Morgunblaðið - 04.02.1962, Blaðsíða 2
2
MORCVNT1T ATílÐ
Sunnudagur 4. febr. 1962
Pptur Hauksson, Stefán Magnússon, Þórður Björnsson, Valtýr Björnsson og Hjörtur Aðal-
stcinsson: „Þiö eruð búnir að tapa.“ ,,Ég veit það. Skiptum liði að nýju.“
ingar, sagði hin.
— En ekki snjókarla.
Örlítið hik varð á svarinu:
Jú, við búum líka til snjó-
karla.
, ★
I sama mund og við vorum
að kveðja þessar nýju vin-
konur okkar bar að stúlku
snöggklædda og vettlinga-
lausa með fangið fullt af
pinklum:
— Hvað ert þú gömul? >
— 11 ára.
— Áttu mörg systkini?
— Ég er þriðja yngst af sjö
systkinum.
— Og þykir skemmtilegt í
snjónum?
— Já, þegar ekki hvessir.
Þá bý ég til snjóhús og snjó-
kerlingar eða fer í snjókast.
— Ekki þó við strákana?
— Jú, einmitt! Ég skýt þá
niður!
★
Þeir voru í ítnjókasti yfir
Hrannarstíg, þrír á móti tveim
ur. í sama mund og okkur bar
að, varð annar þeirra fyrir
skoti. Stóð hann þegar upp
— Við kúskuðum þau einu
sinni, svo að þau fóru að
grenja, bætti sá þriðji við.
Þrjár fongulegar stúlkur
bar að rétt í þessu og spurði
ég þær í mesta grandaleysi:
— Eruð þið í sama bekk og
þessir st ákar?
— Sá tr grænn. Með þess-
um pollam? Ég held nú síð-
ur!
— Þetta eru einhverjir
blaðamenn! sagði önnur
hinna.
Strákunum þótti heldur
hart að standa undir því að
vera bara kallaðir „pollar" og
skáru þegar upp herör gegn
stúlkunum og sendu ótal kúl-
ar á eftir þeim, sem allar geig-
uðu þó En ekki voru þær
fyrr komnar fyrir næsta horn,
en stárk.arnir voru komnir í
har saman á nýjan leik.
Sáum við þá, að ekki fer
ofsögniim af því, hve herskáir
þeir Vesturbæingar eru.
H. Bl.
Við biíum iíka til snjdkerlingar
VIÐ Sveinn ljósmyndari
brugðuni okkur í ferðalag um
Vesturbæinn um hádegisbilið
í gær til að vírða fyrir okkur
snjóinn og krakkana. Mikið
hefur verið látið af því, hve
herskáir Vesturbæingar eru,
og héldum við því, að við
þyrftum ekki lengi að fara,
áður en v.kmgar og berserkir
birtust Okkur. En það var öðru
nær. Við 'nöfðum farið Melana
alla, Hringbraut og Framnes-
veg, án þess nokkuð bæri til
tíðinda. Þótti okkur Vestur-
bæinguin heldur aftur farið,
er við skyndilega á öldugötu
sáum knáan knapa á glófext-
um gæðingi; hétu Ingi Erlings
son og Gísli Tómasson.
— Má ég taka mynd af ykk
ur, spurði Sveinn.
— Nei, sögðu báðir og
hristu höfuðið.
— Eruð þið að sendast?
— Já, ég er að sendast.
— Nei, þú ert ekkert að
sendast, það er ég, sem er að
sendast fyrir mömmu mína,
sagði knapinn þurr á mann-
inn.
— En hann ber bögglana?
— Já, hann er hesturinn,
þess vegna ber hann bögglana.
— Er hann skaflajárnaður?
spurði ég.
Þegar þeir létu sem þeir
heyrðu þetta ekki, bætti ég
við:
— Finnst ykkur ekki
skemmtilegt í snjónum?
— Það er ekkert gaman að
snjónum, sagði annar þeirra
og hinn:
— Þó er mest gaman að
kasta í hina strákana.
Skömmu síðar sáum við
tvær stúlkur ganga niður
Unnarstíg og sugu þær snjó-
bolta. Þær kváðust heita Lára
Helga Sveinsdóttir og Helga
Gunnarsdóttir.
— Hvert eruð þið að fara?
— Niður í bæ að verzla.
— Og hvað ætlið þið að
verzla?
Þeim var lítið um þessa
spurningu og litu laumulega
hvor á aðra. Loks sagði önn-
ur:
— Við ætlum að kaupa
stílabók.
— Til að nota í skólanum?
— Já.
— í hvaða skóla eruð þið?
Ég er 1 ísaksskóla, en hún
er í tímakennslu á Ránar-
götunni, sagði sú stærri.
— Við búum til snjókerl-
aftur að hætti Einherja, en
okkur til undrunar veittist
hann ekki að fjendum sínum
á ný, heluur snerist gegn sín-
um fyrri samherja. Voru nú
fjórir móti einum, en þar sem
enginn má við margnum, féll
hann innan stundar eftir hetju
lega vörn. Lustu hinir þá upp
fagnaðarópi. í því komu þeir
auga á okkur Svein og tóku
karlmannlega á móti okkur:
— Ykkur finnst snjókast
skemmtilegt?
— Ja-há.
— Og er ekki mest gaman
að kasta í stúlkurnar?
— Nenei.
— Jú, sagði annar. Við
stelpurnar í okkar bekk; þær
eru alltat með hinum strák-
unum.
Ásdís Gunnarsdóttir.
„Mér er ekkert kalt.“
IÆSHRINGIH:
Leshringur um bókmenntir og
listir verður í Valhöll mánudag
inn 5. febr. kl. 8:30.
MÁLFUNDUR:
verður þriðjudaginn 6. feibr. i
Valhöll kl. 8:30 — Umræðu-
efni: Er „friðsamleg samíbúð“ við
kommúnistaríkin möguleg? —
Frummælandi: Hörður Einarsson,
BRIDGE-MÓTI
því, sem átiti að hefjast mánu
daginn 5. febrúar er freetað
vegna húsnæðisskorts til mánu
dagsins 12. febrúar.
m%mmmm%mmm%mmmm%mmmm%m
Ranghermið um
sandgræðsluna
■
í TÍMANUM í gær er um það
rætt, að Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráðherra, hafi
ekki talið eðlilegt að sam-
þykktar séu á Alþingi tillög-
ur, sem stjómarandstaðan beri
fram. Hér er um hreina blekk
ingu að ræða. Ummæli ráð-
herrans eiga að hafa komið
fram í umræðum um frum-
varp um tekjuöflun til sand-
græðslu. Ríkisstjómin hefur
haft það mál til athugunar,
en um það hafa verið skiptar
skoðanir. Tveir Framsóknar-
þingmenn hafa tekið þann
kost að flytja frumvarpið, sem
er í athugun hjá ríkisstjóm-
inni og gera það að sínu máU,
í stað þess að koma fram með
sjáifstæða tillögu. Ingólfur
Jónsson komst m.a. svo að
orði í ræðu sinni, að stjórnar
flokkarnir samþykktu ekki
þetta frumvarp frekar fyrir
það, þótt Framsóknarmenn
hafi flutt það úr því að ekki
var samstaða um það meðan
það var í athugun hjá ríkis-
stjórninni.
Ef Framsóknarmenn hefðu
komið með sjálfstæðar tillögur
væri vitanlega sjálfsagt, að
stjórnarflokkamir athuguðu
þær og fylgdu þeim, ef þær
stæðu til bóta. Um slíkt er
hér ekki að raeða, og því
hreinn útúrsnúningur hjá
Tímanum, þegar hann fullyrð
ir í gær að Ingólfur Jónssson
hafi sagt, „að stjómarliðið og
rikisstjórnin teldi sig ekki
geta fylgt tillögum, sem stjórn
arandstaðan bæri fram, þótt
áhugi kynni að vera fyrir mál-
inu, og um réttlætis- og sann-
gimismál væri að ræða“, eins
og stendur í blaðinu.
Bílaeigendur greiða
250—300 millj. í skatta
Morgunblaðiniu hofur nýlega bor
izt 2. tbl. ársins 1961 af Ökwþór,
blaði Félags íslenzkra bifreiða-
eigenda. •
í bláðinu er m.a. ýtarleg skýrsla
um hin ýmsu störf félagsins á
liðnu ári, þar er rakið eitt hielzta
baráttumál félagsins, um aukna
og bætta þjónustu við bifreiðaeig
Skaðabótakröfur
á heiidur SABENA
New York, 3. fébrúar.
— (NTB — Reuter)
G E R Ð A R hafa verið átta
skaðabótakröfur á hendur
belgíska flugfélaginu SAB-
ENA — samtals um 10 millj.
dali — vegna flugslyssins,
er 18 heztu listskautamenn
Bandaríkjanna fórust 15.
febrúar 1961. Þeir voru á
leið á heimsmeistarakeppn-
ina í Prag.
Flestar kröfurnar eru frá
skyldimennujn þeirra sem fórust,
en því er haldið fram af banda-
ri'iskri hálfu, að flugfélagið hafi
gert sig sekt um ónauðsynlega
vanrækslu á flugumsjón er slys
ið vairð Og ennfremur hafi í ein
hverju verið áifiáit um stjórlí vél
arinnar.
endur, og segir þar m.a.: „Hinir
sérstöku skattar, sem bifreiðaeig
endur greiða árlega til ríkissjóðs
af bílum og rekstrarvörum þejrra
nema um 250—300 millj. kr. Árið
1960 var fjárfesting til vega og
brúa aðeins 110 millj. kr. Ríkis
sjóður legguir því fram til vega
og brúa, ekki nema % af þeion
tekjum, sem hann hiefur af öku
taskjuim og rekstrarvöruan
þeirra".
Þá er skýrsla um vegaþjónuistu
félagisins, sem starfrækt var um
þrjár mestu umferðáhelgar á s.l
sumri og þótti gefa hina beztti
raun. Á fjölförnustu leiðunuma
voru þrír kranabílar með tal-
stöðvum auk einkabíla félags-
manna, bæði með og án talstöðva,
er veittu ökumönnum aðstoð. —•
Alls hlutu á fyrrnefndu tímabili
1034 bifreiðar aðstoðar á vegum
þjónustunnar. — Félagið hefuf
hug á því, að auka verulega þessa-
starfsemi núna á sumri kotnandi.
Grein er um Bíiaskoðun h.f.,
er hóf starfsemi sína í Reykjavífc
hinn 13. júlí s.l. — Auk þess
eru margar myndskreýttar grein
ar um ýmis tækmileg atriði, við
komandi bifreiðum, svo sem um
ný framkomna gerð af vökva-
drifi, um ryðvarnir, hjólbarða, og
ýmsar tilraúnir bifreiðaverk-
smiðja til aukinnar þróunnar i
bifreiðaiðnaði.
Eins og kortið sýnir, var
rtormsveipur við SA-ströndina
f gærmorgun, og var rigning
eða slydda á undan honum, en
hörð él á eftir. Veðurhæðin
komst í 12—13 vindstig á Stór
höfða. — Veður eru nú með
fádæmum óstillt hér á landi,
og í suðvesturhorni kortsíns
glittir í nýtt hríðarbelti, sem
á sennilega,eftir að koma hér
við.