Morgunblaðið - 17.06.1962, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.06.1962, Blaðsíða 4
4 MORGVyBLAÐlL Sunnudagur 17. júnl 1962 Nýja hraunið á Tristan da Cunha. Gosið átti sér stað rétt hjá þorpinu, eins og sjá má af því, að þorpið sést í neðra horni myndarinnar til hægri. Nýja hraunið á Tristan da Cunha MENN hafa hingað til hald- ið, að Tristan da Cunha hafi síðast gosið á undan nýaf- stöðnu gosi fyrir hálfu fjórða árþúsundi. Leiðangur, sem fór til að athuga hið ný- afstaðna gos fann hinsvegar merki um, að gos hafi orðið á suðurenda eyjarinnar fyrir 2—3 öldum. Leiðangurinn komst að raun um, að eyjarnar Inacc- essible og Nightingale, sem eru skammt frá (um 20 míl- ur), séu leifar gamals eld- fjalls, en Tristan da Cunha sjálf er sjálfstætt eldfjall, sem rís 6000 metra frá sjáv- arbotni á Atlantshafshryggn- um upp á efsta tind. Aðal- gígurinn er á miðri eynni, en um 20 gamlir aukagígir eru um eyjuna. Við gosið ýttist glóandi hraundrangur um 80 metra upp úr gígnum. Drangurinn hrundi sjávarmegin og ákaf- lega seig hraunleðja vall upp úr gígnum. Nýja hraunið er orðið 1000 metra breitt neðst, 80 ekrur að flatarmáli og um 25 metra djúpt. Gosið hætti alveg um miðj an marz; síðustu 2 mánuðina myndaðist kúfur yfir gígn- um. Kúfurinn ris um 30 m hár yfir hraunið. Foringi leiðangursins, dr. I. G. Gass, vill engu spá um, hvort íbú- um eyjarinnar sé óhætt að snúa heim. (New Scientist) Var hið týnda tungumál Kritar semitamál ? Málfræðingurinn Cyrus H. Gordon við Brandeis Uni- versity telur sig hafa ráðið hina miklu gátu, sem mál- fræðingar hafa barizt við að leysa áratugum saman: Hvert var tungumál Forn- Krítverja? Hann segir það hafa verið fönikísku. Fyrir fimm árum vakti hann miklar deilur meðal málfræðinga með þeirri til- gátu að málið á Linear A, letrinu sem Krítverjar not- uðu áður en Grikkir náðu eyjunni á sitt vald á 15. öld f. Kr., hafi verið akkadíska. Akkadíska var semítamál, eins og fönikíska. Gordon er nú fullviss um að þetta mál hafi verið fönikíska. Á fornum leirtöflum og á- letrunum frá Krít er þrenns- konar letur, sem nefnast Linear A, Linear B og Ete- ocretan. öll hafa þau reynzt erfið að þýða. 1952 tókst Michael Ventris, brezkum húsateiknara og frístunda- dulmálsfræðingi, að ráða Linear B með því að gera ráð fyrir að tungumálið á textunum væri frum-gríska. Árið 1957 tókst Gordon að finna semitísk orð á krít- verskum vörulistum með Linear A letri. Á síðasta ári voru allir krítversku textarnir gefnir út, ljósmyndaðir. — Gordon tókst þá, með hjálp ýmissa annarra merkja að ráða þá. Tungumálið reyndist fönik- íska. Sama mál reyndist á hinum fáu textum með Ete- ocretan letrinu. Þessi uppgötvun leysir eina af mestu ráðgátum forn leifafræðinnar og er sögð „þýðingarmeiri fyrir sagn- fræðinga en fundur handrit- anna við Dauðahafið“. Gordon telur nú, að hebr- eska og gríska menningin hafi ekki þróazt sjálfstætt, heldur séu runnar af sam- eiginlegri menningu, sem hafi náð um öll löndin við austanvert Miðjarðarhaf á mínóíska tímabilinu. (Scientific American) Ær með falskar tennur 1 Bretlandi hefur verið gerð tilraun með að halda ám á lífi með því að láta þær fá falskar tennur. Brezkir bændur fá því betra verð fyrir dilkakjöt sitt, sem lömbunum er slátr- að yngri. Þessvegna er þeim mikilsvert, að ær þeirra ali sem vænst lömb, og það gera þ^er á aldrinum 10—12 ára. En úr því að ærnar eru orðn ar 9 ára fara tennurnar að detta úr þeim. Eiga þær erfitt1 með að bíta, því eins og kunnugt er hafa jórturdýr ekki tennur í efra skolti. Bóndi nokkur í Devonshire gerði tilraun með að bjarga nokkrum beztu lambám sín- um með því, að láta smíða gervitennur í neðri skolt eirra. Sami tanngarðurinn féll nokkurnveginn að góm- um allra kindanna. Hann lét því smíða nokkra eins, og festi þá undir neðri kjálka kindanna með spöng. Ærnar, sem verið höfðu að horast niður, tóku nú að fitna sem óðast, og sýnir að þær geta ekki að- eins notað tennurnar, heldur valda þær skepnunum ekki teljandi óþægindum. Brezkir fjárbændur líta þessa nýjung hýru auga. , (New Scientist).. þj er lei,!?ur einn a sflötii mn me ARNI CESTSSON • MIO» OO HtllDVItZtU* m Vatnsstíg 3 — Slmi 17930 od. 'Jó.Acumsson <L SmitA AQL S'uni 24244 (3 tuAUx) % ílarsh LsííitJBÍa/l Heimilistœki frá Hoílandi W.C. tæki af nýrri gerð, kassi og skál sam- steypt og því mun auðveldara að hreinsa tækið. Vatnsrennslið 1 kassann er alveg hljóð- laust og vatnstengingu mjög haganlega fyrir komið. Handlaugar af mörgum gerðum einnig fyrirliggjandi. Góð og vönduð vara — fallegar línur. Athugið verð og gæði. Heimsþekkt vörumerki U Sp Einkaumboðsmenn á íslandi fyrir: Langinest selda garðsláttuvélin NORLETT mótorsláttuvélin slær og fínsaxar grasið og dreifir því aftur jafnt á flöt- inn. Rakstur því öþarfur. — Slær alveg upp að húsveggj- um og út í kanta. Hæðar- stilling á öllum hjólum, sem ræður því hve nærri er sleg- ið. Ameriskur Briggs & Stratton benzínmótor. Vinnslubreidd 19 tommur. Létt og lipur í notkun. Gerð 805 fyrirliggjandi. Verð kr. 3530.00 á Norðurlöndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.