Morgunblaðið - 21.06.1962, Síða 3

Morgunblaðið - 21.06.1962, Síða 3
Fdmmtudagur 21. júní 1962 MORGI’NULAÐIÐ NOKKUR gróður er nú kom- inn á yfirborð ReykjavíUut- tjarnar, eins og vegfarendur ||| íhafa veitt athygli. I>etta er gg vatnagróður, sem rekur um, og ber talsvert á honum nú. bæði vegna hita og vegna þess að lágt er í Tjörninni. Annars hefur gróður þessi oftg| verið meira áberandi en nú. || Fuglarnir' á Tjörninni munu gl gera sér gott af honum. Menn voru sendir út á bát í gaer til þess að kraka og|| slíta gróðurinn upp, þar sem hann þykir fremur til óprýðis. || Varð annar þeirra þá fyrir gg því, þegar hann rak lirífuklór g una niður, að honum fannst g: eitthvað kvikt vefjast umg| hana. Hann kippti henni upp og sá spriklandi ál slengjast af henni og niður í vatnið. Síðar urðu þeir varir við marga ála, boldangsdigra og allt að metralanga. Virðist því sem áll sé geng- inn í Reykjavíkurtjöm að nýju. Á síðustu öld voru þeir talsvert veiddir (stungnir með álajárnum) handa dönsk um kaupmönnum, sem hér höfðu búsetu. íslendingar vildu ekki líta við þeim. Sagt er, að állinn hafi verið mat- reiddur ýmist steiktur eða soð inn, og var þá sá síðarnefndi kallaður kokkáll. Síðar var talið, að allir álar í Tjörn- inni hefðu drepizt, þegar hún botnfraus um 1911. Eitthvað mun hann hafa farið að ganga í Tjörnina aftur, en þegar vitriol var sett í hana til þesö að eyða gróðrinum, mun harrn hafa drepizt. Er nú þess að vænta, að menn fari að veiða ál í gildrur í Tjöminni, eða — ef þeim þykir það ekki nógu veiðimannslegt — með ála- járnum. Alsír Fra-mhald af bls. 1. alsírsku bráðabirgðastjórninni í Rocher Noir, væri sá grundvöll- ur, sem byggja yrði á ráðstaf- anir til að koma á friðsamlegu ástandi í Alsír. — En samkomu- lagið verður að vera fyllra, sagði hann, — og því er nauð- synlegt að ganga nú þegar frá aðild evrópskra manna að ör- yggisliði Alsír. (TRSIiITAKOSTIR VARÐANDI ÖR Y GGISLIÐIÐ Afstaða Jean Gardes þykir glöggur vottur þess, að flestir seðstu leiðtogar OAS telji sig nú ekki eiga annars úrkosta en að láta undan síga og hætta hermdarverkum. — Sá, sem einkum er talinn eiga veg og vanda af þessari breyttu af- stöðu, er Jacques Susini, einn af fremstu stjórnmálaleiðtogum OAS, sem komið hefur fram af hálfu samtakanna í samninga- viðræðunum. Eins og þegar hefur verið getið, setti hann í útvarps- ávarpi á þriðjudagskvöld þá nýju úrslitakosti, að heitið yrði innan 48 klukkustunda að sveitir evrópskra manna yrðu teknar í hið fyrirhug- aða öryggislið Aisír. Það er álit manna í Rocher Noir, að þessi krafa geti haft róandi áhrif á evrópskt fólk í landinu, sem verið hefur ugg- endi um að það yrði látið 6tanda uppi gjörsamlega varn- arlaust, eftir þjóðaratkvæða- greiðsluna hinn 1. júlí nk. BJARTSÝNI RIKIR Samkvæmt fregnum frá Algeirsborg, eru bæði frönsk yfirvöld og OAS-menn þar nú bjartsýnir á, að meðlimir hreyfingarinnar um gervallt landið muni brátt staðfesta samkomulagið. I Oran munu óbreyttir borgarar, sem sam- komulaginu eru fylgjandi, nú hafa náð yfirhöndinni, og i Bone og Constantin er einnig talið að vænta megi breyt- ingar til hins betra. Síðustu 3 dagana hefur •llt verið með ró og spekt í AJgeirsborg, nema hvað eitt minni háttar bankarán var framið þar. Samgöngur eru nú Önnur tilraunin mistókst líka Engin hætta af voldnm sprengjunnar Honululu, 20. júní. (NTB-AP) BANDARÍKIN gerðu á mið- vikudag tilráun til þess að sprengja kjarnorkusprengju í háloftunum yfir Johnston- ey á Kyrrahafi — en tókst ekki. Varð að eyða eldflaug- inni, sem flutti sprengjuna, skömmu eftir að henni hafði verið skotið á loft. \ komnar í eðlilegt horft aftur, næstum 70% af verkamönnum, sem múhameðstrúar eru, sækja á ný vinnu sína í evrópskum borgarhlutum og fer stöðugt fjölgandi. Léttari blær er yfir öllu, og styrkist jafnt og þétt sú trú fólks, að nú sé ógnaröld- inni loksins að ljúka fyrir fullt og allt. SKEMMDARVERK UNNIN í Oran var ástandið ekki orð- ið eins tryggt. Síðdegis á mið- vikudag var gasstöð í útjaðri borgarinnar sprengd í loft upp í eigi færri en 5 öflugum spreng •ingum. Ekki var kunnugt um að neinn hefði slasast, en mikill eldur logaði og náðu logarnir upp í 100 m hæð. í bænum Bone í Austur-Álsír var ráðliús- ið eyðilagt í bruna, sem þar átti sér stað eftir að þrjár spreng- ingar höfðu verið sprengdar. — Þrír slösuðust, og umfangsmikið skjalasafn eyðilagðist. Skemmd- arverk þessi eru ekki talin fela í sér sérstakar líkur til þess að áframhald verði á hermdar- verkum OAS-manna. AFSTAÐAN ENN A HULDU Upplýsingaskrifstofa FLN, hreyfingar alsírskra þjóðernis- sinna, í Túnis, hefur enn ekki skýrt frá afstöðu útlagastjórn- arinnar til samkomulagsins, sem gert var í Algeirsborg á sunnu- daginn. Þetta er í annað skipti, sem til- raun til að sprengja kjarnorku- sprengju í háloftunum misheppn ast. Fyrri tilraunin var gerð á sömu slóðum fyrir stuttu. Tæknilegir gallar, sem í ljós komu, örfáum mínútum eftir að eldflauginni hafði verið skotið á loft, ollu því, að óhjákvæmilegt þótti að eyða flauginni. Kjarn- orkuhleðslan sjálf var hins vegar ekki sprengd. Féllu leifar eld- flaugarinnar niður á svæði því, sem afmarkað hafði verið fyrir tilraunina. Engin hætta er sögð stafa frá misheppnan tilraunar- innar. Kjamorkusprengingin átti að verða í 320 lcm hæð og var sprengjan eitthvað yfir 1 mega- lest að stærð. — Kjarnorkumála- nefnd Bandaríkjanna hefur ekk- ert viljað segja um tilraunina. Fundur Sjálfstæð- ismanna á Skaga- strönd ÞANN 15. júní sl. var fundur í Sjálfstæðisfélaginu Þrótti á Skagaströnd. Formaður félagsins, Ingvar Jónsson, setti fundinn og stjórn- aði honum. Fundarritari var Þórður Jónsson. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Sjálfstæð isflokksins, flutti erindi um skipu lag og starfsemi Sjálfstæðis- flokksins. Séra Gunnar Gíslason, alþingismaður, ræddi um stjórn- málaviðhorfið og síðan voru al- mennar umræður og tóku þessir til máls: Ásmundur Magnússon, Ingvar Jónsson, Þórður Jónsson, Jón Benediktsson og Axel Jóns- son. — Á fundinum fór fram kosning fulltrúa í Fulltrúaráð Sjálfstæð- isfélaganna í Austur-Húnavatns- sýslu og kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra. Mýir samningar verzBunarfólks I GÆRMORGUN tókust1 sanmingar milli Virmuveit- endasambands íslands og Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna annarsvegar og Landssambands ísl. verzl- unarmanna hins vegar. Kaup taxtar eftirtalinna félaga hækka um 9% frá og með 1. júní: Skrifstofu- og verzlunarmanna- félag Suðurnesja. Verzlunarmannafélag Hafnar- fjarðar. Verzlunarmannaf. Borgarness Verzlunarmannaf. Akraness Verzlunarmannaf. Snæfellinga Veslunarf, Vesíur-Barðstrend- inga Verzlunarmannaf. Bolungavíkur Verzlunarmannaf. ísafjarðar Verzlunarmannaf. Húnvetninga Verzlunarmannaf. Skagfii'Ginga Verzlunarmannaf. Norður-Þing- eyinga Verzlunarmannaf. Neskaup- staðar Verzlunarmannaf Reyðárfjarðar og Egilsstaðahrepps Verzlunarmannaf. Eskifjarðar Verzlunarmannaf. Vestur-Skaft- fellinga Verzlunarmannaf. Rangárvalla- sýslu Verzlunarmannaf. Vestmanna- eyja. Samningar þessir verða nú sendir félögum til endanlegra samþykkta. (Frettatilkynning frá L.Í.VI) STAKSTEINAR Atvinnukúgnn af verstu tegund Aðfarir Framsóknarmanna tyr síðustu hreppsnefndarkosn- ingar á Selfossi sýna kaldrifj- aðri frekju en menn eiga al- mennt að venjast í pólitískri baráttu hér á landi. 1 blaði, sem þeir gáfu út fyrir kosningarnar voru þrásinnis hafðar í frammi grófar hótanir um atvinnukúg- un af hálfu Kaupfélags Árnes- inga og fyrirtækja þess. í blaði þessu var m. a. komizt að orði á þessa leið: „Eðlilegast hefði verið að hér á Selfossi hefði komið fram að- eins einn listi, sem grundvallast á samvinnustefnunni, af því að hér vilja fáir kannast við ann- að en þeir séu samvinnumenn, að minnsta kosti í orði. Því verður ýmsum á að spyrja: Til hvers er verið að stilla upp lista, sem ætlað er það hlut- verk að vinna atkvæði frá sam- vinnumannalistanum? Einkum og sér í lagi er hlálegt að sjá nöfn gamalla og gróinna starfs- manna hjá samvinnufyrirtækj- unum á andstöðulistanum, mönn um er hafa þar mannaforráð og trúnaðarstörf. Hafa þessir menn ekki trú á samtökunum? Eru þeir í grundvallaratriðum ámóti þeirri upphyggingarstarfsemi, sem þeir vinna hjá og njótaþar góðra kjara.“ Andstæðingar Framsóknar- manna innan samvinnufélag- anna mega með öðrum orðum ekki kjósa á móti þeim! Starfs- menn kaupfélagsins á Selfossl og fyrirtækja þeirra verða aS fórna sannfæringu sinni, ef þeil eiga að halda atvinnu sinni!! Þeim einum verði trúað — Síðar í þessari sömu grein kosningablaðs Framsóknar á Selfossi er komizt að orði á þessa leið: „Þetta mun þó ekki koma svo mjög að sök í þetta sinn, þvi almenningur fylkir sér áreiðan- lega fast um samvinnumanna- listann, en gerir þá um leið kröfu til þess að þeim einum verði eftirleiðis trúað fyrirmeiri háttar verkefnum samvinnusam takanna, sem eru í raun ogsann leika samvinnumenn í orði og á borði." Hótunartónninn í þessum skrifum fer ekkert á millimála. Framsóknarmálgagnið gerir kröfu til þess að þcir menn verði hreinlega reknir úr þjón- ustu samvinnusamtakanna, sem ekki eru Framsóknarmönnum nægilega auðsveipir. Til þess að geta verið „samvinnumenn í orði og á borði“ þurfa menn sem sagt að vera Framsóknar- menn eða kommúnistar! „Þar taka þeir laun sínM Loks bítur Framsóknarmál- gagnið á Selfossi höfuðið af skömminni með því að birta eftirfarandi ummæli með mynd af manni, sem er við vinnu á verkstæði í kauptúninu: „Hvar vinna Selfossbúar? Hér er einn þeirra við störf sín hjá samvinnufyrirtæki. Þar taka þeir laun sín. Jafnvel D- listamenn kunna vel við sig á slíkum stöðum.“ Hér getur að líta kúgunar- boðskap Framsóknar ómengað- an. Pólitísk sannfæring mannaá að fara eftir því hvar þeir „taka laun sin.“ Menn sem vinna hjá kaupfélögum og fyrirtækjum þeirra eiga þess vegna að kjósa Framsóknarflokkinn og banda- menn hans í kommúnistaflokkn- Þessar aðfarir Framsóknar- manna á Selfossi eru svo sví- virðilegar að fyllsta ástæða er til þess að vekja athygli á þeim og fordæma þær harðlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.