Morgunblaðið - 18.09.1962, Side 1
24 síður
49 árgangur
206. tbl. — Þriðjudagur 18. september 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
OLGA I ALSIR
Skœruliðar taka borgina Attef —
Boudiat dregur sig til baka — mótmœli
vegna kosningaundirbúnings
Alsír, 17. september — (NTB)
• Skæruliðar 4. svæðishersins, sem nýlega átti í deilum við
stjórnarnefnd Ben Bella í Alsír, hafa nú tekið á sitt vald borg-
ina Attef, sem er um 200 km fyrir vestan Algeirsborg.
• Mohammed Boudiaf einn af svömustu andstæðingum Ben
Bella, sem var, þrátt fyrir það á framboðslista stjórnarnefndar-
innar til kosninganna í Alsír n. k. fimmtudag, hefur dregið sig
til baka af listanum.
• Formaður Þjóðflokks Alsír mótmælti kosningaundirbúningi
etjórnarnefndarinnar og segir hann brjóta í bága við frelsi og
mannréttindi.
• Þrír Evrópubúar voru myrtir fyrir nokkrum dögum í Kolea-
héraði í Alsír og leitar lögreglan nú morðingjanna.
Stjómarnefnd Ben Bella til-
kynnti í dag að skæruliðar 4.
svæðishersins í Alsír hefðu tekið
á sitt vald borgna Attef. Fékk
stjórnarnefndin upplýsingar um
þetta frá andspyrnuráði, sem
komið hefur verið á laggirnar á
staðnum og er hlutverk þess að
tilkynna um ofbeldi, rán, ólög-
lega skattaálagningu o. £1. And-
spyrnuráðum hefur einnig verið
komið á fót á fleiri stöðum í
Alsír í sama tilgangi. Hafa and-
spyrnuráðin í Algeirsborg, Orle-
ansville og Medea mótmælt harð
lega framferði skæruliðanna í
Attef, en það brýtur í bága við
samkomulag það, sem svæðisher-
irnir gerðu við stjórnarnefndina
fyrir skömmu. Kref jast and-
spyrnuráðin þess, að lögregla
staðarins verði látin taka í taum-
ana.
Skæruliðarnir, sem hafa Attef
á sínu valdi, settu útgöngubann
í borginni og hafa handtekið
marga íbúa hennar.
Beint gegn
stjórnarnefndinni.
Einn af talsmönnum stjórnar-
nefndarinnar lét svo ummælt í
dag, að ákvörðun Mohammeds
Boudiaf um að láta strika sig út
af framboðslista stjórnarnefnd-
arinnar, væri beint gegn nefnd-
inni. Bouldiaf var í framboði fyr
ir 3. svæðisherinn og sagði tals-
maður stjórnarnefndarinnar, að
hann hefði átt að láta yfirmenn
hersins vita það fyrir fram, að
láta yfirmenn hersins vita það
fyrir fram, að hann vildi ekki
vera í framboði.
Kosningaundirbúningur.
Meðlimir stjórnarnefndarinnar
vinna nú að undirbúningi kosn-
inganna, sem fram eiga að fara
fimmtudaginn 20. þ.m. Formaður
alsírska þjóðarflokksins Messali
Adj, mótmælti harðlega í dag
hvernig kosningarnar væru ixndir
búnar og sagði, að aðferðir
stjórnarnefndarinnar brytu al-
gerlega í bága við lýðræðislegt
frelsi og mannréttindi. Sagðist
hann vilja minna á það að upp-
reisnin í Alsír hefði brotizt út
vegna þess að frelsi og mann-
xéttindi hefðu verið fótum troð-
in.
Alþjóðabankinn hefur aldrei
lánað eins mikið fé og 1961
Washington 17. sept. (NTB-AP)
HINN árlegi fundur Alþjóða-
bankans og Alþjóðagjaldeyris-
málajtofnunarinnar hófst í Was
Rússar
sprengja
— nú 23. megat
sprengju
MÆLAR tækniháskólans í Stokk
hólmi sýndu á sunnudagsmorgun
inn, að Rússar höfðu sprengt öfl-
uga kjarnorkusprengju í gufu-
hvolfinu fyrir ofan Novaja
Selmja.
Þetta var tilkynnt í dag og
sagt, að sprengjan hefði senni-
lega verið 23 megatonn, eða sú
stærsta, sem Rússar hefðu
sprengt frá því að þeir hófu aft-
ur tilraunir í haust.
UNDIRBÚA ARÁS
Á KATANGA
— segir Tshombe
Elisabetville 17. sept. (NTB) —
MOISE Xshom.be, fylkisstjóri í
Katanga, sagði í dag, að hann
hefði fengið upplýsingar um það
frá áreiðanlegum heimildum, að
yfirmaður Kongóhers hefði skip
að herjum sínum að ráðast inn
í Katanga.
Sagt var í Katanga í gær,
að hersveitir stjórnarinnar í
Leopoldville hefðu tekið á sitt
vald virki eitt í Norður-Katanga.
Talsmaður SÞ í Katanga sagði
í kvöld, að ekkert væri hæft í
þessu.
•
Tshombe, fylkisstjóri, sagði í
tilkynningu, sem hann sendi yf-
irmanni SÞ í Katanga, Robert
Gardiner í dag, að Mobutu hers
höfðingi, yfirmaður Kongóhers,
hefði gefið öllum her landsins
fyrirskipun um að ráðast á
Katanga.
hington í dag. Framkvæmdarstj. i aði fram spurninpu um, hvort
Alþjóðk gýaldeyrismákastoftiun- I viturlegt hefði venð að hækka
arinnar, Svíinn Per Jacobsson
hélt ræðu í upphafi fundarins.
Sagði mann m.a. að gjaldmiðill
í hinum Vestræna heimi væri
mun traustari nú, en á undan-
förnum á>rum.
Ársskýrsla Alþjóðabankans fyr
ir 1961 var birt um leið og fund
urinn hófst og sézt af henni, að
bankii hefur aldrei fyrr lánað
eins í.iikið fé á einu ári til upp-
byggingar í hinu i ýmsu löndun%.
Upphæðin, sem bankinn lánaði
á árinu nam 882 misljónum doll-
ara, um 37 milljörðum ísl. króna.
Það kemur fram í skýrslunni
að Al'l jóðabankinn fær stöðugt
fé frá fleiri löndum og aðstaða
hans nú er mjög úlík bví, sem
hún var á árunum eftir síðari
'heii-sstyrjöldina, þegar starf-
semi hans byggist nær eingöngu
á framlögum frá Bandaríkjunum.
Stærst var framlag bankans ár-
ið 1961 til S-Ameríkuríkjanna
412 millj. dollara.
Per Jaoobsson, sagði frétta-
mönnum áður en fundurinn
hófst, að hann ótt.aðist að sam-
dráttur yrði fjármálum og varp
6 l 0 þús.
i Earast
t írleaa
■ [ Strasbourg 17. sept (NTB) j í skýrslu, sem lögð verður fyrir Evrópuráðið í vikunni og , 1 samin er af urnfcrðamálasér- fræðingum frá mörgum lönd- ■ um, segir, að 60 þús. manna ' farist árlega í umferðaslysum á vegum í V.-Evrópu og 1 og ■ ' hálf milljón manna slasist.
vexti eins mikið ag gert hefði
verð á undanförnum áruim
Hann sagði, að 'hinir háu vextir
á verðbólguárunum eftir síðari
heimsstyrjöldina hefðu ekki kom
ið að sök, en öðru máli gengdi nú.
Þessi mynd var tekinn í Hels- <
ingfors 12. sept. s.l., en þá
hófst þar ntanríkisráðherra-
fundur Norðurlanda. Á mynd
inni eru frá vinstri: Thor
Thors, sendiherra í Bandaríkj
unum, sem sat fundinn af Ís-
lands hálfu, utanríkisráðherra
Dana Fer Hækkerup, utanrik-
isráðherra Svía Östen Unden,
utanríkisráðherra Noregs Hal-
vard Lange og utanríkisráð-
herra Finnlands Veli Meri-
koski.
Eins og skýrt hefur verið
frá í blaðinu lauk utanríkis-
ráðherrafundinum 14. septem-
ber.
Hús hrynur í Belgíu
Talib að rúmlega 20 hafi farixt
Brússel, 17. september.
FJÖGURRA hæða opinber
skrifstoíubygging hrundi í
Briissel í dag. Talið er að á
þriðja tug manna hafi látið
lífið og 19 særzt.
15 lík höfðu verið grafin
úr rústunum í gærkvöldi og
þeir 19, sem særðir voru
fluttir í sjúkrahús. Álitið er
að enn séu 11 menn grafnir
í rústunum og lítil von um
að nokkur þeirra sé á lífi.
Ekki er enn vitað með vissH
hve margir menn voru í húsinu,
þegar það hrundi og ekki er held
ur vitað nve mörgum tókst að
forða sér í tæka tíð. Maður, sem
varð vitni að því, er húsið hrundi
sagði, að hann hefði heyrt drun-
ur, sem minntu á sprengingu. ■
Mest af rústum hússins hrundi
ofan í grunn, sem verið var að
grafa við nliðina á því.
Þegar menn komu að rústun-
Framhald á bls. 23.
Forsætdsráðherrahjón-
unum boðið til Israel
HINNI opinberu heimsókn for-
sætisráðherra ísraels, David Ben
Gurion, og frúar hans til íslands
lauk á laugardagskvöld en
ráðherrahjónin dvöldust hér til
roánudags.
f kveðjuveizlu sinni bauð
David Ben-Gurion Ólafi Thors,
forsetisráðherra, og fiú hans að
heimsækja ísrael og hafa þau
þegið boðið. Til minningar um
komuna til íslands gaf Ólafur
Thors David Ben-Gurion ljós-
prentað og áletrað eimak af Flat-
eyjarbók.
Frú Paula Ben-Gurion fékk að
gjöf silfurafsteypu, sem Leifur
Kaldal gerði af Þórslíkneski því,
er fannst að Eyrarlandd árið 1819
og varðveitt er í Þjóðminjasafn-
inu.
Dóttir ráðherrahjónanna, frú
Renana Ben-Gurion-Leshem,
hlaut að gjöf könnu úr brennd-
um íslenzkum leir, gert af frú'
Steinunni Marteinsdóttur.
Frú Paula Ben-Gurion gaf frú
Ingibjörgu Thore fagra skál með
9kjaldamerki ísraels og nafni
sínu, en Ben-Gurion gaf Ólafi
Thors 2200 ára gamlan skraut-
vasa í öskju úr olíuviði. Á öskj-
unni er málmplata, sem á er letr-
að, gjöfin sé til Ólafs Thors, sem
votttur vináttu og virðingar frá
David Ben-Gurion.
(Frétt frá forsætisráðuneytinu)