Morgunblaðið - 17.11.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1962, Blaðsíða 1
r 24 siður 49. árgangur 258. tbl. — Laugardagur 17. nóvember 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins egja Norðurlönd up oílferðusa vegna samkeppni Loft'eiða við SAS? Q í G Æ R bárust um það staðfestar fregnir frá Stokk- holmi, að óformlegar viðræður muni hafa farið fram milli Norðurlandaflugfélagsins SAS og ríkisstjórna Norðurlanda, vegna samkeppni Loftleiða við félagið. Á SAS að hafa gert grein fyrir sjónarmiðum sínum og þeim gagnráðstöfunum er félagið hyggst gera. ^ Sterkur orðrómur var uppi í dag um, að úrslit þessa máls kunni að verða þau, að loftferðasamningnum milli lslands og hinna Norðurlandanna verði sagt upp. ^ Karl Nilsson, forstjóri SAS í Stokkhólmi sagði í fcænska útvarpinu í gærkv., að farþegaaukingin hjá Loft- ieiðum á umræddri flugleið hafi verið 155% frá því árið 1958, en aukningin hjá SAS aðeins 21% á sama tíma. Enn- fremur, að Loftleiðir hafi í ár flutt 68.000 farþega yfir At- lantshaf en SAS 80.000 farþega, en ferðir félagsins munu vera helmingi fleiri en ferðir Loftleiða. Ingólfur Jónsson flugmálaráðherra upplýsir í sam- bandi við mál þetta, að sendiherrum íslands á Norður- löndum hafi verið falið að ræða við stjórnir Noregs, Sví- þjóðar og Danmerkur og reyna að skapa réttan skilning á'málinu. Segir ráðherrann alrangt, að tala um óheiðarlega samekppni af hálfu Loftleiða, — það séu ekki fremur Loft- leiðir en önnur flugfélög sem fljúga á Atlantshafsleiðum, sem valda fjárhagsörðugleikum SAS. 0 í einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Kaupmanna- höfn í gærkvöldi, segir að bandaríska flugfélagið Pan American Airways hafi sam- þykkt fargjaldaákvæði IATA — alþjóðasambands flugfé- laga — á flugleiðinni yfir At- lantshafið og sé SAS því eitt um að kref jast réttar til sam- keppni við hin lágu fargjöld Loftleiða. SAS mun hafa frest til 15. des. að samþykkja ákvæði IATA. £ Þar er ennfremur haft eftir danska blaðinu „Ekstra- hladet“ að 11.000 manns vinni hjá SAS — eða 230 manns fyrir hverja flugvél félagsins, á móti 70 manns fyrir hverja flugvél Loftleiða. Einkaskeytið frá fréttaritara Mbl. í Kaupmannahöfn hljóðar svo: Bandaríska flugfélagið Pan American Airways hefur nú sam- þykkt fargjaldaákvæði IATA — alþjóðasambands flugfélaga — á flugleiðinni yfir Atlantshafið. Norðurlandaflugfélagið SAS er því eitt um að krefjast réttar til samkeppni við hin lágu fargjöld Loftleiða. Talsmenn SAS hafa í viðtali við dönsk blöð upplýst, að haldið verði fast við þær kröf- ur, en jafnframt er á það bent, að SAS hefur frest til 15. des- ember til þess að samþykkja ákvæði IATA. Stjórn SAS mun hafa sent flugmálastjórnum Sví- þjóðar, Noregs og Danmerkur leynilega greinargerð, þar sem gerð er grein fyrir sjónarmiðum félagsins. í Noregi er talið, að SAS von- ist eftir beinni stjórnarskipan, um að hefja ferðir með skrúfu- vélum og lægri fargjöldum. En í Kaupmannahöfn er talið, að SAS vilji einungis tryggja sér opinbera viðurkenningu á þeirri ráðagerð, sem samsvarar stríðs- yfirlýsingu við IATA. Neiti SAS að viðurkenna fargjaldaákvæði IATA getur afleiðingin orðið bein verðstyrjöld á Atlantshafs- leiðunum, — einnig með þotum, enda þótt SAS viðurkenni far- gjalda ákvæði IATA fyrir þotur. Forstjóri New York deildar SAS, Tore Nilert segir, að SAS tapi um 300 milljónum króna árlega vegna óheiðétrlegrar sam- keppni Loftleiða. David Thomsen, forstjóri Loftleiða-skrifstofunnar í Kaupmannahöfn segir, að þessi fullyrðing Nilert eigi ekki við rök að styðjast. „Engin sönnun er fyrir því að við tökum farþega frá SAS“, segir Thomsen. „Marg ir farþegar Loftleiða segja, aðþeir hafi, einungis vegna hinna lágu fargjalda Loftleiða, efni á að fljúga þessa leið. >að bendir því margt til þess, að við tökum frekar farþega frá farþegaskip- um á Atlantshafsleiðinni. Við er- um þeirrar skoðun, að við höf- um aflað fluginu yfir Atlants- hafið nýrra viðskiptavina og því verði ekki fljótsagt, hver steli frá hverjum". „Ekstrabladet“ í Kaup mannahöfn minnist á þau vanda- mál, sem SAS kunni að eiga við að etja, ef til verðdeilu komi. Blaðið spyr: „Hefur SAS efni á að fara í fargjaldastyrjöld- Starfs lið SAS er um 11.000 manns eða 230 manns fyrir hverja flugvél félagsins, en þær eru 48. Fyrir hverja flugvél Loftleiða vinna að eins 70 manns. Verði Loftleiðum bolað úr vegi missir SAS þess utan um 2 milljónir kr. (ísl.) ár- lega, sem það fær greitt fyrir af- grsiðslu flugvéla Loftleiða í Kaup mannahöfn. • Verður ioftferðasamningnum sagt upp ? I fréttaskeytum NTB segir í gær. SAS lítur mjög alvarlegum augum á samkeppni íslenzka flug félagsins Loftleiða og talsmenn sænskra flugmála vænta þess, að SAS muni í nánustu framtið grípa til einhverra gagnráðstaf- ana. Framh. á bls. 23. -<í> I Brússel Pétur Thorsteinsson, sendi- herra Islands í París, hefir jafnframt verið skipaður sendiherra Islands i Belgíu. Hann afhenti nýlega Boudoin konungi trúnaðarbréf sitt í Brússel við hátíðlega athöfn. Myndin er af sendiherranum, þegar hann kemur af konungs fundi. — Morgunblaðið hefur fregnað, að ráðgert sé, að Pét- ur Thorsteinsson verði sendi- herra fslands hjá Efnahags- bandalaginu í Brússel. Höröustu bardagar til þessa í styrjöld Indlands og Kína Nýju Delhi og Peking, 16. nóiv. — (AP - NTB-Rauter) • í dag kom til hörðustu bar- daga, sem til þessa hafa orð- ið í landamærastyrjöld Indlands og Kína. Gerðu Kínverjar á- hlaup á norð-austursvæðinu, fyr- ir norðan og vestan borgina Walong. Ekkert lát var á bar- dögum í allan dnj. Mannfall mun eitthvað hafa orðið, telur talsmaður Indlandsstjórnar að 10—20 manns hafi fallið úr liði beggja. • f frcgnum frá Peking segir, að teknir hafi verið til fanga 927 indverskir hermenn, þar af átta háttsettir liðsforingj- ar og einn hershöfðingi, Dalvi. Segir, au föngum hafi verið feng- in klæði og hjúkrun og ráð sé gert fyrir, að þeir fái óhindrað að iðka trú sína. Talsmaður indverska varnar- málaráðuneytisins skýrði frétta- mönnuan svo frá, að Kínverjar hefðu hafið öflugt áhlaup í morg un og beitt stórskotaliði og sprengj uvörpum. Væri þetta á- 'hlaup þeirra hið mesta frá þvi bardagar hófust 20. Október s.l. 240 millj. Rr. framkvæmdalan GDNNAR THORODDSEN fjár-l málaráðherra fylgdi í gær úr hlaði á Alþingi frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um töku 240 millj. kr. framkvæmdaláns í Englandi. Fénu á að verja til að efla út- flutningsiðnað, til hafnargerða, raforkuframkvæmda og annarra framkvæmda, sem stuðla að aukn ingu þjóðarframleiðslunnar og gjaldeyrisöflun. Verður lánið til Iangs tíma eða 25—26 ára og afborgunarlaust fyrsta 5% árið, sem er ekki sízt þýðingarmikið, þegar þess er gætt, hve skuldabyrðin út á við vegna lána og skulda til skamms tíma er þung nú í ár og næstu ár. Vextir má búast við að verði «%%. Um lán þetta er öðru vísi farið, en mörg þeirra Iána, er íslenzka ríkið hefur tekið á undanförnum árum og mörg hafa fengizt fyrir atbeina og fyrirgreiðslu annarra ríkisstjórna, að nú eru horfur á, að íslandi takist að komast inn á helztu peningamarkaði heims á hreinum viðskiptagrundvelli. Sjá nánar þingfréttir bls. 8. Hefðu Kínverjar reynt að ná aftur stöðvum. er Indverjar náðu í áhlaupi í gær, en ekki tekizt. Sagði talsmaðurinn, að barizt hefði verið látlaust í allan dag, Indverjar hefðu misst tíu til tuttugiu fallna og fleiri særða og þess mætti vænta, að álika stórt skarð hefði verið höggvið í lið Kínverja. Á hinn bóginn segir í fregn- um frá Peking, að indverskir her menn sem hefðu grafið sig nið- ur í Se La-héraðinu suður af Tawang-fljóti hafi gert áhlaup, hið mesta til þessa og haldið uppi látlausri fallbyssuskothríð. Hafi kínverska liðið neyðst til að svara árásinni í sjálfsvörn. í tilkynningu Pekingstjórnar- innar til indversku stjórnairinn- ar, sem birt var síðdegis í dag, er það harðlega átalið, að fjöl- mennu herliði Indverja hafi ver ið komið fyrir við landamæri Kína. Kveðst Pekingstjórnin fylgjast náið með öllum herflutn ingum á landamærasvæðunum og ráðleggur Indlandstjórn að vísa ekki á bug góðvild Kínverja og vilj. þeirra til friðsamlegrar lausnar. Segir Pekingstjórnin, að Kínverjar hafi misst mörg mannslíf vegna árása Indverja á landamærunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.