Morgunblaðið - 31.08.1962, Side 22
22
MO HfíllNBL AÐIÐ
FSstudagur 31. ágúst 1962
Keflvíkingar
komnir í 1. deild
*
Unnu Þrótt i úrslitaleik 3-1
ÍÞRÓTTABANDALAG
Keflavíkur endurheimti sæti
sitt í I. deild í gærkvöldi með
því að sigra Þrótt í úrslita-
leik á Laugardalsvellinum.
Markatalan, 3:1, gefur ekki
rétta hugmynd um gang
leiksins, því Keflvíkingar
hefðu eins getað sigrað með
5—6 marka mim, ef miðað
er við tækifæri.
Karl Hermannsson, 16 ára
nýliði í liði ÍBK, var bezti
maður á vellinum.
i( Sókn án marka
Úrslitaleikur ÍBK og Þrótt-
ar hófst í rigningu 5 mínútum
eftir auglýstan leiktíma. Áhorf-
endur voru furðu margir og
auðséð var að Keflvíkingar
höfðu fjölmennt á völlinn.
Lið ÍBK hóf þegar á fyrstu
mínútunum harða sókn og get-
ur Þróttur þakkað góðri mark-
vörzlu Þórðar Ásgeirssonar að
fá ekki mörk úr harðri skot-
hríð Keflvíkinga. Það tók nefni-
lega ÍBK 10 hornspyrnur og 27
mínútur af leiktíma fyrri hálf-
leiks áður en fyrsta markið
kom.
Hólmbert Friðjónsson skoraði
eftir góða sendingu frá Jóni
Jóhannssyni, en samleikur
þeirra Hólmberts, Jóns og Karls
Hermannssonar, vinstri útherja,
var oft með ágætum og skapaði
mikla hættu fyrir framan mark
Þróttar.
Fleiri mörk voru ekki skoruð
í hálfleiknum, en oft skall þó
hurð nærri hælum við mark
Þróttar, eins og t.d. þegar Þórði
tókst að slá knöttinn yfir þver-
slá eftir hörkuskot Högna eða
er knötturinn hrökk af bakverði
framhjá opnu marki og út fyrir
endamörk eftir gott skot Páls
Jönssonar.
í þessum hálfleik sýndu
Keflvíkingar algjöra yfirburði,
enda fékk markvörður þeirra
aðeins einu sinni að grípa knött-
inn frá mótherja í hálfleiknum.
Keflvíkingar voru allsráðandi
á miðju vallarins og samleikur
framvarða og framherja gaf
góð fyrirheit um að þetta lið
eigi framtíð fyrir sér.
ir Þróttur jafnar
Það var eins og Þróttarar
hefðu fengið vítamínssprautu í
hléinu milli hálfleika. Þeir hófu
þegar stórsókn og á 2. mín.
varði Kjartan hörkuskot frá
Hauki, miðherja Þróttar. Mín-
útu síðar einlék Jón Jóhanns-
son inn fyrir vörn Þróttar, en
Þórður varði með glæsilegu út-
hlaupi.
Þróttur herti sóknina og
markið virtist liggja í loftinu og
á 16. mínútu skoraði Jens Karls-
son af stuttu færi fyrir Þrótt
eftir nokkur mistök í vörn ÍBK
og markvörðurinn hafði misst
af knettinum úti á vítateig.
ÍC Yfirhurðir
Margir voru farnir að spá
sigri Þróttar, en Keflvikingar
vildu ekki gefa sig. Á 23. mín-
útu einlék Karl Hermannsson
fram vinstri kantinn, renndi
knettinum til Jóns, sem hljóp af
sér einn varnarleikmann og
skaut jarðarknetti í bláhornið.
Fallegt mark og vel útfært.
Nú voru það Keflvíkingar
sem virtust hafa fengið víta-
mínsprautu. Á 25. mín. gómaði
Þórður knöttinn af tánum á
Jóni og mínútu síðar bjargaði
Eysteinn á línu eftir mjög góð-
an samleik Karls og Hólmberts.
Þriðja og síðasta mark Kefl-
víkinga kom með þeim hætti,
að Karl markvörður ÍBK spyrnti
knettinum langt fram fyrir
miðju til Páls Jónssonar, sem
gaf knöttinn þegar til Jóns.
Hann átti í höggi við bakvörð-
inn og úr þeirri viðureign kom
hár knöttur svífandi að marki
Þróttar, en markvörðurinn stóð
of framarlega og missti knött-
inn yfir sig inn í markið. Enda
þótt 12 mínútur væru eftir af
leiktíma og nokkur harka færð-
•ist í leikinn, þá var sigur Kefla-
víkur orðin staðreynd, sem liði
Þróttar tókst ekki að hagga.
Alls fengu Keflvíkingar 17
hornspyrnur á lið Þróttar gegn
5 hornspyrnum Þróttar á lið
ÍBK. —
i( Liðin
Lið Keflavíkur, sem nú tek-
ur sæti í I. deild, hefur unnið
alla sína leiki í II. deild, nema
einn, er liðið tapaði gegn Þrótti
á Melavellinum. Þessa' ósigurs
hefndu Keflvíkingar með því
að bursta Þrótt á heimavelli í
Keflavík. Lið IBK er að mestu
skipað ungum leikmönnum og
það eru fyrst og fremst hinir
imgu Keflvíkingar, sem hafa
fært liðinu sigra sína í sumar.
KR og Fram í aukaleik
Hér eru tvær myndir frá leik Fram og Vals í Reykjavíkur-
mótinu. Á hinni stærri sýnir Sveinn Þormóðsson okkur mark
Fram, sem Ásgeir Sigurðsson (lengst t.v.) skoraði. Á hinni
er Sigurgeir Guðmannsson, þjálfari KR, og horfir spenntur á
með tóman kaffibolla í hendi. Sigur Fram þýðir að KR verður
að leika aukaleik við Fram um Reykjavíkurtitilinn.
Þetta er gleðilegur vottur þess
að Keflvíkingar leggi rækt við
sína ungu knattspyrnumenn og
gefur fyrirheit um að liðið eigi
annað og meira erindi upp í I.
deild, heldur en að falla strax
niður aftur á fyrsta keppnis-
tímabili.
Hinir ungu framherjar ÍBK,
Jón Jóhannsson, Hólmbert Frið-
jónsson að ógleymdum Karli
Hermannssyni, báru hita og
þunga þessa leiks með góðri að-
stoð hins leikreynda Högna
Gunnlaugssonar. Vörnin er veik-
ari hluti liðsins en þó skilaði
annar unglingur, Gísli Ellerup,
framvörður, hlutverki sínu vel.
íþróttasíða Mbl. óskar Kefl-
víkingum til hamingju með
sigurinn.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og dæmdi hann vel ef frá
er sk-ilið hið undarlega senti-
metrastríð hans við aukaspyrn-
ur útj á miðjum leikvelli.
— B. Þ.
Hörour
ekki meö
HÖRÐUB. Felixjson miðvörður
landsliðsins verður ekiki með í
landsleiknum á sunnudaginn.
Hörður hafði verið valinn en í
leik KR gegn Akureyri fyrir
norðan sparkaði Hörður svo
hastarlega í jörð, að hahn er enn
ekki góður.
— Ég vil ekki eiga það á
hættu, sagði Hörður í gær, að
fara inn á, meiðast kannske eftir
10 mín. og haltra svo á kantinum
í 80 mín., því ekki má skipta um
mann þó eitthvað verði að.
Helgi Eysteinsson landsliðs-
nefndarmaður tjáði Mbl. í gær-
kvöldi að Jón Stefánsson Akur-
eyri hefði verið valinn sem mið-
vörður í stað Harðar. Er iþetta
annar landsleikur sem Jón leikur.
Enska knatfspyrnan *
4. umferð eusku deildarkeppninnar
fór fram fyrri hluta þessarar viku og
urðu úrslit þessi:
m
ALBERT Guðmundsson var
stjarna í leik hinna gömlu at-
vinnumanna Milan og Inter-
nazionale í fyrrakvöld. Gamlir
atvinnumenn reyndu þar með
sér og allur ágóði rann til
munaðarlausra barna. 40 þús-
Albert í búningi Milan
1« «■*%■!
Internazonale vann leikinn
með 2 gegn 1.
Albert sagði við fréttamanr
Mbl., að ánægjnlegt hefð.
verið að fá tækifæri til að
hitta sína gömlu leibbræður í
keppni. Fréttamenn hópuðust
Albert skoraði á 5. mínútu
40 Jbi/s. manns fögnuðu gömlu at-
vinnumönnunum ákaflega
und manns sáu leikinn og
fögnuðu ákaft þegar Albert
náði forystu fyrir Milan, með
marki á 5. mínútu leiksins.
Það var ekki annað að sjá en
Albert kynni vel við sig í
rauðröndóttum búningi síns
gamla félags, Milan, segir
fréttaritari Mbl. á staðnum.
Vallargestir voru 40 þúsund
sem fyrr segir og nutu leiks-
ins í ríkum mæli. Þeir fögn-
uðu hjartanlega sínum gömlu
hetjum, sem sumir hverjir
voru á sínum tíma dáðir sem
dýrlingar.
Margir áhorfenda voru mið-
aldra fólk, sem fyrir löngu
er hætt að fara á völlinn, en
kom nú aftur til að fagna
sínum gömlu vinum.
Leikurinn var dálítið hægur
miðað við leiki þjálfaðra
manna. En gamli góði stíllinn
var yfir leik liðanna Og margt
laglega gert. Mark Allberts
vakti gífurlegan fögnuð. Það
var eina mark Milan, en
um hann fyrir leikinn og
ágæt ítölskukunnátta hans
vakti athygli. Allbert sagði
fréttamönnum að 14 ár væru
nú liðin síðan hann fór á
fyrstu æfingu með Milan.
Síðan keppti Albert þrjú
keppnistímabil með Milan, svo
hélt Albert til Racing í Frakk-
landi. Albert sagði frétta-
mönnum að Ítalía væri sér
alltaf kær síðan, hann ætti
góða vini þar og því hefði
sér verið ljúft að stofna ásamt
öðrum „Ítalíuvinaklúibb“ í
Reykjavík. Albert sagði eftir
leikinn að sérlega ánægju-
legt hefði verið að vera með.
1. deild.
Burnley — Bolton 2—1
Ipswich — Blackpool S—2
N. Forest — Blackburn 2—0
Birniingham — Arsenal 2—a
Fulh-am — SheffieM U. 2—3
Leyton O. — W.B.A. 13
LiverpooŒ - - Mandhester City 4—1
Manchester U. — Everton 0—1
Sheftield W. — Leioester 0—3
Tottenham — Aston Villa 4—3
Wolverhampton — West Ham 0-«
2. delld.
Charlton — Sunderland 2—3
Preston — Plymouth 0—0
Rotherham — Leeds 3—1
Scunthorpe — Chelsea 3—0
Cardiff — Norwioh 2—4
Huddersfield — Walsall 4—0
Luton — Southampton 3—3
Newcastle - - Middlesbrougih 6—1
Portsmouth — Grimsby 2-1
Stoke — Derby 3—3
í Skotlandi var keppt i bikar-
keppninnl og tapaði St. Mirren fyrir
Hibernian 0—2 á útivelli.
Staðan er nú l>essi:
1. deild (eístu og neðstu liðin)
Stig:
Everton 4 4-0-0 11:3 8
Wolverhampton 4 3—1—0 14:2 7
Tottenham 4 3—0—1 14:5 6
Aston Villa 4 3-0—1 9:6 6
Leyton Orient 4 0—1—3 6:9 i
Manchester City 4 0—1—3 4:16 1
West Ham 4 0—1—3 3:13 1
2. deUd (etstu og neðstu liðin).
Huddersfield 4 2—2—0 13:4 6
Chelsea 4 3—0—1 9:3 6
Portsmoutih 4 2—2—0 8:4 6
Mlddlesibrough 4 1—0—3 6:16 3
Preston 4 0—2—2 4:13 2
Southampton 4 0—1—3 5:10 1