Morgunblaðið - 17.11.1962, Side 15

Morgunblaðið - 17.11.1962, Side 15
Laugardagur 17. rióv. 1962 MORGI’NBT.AÐIÐ 15 / Borgarfrettir í stuttu máli Dagvist við Laugarnesskóla BORGARSTJÓRN Reykja- víkur samþykkti á fundi sín- um sl. fimmtudag þá tillögu fræðsiuráðs borgarinnar, að tekin verði upp dagvist við Laugarnesskóla næsta vetur, ætluð fyrir u. þ. b. 15 börn, í húsnæði því, sem heimavist skólans hefur verið starfrækt í undanfarin ár. Skýrði frú Auður frá því á fundinum, að þetta væri gert vegna endur- tekinna óska kennara skólans, sem talið hafa óheppilegt að reka heimavist í skólahúsinu samhliða hinu reglulega skóla haldi. Upphaflega var heima- vistin ætluð fyrir veikluð börn, og voru börn þá vistuð þar eftir tilvísun skólalækna. En þau börn, sem þar hafa verið á undanförnum árum, hafa svo að segja eingöngu verið þar af öðrum ástæðum en heilsufarsástæðum, svo sem ýmiss konar heimilisástæðum. Á næsta vetri verður sú breyt- ing því á gerð, að börn þau, er þarna verða vistuð, munu dveljast á heimilum sínum um nætur. - * - Ný kvöldsölu- leyfi ekki veitt BORGARRÁÐ Reykjavíkur ákvað á fundi sínum'sl. þriðju- dag, að leyfi til kvöldsölu verði ekki veitt á nýjum stöð- um fyrst um sinn, þar sem reglur um afgreiðslutíma verzl ana og annarra sölustaða í Reykjavík eru nú í endurskoð- un. Þörf á dag- heimilum athuguö Á VEGUM Barnavinafélagsins Sumargjafar fer nú fram at- hugun á þörfum fyrir dag- heimili, er ætluð séu börnum á aldrinum 5—7 ára. Er álits- gerðar félagsins um þetta mál að vænta fyrir miðjan janúar nk. Lagðar hafa verið og lagð- ar verða spurningar fyrir að- standendur þeirra barna, sem dvalizt hafa og dveljast munu á vegum Sumargjafar á tíma- bilinu frá 1. júní til 31. des- ember 1962, og að áliti stjórn- ar félagsins verða í vandræð- um með börn sín, er þau kom- ast á sjöunda aldursár, og hverfa frá heimilum Sumar- gjafar. — -x - hvad veröur gert vib Hliðarenda ? Á FUNDI sínum sl. fimmtu- dag fól borgarstjórn Reykja- víkur fræðslustjóra í samráði við barnaverndarnefnd að gera tillögur um nýtingu vöggustofunnar að Hlíðar- enda, þegar hið nýja húsnæði Thorvaldsensfélagsins þar verður tekið í notkun. Sam- kvæmt ályktun borgarstjórn- ar á tillaga um þetta mál að liggja fyrir áður en fjárhags- áætlun borgarinnar fyrir 1963 verður afgreidd, sem verður í næsta mánuði. Skýrði frú Auður Auðuns frá því á fund- inum, að fræðslustjóri hefði að undanförnu haft þetta mál til athugunar, en ýmsir mögu- leikar kæmu til greina við nýtingu á húsnæði þessu. “ * - Leiðbeiningar til skólabarna vegna umferðarhættu UMFERÐARNEFND Reykja- víkur samþykkti á fundi sín- um 30. október sl. að láta út- búa lítið blað, 1 — 2 síður, með áminningum vegna um- ferðarhættu, sem íögreglan síðan afhendi börnum í barna- skólum borgarinnar. - * - Landakotstún endurskipulagt ÞAÐ kom fram á fundi um- ferðarnefndar Reykjavíkur 16. okt. s.l, að unnið er að endur- skipulagningu Landakotstúns, og er gert ráð fyrir, að bif- reiðastæði verði vestan Hóla- vallagötu. - * - Umferðarendur- bætur við Borgartún Á FUNDI umferðarnefndar Reykjavíkur 16. okt. sl. var lögð fram lögregluskýrsla, þar sem gerðar eru tillögur um eftirtaldar umferðarendurbæt- ur við Borgartún milli Skúla- torgs og Höfðatúns: a) Afmarkaðar gangstéttir og jafnframt afmörkuð gatna- mót Steintúns og Borgartúns. • b) Skipulagður akstur inn og út á skoðunarsvæði bifreiða eftirlitsins. c) Biðstöð S.V.R. verði færð vestur fyrir gatnamót Höfða- túns og þar út af akbrautinni. d) Inn- og útakstur af svæðum sendibílstöðvanna verði skipulagður. e) Vinnutæki og steypuefni verði fjarlægð af Höfðatúni og gert bifreiðastæði vestan götunnar og gangstétt afmörk- uð. f) Á lóð framanvert við húsið Höfða við Borgartún verði gert bifreiðastæði. g) Að bílasala milli Sætúns og Borgartúns verði fjarlægð og gert þar bifreiðastæði. h) Bifreiðastöður í Borgar- tún frá Skúlatorgi að Höfða- túni verði takmarkaðar. Samþykkti nefndin að fela framkvæmdastjóra sínum að vinna að framangreindum endurbótum í samráði við borgarverkfræðing. Togarinn „Lord Middleton" frá Fleetwood. (Ljósm.: Magnús Eymundsson). hefur nú veriu sent saksóikn- Skipstjóri neitni saknigiftum RÉTTARHÖLD í máli brezka á ísafirði. Rannsókn málsins ara ríkisins, og er búizt við skipstjórans á LORD MIDD- var lokið kl. 18, og neitaði munnlegum málflutningi í LETON hófust kl. 13.30 í gær skipstjóri sakargiftum. Málið dag. Kommúnistar lítilsvirða dómgreind verzlunarfólks Eyjólfur Guðmundsson, varaformaður VR, svarar ósœmilegri árás kommúnista á formann Verzlunarmannafélags Rvíkur Á FORSÍÐU „Þjóðviljans“ í gær voru birt óvenju rætin skrif um formann Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Guðmund H. Garð- arsson, þar sem honum, forystu- manni annars fjölmennasta laun þegafélags landsins, er borið á brýn, „að hann hafi hreina at- vinnurekendaafstöðu til allra málefna verkalýðssamtakanna.“ Guðmundur var kosinn for- maður V. R. árið 1957, þegar fé- lagið stóð á miklum tímamótum, en þá voru aðeins tvö ár liðin frá því er V.R. varð hreint laun- þegafélag. Hefur hann notiff ó- skoraðs og vaxandi trausts, sem forystumaður verzlunarfólks í Reykjavík. Til marks um það traust, sem hann nýtur í þessu félagi, sem telur 2700 launþega, má m. a. geta þess ,að aldrei hef- ur verið teflt fram mótframboði gegn honum sem formanni fé- lagsins. Að leyfa sér í opinberum skrifum að halda því fram, að hinn mikli fjöldi félagsmanna V.R., þ.e.a.s. verzlunarfólk í Reykjavík, sé svo glámskyggn á hagsmuni sína, að það velji til forystu ár eftir ár mann með „hreina atvinnurekendaafstöðu til allra málefna verkalýðssam- takanna", eins og Þjóðviljinn segir, er móðgun við dómgreind verzlunarfólks í Reykjavík, og skulu kommúnistar varast það að svívirða ábyrga forystumenn innan verkalýðshreyfingarinnar, þó að þeir hafi aðrar skoðanir en þeir eftir hvaða leiðum skuli tryggja hagsmuni launþega. Til að sýna enn betur fram á, hve fráleit staðhæfing Þjóðvilj- ans er, skal hér aðeins getið fram gangs nokkurra mála í stjórnar- tíð núverandi formanns V.R., Guðmundar H. Garðarssonar. Á tímabilinu 1957—1962 hafa laun verzlunarfólks hækkað sem hér segir: 1957 o% 1958 5,5% 1961 11—16% 1962 9% Voru þetta fullkomlega sam- bærilegar hækkanir við önnur stéttarfélög á umræddu tímabili, og stundum meiri. Þá hefur átt sér stað vinnu- tímastytting hjá verzlunarfólki. Á þessu tímabili var ótvíræð- ur samningsréttur V.R. viður- kenndur af öllum samtökum vinnuveitenda, en með því var skapaður sterkur félagslegur grundvöllur og allt verzlunar- fólk, í Reykjavík sameinað und- ir V.R. Árið 1956 voru skráðir félagar í V.R. 1400, en í árslok 1961 2700. Þá má geta þess, að á þessu tímabili var Landssamband ísl. verzlunarmanna stofnað og jafn- framt fyrir forystu Guðmundar tryggð aðild verzlunarfólks að stofnun Verzlunarbanka íslands. Eigi skal frekar rakið, hvað áunnizt hefur í stjórnartíð þess manns, sem Þjóðviljinn ræðst svo harkalega á, sem raun ber vitni um, en þess aff lokum get- iff, aff Guðmundur er einarður baráttumaður fyrir sína stétt, jafnframt því sem hann á lands- málasviðinu er eindreginn stuffn- ings- og baráttumaður fyrir einkarekstri og eínkaframtaki. Og síffast en ekki sízt, eins og alþjóff er kunnugt, er hann einn af fremstu forystumönnum yngri manna, sem af einurff og festu berst gegn stefnu og áhrifum kommúnista á fslandi. Framsóknarmenn amast við niður- rifi gamalla húsa í Miðbænum! ÞAÐ VAKTI mikla athygli og undrun á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur sl. fimmtudag, að helzti ,,sérfræðingur“ Framsókn- arflokksins í málefnum Reykja- víkurborgar, Björn Guðn’.unds- son, varð til þess að gagnrýna yfirvöld borgarinnar harfflega fyrir að hafa látið rífa tvö hús, Hótel Heklu og Austurstræti 1, sem borgin hafði keypt til nið- urrifs til þess að greiffa fyrir endurskipulagningu Miffbæjar- ins. Var bersýnilegt, aff borgar- fulltrúar — jafnt i minnihluta aff verjast brosi meðan Björn lýsti þessu nýjasta baráttumáli framsóknarmanna í borgarstjónn Reykjavíkur og þuldi reiðilestur sinn yfir for- ráðamönnum bor~arinnar fyrir þessa framtaksemi. í ræðu, sem Geir Hallgrimsson borgiarstjóri flutti við umræff irit-T um. þetta mál, sagði hann m.a., að sig hefði ekki óraff fyrir því, þegar þá- verandi borgarfulltrúi Framsókn arflokksins, Þórffur Bjömsson, gagnrýndi borgaryfirvöldin fyr- ir seinlæti við niffurrif Hótel Heklu fyrir aðeins tveim árum, að hann ætti eftir að heyra borg- arfulltrúa Framsóknarflokksins halda slika ræðu sem Björn Guðmundsson hefði flutt ura þetta mál! Björn Guðmundsson kom þess- ari óvæntu gagnrýni sinni á framfæri í sambandi við tvær fyrirspurnir til burgarstjóra, er hann bar fram á fundinum. Voru fyrirspurnir hans á þessa leið: „1. Hvers vegna var hiúsið Hótel Hekla rifið fyrr en samn- ingar höfðu tekizt um að fjar- lægja 'afnihliða húsið Hafnar- stræti 22 og viðtengdar skúr- byggingar? 2. Hvers vegna var húseignin Austurstræti 1 rifin fyrr en mögu leikar voru á að hreinsa að fullu burtu skúrbyggingu úf að Aðal- stræti?“ Geir Hallgrímsson borgarstjóri gerð: grein fyrir því, að bæði húsin. Hótel Hekla og Austur- stræti 1, hefðu verið keypt til niðurrifs til þess að greiða fyrir skipulagningu Miðbæjarins, enda 'hefði ályktun borgarráðs 12 .apríl 1960 um niðurrif húsanna verið samiþykkt með samhljóða at- kvæðum. Kvað borgarstjóri einn- ig einsýnt, að nota yrði öll tæki- færi. sem gæfust, þegar hreinsa ætti til á stöðum eins og hér í Miðbænum, en um það væri einmitt að ræða í þessum til- fellum. Til viðbótar nefndi hann það sem dæmi, að erfitt mundi reynast að rýmka til við Vest- urgötu, neðanverða, ef bíða ætti þess, að unnt yrði að fjarlægja alla húsaröðina að sunnanverðu, svo sem æskilegast væri. Um Hótel Heklu sagði borgar- stjóri. að þar sem möguleikar voru á því að koma borgarskrif- stofum, er þar voru til húsa, fyrir á hagkvæmari hátt og unnið er því að Ijúka endur- Framh. á bls. 23. — Hinn „ungi .... Framh. af bls. 10 andi, einkum, þegar hann gleymdi því að hann er her- togi.“ Fyrir nokkrum dögum komu fyrstu ljóð Jevtusjenko úf í Bandaríkjunum. í Dan- mörku hafa ljóð hans enn ekki verið þýdd, en í tímaritinu „Ord og Bild“ hefur Ivan Mal inovski gefið í danskri þýð- ingu sex dæmi um fjölbreytni og styrkleika ljóðskáldsskap- ar hans. í einu þeirra ljóða segir: Þeir eru hinir sömu og áður./ Hvað stoðar að biðja þá sjá hið nýja?/ Þeir létu sér segj- ast til þess eins að sýnast/ en voru þó innst inni samir við sig. Reiður eða ekki reiður. — Hann er þess virði, þessi ungi maður í Sovétríkjunum, að með honum sé fylgzt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.