Morgunblaðið - 17.11.1962, Side 5
i-iaugardagur 17. nóv. 1962
WORCT 1SB1 AÐIÐ
5
af CASTRO TYRANNA og
RRACÐA-MÁCUSI PÍLAGRÍM
Hlýði drósin horsk og svinn,
hérmeð stæltur gæinn.
Læt ég Berlings bátinn minn
Boðnar- rista -sæinn.
Stundum er oss styrkt um mál
stefjaklið að mynda.
Læt þó íslenzkt óðarstál
orðin saman binda.
Gömlu skáldin ortu óð
oft um langa vetur,
hugsuðu að hýreyg fljóð
hlýjuðu þeim betur.
Ortu tíðum ástasöng
ítrum heimasætum,
svo að vakan léttist löng
laukaskorðum mætum.
Ekki verður ástafar
efni hér í bögu,
skýrri þjóð til skemmtunar
skrái nýja sögu.
Einn er kenndur Krúsjeffs þræll
kostgæfinn og þægur,
talinn lítið sómasæll,
sæmdarverkahægur.
Þessi reit í Þjóðviljann
þægur Rússadindill,
oft í brösum eiga vann
andans músarrindill.
Flestan sannleik fyrirleit
fullur af Stalins anda,
fúla lýgi falskur reit
flæktur í ljótum vanda.
Eitt sinn reisti utanlands
yfir hafið djúpa
og með fullting andskotans
upp svo tróð á Kúba.
Geldingsins þá gladdist sinn,
gleiður þannig tjáði:
„Vertu með oss velkominn
vinur af ísaláði.“
Þakkir Mágus mætar tér,
(maðurinn er ei dóni):
„Beztu kveðju ber ég þér
bræðranna á Fróni.
í kærleika^ sem vís er von,
vinarkveðju tama
innir Kristinn Andrésson,
ósk um gengi og frama.
Einar og Lúðvík einnig tér
ástarkveðju hlýja,
líka biðja lukku þér
Laxness bæði og Sía.
Þarmeð talinn Þorbergur
þýða heilsun sendir,
einnig Hermann, hæverskur,
huga til þín bendir.“
Kurteis þakkar kveðjurnar
Castro hýr í bragöi:
„Bið þeim Maos blessunar
bezti vin,“ hann sagði.
„Allvel koma orðin hlý,
eðla þanka sýnir.
Kraftaramur Kennedý
korða sína brýnir.
Hræðist ég inn hrausta segg,
huga tekur kopa.
Sór þó við mitt skæra skegg
skyldi aldrei hopa.
Oft má þola illyndl
af þeim Herjans syni,
Traust er úti á íslandi
eiga trygga vini.
Kennedy, þann harða hal,
heppnast lítt að pretta.“
Blíður Mágus byrjar tal:
„Bágt er að heyra þetta.
Vertu kátur, vinur minn,
- vart mun þurfa að biðja,
þig skal alltaf Þjóðviljinn
þægilega styðja.
Líka sögu segjum vér,
snúinn gerist vandi,
bandarískur böðlaher
byggir á voru landi.
Hefur þetta harkalið
hald á flestum konum,
lengur ekki líta við
landsins eigin sonum.
Byggir kræfur Kanaher
Keflavíkurvöllinn,
engar varnir eigum vér
oss eru búin föllin.
Brjáluð hræðsla og hyggjufár
hugann gerir þvinga,
hrynja af augum höfug tár
hernámsandstæðinga.
Víst að gjalti verðum því
í voðalegu standi,
er því kallinn Kennedy
kjörinn beggja fjandi.
Eru Rússar eina von
okkar í þeirri pressu,
eflaust Kristinn Andrésson
ordnað gæti þessu.
♦
Víst er fylgi Framsóknar
frjálsa menn að kúga,
eins vill Sía allstaðar
okkur í haginn búa.
Þreknir gæjar Þjóðvarnar
þræla Krúsjeffs styðja,
eins nytsamir aumingjar
okkur sigurs biðja.
1 áttina til ársældar
okkur mætti tomma,
fast ef toga fylkingar
Framsóknar og komma.
Æðsta patrón eigum við
austur í sovétinu
sá mun okkur leggja lið
og létta hallærinu.
Þekki ég Krúsjeffs þankafar
- það er enginn bjáni, -
atomvopn og eldflaugar
ætla ég þér hann láni.
Berðu þig að beita því,
bældu niður trega,
kannske fær þá Kennedy
á kjaftinn rækilega.
Hertu þig nú mest sem má
morðtólum að beita.
Þjóðfylkingin Fróni á
fullting skal þér veita.
Skyldi frægðarferill þinn
firrast öllu grandi.“
Kvaddi síðan Castro sinn
kossi og handabandi.
„Kvaddur sértu,“ Castro tér,
„kærleiksóskum fínum,
heilsan berðu heim frá mér
hoilum vinum mínum.
Varði Ulbricht veginn þinn
varla þarftu að flýja.
Kysstu frá mér Kristinn minn
og kálfana í Sía.
Fyrir hollu heilræðin
hafðu þökk og gengi,
heimsóknina, Mágus minn,
muna skal ég lengi.
Mikið hryggir hjarta mitt
hér við þig að skilja,
en gættu að þér, greyið þitt,
að gera Krúsjeffs vilja.“
Bljúgur Castro barst af lítt,
bifðist sorgfullt neggið,
hans af augum tárin títt
trilluðu niður í skeggið.
Hélt svo Mágus heim á leið
hafði byrinn sæla.
Castros bfður kvöl og neyð,
kosti sovétþræla.
Castro bæði og Kúbufrón
kommúnistar pressa.
Mun nú sjálfur Mykjujón
manntuskuna blessa.
Síðan Mágus karlinn kann
Castros dyggðum lýsa,
þýið lætur Þjóðviljann
þrælinn leiða prísa.
Þetta er ekkert efni í grín,
óðnum skulum venda.
Tæmt að dregg er Tvíblindsvín,
tekur ríman enda.
Pétur Ásmundsson
12—3 herbergja íbúð
óskast til leigu. Tvennt í
heimili. Tilboð sendist Mbl.
merkt: „íbúð — 3303“.
IIðnaður
Útbúnaður ásamt litlum
hráefnalager í hreimegan,
léttan iðnað, til söiu. Uppl.
í síma 38078.
Gott píanc
til sölu. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í sima 24062.
Mjög fallegttr,
nýr samkvæmiskjóll nr.
14—16 til sölu. Uppl. í
síma 23502.
Vantar konu
til að ræsta ganga í nýrri
blokk, Vesturgötu 50 A.
Uppl. eftir kl. 6 á 5. hæð
til hægri, lyfta.
Góður barnavagn
til sölu. Uppl. í síma 2254,
Keflavík.
Hestamannafélagið
FAKIJR
Skemmtifun dur verður haldinn í Skátaheimilinu
v^ið Snorrabraut laugard. 17. nóv. kl. 8 e. h.
Til skemmtunar verður:
Félagsvist — Kvikmyndasýning (Kjartan
O. Bjarnarson) úr hestamennskunni —
Dans. Hljómsveit Ágústar Péturssonar.
Pélagar takið með ykkur gesti.
SKEMMTINEFNDIN.
(Jnglingsstúlka
óskast hálfan daginn til sendiferða.
Komi til viðtals á skrifstofu okkar
Laugavegi 164.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Mánaðakaupsmann
vantar okkur í pakkhús okkar.
Talið við verkstjórann.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Laugavegi 164.
H afnarfjörður
og nágrenni
Pökkunarstúlkur óskast strax.
Hraðfrystihúsið Frost hf.
Hafnarfirði. — Sími 50165.
INlauðungaruppboð
sem auglýst var í 80., 81. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins
1962, á húseignmni m. 73 við Réttarhol-tsveg, hér í borg,
talin eign Guðmundar Lárussonar, fer fram eftir kröfu
Magniisar Árnasonar hrl., bæjargjaldkerans í Reykjavík og
Iðnaðarbanka fs’ands h.f. á eigninni sjálfri mánudaginn
19. nóvember 1962, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 63. og 65. tbl. Lögbirtingablaðsins
1962, á hluta í húseigninni nr. 28 við Reynimel, hér í borg,
þingl. eign Haralds Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Bún-
aðarbanka íslands, Árna Guðjónssonar hrl., á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 20. nóvember 1962 kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.