Morgunblaðið - 04.02.1962, Side 23
f Sunnudaffur 4 febr. 1962
MORG1JTSBL AÐIÐ
23
Æíður fyrir fall-
hlífastökk
IIANN er heldur betur út-
búinn hundurinn á myndinni,
enda merkishundur. Hann er
fimm ára, heitir Tudor, og er
verið að æfa hann undir fall
hlífarstökk. Hann hefur verið
æfður í að finna særða og
látna, þegar slys ber að hönd-
um, og er einn ágætasti starfs
kraftur.
Enska knaHspyrnan
¥!. tTMFERÐ ensku deildarkeppninn Chelsea — West Ham 0:1
ar fór fram í gaar og urðu úrslit þessi: Ipswich — Everton 4:2
Leicester — Fulham 4:1
1. deild: Manohester U. Cardiff 3:0
Arsenal — W. B. A. 0:1 N. Forest — Blackpool 3:4
Aston. Villa — Blackburn 1:0 Sheffield W. — Sheffield U. 1:2
Bolton — Manchester City 0:2 Wolverhampton — Tottenham 3:1
Burnley — Birmingham 7:1
Dregið í
happdrætti
DAS
Í'GÆR var dregið í 10. fl. Happ-
drættis D.A.S. um 55 vinninga
og féllu vinningar þannig:
1 4ra herb. ÍBÚÐ Ljósheimum 20
tilbúin undir tréverk kom á nr.
24595. Umboð Aðalumboð. Eig-
endi Egill Hjálmarsson, Laufás-
vegi 73.
2ja herb. ÍBÚÐ Ljósheimum 20
tilbúin undir tréverk kom á nr.
6850. Umboð Ólafsfjörður. Eig-
«ndi Randver Sæmundsson.
OPEL Rekord fólksbifreið Jcom
é' nr. 44197. Umboð Aðalumboð
Eigandi Kristmundur Jakobsson,
Austurbrún 23.
MOSKVITCH fólksbifreið kom
é nr. 7602. Umboð Aðalumboð.
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir kr. 10.000,00 hvert:
2891. 29457 (Aðalumboð) 46878
(Sjóbúð), 49169 (Hreyfill), 55900
(Aðalumboð).
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
®ð fyrir kr. 5.000,00 hvert:
213 (Aðalumboð), 3123 (Hvera-
gerði), 4061 (Hvammstangi),
4128 (Stykkishólmur), 5854 (Rétt
arholt), 6194 (Selfoss), 6869,
7981, 8712, 14443, 15140 (Aðalum-
Iboð), 16002 (Vestm.), 17577,
18602, 19302 (Aðalumboð), 20170
(Reyðarfj.), 21936 (Siglufj.),
22073 (Hafnarfj.), 22904 (Aðal-
umboð), 23241 (Akureyri). 24242
(Aðalumboð), 25208 (B.S.R.),
25965 (Aðalumboð), 27096 (Kefla
vík) 27628, 27968 (Aðalumboð),
30975 (Svalbarðseyri), 34075
(Keflav.flugv.), 35598 (Aðalum-
Iboð), 37142 (Straumnes), 40094
(ísafjörður), 40459 (Keflavík),
44869 (Aðalumboð), 46563 (Kefla
vík), 50381 (Húsavík), 51080
(Hreyfill), 51427 (Hella), 52383,
52385, 58830 (Aðalumboð), 59602
(Siglufj.), 60799, 61138, 61789,
63599. 63901 (Aðalumboð).
2. deild:
Charlton — Bury 1:0
Huddersfield — Middlesbrough 0:0
L. Orient — B. Rovers 2:3
Liverpool — Brighton 3:1
Plymouth — Walsal? 2:1
Preston — Derby 1:0
Southampton — Luton 3:0
Stoke — Leeds 2:1
Sunderland — Norwich 2:0
í §kotlandi urðu úrslit m.a. þessi:
Aberdeen — St. Mirren 3:1
Kilmamock — Dundee 1:1
Rangers — Airdrie 4:0
Staðan er nú þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin):
Burnley .. 25 17-3-5 79:46 37 st.
Ipswich ... 27 15-3-9 63:49 33 —
Tottenham .... 27 14-5-8 52:41 33 —
West Ham .... 27 14-5-8 57:50 33 —
Everton ... 14-4-9 52:35 32 —
M. City .. 27 10-3-14 50:61 23 st.
N. Forest ... 27 8-6-13 43:52 22 —
Fulham 27 7-5-15 38:51 19 —
Chelsea ... 28 7-5-16 47:63 19 —
2. deild (efstu og neðstu liðin):
Liverpool .... 27 18-4-5 65:26 40 st.
L. Orient ... 27 16-5-6 54:28 37 —
Southampt. . . 28 14-6-8 54:37 34 —
Leeds 27 8-5-14 33:46 21 st.
Middlesbr. .... 26 7-6-13 46:51 20 —
B. Rovers .... 28 9-2-17 37:56 20 —
Charlton ... 25 7-5-13 36:48 19 —
í Skotlandi er Dundee efst með 37
stig, Rangers eru í öðru sæti með 32
stig og Clyde nr. 3 með 31 st.
— Adoula
Frh. af bls. 1.
Adouila verður sex daga í New
York og roun meðal annars ræða
við Kennedy Bandarilkjaforseta.
U Thant framkvæmdasitjóri SÞ
skrifaði fyrir rúmri viku stjórn-
um þeirra ríkja, sem hafa sent
herlið til Kongó Og bað þau
auka herafla sinn og jafnfram.t
hvetja aðrar þjóðir, einkuim
Afríkuþjóðir til þess að senda
Sameinuðu þjóðunum herlið.
Jafnframt notaði fraimkvæmda
stjórinn tækifærið til þess að
og hjá þeim einum ættu Kongó
þakka sérstaklega frammistöðu
hermanna frá Eþiópíu, írlandi,
Indftandi, Malaya og Svíþjóð, sem
aettu hvað mestan heiður af vel
heppnuðum aðgerðum í Kongó.
— /jbröff/V
Framh. af bls. 22.
íþróttamanna hingað til lands-
ins, var árið 1919. Þá komu hing-
að — á vegum ÍSÍ — danskir
knattspyrnumenn, frá Akadem-
isk Boldklub í Kaupmannahöfn.
— Næsta heimsóknin var frá
Noregi 1921, — voru það fim-
leikamenn frá Osló Turnforen-
ing, sem sýndu fimleika víða um
land. — Báðar þessar heimsóknir
tókust giftusamlega — og komu
að miklum notum fyrir íþrótta-
menn vora, og þá sérstaklega
fyrir þá, sem þessar íþróttir iðk-
uðu. — Síðan rak hver heim-
sóknin aðra — og skömmu síðar
hófust utanfarir íþróttamanna og
flokka, er höfðu mikla þýðingu
fyrir ÍSÍ og íþróttahreyfinguna,
sem hafði þá litla keppnis-
reynslu. Þó er það ekki fyrr en
hin síðari árin, sem að íþrótta-
menn vorir hafa fengið þá
keppnis-reynslu og samkeppni
við aðrar þjóðir, sem sýnir þeim,
hvað þeir hafa náð langt í íþrótt
sinni.
Á fyrsta áratug ÍSÍ, sendi Sam
bandsstjórnm frá sér nokkur
„OPIN BP.ÉF“ ti4 þjóðarinnar,
þar sem hún var hvött til íþrótta-
iðkana og vakin athygli á gagn
semi og hollustu íþróttanna, fyrir
einstaklinginn og þjóðarheildina.
Jafnframt var skorað á löggjöf-
ann háttv. Alþingi —, að gera fim
leika, glíniuna okkar og. sund, að
skyldunámsgreinum í skólum
landsins — Árin liðu, — og
margir fundir voru haldnir um
þessi menmngarmál, sem mörg-
um þótti ganga grátlega seint,
— og ekki tekið undir þessi til
mæli ÍSÍ, sem skyldi. — En öll
góð og gagnleg málefni sigra um
síðir, —- og svo var - um þessi
nytsömu tnenningarmál.
ÍÞRÓTTALÖGIN voru sam-
þykkt á Alþingi, þann 12. febrú-
ar 1940, eftir nokkrar deilur
en þau marka tímamót í sögu
íþróttanna hér á landi; einkum
hvað viðkemur íþróttakennslu
skólunum, — svo og um bygg-
ingu íþrótta-mannvirkja. Nú eru
t. d. yfir 80 sundlaugar Og sund
hallir í landinu, enda almenn
sundskylda til ómetanlegs gagns
og gleði fyrir landsmenn. — Það
er uppeldisgildi íþróttanna, sem
mestu máli skiptir og hefir mesta
þýðingu fvrir þjóðina.-------
Þá var ekki lítil baráttan, um
byggingu sundhallar hér í höfuð
staðnum, þar sem flestir lands-
menn búa. ÍSÍ hafði borið málið
fram, og meðal annars haldið
tvo borgara-fundi um málið —
1925 og 1926, þar sem nokkrir
þjóðkunnir menn, tóku til máls
og hvöttu til athafna og fram-
kvæmda — og eru nokkrir þeirra
staddir hér í dág. — Það yrði of
langt mál að fara hér að rekja
sögu sundhallarmálsins, enda
óþarft, þar sem flestum er sú
saga kunn. — En góðs viti var
það, fyrir sundmennt lands-
manna, begar sundhöllin var
loksins vígð — þann 23. marz
1937, — að allir flokkar vildu
þakka sér framkvæmdirnar,
þrátt fyrir baráttu ÍSÍ og borg-
arafundi um málið. En svo var
sundhallarmálið þá orðið vinsælt
að lokum. Já, fundirnir voru
orðnir margir um sundhöllina,
— þess heilsulind höfuðstaða-
búa, — og önnur áhugamál ÍSÍ,
sem of langt yrði að fara að
rekja hér á þeim stutta tíma,
sem mér er ætlaður. En til fróð-
leiks skal þess getið að stjórn-
endur ÍSÍ, hafa á þessum fimm-
tíu árum, haldið yfir tvö þúsund
bókaða fundi eða fjörutíu fundi
á ári, að meðaltali. Þessar tölur
tala sínu skýra og skemmtilega
máli, um hið fórnfúsa áhugastarf
stjórnenda ÍSÍ í hálfa öld. — En
það eru ekki allir sammála um
þýðingu slíkra fundarhalda, —
'þótt verkin sýni oft merkin. —
Fundarhöld áhugamanna eru
nauðsynleg, enda mjög gagnleg
fyrir þau ruálefni, sem barizt er
fyrir hverju sinni.------- Einn
mesti ljóður á íþróttahreyfing-
unni, — að mínu áliti, er það —
hve margir hverfa snemma frá
félagslegum störfum; margir um
leið og þeir hætta að keppa, —
einmitt þegar þeir hafa hlotið
dýrmæta reynslu í áhugastarf-
inu. Um aldurinn þarf ekki að
ræða í þessu sambandi; allir vita
að hann fer ekki alltaf eftir ald-
urs-árunum. —
Hægfara þróun er bezt og
öruggust í íþróttum, sem öðrum
menningarmálum. Menn geta of
reynt sig í stóru stökkunum, —
ef þeir eru ekki nógu vel þjálf-
aðir. Enginn stekkur hærra en
hann hugsar eða hleypur lengra.
— Andinn fer fyrir í þessu,
sem öðru. — — —
Ég gat þess áðan, að stofnfé-
lög ÍSÍ hefðu aðeins verið tólf;
en að þróunin hefði haldið á-
fram óslitið, — þrátt fyrir að
ÍSÍ var ekki spáð langlífi á
bernskuárunum. í dag hefi ég
þá ánægju, að skýra yður frá
þvi, að nú hafa öll starfandi
Héraðasambönd í landinu, geng-
ið í ÍSÍ — og eru þá sambands-
félög 230 að tölu, með um 25
þúsund félagsmönnum um allt
land.Síðasta héraðasambandið,
sem gekk í ÍSÍ nú í fyrradag var
Ungmennasamband Vestur-Hún-
vetninga. Það var góð og glæsi-
leg afmælisgjöf. —
Aldrei hefir æskan í landinu
verið mannvænlegri og myndar-
legri, en í dag, enda má segja
að allur aðbúnaður, jafnt húsa-
kynni sem viðurværi, hafi aldrei
verið betra hér á landi. Þessi
mannvænlega og tápmikla æska,
þarf viðfangsefni við sitt hæfi;
— ég þekki fátt betra en íþrótt-
imar. Þær auka ekki aðeins
vöðva-aflið, heldur þjálfa og
skapgerðina. Kenna unglingum
að láta ekki skapið hlaupa með
sig í gönur, — heldur reyna
að hugsa rétt og vilja vel. —
íþróttamaðurinn á að hafa taum
hald á skapi sínu og skapsmun-
um og láta andlega og líkam-
lega orku haldast í hendur. —-
Þannig geta iþróttirnar skapað
dáðríka drengskaparmenn. —
Hinar fjölþættu íþróttasýningar,
sem fara fram hér á eftir á leik
sviðinu, eiga að gefa háttvirt-
um áhorfendum nokkra hug-
mynd um þróun íþrótta hér á
landi. — Að lokum vil ég leyfa
mér að þakka öllum, lífs og
liðnum, sem stutt hafa ÍSÍ og
styrkt í þá hálfa öld, sem liðin
er frá stofnun þess. Megi íþrótta
samband íslands halda áfram að
blessast og blómgast í því menn
ingarstarfi, að gera drengi að
mönnum og menn að góðum
drengjum. —
— Sr. Bjarni
Framh. af bls. 6.
Bakkastígnum. Þar var um tíma
samkomui sem Friðrik Friðriks-
son hélt, þaðan ómaði sálmasöng-
ur. Ég kom þangað, og ég gleymi
því aldrei sr. Bjarni; ég vona að
þú fyrirgefur mér ég skyldi gjör-
ast svo djörf að bjóða þér með
mér á þessa göngu um Vesturgöt-
una.
Mér þykir ákaflega vænt um
Vesturbæinn, og sérstaklega
Vesturgötuna, þar sem ég er
fædd og uppalin. Þú skilur sr.
Bjarni, bað eru meira en gömul
hús og gatan sjálf, sem heillar
Og minningarnar skapa það er
líka ómurinn, eloki aðeins af
söngnum heidur og af fegurð-
inni og hinu tæra lofti og eins og
skáldið segir:
„því sjálfur er Vesturbærinn
heimur , sem kynslóðir hlóðu.
með sálir sem syrgja og gleðjast
og sálir, sem hittast og kveðjast
á strönd hinnar miklu móðu.
Eygló Gísladóttir.
— Leikfélagið
Framhald af bls. 15.
salinn, þegar þeim er mikið
niðri fyrir, er hvorki heppilegur
né viðeigandi í verki sem látið
er gerast nú á tímum í nýtízku-
legustu íbúð.
Leiktjöld Steinþórs Sigurðsson
ar voru einföid og stílhrein. Þau
sköpuðu hæf.'lega kalda umgerð
um þennan kaldranalega leik
með hugniyndir og leiksoppa
þeirra. Þýðiug Ingu Laxness virt
ist mér góð og þjál í munni. Sam-
tölin í þessum ensku setustofu-
leikritum eru alltaf dálítið upp-
hafin eða tilgerðarleg, og kemur
það vel fxa:n í þýðingunni.
Um leikendur er það að segja, "
að þeir skiluðu áhorfendum
spennandi sýningu með samfelld
um heildarsvip, þó ýmislegt
megi að henni finna. Sigríður
Hagalín fer með viðamesta hlut-
verk leiksms og gerir því mjög
góð skil. Li-ikur hennar er hljóð-
látur og heilsteyptur, túlkar
þessa bældu og vonsviknu mann-
eskju með innri glóð sem nær
sterkum tökum á áhorfandan-
um.
Helga Bathmann fer með all-
erfitt hlutverk, túlkar í senn
kulda og vonbrigði ástlausrar
konu og geðshræringar ástkon-
unnar, þegar heiður hins látna
elskhuga er i veði. Helga túlkaði
tíguleik og kulda þessarar hefðar
frúar af verulegum sannfæring-
arkrafti, en þegar út í geðshrær-
ingarnar kom, var eins og útlínur
persónunnax óskýrðust.
Guðrún Ásmundsdóttir fer
með hlut'/urk ungrar konu sem
er saklausc fiðrildi á yfirborðinu
en býr yfir sterkum kvenlegum
hvötum undir niðri. Hún túlkar
fiðrildið rojög vel, en ástríðu-
konuna síður. Leikur hennar vtir
með köflum dálítið ýktur og hún
var óþarflega óróleg í andlitinu,
því það spillti heildarsvipnum á
leik hennar.
Guðrún Stephensen fer með
lítið hlutverk og skilar því lag-
lega, en sam.t vantar herzlumun-
inn að hún sannfæri mann. Þessi
kona, Maud Mockridge, lifði ekki
á sviðinu, heldur var leikin þar.
Sennilega skortir Guðrúnu réttan
aldur til að gera hlutverkinu
æskileg skil.
Helgi Skúiason fer með aðal-
karlmannshlutverkið og gerir
rnargt vel, en á úrslitastundum
er eins og hann valdi ekki hlut-
verkinu fuilkomlega. Geðshrær-
ingar hans eru alltof mikið á
yfirborðinu, i nandapati og grett
um, en kom? ekki innan frá.
Samt gerði hann persónuna
minnisstæða í ótrúlegum barna-
skap sínum og sakleysi.
Guðmundur Pálsson leikur
kænan mann og karlmannlegan,
gerir kaldnæðni hans góð skil,
en er einhvern veginn allur of
stífur og óoveigjanlegur. Sérstak-
lega fóru stöður hans á sviðs-
brúninni í taugarnar á mér, en
það er kannski sérvizka.
Birgir Brynjólfsson leikur
kynvilltan ungan mann, fullan
af sálflækjum, og er þetta bezta
hlutverk sem ég hef séð hann
skiia. En hann er ennþá alltof
fjörugur i andlitinu, þessar sí-
felldur fettur og brettur eru til
lýta, og röddin er stundum óþarf
lega tilgerðarleg eða klökk, ég
veit ekki hvort heldur.
Sýningunni var mjög vel tek-
ið af áhorfendum og voru leik-
arar margkaiiaðir fram ásamt
leikstjóra og leiktjaldamálara.
Leikrftið ætti að geta orðið vin-
sælt, því það er bæði spennandi
og aukskilið. en þar ristir hvergi
sérlega djúpt.
Sigurður A. Magnússon.
Konan mín
KRIbTBJóRG SVEINSDÓTTIR
sem lézt 29. jan. s.l. verður jarðsett frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 6 febr. kl. 1,30.
Fyrir mína hörd og annarra aðstandenda.
Magnús Magnússon, Langholtsvegi 78.