Morgunblaðið - 14.02.1962, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 14. febr. 1962
MORCUISBL 4f)lÐ
9
Mikíll fjöldi sótti starfs-
fræðsludag sjávarútvegsins
A N N A R starfsfræðsludagur
sjávarútvegsins var haldinn í
Sjómannaskólanum sl. sunnudag.
Ólafur Gunnarsson, sálfræðing-
ur annaðist skipulag dagsins í
samráði við forustumenn fjölda
skóla og stofnana.
Veittar voru upplýsingar um
nærri 50 starfsgreinar og stofn-
anir.
Veður var með afbrigðum
vont þannig að jafnvel bílaum-
ferð í Reykjavík tafðist vegna
óveðursins. Eigi að síður sóttu
starfsfræðsluna 1125 manns og
höfðu margir orð á því að
drengirnir stæðu sig vel þegar
þeir brutust yfir holtið, sem
Sjómannaskólinn stendur á í
roki og byl. Voru þeir snjóbarð-
ir eins og gamlir fjármenn sem
koma inn úr gegningum þegar
inn í skólann kom. Einum varð
að orði um leið og hann kom
inn snjóugur frá hvirfli til ilja:
„hað var gott, að ég fór ekki
í sparifötin mín.“
13000 sóttu sýningar
Sjóvinnunámskeið Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur sáu um starfs
sýningu í Sjóvinnusal Stýri-
mannaskólans og sýndu auk þess
kvikmyndir í Stýrimannaskólan-
um. Var mikil aðsókn að þess-
um sýningum eða alls um 13000,
þannig að margir hafa sótt báð-
ar. Ungu ínennirnir, sem sýndu
sjóvinnubrögðin voru sýnilega
mjög áhugasamir enda eins kon-
ar lærimeistarar jafnaldra
sinna þennan dag.
Fiskimat ríkisins hafði mjög
vel skipulagða og fróðlega sýn-
ingu á gæðum og útliti fisks
með ýmsum verkunaraðferðum.
Voru fiskimatsmennirnir hinir
ákjósanlegustu fræðarar um
þessi mál enda kunnu ungling-
arnir vel að nota áhuga þeirra
og lífræna frásögn.
Á sömu hæð var fræðsla um
Matsveina- og veitingaþjónaskól
ann og störf matsveina. Mat-
sveinar og framreiðslumenn
hafa árum saman séð um mjög
smekklegar sýningar á starfs-
fræðsludögum og eru nú að
undirbúa sérstakt fræðslurit um
þessa starfsgrein,-
Járniðnaður
Eins og undanfarin ár sá Véla
verkstæði Sigurðar Sveinbjörns
sonar um fræðsludeild járniðn-
aðarins. Var þar nú í fyrsta
sinni sýnd kraftblökk auk fjölda
margs annars, sem unglingunum
þótti fróðlegt að skoða. Margir
vildu fræðast um nám í Vél-
skóla og störf vélstjóra og var
mikil aðsókn að vélasal Vél-
skólans en þar voru allar vél-
ar hafðar í gangi en kennarar
og nemendur Vélskólans svör-
uðu fyrirspurnum eftir því sem
við varð komið fyrir hávaða í
vélunum. Hörgull á vélstjórum
er nú mikill og því eðlilegt að
ungir menn vilji fræðast um
þessa starfsgrein.
Fræðsla ýmissa félaga
og stofnana
Margir leituðu frétta um fé-
lagsmál sjómanna og störf loft-
skeytamanna en færri höfðu
hug á að gerast verkstjórar.
Fimm tæknifræðingar höfðu
ærið að vinna að svara fyrir-
spurnum þeirra, sem áhuga
höfðu á tæknifræði og á milli-
landa- og strandsiglingadeild-
inni var margt um manninn,
enda glæsileg skipalíkön til sýn-
is. —
Landhelgisgæzlan hafði komið
upp sérstaklega vel skipulagði'i
og glæsilegri myndasýningu, er
sýndi störf landhelgisgæzlunnar
bæði landhelgisgæzluna sjálfa og
björgunarstörf. Var það mynda-
safn, sem þörf væri að kæmi
fyrir augu fleiri en þeirra, sem
gátu sótt starfsfræðslydaginn á
sunnudaginn.
SÍF hafði komið fyrir mjög
fróðlegri fræðslusýningu, sem
einkum byggðist á greinilegum
og vel gerðum línuritum. Voru
þau ekki sízt aðgengileg fyrir
þroskaða nemendur og margir
kennarar myndu hafa gott af að
kynnast þeim fróðleik, sem þar
var saman kominn.
SH hafði bæði vel gerðar
starfsmyndir, kort og fram-
leiðsluvörurnar sjálfar. Sú sýn-
ing var einnig stórfróðleg og
gaf glögga hugmynd um mikil-
vægi sjávarútvegsins fyrir þjóð-
arbúið.
Fiskifélag íslands sýndi alls
konar framleiðsluvörur, starfs-
myndir, línurit og fleira sem
til fróðleiks mátti verða. Félag-
ið hafði í tilefni dagsins gefið
út greinargott fræðslurit, sem
heitir: „Nám til sjómennsku og
mats og eftirlits með fiskvinnslu“,
Geta unglingar lesið í þessu
litla kveri um kröfur þær sem
fagskólar sjávarútvegsins gera
til nemenda sinna og er það
mikils virði þar eð flestum pilt-
um eru þær óljósar við lok
skyldunámsins.
Fiskideild Atvinnudeildar Há-
skólans leysti einkum úr spurn-
ingum þeirra, sem hyggja á há-
skólanám í fræðum er snerta
sjávarútveg og mun síðar sýna
þeim nemendum rannsóknar-
stofur sínar.
Nám sjómanna
Fjöldi pilta ræddi við fulltrúa
háseta, stýrimanna og skipstjóra
og skoðuðu hin margvíslegu sigl-
ingatæki, er Stýrimannaskólinn
hefur yfir að ráða. Höfðu bæði
kennarar og efnilegir nemendur
úr Stýrimanna- og Vélskólanum
ærið að vinna að svara spurn-
ingum fróðleiksfúsra unglinga og
sýna þeim kennslutækin.
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna sýndi litkvikmynd sína
þrisvar sinnum í hátíðasal skól-
ans og í sambandi við fræðslu-
sýningu SÍF voru sýndar
fræðslumyndir í lestrarsal Stýri
mannaskólans. Voru sýningar
þessar fjölsóttar.
Óveðrið dró eðlilega úr heim-
sóknum á vinnustaðina en þó
fóru allmargir um borð í skip-
in en færri á aðra staði.
Fulltrúar á Fiskiþingi heim-
sóttu starfsfræðsludaginn ásamt
ráðuneytisstjóra atvinnumála-
ráðuneytisins og nokkrum al-
þingismönnum.
Öll fræðsla var látin í té ó-
keypis og hefur fjöldi forustu-
manna sjávarútvegsins og
skyldra starfsgreina lagt á sig
mikla vinnu við að veita
æskunni fræðslu um þessi mik-
ilvægu málefni. Enginn kvartaði
þó undan þeirri fyrirhöfn en
einu athugasemdirnar sem heyrð
ust voru um það hvort hægt
væri að gera eitthvað enn bet-
ur næst.
ví 4LFLUTNIN GSSTOFÆ
Aðalstræti 6, III hæð.
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorlákssuu
Guðmundur Péturssun
Slysavarnadeildin Ingólfur
I
mlnnist 20 ára afmælis síns með kaffi og skemmtikvöldi fimmtudaginn 15. þ.m.
kl. 20,30 i húsi S V.F.Í. á Grandagarði
Öllum heimill aðgangur er kostar kr. 30.00 (kaft’i innifalið.
STJÓRNIN.
Vegna flutninga hefur ýmilegt breytzt.
Skrifstofan er á Hverfisgötu 50 sími 22940
Heimasími (úður 37797) er nú 10907
I Hafið þér komið auga á, að endurbæta mætti eitthvað í fyrirtæki
yðar eða stofnun á sviði mæli- og stýritækru, hagræðingar, fjar-
; stýringa eða t. d. með notkun loft- eða vökvaknúinna hjálpartækja*
[ Til þess að athuga málið nánar og e.t.v. hrinda því í framkvæmd,
gæti orðið báðum til gagns ef bér hefðuð samband við undirritað-
an. Vera má, að þér séuð ánægður með reksturinn, en samt sem
■ áður er sennilegt, að benda megj á eitthvað, sem gera má á ein-
faldari og ódýrari hátt með tækjum og aðferðum, sem einnig þér
> settuð að beita. Undirritaður hefði ánægju að koma í stutta heim-
sókn til yðax án skuldbindingar. Srlíkar heimsóknir hafa gefizt
vel sums staðar erlendis.
SJÁLFVIRKNI Sveinn Guðmundsson, verkfræðingur.
VIIMNA
Stúlka sem getur tekið að sér að búa til snið af
fatnaði og sjá um saumaskap getur fengið vinnu
í verksmiðju. Tilboð sendist blaðinu fyrir 24. þ.m.
merkt: „Vinna — 7717“.
Iðnfyrirtœki - Verkstjóri
Verkstjóri, sem getur tekið að sér vélaeftir-
lit ásamt verkstjórn óskast. Framtíðar-
starf. Góð laun Umsóknir ásamt upplýs-
ngum um fyrri störf sendist Morgunblað-
inu fyrir 20. febrúar merkt: „Verkstjóri —
7734“. Þagmælsku beitið.
Ávallt fjTÍrliggjandi.
I BRYIMJÓLFSSOIM & KVARAN
Kaupmenn —
Kaupfélög
Ný sending af vinsæla
BLSSE - GARIMIIMI)
tekin upp í dag.
BUSSE — LANDWOLLE
BUSSE — GOLD
BUSSE — CHENILLE
BUSSE — BUSSENA
BUSSE — NOPPA
BUSSE — SHETLAND
E. IH. MTHIESffl H.F.
Laugavegi 178 — Sími 36570.