Morgunblaðið - 14.02.1962, Side 16
16
MORCINBTAÐIÐ
Miðvikudagur 14. febr. 1962
Sjötug 1 dag:
Marselía Jónsdóttir
SKAGASTRÖNDIN er fögur
sveit, en svo heitir strandlengj-
an öll, austan megin Húnaflóa,
frá ytri Laxá norður á Skagatá,
þó einstakir hlutar hennar norð-
an til kallist fleiri nöfnum. í
fjarsýn yfir flóann blasa við
Strandafjöllin fagurléga gerð og
rismikil. En frá undirlendinu,
Skagaströndinni, rísa Skaga-
strandarfjöllin, sviphrein og fag
urvaxin.
En þó ber eitt af öllum þeim
og þó víðar sé um litast í fjalla-
prýði )p- 'ns. Það er Spákonu-
fellsfc. Hún er hin krýnda
drottning fjallanna á þessum
slóðum.
Borgin er rís frá lágri strönd-
inni er sveipuð grænni skikkju,
en hið efra melbungum með
grænum geirum.
Hátindur fjallsins er stíl-
hreint og fagurt klettabelti, þ.e.
kóróna drottningarinnar. Spá-
konufellsborg er laust tengd
öðrum fjöllum, og verður fyrir
það reisn hennar og fegurð
meíri.
Skammt frá rótum Spákonu-
fellsborgar, er hið forna höfuð-
ból Spákonufell. Það ber nafn
af Þórdísi spákonu, er þar bjó
á tíundu öld og gerði þann
garð fyrst frægan.
Síðan bjuggu þar um aldarað-
ir stórbændur, og margir þeirra
aðalforystumenn sveitar sinn-
ar. —
Á þessum fagra og fornfræga
stað ólst upp sjötuga afmælis-
barnið, frú Marselía Jónsdóttir.
Fædd var hún á Gunnfríðarstöð
um á Ásum, dóttir Jóns Hró-
bjartssonar bónda og smiðs er
þar bjó og Arnfríðar Sigurðar-
dóttur. Fór Marselía á fyrsta ári
í fóstur að Spákonufelli, og
dvaldist þar til sextán ára ald-
urs hjá fósturforeldrum sínum,
Jóni Benjamínssyni bónda og
konu hans, Sigríði Símonar-
dóttur.
Fósturforeldrarnir reyndust
Marselíu vel og er hún þeim
þakklát fyrir auðsýndan hlýhug
sem foreldrar væru. Sérstaklega
minnist hún fósturföður síns
með ást og virðingu. Marselía,
sem sjálf er vel gefin gæðakona,
ber góðu uppeldi fagurt vitni.
Hið fagra umhverfi hefur og átt
drjúgan þátt í að móta hug
hennar og gæða hana næmri til-
finningu fyrir því göfuga og
fagra.
Á barnsaldri vandist Marselía
eins og þá var títt, við alls kon-
ar heimilisstörf úti sem inni.
Undir ströngum aga lærði hún
þær fornu dyggðir, að vinna
sem kraftar leyfðu og vera trú
í starfi. Hefur hún og ekki síð-
an brugðizt þeim góðu siðvenj-
um.
Er Marselía yfirgaf fósturfor-
eldra og æskustöðvar, með fá-
tækleg fararefni en gott hjarta-
lag, sem betra er en gildur
sjóður glóandi gulls, fluttisthún
fyrst til Keflavíkur og dvaldist
þar eitt ár en þaðan fór hún
hingað til Reykjavíkur og hef-
ur dvalizt hér síðan.
Lengi framan af ævinni stund
aði Marselía allskonar hússtörf
í annarra þjónustu. Rækti hún
þau af dugnaði og þeirri skyldu
rækni sem auðkennt hefur allt
hennar líf. Sem að líkum læt-
ur var hún eftirsótt til hússtarfa
og gat því valið um staði. Kom
það sér vel, því á myndarheim-
ilum lærði hún hverskonar mat-
reiðslu og önnur þau störf, er
hver. húsmóðir þarf að kunna.
Aðra skólagöngu gat hún ekki
veitt sér fyrir fátæktarsakir, en
kaup kvenna var lágt á þeim
árum.
Árið 1928 giftist Marselía
Einari Jónssyni prentara, mesta
ágætismanni. Er Einar ágætlega
fær í iðn sinni og nýtur álits
og traústs hjá húsbændum sín-
um. Sannar það bezt að Einar
hefur nú verið fjörutíu ár í ísa-
foldarprentsmiðju, og starfar
þar enn með ágætum.
Þau hjónin, Einar og Marse-
lía eiga eina dóttur barna, Jónu,
sem gift er Guðjóni Guðmunds-
syni rennismið. Aðra dóttur
átti Marselía áður en hún gift-
ist. Er það frú Drífa Seiwell,
gift flugmanni vestur í Banda-
ríkjunum. Báðar eru dætur
Marselíu ágætlega gefnar og
myndarlegar konur.
Heimili þeirra Marselíu og
Einars er eitt þeirra ágætustu,
enda eru þau hjón samhent um
prúðmennsku alla, alúð og gest-
risni. Sýnir framreiðsla húsmóð-
urinnar, að vel kann hún til
verka, þó ekki nyti hún mennt-
unar í hússtjórnarskóla.
Eins og áður er að vikið, er
Marselía vel greind kona.
Hefur hún yndi af fögrum
bókmenntum, er sérstaklega ljóð
elsk, og kann fjölda kvæða önd-
vegisskáldanna. Hún er og marg
fróð og minnug á ævisögu og
fornfræði ýms.
Margir munu í dag senda
hlýjar kveðjur á heimilið að
Hverfisgötu 88 C.
Ég og kona mín, systir Marse-
líu, svo og börn okkar og
tengdabörn, þökkum Marselíu
alla alúð hennar, greiðvikni og
margskonar góða kynningu á
liðnum tímum. Við óskum
henni og fjölskyldunni allra
heilla. Biðjum þess að kvöld
hins langa og oft stranga ævi-
dags afmælisbarnsins verði sól-
bjarma sveipað.
Stgr. Davíðsson.
Jörð í Itflýrasýslu
til sölu, með eða án áhafnar.
Byggingar goðar, heyskapur mikill, laxveiði, sími,
rafmagn og gott vegasamband.
Hagkvæm lan áhvílandi.
RANNNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl.
I.aufásvegi 2, sími 19960.
Efnalaug Austurbæjar
SKIPHOLTI 1.
Hreinsum, pressum
o g gerum við fatnað
ef óskað er
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
Sanngjarnt verð.
Efnalaug Austurbæfar
Skipholti 1
-
»>Guð geeíi.aÓ égværi feominn
í rúmið, háttaður, sofnaðui;
vaknaður aftur og
farinn að éta;;.
Bíla-Bingó á sunnudagskvöld í
STJÓRNANDI: BALDUR GEORGS. ÓMAR RAG NARSSON SKEMMTIR.
GLÆSILEGUR RENAULT DAUPHINE VERÐUR DREGINN ÚT EINS OG SÍÐAST.
MARGIR AÐRIR GLÆSILEGIR VINNINGAR.
Öllum ágóða varið til góðgerðastarfsemi.
Forsala aðgöngumiða í Teppi h.f., Austurstræti,
Melaturninum, Hagamei, Söluturninum, Austurveri,
Luktinni h.f., Snorrabraut og í Háskólabíói.
Háskólabíó
LIONSKL. NJÖRÐUR.
Fyrir karlmenn
SKYRTUR — BINDI — NÆRFÖT — HATTAR — HÚFUR
— PEYSUSKYRTUR — VINNUSKYRTUR O .M. FL.
ÚLPUR — JAKKAR — GALLABUXUR —
SPORTBOLIR Á BÓRN OG UNGLINGA.
4? a
i iÉUli
ttíi.*. ^Íílííííiííííí?
illtttintnu,
íttÍtttttV ***H*j*f'
httttiiiv ,iiiv
'tiiiiiit íiiii*
innr
AUtr
II
*Wm
if .íiiiiiin^
iiiti
Stórkostlej verðlœkkun
Aðeim 4 daga
& LAUTH HF.