Morgunblaðið - 14.02.1962, Qupperneq 1
24 sitkir
49. árgangur
37. tbl. — Miðvikudagur 14. febrúar 1962
Prentsmiðja Mrrgunblaðsins
Svar Vesturveld-
anna á næsta leiti
Reyna sennilega að samræma tillognr
sínar og Krúsjeffs
• TALIÐ er fullvíst, að stjórnir
Bretlands og Bandaríkjanna
muni innan skamms svara
orðsendingu Krúsjeffs, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna. Þar lagði
hann til, að haldinn yrði í Genf
fundur leiðtoga þeirra ríkja, er
aðild eiga að afvopnunarráðstefn-
unni, sem á að hef jast þar í borg
14. marz nk.
• Erlendir stjórnarrerindrekar í
Moskvu telja, að Krúsjeff
muni fara tU ráðstefnunnar
hvernig svo sem svar Vestur-
veldanna verður. En af ræðu
Macmillans á þingi í dag má
ætla, að stjórnir Vesturveldanna
leggi til í svari sínu að sjónar-
mið beggja verði samræmd —
að ráðstefnan hefjist með fundi
utanríkisráðherra aðUdarríkj-
anna, en leiðtogafundur verði
haldinn nokkru síðar, þegar ein-
hver árangur hafi komið í ljós
af ráðstefnunni.
Talsimaður utanríkisráðuneyt-
isins brezka sagði við fréttamenn
á dag, að brezka stjómin ætti
samráð urn þetta mál við stjórn-
ir Bandaríkjanna Kanada, Frakk
iandB og Ítalíu — þ.e.a.s þeirra
vesturveldanna, sem eiga aðild
að ráðstefnunni í Gemf.
Beynt að samræma.
Harold Macimi/llan svaraði í
diag fyrirspurnum um tillögu
Krússj offs í neðri málstafu
brezka þingsins. Krafðist Hugh
Gaitsikell, leiðtogi verkamanna-
flokksins þess, að forsætisráð-
herrann gerði grein fyrir skoðun
sinni á tillögu sovézka forsætis--
ráðherrans.
Maomillan svaraði, að tillögu
Krúsjeffs væri tekið með mestu
vinsemd. Hún væri lögð fram á
breiðum gruodvelli og yrði reynt
að samræma tillögur beggja.
Leiðtogafundur gæti orðið mikil
vægur, en hæpið væri, að hann
gæti haft hagnýta þýðingu þegar
í upphwfi ráöstef nu nmar. Auk
þess væri slxkur fundur noikkuð
þungur í vöfum og kynni að
verða erfitt að ljúka tilskildum
undirhúningi í tæka tíð.
• De Gaulle ófús.
Talsmaður Kristilegra demó-
krata í Bonn sagði í dag, að ó-
líklegt væri að slíkur fundur
Adoula til Rúss-
lands
Leopoldville, 13. febr.
NTB-AFP
TILKYNNT var í Leopoldville í
dag, að Cyrylle Adouila, forsætis
ráðherra Kongó fari í opinbera
heimsókn til Rússlands á sumri
komanda. Ekki er nánar ákveð-
ið hvenær — en ferð þessi var
ákveðin er þeir Adoula og Valer-
ian Zorin, fastafulltrúi Sovét-
etjórnarinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum, ræddust við i New
York fyrri skömmu.
gæti borið verulegan árangur.
Ekkert hefur verið látið uppi um
afstöðu frönsku stjórnarinnar í
dag, en ólíklegt þykir, að de
Gauile fáist til að sitja slíkan
leiðtogafumd. Hann heifur hivað
eftir annað látið í Ijós vantrú
sína á gildi samndnigafunidar við
Sovétstjórnina — hvað þá á svo
fjöimennum leiðtogaifundi.
Hins vegar eru margir stjórn-
málafréttaritarar þeirrar Skoð-
unar, að búast megi við því, að
þeir Krúsjeff, Macmillan og
Kennedy forseti komi saman til
fundar einlhrvem tíimia á þeseu
árL
Bylting í
sögu erfða-
fræðinnar
Lausn á dulmáli
erfðanna skammt
undan
Sjá grein á bls. 10.
I
Hundruð Þúsunda manna
r
I
í París
Allsherjarverkfall í nokkrar klst. — Um-
ferð stoðvuð — skólum og verksmiðjum
lokað — borgin gas og rafmagnslaus
París og Algeirsborg, 13.
febr. — AP—NTB
NOKKURRA klukkustunda alls-
herjarverkfall varð víða í Frakk-
landi í dag, meðan fram fór í
París útför átta manna, sem lét-
ust í óeirðunum þar síðastliðinn
fimmtudag. Hundruð þúsunda
manna tóku þátt í líkfylgdinni,
þar á meðal margir kunnir stjórn
málam.enn í Frakklandi, t.d.
Pierre Mendes-France, fyrrver-
andi forsætisráðherra Frakk-
lands og kommúnistafoinginn
Maurice Thorez.
Útförin, sem var hin hátíðleg-
asta, fór fram í kirkj ugarðinum
Pere Lachaise, þar sem margir
kunnir menn hafa verið grafnir.
Flugvélar, neðanjarðarbrautir og
sporvagnar stöðvuðu alla umferð
í margar klukkustundir og eng-
in blöð komu út. Aðeins var út-
| varpað tónlist en venjulegt dag-
skrárefni féll niður. Borgin var
I öll gas- og rafmagnslaus um tíma
og verksmiðjum og skólum var
lokað. Stjórnin hafði bannað
allar fjöldasamkomur og úti-
| fundi, en aflétti banninu, að því
er snerti útförina. Verkalýðsfé-
lögin höfðu skipulagt eigin varð-
lið, sem sáu um að gangan færi
fram með friði og spekt og lög-
reglan stjórnaði umferð með
röggsemi og aðstoðaði gönguna.
•k Fauk fram af bakkanum
Djúp þögn ríkti í kirkjugarð
inum meðan útförin fór fram.
Fjórir hinna látnu voru grafnir
annars staðar í Frakklandi, en
kisturnar voru engu að síður
átta — fjórar tómar, sem eins-
konar tákn. Hvassviðri var með-
an á atlhöfninni stóð og vildi svo
til að ein af tómu kistunum fauk
fram af grafarbakkanum.
Margir menn fluttu ávörp og
minningarræður, þeirra á meðal
formaður franska stúdentafélags-
ins, Dominque Wallon og fulltrúi
kaþólska verkalýðssambandsins,
Robert Duvivier, sem báðir lögðu
áherzlu á að lífum hinna átta
látnu hefði verið fórnað á altari
Framhald á bls. 23.
Á sunnudag og mánudag
gengu óveður mikil yfir stór
svæði I Evrópu. Urðu víða
stórskemmdir á húsum, skip-
um og bifreiðum og í Bret-
landi fórust fimm manns.
Stærri myndin er tekin á
Hanoverstræti í Leeds í Bret
landi, og sýnir bifreið, sem
orðið hefur fyrir braki úr
nærliggjandi húsum.
Hin myndin er af húsinu
við Rendsborggade 37 í
Holstebro í Danmörku. Þak
af öðru liúsi kom svífandi,
Ienti á húsgaflinum og braut
hann eins og myndin sýnir.
Breytingar á
Kongó stjórn
Leopoldvelle, 13. febrúar
NTB-Reuter
FRÉTTASTOFA ACP í Kongó
sagði frá þ<rí í kvöld, að gerð
hefði verið breyting á stjórn
Cyrille Adoula Hefur verið skipt
um innanríkisráðherra landsins
— Christhopher Gbenye farinn
frá en í stað hans kemur Cleop-
has Kamitatu.
Kamitatu er forseti Leopcdd-
ville-héraðsins og var áður fyrr
mikill stuðningsmaður Lumumba.
Bbenye var einnig stuðningsmað-
ur Lumumba — en hefur um
hrið sætt gagnrýni vegna ein-
dreginnar hollustu hans við
Antoine Gizenga. Gbenye verður
nú aðstoðarráðherra. — I>á hefur
Jean Bolikango verið skipaður
aðstoðarforsætisráðherra í stað
Antoines Gizenga.
R fjórða þúsund handteknir í
herferð gegn eiturfiyfjnsölu
Seoul, S-Kóreu, 13. febr.
AP.
TILKYNNT var í Seoul í dag, að
lögregla S-Kóreu hefði tekið
höndum 3,641 menn og konur,
sem voru viðriðin eiturlyfjanotk
un og söiu. Handtökurnar fóru
fram á tímabilinu 10. jan.—10.
febrúar í ítaiiegri herferð, sem
farin var gegn þessum ófögnuði.
I.agðar voru hendur á eiturlyf,
sem að verðmætí námu rúmlega
17 milljónum kr. (ísl.).
Þess er vænzt að dauðarefsing-
ar verði krafizt yfir 166 hinna
handteknu — þeirra á meðal kin-
verskum hjónum, sem höfðu í
fórum sínuni 755 grömni af ópí-
um.
Skamrnt er síðan sett voru sér-
stök lóg, sem gera ráð fyrir því
að dauðarefsing liggi við ef meira
en 100 grómm eiturlyfja finnst í
fórum einstaklings, sem áður
hefur verið hanubekinn fyrxr
I sömu sakir.