Morgunblaðið - 17.06.1962, Qupperneq 12
12
MORGUNJJL 4 Ðlb
Sunnudagur 17. júnl 1962
Fréttapislar fra' Noregi
Kaldur vetur.
Síðastliðinn vetur var hér í
Noregi með kaldara móti. Með-
alhitastig marzmánaðar lá t.d.
nær 4 gráðum lægra en í með-
alári og er þetta kaldasti marz
síðan 1947.
Eftir áramót og allt fram í
apríl ollu snjóþyngsli margvís-
legum óþægindum og þá sér-
Staklega umferðartruflunum.
Til einangraðra byggðarlaga
var um skeið haldið uppi póst-
og vöruflutningum með þyril-
vængjum. — Norður í Troms-
fylki varð snjólagið 1.55 m á
jafnsléttu og er það algjört met
síðan snjómælingar þar hófust
árið 1920. í Þrændalögum brotn
uðu sumstaðar niður útihús
undan snjófarginu. Víða í inn-
héruðum Vestur-Noregs var
snjór á jafnsléttu um 2 m og
allt upp í 2,60 m. Nú er snjór
víðast horfinn í byggð og flestir
fjallvegir hafa verið opnaðir.
Síðari hluti maímánaðar var
með kaldara móti. Snjóaði þá
víða t.d. við Álasund og eins í
byggðunum suður af Stavanger,
en þar féll 15 cm djúpur snjór
síðasta dag maímánaðar.
Endurreisn Hákonarhallar.
Síðustu misserin hefur verið
unnið að því að endurreisa hina
fornu höll Hákonar gamla, í
Bergen. Mikill hluti hallarinn-
ár eyðilagðist 20. apríl 1944, er
þýzkt herflutningaskip sprakk
í loft upp. Endurbyggingu er nú
að mestu lokið og hefur höllin
verið opnuð almenningi.
Fornleifarannsóknir
á hafsbotni.
í sunlfcr mun verða gerður
út leiðangur til að leita eftir
fornmenjum á botni Sognfjarð-
arins við Fimreiti. Sem kunn-
ugt er stóð þar árið 1184 úrslita-
orustan milli Magnúsar kon-
ungs Erlingssonar og Sverris
konungs. Orustunni lauk með
sigri Sverris, en mannfall var
mikið og í átökunum sukku
nokkur skip. Gert er ráð fyrir
að þau liggi, að einhverju leyti
óskemmd á botni fjarðarins og
er þess beðið með eftirvænt-
ingu hver árangurinn verði.
í haust er fyrirhugað að rann
saka botn Hafursfjarðar og leita
eftir menjum frá orustunni sem
álitið er að þar hafi staðið kring
um árið 872. Sem kunnugt er
var það úrslitaorustan milli
Haralds hárfagra og mótstöðu-
manna hans. — í báðum þess-
um tilfellum verða notaðir
froskmannsbúningar af full-
komnustu tegund.
Sjónvarpsnotendum fjölgar.
í Noregi eru nú í notkun um
140 þús. sjónvarpstæki og hef-
ur sjónvarpsnotendum fjölgað
um 24% síðan 1. jan 1962. Flest-
ir eru sjónvarpsnotendur á
svæðinu umhverfis Oslófjörð,
svo og í Vestur Noregi sunnan-
verðum. Fyrir áramót fengu
Þrændalög sjónvarp og áætlan-
ir hafa verið gerðar um endur-
varpsstöðvar þannig að nyrstu
hlutar landsins fái sjónvarp á
næstu árum. Kostnaður við
þetta hlýtui þó að verða all-
mikill, einkum hvað snertir hin
strjálbýlli héruð.
Dagsrá sú sem sjónvarpið
sendir út nú er aðeins fáir tím-
ar á dag og mikið til létt efni.
Villiminkur breiðist út.
Villiminkur breiðist ört út
hér í Noregi og hefur hans orð-
ið vart víðast hvar í landinu.
Yeldur hann tjóni t.d. 1 fiski-
vötnum og hefur I sumum til-
fellum gert góða veiðistaði, nær
fiskitóma. Einnig gerist hann
aðgangsfrekur í hænsnahúsum
og dæmi er til að einn minkur
hafi yfir nóttina „slátrað" nær
300 hænum. Þrátt fyrir þetta
er minkaeldi leyft og það þó
árlega sleppi meira og minna
of mink úr búrunum. Verðlaun
fyrir hvern skotinn villimink
eru nú 15 n. kr. eða um 90.- ísl.
kr. Verð fyrir gott minkaskinn
mun hinsvegar vera nokkuð yf-
ir 100,- n. kr. Markaður fyrir
minkaskinn hefur verið mjög
góður og sem afleiðing af því
er að minnkaeldi hefur færzt
mjög í aukana. Aliminkastofn-
inn mun nú vera um 1. millj.
og tekjur Norðmanna af minka-
eldi um 100 millj. n. kr. síðustu
árin. Er því mjög eðlilegt að
minkaeldi sé leyft, þar sem
bann við því þýddi fyrst og
fremst tekjuskerðingu fyrir loð-
dýraeigendur og um leið má
segja það tekjuskerðingu fyrir
þjóðina í heild.
Efnahagsbandalag Evrópu
(E.E.C.)
Umræður um Efnahagsbanda
lag Evrópu og aðild Norðmanna
að því, liggja nú niðri að meztu
Búast Tná þó við að umræður
um það hefjist að nýju, þegar
umsókn Norðmanna um aðild
að E.E.C. kemur til umræðu í
Brussel í byrjun júlí. Hafa
Norðmenn farið fram á ýmsar
undanþágur, einkum varðandi
landbúnaðinn og verður fróð-
legt að vita hvaða afstöðu E.E.C
kann að taka til þeirra.
Eyjólfur Guðmundsson
— Stokkhólmur
Framh. af bls. 11.
og Sjöberg eftirminnilegan sveig.
Hann er hefðbundinn í list sinni
og eitthvað heillandi er við mynd
ir hans, þær eru léttar og gáska-
fullar.
Af kvikmyndum er mér sér-
lega minnisstæð pólska myndin
Hrakfallabálkurinn. Þar er skop-
ast að ýmsum fyrirbrigðum
mannlegs lífs, meðal annars að
skrifstofubákninu pólska og tor-
tryggni ráðamanna í hvers ann-
ars garð. Aðalhlutverkið leikur
leikari, sem okkur er áður kunn-
ur úr kvikmyndinni Aska og
demantar. Hann skapar þar afar-
skemmtilega grínfígúru, sem
áreiðanlega á eftir að skemmta
mörgum í framtíðinni.
Rússnesk kvikmynd, Heiður
himinn, hlýtur að sæta tíðindum,
því þar er okkur sýnt að ekki
er allt með felldu þar eystra.
Ef einhver vill fá að vita um
veðrið, þá má geta þess að sum-
arið hefur komið seint til Sví-
þjóðar, en nú er líkt og það sé
að birtast í öllu sínu veldi.
Halli á rekstri
Kaupfélags Stöðv-
firðinga
BREIÐDAL. — Aðalfundur Kaup
félags Stöðfirðinga var haldinn
nýlega. Nær félagssvæðið yfir
Breiðdal Shrepp og Stöðvarfjörð.
Fundurinn var haldinn í félags-
heimilinu Staðarborg í Breiðdal.
Alknikill halli varð á rekstri fé
lagsins á sl. ári. Taldi fram-
kvæmdastjóri þetta stafa af of
lógri álagningu, sem engan veg-
inn gæti staðið undir dreifing-
arkostnaði. Vörusala félagsins
1961 varð um 8,8 millj kr. —
innstæður viðskiptamanna juk-
ust verulega og skuldir lækkuðu.
Hinsvegar eru miklir erfiðleikar
á rekstri hraðfrystihúsanna, en
þau eru reki á vegum kaupfé-
lagsins að nokíkru leyti. — Páll.
— Ný skipan
Framhald af bls. 10.
allt í einu sjálfsagt starf á leið-
inni að ákveðnu marki.
Ósk allra kennara er að mega
kenna unglingum, sem hafa lif-
andi áhuga á því sem þeir eiga
að læra. Deildaskifting gagn-
fræðastigs imyndi vera spor í þá
átt að láta þá ósk rætast,
Ósk allra foreldra er, að börn-
in þeirra megi verða sem ham-
ingjusömust í lífinu. Mikilvægt
ráð til að stuðla að lífshamingju
komandi kynslóðar er að gefa
henni kosta á fræðslu, sem gerir
henni sem hægast fyrir hvað
val framhaldsnáms og ævistarfs
snertir.
Á hátíðlegum stundum er talað
margt og fagurt um það sem
menn vilji gera fyrir æskuna.
Framtíð þjóðanna. Hér er ein
leið fær til að gera eittlhvað af
þeim mörgu og fögru orðum að
veruleika. Æskunni til góðs og
þjóðinni allri til blessunar.
Ólafur Gunnarsson.
Illur emlir á
kappakstri
unglinga
UM miðnætti á föstudagskv. fékk
kappakstur unglinga um miðbæ-
inn illan endi. Tveir fólksbílar
annar lítill Volkswagen, voru i
kappakstri. Ætlaði ökumaður
stærri bílsins að taka beygjuna
úr Austurstræti inn í Aðalstræti
og síðan í Hafnarstræti, en á
alltof miklum hraða. Lenti bíll-
inn utan í staur og síðan á hús-
inu, þar sem verzlunin Geysir
er. Skemmdist bíllinn mikið og
var fluttur af staðnum af krana-
bíl.
Þrír voru í bílnum, en sakaðl
ekki. Sá sem ók hafði bílpróf,
en í ljós kom við yfirheyrslu á
lögreglustöðinni að annar, sem
hafði ekið bílnum skömmu áður
var réttindalaus. Einnig voru
unglingarnir í Volkswagninum
teknir til yfirheyrslu.
Steinunn Þorgilsdóttir
TóLFTA þ. m. var frú Stein-
unn Þorgilsdóttdr, Breiðaból-
stað, Fellsströnd, sjötug. Þegar
maður lítur aftur í tímann og
athugar aðstæður allar þá og
nú og starfsferil þessarar konu,
hlýtur maður að komast að
þeirri niðurstöðu, að hún sé
búin að skila miklu og fómfúsu
starfi á þessum 70 árum og eigi
eflaust eftir að skila miklu enn.
Steinunn er fædd 12. júní
1892. Foreldrar, Þorgils Frið-
riksson og kona hans Halldóra
Ingibjörg Sigmundsdóttir frá
Skarfsstöðum. Þau hjón bjuggu
í Knarrarhöfn í Hvammssveit.
Börn þeirra voru fjórtán. Af
þeim munu tvö hafa dáið ung.
Þrátt fyrir það hefir hópurinn
verið stór, er Steinunn tók við
að hugsa um, ásamt föður sín-
um, aðeins 17 ára að aldri, en
þá missti hún móður sína. Þessu
heimili veitti hún forstöðu þar
til hún giftist og fór að stjórna
sínu eigin búi, en þó voru nokk
ur yngstu systkinin hjá henni
fyrstu búskaparár hennar. Stein
unn giftist vorið 1918 Þórði
Kristjánssyni frá Breiðabólstað
á Fellsströnd. Bjuggu þau
fyrstu ár sín í Knarrarhöfn, eða
mig minnir til 1921, en þá
fluttu þau að Breiðabólstað,
þar .sem forfeður Þórðar höfðu
setið um tveggja alda skeið. Þar
hafa þau búið síðan, byggt upp
og endurbætt jörðina og stjórn-
að heimili sínu af alúð og um-
hyggju. Alið fimm mannvænleg
börn, sjötta bam sitt misstu þau
17 ára gamalt, myndarlega og
elskulega stúlku, Ingibjörgu
Halldóru. öll hafa þau komizt
til starfa fyrir þjóð vora, svo að
það má segja að þau geti fagn-
að barnaláni.
Böm þeirra eru þessi:
Friðjón sýslumaður Dala-
manna, kvæntur Kristínu Sig-
urðardóttur frá Geldingalæk í
Rangárvallasýslu, Sturla bif-
reiðastjóri, kvæntur Þrúði
Kristjánsdóttur frá ísafirði, Hall
dór Þorgils bóndi á Breiðaból-
stað, kvæntur ólafíu ólafsdótt-
ur frá Króksfjarðarnesi, Guð-
björg Helga gift Ástvaldi
Magnúsyni bankamanni, frá
Fremri Brekku, Sigurbjörg Jó-
hanna kennslukona, gift Gísla
B. Kristjánssyni skrifstofustjóra,
Reykjavík.
Mörg og mikil eru þau störf
er Steinunn hefir unnið utan
heimilis síns, því að hún er
kona félagslynd og framsækin
í öllu því, er hún telur til bóta
og velfarnaðar. Hún er kona,
sem hefir viljað læra og vill
að aðrir læri og þess vegna
hafa henni verið falin ýms störf
í sveit sinni. Má þar nefna Stað
arfellsskólann, svo að eitthvað
sé nefnt. Um hann hefur hún
hugsað næst sínu heimili og
verið þar kennari og prófdóm-
ari. Ef ég, sem línur þessar
skrifa þekki rétt, þá hefir hún
og unnið að ýmsum félagsmál-
um sveitar sinnar. Munu öll
hennar störf seint verða metin
eða þökkuð. Allt hefir þetta
verið unnið án hávaða. Hún
mun sjálf hafa búið sum syst-
kini sín og börn undir fram-
haldsmenntun að meira eða
minna leyti. Ég minnist þess, er
ég var hjá þeim hjónum og hún
var að undirbúa einn bróður sinn
undir að taka próf upp í Mennta
skólann, ásamt hinum yngri, er
áttu að taka próf í bamaskól-
anum, hvernig dagurinn var
skipulagður og allt fyrirfram
hugsað. Steinunn er sjálf út-
skrifuð úr Kvennaskólanum í
Reykjavík. Lauk þaðan fulln-
aðarprófi á einum vetri. Má
elfaust telja, að skólagangan
hefði orðið lengri og meiri, ef
aðstæður hefðu leyft. Þeim kon
um sem unnið hafa slík störf,
er Steinunn hefur unnið, ber
þjóðinni að þakka og minnast
um ókomna daga.
Margir munu hafa heimsótt
afmælisbarnið 12. júní, og þeir
sem ekki gátu það hafa hugs-
að þangað heim.
Ég óska þér Steinunn, inni-
lega til hamingju með þessi
tímamót og bið þér, manni þín-
um og börnum allrar blessun-
ar, og megi ókomnir dagar æv-
inlega leiða birtu og yl inn á
heimili ykkar.
G. Jóhannesson.
Á bílinn
BOSCH
auðvifað
- loftnet
Hagstætt
verð.
Margar
gerðir fyrir-
liggjandL
0WO
Brœðurnir Ormsson hf.
Sími 11467