Morgunblaðið - 18.09.1962, Page 10

Morgunblaðið - 18.09.1962, Page 10
10 MORGlNBLAÐIB Þriðjudagur 18. sept. 1962 Vopnafjarðarkauptún séð úr Skipshólma. Vopnafjðrður - vaxandi bær Miklar framkvæmdir i aðsigi Markús Örn Antonsson ferðaðist ný- lega um Norð Austurland. Hér birtist grein frá Vopnafirði. Á SÍLDARVERTÍÐINNI í sumar hefur síldarverk- smiðja Vopnafjarðarhrepps á Vopnafirði samtals tekið á móti 223 þús. málum síldar til bræðslu og má reikna með að brúttóverð mæti framleiðslunnar verði um 80 milljónir kr. — Vopnaf jarðarkauptún mun líklega eiga vaxandi hlutverki að gegna í sam- bandi við síldarmóttöku af miðunum fyrir norðan og austan á komandi árum og eru nú gerðar áætlan- ir um margvíslegar fram- kvæmdir á staðnum til þess að bæta aðstöðu síld- arbræðslunnar og salenda, þannig að Vopnfirðingar megi í ríkari mæli njóta góðs af heppilegri legu staðarins til móttöku á sumarsíld. Landa 500 mál i á klst. Það var bræla á mið- og austursvæðunum þegar frétta iuaður Mbl. kom á Vopna- fjörð, en flotinn hafði fært sig á vestursvæðið og engir bátar voru í höfn á Vopna- firði. Fyrir uta.i síldarverk- smiðjunna hittum við Sigur- jón Jónsson verkstjóra og gekk hann með okkur niður á bryggju að nýjum löndunar- krana, sem reistur var í vor og barst talið að rekstri síld- arverksmiðjunnar og þó fyrst að hinum nýja löndunarkrana, en Sigurjón tjáði okkur að með tilkomu hans mætti taka á móti tveimur bátum í senn og landa 500 málum á klukku stund með tveimur krönum. Verksmiðjan á Vopnafirði hefur nú starfað í fimm ár og er síldarmagnið í sumar búið að slá öll fyrri met. 1 fyrra var tekið á móti 146 þús. málum og hefur mála- fjöldinn farið stöðugt vaxandi ár frá ári. Við byggingu verksmiðjunnar var afkasta- geta hennar áætluð 5 þús. mál á sólarhring, en í sumar hafí' afköstin verið rétt rúm- lega 3 þús. mál. Stafar þetta af vélaskorti og hefur vinnsl- an á síldinni seinni hluta sum ars gengið verr en í byrjun vertíðar, þegar auðveldara er að pressa lýsið úr síldinni. — Þega. líða tekur á sumarið er eins og fitan verði ekki eins auðunnin, vélamar óhreink- ast og afköstin minnka. Mjölgeymslurnar fullar í sumar er oúið að skipa út 2600 lestum af mjöli frá verk- simðjunni. Mjölgeymslurnar eru enn fullar og var búið að aka 300 lestum í annað hús- næði í bráðabirgðageymslu. í haust er áformað að byggja nýtt nijölgeymsluhús og leysa þar með úr miklum vandræð- um. Sagði Sigurjón, að ef á- fram veiddist sunnan Langa- ness fram á haustið væri að- eins um tvennt að velja fyrir verksmiðjuna, að taka ekki á móti meiri síld eða bá að stafla mjöli úti, sem verður að teljast mjög vafasöm ráð- stöfun. HiC lága verð á lýsi hefur einnig dregið kjark úr mönn- Landið okkar um um að taka á móti meiri síld í sumar. Lýsisbirgðirnar nema 3200 lestum, á þremur geymum, þar af einum 2500 lesta, sem byggður var fyrir verksmiðjuna á þessu ári af vclsmiðjunni Odda á Akur- eyri. Hollenzkt lýsisskip hef- ur komið fjórum sinnum í sumar og flutt út 2 þús. lest- ir í.1 lýsi, og var bá hver lest seld fyrir 32 sterlingspund. Heimsmarkaðsverð á lýsi er ákaflega breytilegt og hefur upp á síðkastið verið 20 sterl- ingspundum læfara en í fyrra. Eins og áður var drepið á, verður hafin bygging á nýju mjölgeymsluhúsi fyrir veri-- I sumar hefur verið söltuð síld í rúmlega 13 þús. tunnur á Vopnafirði. Þessi mynd var tekin á plani söltunarstöðvarinnar Auðbjargar, sem þeir bræður Sveinn og Aðalsteinn Sigurðssynir hafa haft á leigu. Með þeim á myndinni er nokkur hluti starfsfólks stöðvarinnar. smiðjuna í haust. Sömuleiðis stendur fyrir dyrum að byggja mötuneyti fyrir starfs- fólk og íbúðarhúsnæði fyrir járnsmiði, sem allir eru að- komumenn. Er margt aðkomu manna starfandi í kauptún- inu í sumar við verksmiðj- una og hjá söltunarstöðvun- um, en hjá verksmiðjunni hafa starfað að jafnaði um 70 menn, hafa flestir orðið 142 á vinnuskýrslum, bæði að- komu- og heimamenn. Ný skilvinda Til nýjunga í verksmiðj- unni má telja skilvindu, fram leidda af Titan verksmiðjun- um í Danmörku, sem sett var upp af dönskum sérfræðingi í vor. Skilvinda þessi er hið mesta þarfaþing, enda kostaði hún næstum 1 milljón króna og er almennt þekkt undir nafninu Milla meðal Vopnfirð inga. Milla er sjálfvirk og vinnur verk, sem áður varð að gera í tveimur skilvind- um — svokölluðum slamskil- vindum og öðrum, sem hrein- skilja soðið úr vélunum. En Mili ’. gerir hvort tveggja. — Venjulegar skilvindur barf að þvo einu sinni á hverri átta stunda vakt en nýja Skilvind- an gerir það sjólfvirkt á 6 mín. fresti og er svo hreinsuð rækilega einu sinni til tvisvar á vertíðinni. Er þetta önnur skilvindan búin þessum kost- um, sem til landsins kemur, hin er staðsett á Fáskrúðs- firði. 10 þús. mála þróarpláss æskilegt til viðbótar Er við höfðum rætt við Sig- urjón var haldið upp að verk- smiðjuihúsunum og litið á síld arþróna, sem tekur 20 þús. mál í átta hólf. Voru sex þeirra full af sild, en bátur hafði komið til að landa tveimur kvöldum áður. í hólfin hafði verið dælt rotvarnarefnum um leið og síldinni var land- að, einum lítra af natríum- nitrati í hver tvö mál síldar. Má þannig með góðu móti geyma ferska síld í allt að tvær vikur, þó að endingin sé að vísu mikið undi; því kom in í hvaða ástandi fiskurinn er, þegar hann berst að landi Sigurjón sagði að lokum, að mjög æskilegt væri að þróar- plássið yrði stækkað um 10 þús. mál og yrði það mjög til hagsbóta ef um jafna síldveiði yrði að ræða eins og verið hefur í jumar. Bótarnir koma svo að segja af syðstu og nyrztu miðum og sagði hann að mjög hefði færzt í vöxt í sumar, að báta, sem flyttu sig milli veiðisvæðanna færu með afla af svæðinu, sem beir yfir gæfu í bili, inn á Vopnafjörð, -----------—---------------- ~ - r- • ri n»>—in rn i ni losuðu sig og héldu síðan á hin J.ýju mið í stað þess að fara ; flokkum til næstu hafn ar og bíða þar lengri tíma eft ir löndun og vera seinir fyrir með komast út aftur á ann að svæði. Vatnsveitan. Fyrir dyrum standa fram- kvæmdir í vatnsveitumálum ó Vopnafirði. Vatnsskortur hef ur gert vart við sig vegna vax andi þarfa síldarverksmiðjunn ar og á plönunum þar sem söltun fer fram. Síðan 1957 hefur vatni verið veitt í 3—4 þumlunga rörum um 6 km leið úr Ljótsstaðalæk. Vatnið í honum er talið frekar lélegt til drykkjar, en áður var ein ungis notazt við brunnvatn á staðnum. Fyrst um sinn verð ur vídd vatnsröranna víkkuð í 6 þumlunga, en áformað er að jarðborinn, sem staðsettur er á NA-landi verði notaður til að bora eftir meira og betra vatni í haust eftir tilsögn jarð fræðings. Síldarverksmiðjan krefst vatnsj rýstings, sem ekki má fara niður fyrir 2 kg og hefur iðulega orðið að Stöðva rennsli hús til að halda þessum þrýstingi. Ekkert fé var til þessara framkvæmda, sem kosta munu að minnsta kosti 600 bús. krónur, en síld arverksmiðjan hefur hlaupið undir bagga með sveitarfélag inu þannig að af þessum fram kvæmdum geti orðið sem skjóta. 1. Einn liðurinn í stækk Framhald á bls, 15. Sigurjón Jónsson, verkstjóri hjá Síldarverksmiðju Vopna fjarðarhrepps.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.