungarvík
Böðvari Sveinbjarnars.
ísafirði
Dverg
Blönduósi
Vöruhúsinu,
Sauðárkrók
Aðal umboð BUSSE-verksmiðjanna í
Þýzkalandi
t TH. MATHIESEN H.F.
Laugavegi 178 — Sími 36570
Fiskimenn fái fulla abild oð
ákvörðun um fiskverð
Frá umrædum á Alþingi
Á FUNDI neðri deildar í gær var
frumvarp um sveitastjórnarkosn-
ingar samþykkt við 3. umræðu
og sent efri deild til afgreiðslu.
Þá . var og tekið til 2. umræðu
frumvarp um Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins.
Pétur Sigurðsson (S) gerði
grein fyrir breytingartillögum,
sem meirihliuiti sjávarútvegsnefnd
ar lagði til, og sagði m.a., að í
nefnd þeirri, sem samið hefði
frumvarpið og skipuð var full-
trúum verkalýðssamtakaima, út-
gerðarmanna og fiskkaupenda,
hefði orðið samkomulag um öll
atriði nema tvö: skipun verðlags-
ráðs og hlutverk yfimefndar og
starfssvið henjnar, og þó hefði þar
aðeins verið um
einn fulltrúa að
ræða, sem ekki
gait myndað sam
stöðu um þau
atriði. Þessu sam
komiulagi bæri
að fagna svo og
því, að nú fá
fiskimenn fulla
aðild að ákvörð-
un um fiskverð, sem þeir hafa
lengi keppt að. Með tilliti til
þessa hefðu nefndarmenn ekki
talið rétt að gera verulegar breyt
ingar á frumvarpinu. Við 9. gr.
hefði þó verið talið rétt að gera
þær breytingar, að skýrt komi
fram í greininni, annars vegar,
að um neitunarvald sé að ræða
fajá einstökum aðilum í verðlags-
ráði, og einnig, að nefndarmað-
ur sá, er tilnefndur er af hálfu
LÍÚ, hafi engra hagsmuna að
gæta í samtökum fiskkaupenda.
Kvað hann breytingar þessar
settar í því skyni að koma í veg
fyrir hugsanlega tortryggni, enda
tryggt, eftir breytingarnar, að
þannig sé um hnútana búið, að
hlutur sjómanna verði tryggður.
I>á kvaðst hann heldur hafa kos-
ið, að fækkað hefði verið í nefnd
ARINiOLD
keðjur og hjól
Flestar stærðir fyrirliggjandi.
Landssmiðjan
j inni þannig, að jafn margir hefðu
verið frá útgerðarmönnum og
sjómönnum, þrír frá hvorum, en
hefði ekki viljað setja málið í
hættu með því að koma með
breytingartillögu þess efnis, sér-
staklega ekki eftir að 9. gr. leið-
réttist, vegna þess, að þetta mál
hefir svo mikla þýðingu fyrir
fiskimenn, að það verður fram
að ganga.
Gisli Guðmundsson (F), fram-
sögumaður 1. minnihluta sjávar-
útvegsnefndar, tók næstur til
máls. Sagði hann m.a., að breyt-
ingartillögur sínar miðuðust að
verulegu leyti við að taka tiilit
til minnihlutans í undirbúnings-
nefndinni \ því skyni að auka lík-
ur fyrir allsherjarstuðningi við
löggjöfina í framkvæmd. Efni
breytingartillagnanna væri; að
fulltrúum fisksöluaðila verði
fjölgað um einn, þannig að ASÍ
fái tvo fulltrúa og yrðu þá full-
trúar sjómanna jafn margir full-
trúum útvegsmanna; að fulltrú-
um fiskkaupenda verði fjölgað
'Um einn, þarnnig að félög fisk-
vinnslustöðva á Norður- og Aust
urlandi og á Vestfjörðum fái einn
fulltrúa hvort, en fulltrúum Sölu
miðstöðv. Hraðfrystihúsanna
fækki um einn; að sett verði
ákvæði, er tryggi, að fulltrúar í
verðlagsráði eigi ekki hagsmuna
að gæta, sem brjóti í bága við
hagsmuni 'þeirra aðila, sem þeir
eru fulltrúar fyrir; að stofnun
yfirnefndar með oddamanni til-
nefndum af hæstarétti komi ekki
til framkvæmda, nema fyrir liggi
'samþykki meirihluta fulltrúa
fisksöluaðila og fulltrúa fiskkaup
enda; að verðlagsákvörðun Verð
lagsráðs eða yfimefndar gildi
ekki lengur en fyrir eina vertíð
eða veðiitímabil í senn; að kosn-
aður samkvæmt lögunum greið-
ist úr ríkissjóði en ekki úr fiski-
málasjóði.
Geir Gunnarsson (K), fram-
sögumaður 2. minnihluta sjávar-
útvegsnefndar, sagði m.a., að í
tilhögun veigamestu atriða frum-
varpsins væri stuðst við meiri-
hlutasamþykki undirbúnings-
nefndarinnar gegn atkvæði fuíl-
trúa ASÍ, en skilyrði þess, að lög-
in nái til'gangi sínum séu þau, að
þau njóti trausts þeirra, sem laun
sín eiga undir niðurstöðum verð-
lagsráðs. Taldi hann því óviðun-
andi, að lögin séu ekki í samræmi
við tiliögur fulltrúa ASÍ, og lagði
til, að fulltrúum sjómanna yrði
fjölgað um einn og að gerðar-
dómi yrði hafnað, en í stað þess
héfji ríkissáttasemjari störf með
nefndinni og hafi umboð til að
láta greiða atkvæði um tillögur
sínar innan þeirra samtaka. sem
hlut eiga að máli. Gerðardómur-
inn verði ekki til að leysa deil-
urnar, faeldur muni þær koma
fram í deilum útvegsmanna og
sjómanna um hlutfall aflahlutar.
En verði ákvæðið um gerðadóm
samþyk'kt, lagði hann til, að ótví-
rætt verði, að fulltrúi frá ASÍ
eigi sæti \ yfi.mefndinni. Þá taldi
hann og eðlilegt, að verðlagsráði
sé skylt að birta opinberar skýrsl
ur og reikninga, er liggja tii
grundvallar ákvörðun fiskverðs
hverjoi sinni. Enn fremur skuli
aflaverð breytast jafnhliða og i
réttd hlutfalli við breytingar,
sem verða kunna á sbráningu
gengisins.
Ekki tókst að ljúka umræðum
um frumvarpið á venjulegum
fundartíma deildarinnar og var
honum því fram haldið kl. 9 í
gærkvöldi. Hionum var ekki lokið
þegar blaðið fór í prentun, en
þá höfðu Lúðvík Jósefsson (K),
Eðvarð Sigurðsson (K), Emil
Jónsson sjávarútvegsmálaráð-
herra, Björn Pálsson (F) og
Karl Guðjónsson (K) talað og
enn fremur höfðu þeir Pétur Sig
urðsson og Gísli Guðmundsson
tekið aftur til máls.
Nýtt bílstöðvarhús
AKRANESI, 11. des. — Nýtt bíl-
stöðvarhús er risið af grunni hér
í bænum,,á Kirkjubraut 39. Það
er úr timbri og orðið fokhelt, ein
hæð 160 fermetrar að víðáttu.
Það eru bílstjórarnir, sem sögðu
skilið við gömlu fólksbílastöðina,
sem byggja húsið. Yfirsmiður er
Guðmundur Magnússon, tré-
smíðameistari. — Oddur.
Ríkisreikningurinn
1960 lagður fram
Á FUNDI efri deildar í gær yar
1.' umræða frumvarp um stáð-
festingu á ríkisreikningnum 1960
og var samþykkt að vísa þvi til
Z. umræðu og fjárhagsnefndar.
Gunnar Thoroddsen f jármála-
ráðherra gat þess m. a., að hann
hefði gert allitarlega grein fyrir
Lækkað verð
Höfum ávallt fyrirliggjandi, í
öllum stærðum:
Lífstykki
Corselet
Slankbelti
Brjósthöld
Lækkað verð
Saumum einnig eftir máli.
Sendum gegn póstkröfu.
IÍFSTYKKJM
Frakkastíg 7. — Sími 22779.
Hverfisgötu 82. — Sími 11788
afkomu ríkisins 1960 í fjárlaga-
ræðu sinni og sæi því ekki
ástæðu til að endurtaka þá grein
argerð. Þó gat hann þess, að
tvenns konar breytingar væru
á reikningnum
frá því, sem
verið hefði. Ann
ars vegar væri
nú efnisyfirlit
ítarlegra en
áður, en það
hefði þótt full
stuttaralegt, og
hins vegar væri
nú í fyrsta skipti yfirlit um
greiðslujöfnuðinn 1960. í því sam
bandi gat hann þess, að nú væru
uppi mismunandi skoðanir um,
hvernig reikna skuli út greiðslu-
jöfnuðinn. Eftir ríkisbókhaldinu
væri þannig afkoma ríkissjóðs
1960 hagstæð um 10,7 millj. kr.
en eftir útreikningum á greiðslu-
jöfnuði hjá Seðlabankanum hag-
stæð um 35, 4 millj. kr. Rétt hefði
þótt að fylgja reglum ríkisbók-
haldsins, hins vegar séu lög þar
að lútandi í endurskoðun og gert
ráð fyrir, að koma á fastari reglu
um greiðslujöfnuðina m. a.