Morgunblaðið - 21.12.1961, Qupperneq 1
24 siður
48. árgangur
290. tbl. — Fimmtudagur 21. desember 1961
Prentsmiðja Morgmblaðsins
Rússneski sendi-
herrann í Guineu
farinn heim til Moskvu
París og Gonakry, Guineu,
20. des. AP.
FR.EGNIR bárust um það í
dag, að sendiherra Sovétríkjanna
í Guineau, Daniel Solod, hefði
[ verið kallaður heim og var talið,
að það væri samkvæmt beiðni
Sekou Tourés fotseta Guineau.
Ekki fengust þær fregnir stað-
festar. Sendiherra Guineu í Paris
segir aftur á móti rússneska
sendiher’rann hafa óskað eftir því,
að vera kallaður heim, af per-
sónulegum ástæðum. Hann mun
hafa farið frá Gonakry sl. laug-
ardag.
Þessar óstaðfestu fregnir eiga
væntanlega rót að rekja til þess,
að nýlega taldi stjórn Guineu sig
ihafa uppgötvað samsæri um að
kollvarpa Sekou Touré. Var það
samsæri rakið til nokkurra
menntaskóla- og háskólakenn-
ara, sem allir eru róttækir marx-
istar.
Tíu klst. fundur
Tshombe og Adoula
Leopoldville 20. des.
AP — NTB,
I>EIR Cyrille Adoula og Moi.se
Tshombe hafa ræðzt við í her-
bækistöð Sameinuðu þjóðanna í
Kituna við ósa Kongófljóts í dag.
6tóð fundur þeirra samflcytt í
tiu klst. Haft er eftir áreiðan-
iegum heimildum, að þeir hafi
komizt að einhverskonar bráða-
hirgðasamkomu 1 agi — en ekki er
kunnugt um efni þess. Þeir hafa
fallizt á að gefa yfirlýsingu um
viðræðurnar á morgun.
I Frá Katanga berast þser fregn-
ir, að allt sé með kyrrum kjör-
ura eftir friðlitla nótt. Herlið
Sameinuðu þjóðanna hefur feng-
ið fyrirskipun uim að hleypa ekki
etf skotum nema í ítrustu neyð,
meðan viðræðurnar standa yfir,
en í nótt hófu liðsforingjar úr
Katangaher sfeotórás frá gisti-
húsinu Lido í Elisabethville.
ÍVatnsskortur er verulegur í borg
inni og lítið um matvæli. r_„
'rfvl
• U Thant svarar Spak **
Paul Henri Spaak hefur símað
mótmæli til framkvæmdastjórn-
ar SÞ vegna töku aðalstöðva
Námafélagsins Union Miniere.
Segir Spaak þá ráðstöfun gersam
lega ónauðsynlega spillingu belg-
Iskra eigna, því að bækistöðvar
iélagsins hafi ekki komið við
sögu í bardögum í Elisabethville.
Framkvæmdastjórinn U Thant
svaraSi mótmælum Spaaks í dag
og kvað þau ekki hafa við rök að
styðjast. Síðustu daga bardaganna
í Elisabethville hafi herliði Kat-
anga veiið stjórnað frá bæki-
stöðvurr Námafélagsins og þaðan
hafi verið valdið miklu mann-
tjóni i liði eþíópískra hermanna
SÞ. Þvi hafi hermönnum sam-
takanna verið nauðugur einn kost
ur að taka stöðvarnar með valdi.
Papúar á Nýju Guineu
hdta skæruhernaði
ef Indónesar geri innrás
Djakarta, Indónesia, 20. des.
AP-NTB.
Utanríkisráðherra Indónesiu,
Subanrio, sagði á fundi með
fréttamönnum í dag, að Sukarno,
forseti hefði skrifað til vinveittra
aðila í Hollandi og mælzt til þess,
að stuðlað yrði að friðsamlegri
lausn deilunnar um Nýju Guineu.
Barizt á KUbu?
Miami Florida, 20. des. AP.
* EINN af forystumönnum and-
stæðinga Fidels Castros skýrði
frá þvi í dag, að blóðugir hardag-
ar hefðu brotizt út á Kúbu. í
Escambry fjöllum ættust við
Bkæruliðar og hermenn stjórnar-
jnnar. Fyrir tæpri viku bárust
fregnir að Raoul, bróðir Castro
hefði verið sendur til þess að
Stjórna hcrmönnum í átökum við
skæruliða.
Það var Gutier Menoyo, einn
þeirra er harðast börðust gegn
Batista á sínum tíma, sem skýrið
fréttamönnum frá þessu í dag.
Hann sagði stjórn Kúbu hafa lok
að öllum vegum, er lægju til
borgarinnar Sancti Spiritu —
utan aðalveginum og fjölmargir
bændur hefðu verið handtekmr
— sakaðir um að stoð við skæru-
liða. Jafnframt bærust fregnir um
hermenn stjórnarinnar gerðust
tíðum iiðhlaupar og gengju í lið
með uppreisnaxmönnum.
Væri stjórn Indónesiu kunnugt,
að sterk öfl í Hollandi væru þess
fýsandi að deilan leystist sem
fyrst á friðsamlegan hátt.
U Thant, framkvæmdastjóri
S.Þ. hefur skrifað stjórnum Ind-
ónesiu og Hollands samhljóða
bréf og hvatt til viðræðna um
friðsamlega lausn deilunnar.
Fragnir frá Hollandi í dag
herma, að ráðuneytisfundur hafi
verið boðaður síðdegis, til þess að
fjalla um deiluna um Nýju-Gui-
neu. Talsmaður stjórnarinnar
sagði fréttamönnum í tilefni af
skrifum Suikarnos til Hollands, að
hið eina, sem Indónesar væru til
viðræðna um, væri að hollenzka
Nýja-Guinea, yrði formlega al-
gerlega afhent þeim til yfirróða.
Fréttaritari fréttastofunnar
Associated Press, sem gjörla hef-
ur fylgzt með deilu Indónesa og
Hollendinga um Nýju Guineu,
segir, að komi til hernaðarað-
gerða í hollenzku Nýju-Guineu,
eða Irian, eins og Indónesar kalla
þennan hluta eyjarinnar, verði
þeim aldrei eins skjótlokið og
innrás Indiverja í Góa. Ástæðan sé
fyrst og fremst landið sjálft. Til
þess að taka höfuðtoorgina Hol-
landia, á norðurströndinni yrðu
Indónesar til dæmis að fara yfir
hið erfiðasta land — mýrarfen,
regnskóga, þar sem alls kyns
Framhald á bls. 23.
Vestur-Berlínarbúa» hafa <
komið upp fjölda jólatrjáa á j
f> mörknm Austur- og Vestur-
Rerlínar og prýtt þau ljósu*n.<
Vilja þeir á þennan hátt senda<
vinum sínum f yrir austan <
jólakveðjur. — Meðfylgjandi ^
mynd er tekin þegar verið<
var að reisa tré skammt frá<
Brandenborgarhliði.
Það vildi til um síðustu <
helgi að austur-þýzkir lög-
reglumenn tóku að grýta <
jólatrén og brutu af þeim<j
ljósin. Einstaka tré féll í grjót^
hríðinni, en þau voru reist <
jafnharðan aftur.
Auk trjánna hafa verið sett<
upp skilti með áletrunum eins<
og „Við erum samt allirj
bræðnr“ og ,Við munum sam-
einasit.“
Kennedy við sjúkra-
beð föður síns
Washington, 20. des. NTB-AP.
Tilkynnt var í Washington í
dag, að fundur þeirra Kennedys,
Bandaríkjaforseta og Macm<illans
forsætisráðherra Bretlands, yrði
haldinn annaðhvort á fimmtudag
síðdegis og þá á Bermuda — eða
á föstudagsmorgun í Palm Beach
í Florida. Kennedy er þar nú við
sjúkrabeð föður síns, sem fékk
heilablóðfall í gærdag og iiggur
þungt haldinn.
Macmillan hefur sent Kennedy
samúðarskeyti og tjáð sig fúsan
að ræða við hann jhvenær sem er
fyrir jól — eða fresta fundinum,
ef forsetinn kjósi það frekar,
vegna allra aðstæðna.
Pierre Salinger, blaðafulltrúi
forsetans átti fund með frétta-
mönnum í dag. Hafði verið boð-
að, að Kennedy héldi sjálfur
fund, en hann hraðaði sér þegar
í gærkveldi til fundar við fjöl-
skyldu sína í Florida.
Sagði Salinger, að æskilegast
væri að fundur þeirra Kennedys
og Macmillans gæti farið fram á
Bermuda, því þar hefði hann ver-
ið undirbúinn fyrir löngu. Enda
mundi forsetinn fara til Bermuda
svo framarlega sem hann gæti.