Morgunblaðið - 17.11.1962, Blaðsíða 24
FRÉTTASIMAR MBL
— eftir lofcun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
258. tbl. — Laugardagur 17. nóvember 1962
/ Kaupmannahöfn
Með hverri Faxa-flugferð til K.-
hafnar kemur MBL. samdægurs í
Aviskiosken, 1 Hovedbanegárden
Samið í Tálknaiirði
upp á Akraneskgör
Á FIMMTUDAG tókust samn-
ingar á Sveinseyri í Tálknafirði
um síldveiðikjörin. Var samið
um sömu kjör og á Akranesi
og Hellissandi með þeim fyrir-
vara, að þegar Alþýðusamband
Vestfjarða geri heildarsamninga
falli Tálknfirðinigar undir þá.
Tveir bátar eru gerðir ú- á síld
frá Tálknafirði.
Saltað á
Akranesi
Síldin stendur
Mbl. hefur frétt, að samkomu
lagstilraunir fari nú fram í
Ólafsvík á sam.s konar grund-
velli og samið var á Akranesi og
Hellissandi.
Skráð hefur verið á mb Helga
Fióventsson frá Húsavik, sem
gerður er út frá Reykjavík á
sild, og mb Héðin frá Húsavík,
sem gerður er út frá Hafnar-
firði á sild. Sjómennirnir róa
upp á Akraneskjörin.
KÓPAVOGIJR
SFILAÐ í Sjálfstæðishúsinu í
Kópavogi í kvöld, hefst kl. 21. —
Dans á eftir.
Rannsókn lokið í mesta
þjófnaðarmáli Reykjavíkur
Fimm piítar uppvisir oð 95 þjóínuðum
djúpt
Akranesi, 16. nóv.
ÞAÐ var heldur en ekki
handagangur i öskjunná í gær
kvöldi, þegar konumar komu
að kössUnum, til þess að salta
fyrstu síldina á þessu hausti,
1500 mál. Engin vettlingatök,
maður ! Og nau hundruð
tunnur bárust hingað í dag af
silfurglitrandi síld af tveimur
bátum. Annar var Skírnir,
sem fékk 600 tunnur, hinni
Keilir með 300. Sagt r gott
veiðiveður vestur frá, en
sildin stendur djúpt. Síldina
fengu þeir í Kolluálnum.
— Oddur.
__ _______
Vorboðafumlur
HAFNARFIRÐI — Næstkom-
andi mánudagskvöld heldur
Sjálfstæðiskvennafélagið Vor-
boðinn fund í SjáJfstæðishúsinu
og hefst hann kl. 8,30. Auk venju
Iegra fundarstarfa verður upp-
lestur og skuggamyndir sýndar.
Kaffi verður framreitt á futi.l-
inum. — Félagskonur eru beðnar
að fjölmenna og taka með sér
gesti.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN í
Reykjavík hefur upplýst eitt um
fangsmesta þjófnaðarmál, sem
um getur í Reykjavík til þessa.
Er hér um að ræða 95 innbrot
og þjófnaði sem fimm piltar, 17
—18 ára gamlir, eru valdir að.
Nema kröfurnar, sem gerðar
hafa verið vegna þjófnaðanna,
sem heita meg?. eingönigu nen-
ingaþjófnaðir, samtals 58,296 kr.,
en þar sem margir hafa ekki gert
kröfur, má telja að þjófnaðir og
skemmdir piltanna nemi um 90
þús. kr. Þjófnaðina frömdu pilt-
arnir á þessu ári, flesta seinni
hluta þess. Vorú þeir yfirleitt ó-
drukknir við iðju sína. Piltarnir
eru allir úr Reykjavík, og er
mest fór fyrir þeim komust þeir
allt upp í fimm innbrot á nóttu.
Sveinn Sæmundsson, yfirmað-
ur rannsóknarlögréglunnar,
skýrði frá því í gær að upphaf
máls þessa hefði verið að tveir
piltar stálu ávísun og sparisjóðs-
bók úr herbergi í Sjómannaskól
anum 25. okt. sl. Er þeir reyndu
að selja ávísunina í útibúi Út-
vegsbankans daginn eftir voru
þeir handteknir. Hafa þeir síðan
verið í stöðugum yfdrheyrslum
og vegna vitnisburðar þeirra
voru hinir þrír handteknir. Þrír
piltanna koma mest við sögu, en
hinir tveir minna. Aðeins einn
þeirra hefur áður komizt unddr
manna hendur.
Hjálpaði það mjög til við að
upplýsa hina fjölmörgu þjófnaði
að fingraför hafa fundizt á mörg
Fimm sækja um
starf búnaðar-
málastjóra
FIMM hafa sót um stöðu búnað-
armálastjóra, en Steingrímur
Steinþórsson lætur nú af því
starfi fyrir aldurs sakir. Þessir
fimm eru Árni Jónsson, tilrauna
stjóri á Akureyri, Halldór
Pálsson, ráðunautur hjá Búnað-
arfélagi Islands, Lárus Jónsson,
búfræðikandidat (við framhalds
nám í Svíþjóð), Ólafur Stefáns-
son, ráðunautur hjá Búnaðar-
félagi íslands, og Sigurður Elías
son, tilraunastjóri á Reykhólum.
Stjórn Búnaðarfélags íslands,
sem veitir starfið, sat á fundi á
föstudag, og var búizt við, að
starfið yrði þá veitt. Það varð
þó ekki, en væntanlega verður
það þegar eftir helgina.
Spilakvöld á
Akranesi
Spilakvöld Sjálfstæðisfélag-
anna á Akranesi hefjast að nýju
sunnudaginn 18. nóv. kl. 20.30 í
Hótel Akranesi. Dansað til kl.
eitt.
um stöðum, og komu upp um
þjófana.
Einn piltanna hafði það að sér
grein sinni að fara inn í íbúðir
og herbergi, og stal hann all-
miklu fé þaðan víðs vegar um
Framhald á bls. 13.
SAMNINGANEFND sjómanna-
samtakanna um síldveiðikjörin
kom saman á fund í gær og sam-
þykkti að fara þess á leit við mið
stjórn ASÍ, að hún óski eftir því
af verkalýðsfélögum á þeim
stöðum, sem verkfallið nær til,
að síldveiðibátar, er þangað
kynnu að Ieita til löndunar,
verði ekki afgreiddir, og ekki
verði unnið úr afla þeirra.
Skv. frétt í Ríkisútvarpinu í
gærkvöldi hafði fréttastofa út-
varpsins spurt forseta ASl um af
stöðu Alþýðusambandsins. Svar-
aði hann því, að ASÍ mundi
Nýr flugvöllur
■ Árnonesi
við Hornnfjörð
Mikii samgönguhót
Höfn í Hornafirði, 16. nóv.
í DAG var í fyrsta skipti lent
á nýjum flugvelli við Árnanes í
Hornafirði. Agnar Kofoed
Hansen, flugmálastjóri, vígði
þennan nýja flugvöll. Gerð hef-
ur verið þarna 500 metra löng
flugbraut á malarvelli. Ætlunin
er, að framtíðarflugvöllur Horna
fjarðar verði á þessum stað.
Með tilkomu nýs flugvallar við
Árnanes batnar mjög öll aðstaða
við afgreiðslu flugvéla, þar sem
mjög oft eru miklir erfiðleikar
við að komast yfir fjörðinn að
gamla flugvellinum. Þar að auki
er það að öllu loyti mjög kostn-
aðarsamt.
— Gunnar.
Þessi mánaðargamli bátur,
sem svífur hér í lausu lofti,
er á leið út í ms. Tröllafoss.
Myndin var tekin í gær-
kvöldi, þegar hann var að
leggja af stað til heimahafn-
ar sinnar, Sauðárkróks. Bát-
urinn heitir Jóhann Skúlason^
og er smíðaður í Bátalóni h.f. í
í Ilafnarfirði. Hann er llj4
tonn, og í honum er 54 ha
Lister-Diesel-vél. Norður á
Sauðárkróki verður hann sjó-
settur með kraftbómu í Trölla
fossi. Báturinn er þannig
gerður, að einn maður á að
geta stjórnað honum. Stýri er
frammi við spil á dekkinu. —
Eigendur bátsins eru Skúli
Jóhannsson og Sigurjón Þór-
oddsson.
beina þeim tilmælum til verka-
lýðsfélaganna, að þau gerðu
þessar samúðarráðstafanir með
sama hætti og við löglega verk-
fallsboðun, en í því fælist, að
slíkar aðgerðir þyrfti að boða
með sjö daga fyrirvara.
Viðræður við út-|
gerðarmenn um
kaup á Faxa-
verksmiðjunni j
Á FUNDI borgarstjórnar ý
Reykjavíkur í gær skýrði /
Geir Hallgrímsson borgar- 1
stjóri frá því, að viðræður |
færu nú fram við samtök
ýmissa útgerðarmanna, í
Reykjavík og utan henmar,
undir forystu Guðmundar
Jörundssonar, um kaup á
eignum Faxa í Örfirsey. Jafn-
framt skýrði hann frá því að
viðræðum við eigendur síld-
ar- og fiskimjölsvcrksmiðjunni
ar h.f., Kletti, hefði lokið, án
þess að gengið hefði frá samn-
ingum. Því hefði verið snúið
sér til fyrrnefndra samtaka
útgerðarmanna, sem í upphafi
hefðu auk Kletts lýst yfir
áhuga sínum á að kaupa eign-
ir verksmiðjunnar.
YVarðarkaffi
l Valhöll
'l dag
kl. 3—5 siðdegis
ASÍ gerði ekki athuga-
semd við félagatal LÍV
ÖRVÆNTING kommúnista vegna dóms Félagsdóms í máli
LÍV hefur nú brotizt út i persónulegum árásum á forystu-
menn verzlunarmanna. Ræðst kommúnistablaðið í gær á
formenn LÍV og VR og kveður þá „alls ekki eiga heima í
verkalýðsfélögum". Telur blaðið sig augljóslega dómbært
um, hverjir eiga þar heirna, enda þótt það treysti ekki lög-
legum dómstólum landsins til að gegna þeirri skyldu sinni
að úrskurða um það atriði.
Rétt er að vekja athygli á því í þessu sambandi, að Fé-
lagsdómur lagði sérstaklega fyrir ASÍ að gera athuga-
semdir við félagaskrár og lög allra meðlima LÍV, en þegar
ASl svaraði þeim tilmælum dómsins loksins með bréfi,
var þar ekki að finna athugasemd við eitt einasta nafn eða
lagagrein. Var það að sjálfsögðu algjör uppgjöf varðandi
þetta atriði, enda leit Félagsdómur svo á.
Ringulreiðina í málflutningi kommúnista má marka á
i því, að daginn fyrir þessa persónuárás Þjóðviljans lýsir
Hannibal því yfir, að „mál verzlunarmanna hefði blasað
allt öðru vísi við, ef sótt hefði verið um inngöngu fyrir hvert
i einstakt verzlunarmannafélag. Það hefði ekki brotið í bága
við skipulag okkar“ segir Hannibal.
Samkvæmt því eru menn þeir, sem kommúnistablaðið
ræðst á, stórhættulegir atvinnurekendur, ef þeir eru í lands-
sambandi, en „blasa allt öðru vísi við“ í einstökum félög-
um. Slíkan málflutning viðhafa ekki aðrir en þeir, sem
berjast fyrir vonlausum málstað.
Samninganefndin óskar
eftir samúðarverkfalli