Morgunblaðið - 17.11.1962, Page 16
16
jíOBcrivBr 4»i»
Laugardagur 17. nóv. 1962
Sjötugur í dags
Gunnlaugur Stefánsson
kaupmaður
í DAG á sjötugsafmæli Gunn-
leugur Stefánsson, kaupmaður í
Hafnarfirði. Hann er fæddur í
Hafnarfirði og hefur alið aldur
í HafnarHrði
sinn allan þar í bæ. Foreldrar
hans voru merkishjónin Sólveig
Gunnlaugsdóttir og Stefán Sig-
urðsson, trésmiður, sem bjuggu
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir, er verða sýndar í Rauðar-
árporti þriðjudaginn 20. þ. m. kl. 1—3. Tilboðin
verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Góðhestar — Hryssnr
Nokkrir góðhestar, hryssur og góðhestaefni til sölu.
Upplysingar að Fitjakoti Kjararnesi.
sími um Brúarland.
Þilplötur
Plasthúðaðar með flísamunstri.
J. Þcrláksson & Norðmann ht.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30.
Sendisveinn
Röskur piltur eða stúlka óskast til
sendiferða hálfan eða allan daginn.
Eggert Kristjánsson & Co. ht.
Gluggagirði
n ý k o m i ð .
Blikksmiðjan Sörli
Hringbraut 121 — Sími 10712
næstum allan sinn búskap í Hafn
arfirði.
Gunnlaugur var aðeins 14 ára
þegar faðir hans lézt. Ætlunin
hafði verið, að hann yrði settur
til mennta, en hann kaus heldur
að leggja hönd á plóginn við hlið
móður sinnar og systkinanna
sex í strangri lífsbaráttu þeirra
tíma, er fyrirvinnan féll frá.
Gunnlaugur var einn af eldri
systkinunum. Var hann og syst
ir þeirra bræðra. Ingibjörg, er
lézt vorið 1961, tvíburar.
Það kom fljótt í ljós, að mann
kostir Gunnlaugs voru óvenju-
miklir. Afburðadugnaður og ár
vekni vöktu strax athygli í fari
'hans. Jón Þórarinsson, fræðslu-
málastjóri, réði Gunnlaug sem
starfsmann sinn til fyrstu gos-
drykkjaverksmiðju hér á landi,
,,Kaldá“. Vann hann þar 1 um
það bil þrjú ár og var þá orðinn
forstjóri þess fyrirtækis aðeins
17 ára að aldri. Eftir það fór
Gunnlaugur til náms í bakaialðn
og varð að þvi loknu yfirbakari
hjá Einari Þorgjlssyni, útgerðar-
manni. Leið ekki á löngu, unz
Gunnlaugur tók bakaríið á leigu
og starfrækti það um nokkum
tíma.
Er hér var komið fór Gunn-
laugur í vaxandi mæli að hafa
afskifti af viðskiptamálum. Stofn
aði har-. nú og rak bæði inn- og
útflutniugsverzlun auk smásölu
verzlunar, sem hann starfraekti
jafnan af einstökum dugnaði %
forsjá, enda ,,sá Gunnlaugsbúð
ávallt um sína“, þótt skortur
væri á vörum.
Gum.laugur hóf árið 1930
InnfZytjendur — IJtflytjendur — Innflyijendur
r
a
s
k
r
i
f
t
hvað er IMPORT-EXPORT THE BRIDGE TO THE WORLD,
og hvaða erindi á það við yður?
EXPORT-IMPORT THE BRIDGE TO THE WORLD er við-
skiptablað, sem tengir yður við allan hinn stóra viðskipta- }
heim. ý
Sendið fyrirspumir, og þér fáið svar Uui næi asamt svnis- g
eintaki. j
Höfum fyrirspurnir frá erlendum fyrirtækjum, sem vilja u
eiga viðskipti við íslenzk. g
Export-Import umboðið a
Garðastræti 11, R. j-
rekstur kaffibætisgerðar, og
framleiddi um árabil hinn lands-
þekkta -.affibæti G.S. Einnig
rak hann kaffibrennslu.
Áhugi Gunnlaugs a útgerðar-
málum hefir allbaf verið mikill.
Strax og efni stóðu til keypti
•hann mótorbát til Hafnarfjarðar,
og átti síðan þátt í stofnun ým-
issa útgerðarfyrirtækja í Hafn-
arfirði, þar á meðal nokkurra
togarafyrirtaekja. í mörg ár hafði
hann sjálfur vélbátaútgerð, að-
allega frá Grindavik og Þorláks
höfn, og henni samfara töluverða
fiskverkun.
Hér hefir verið stiklað á stór-i
í starfsaevi Gunnlaugs Stefáns-
sonar. — Þrátt fyrir umsvifa-
mikil störf hefir hann gefið sér
tíma til að staría að ýmsum fé-
lags- og framfaramálum. — Hann
hefir verið kvaddur til opinberra
starfa, til dærnis sem meðdóm-
andi í sjó- og verzlunardómi
Hafnarfjarðar hin síðari ár. —
í tómstundum siðustu ára hef
ir Gunnlaugur stundað sauðfjár
rækt. sér til ánægju og yndis, og
haldið hjörð sína af mikilli alúð.
— Þótt sauðkindin og trjágróð-
urinn seu í margra augum and-
stæður, hefir hann þar samein
að sín hugðarefni, en hann hef-
ir komið upp mjög fallegum og
’velihirtum trjágarði u.mhverfis
hús sitt að Austurgötu 25. —
Það hefir ávallt verið áber-
andi í fari Gunnlaugs, hver&u
hjálpsamur og örlátur hann hef
ir verið og þá einkum þeim, sem
minni máttar eru og undir hafa
orðið í lífsbaráttunni. — Eiga
margir Ijúfar minningar um gjaf
mildi hans og góðsemi. — Gunn
laugur hafði meðal annars for-
göng-u um starfsemi, sem stóð
fyrir því i lok síðustu styrjald-
ar að safna fé og öðru til hjálp
ar fátækum og munaðarlausum
finnsku.n börnum. —
Gunnlaugur er bókfús maður
og listijngur og fróður vel um
menn og málefni. — Er hann
hress og skemmtilegur í allri
frásö i, og andar hlýju og birtu
í návis. hans. —
Gunnlaugur er kvæntur Snjó
ia.ugu G. Árnadóttur, prófasts
frá Görðum. mestu ágætiskonu,
og . þau þrjú börn, Stefán,
fyrrverandi bæjarstjóra í Hafn
arfirði, Árna, héraðsdómslög-
mann. og Sigurlaugu sem dvelst
hjá foreldrum sínum. Aak þess
ólu þau upp fósturdóttur, Sigur-
jónu Jóhannesdóttur, búsetta í
Reykjavík.
Við, sem kynnzt höfum Gunn-
laugi Stefánssyni, sendum hon-
um á þessum merku tímamótum
ævi hans hugheilar hamingju-
óskir með þakklæti fyrir góð
kyn.ii. —
Gunnlaugur verður ekki heima
á afmaelisdaginn. —
Vinur. —
Athugasemd
frd skólanefnd Laugalandsskóla
ÚT AF fréttagrein í dagblaðinu
Tímanum, 10. nóvember síðast-
liðinn, varðandi heimavistar-
barnaskólann að Laugalandi í
Holtahreppi, vill skólanefndin
taka fram eftirfarandi:
Á fundi skólanefndarinnar 29.
ágúst sl. var skólastjóranum,
Sæmundi Guðmundssyni, falið
að leita fyrir sér um kaup á há-
talarakerfi, sem hentað gseti
barnaskólanum. Gert var ráð
fyrir að nota mætti tækið á eftir-
farandi hátt:
1) Til flutnings á útvarpsefni.
2) Til flutnings á efni af segul-
bandi og plötuspilara, en
hvort tveggja er nú þegar í
eigu skólans.
3) Að koma tilkynningum og
boðum til nemenda.
4) Að nemendur geti gert skóla-
stjóra viðvart að næturlagi
með hringingu, ef um veik-
indi eða annað er að ræða,
sem krefst skjótrar úrlausn-
ar.
5) Að tengja við kerfið sjálf-
virka klukku, sem hringir úr
og í kennslustund.
Fór skólastjórinn ásamt for-
manni skólanefndar á fund
fræðslumálastjóra og ræddu
málið við hann. Síðar átti skóla-
stjórinn aftur viðræður við
fræðslumálastjóra, sem fór sjálf-
ur ásamt skólastjóranum á fund
Steinars Guðmundssonar, bygg-
ingarverkfræðings, og leituðu
þeir álits hans á málinu. Benti
byggingarverkfræðingurinn á á-
kveðna tegund tækja, sem hent-
að gætu skólanum. í framhaldl
af þessu var rætt við Einar
Árnason, rafvirkjameistara á
Hvolsvelli, og fer yfirlýsing hans
hér á eftir:
„Leitað hefur verið eftir til-
boðum í hátalarakerfi, sem full-
nægt geta bæði tal- og tónflutn-
ingi. Ennfremur geti verið tal-
rásir í nemendaherbergi frá aðal
stöð, sem virka eins og innan-
hússími. Ennfremur hefur verið
leitað eftir tilboðum í hringing-
arkerfi. Tilboða er í fyrsta lagi
að vænta eftir mánuð. Ég vil
taka það fram, að mér hefur
aldrei verið falið að leita eftir
neinum tilboðum í hlustunar-
kerfi eða annast lagningu á slíku
kerfi.
Einar Árnason (sign.)“
Eins og ofanritaðar upplýs-
ingar bera með sér, er áður
nefnd blaðagrein ekki aðeins
villandi, heldur bæði ósönn og
rætin. Er fullyrt, að þegar hafi
verið lagt hátalarakerfi í skól-
ann og til þess bafi skólastjór-
inn fengið fé eftir einhverjum
óþekktum leiðum. — Hvort
tveggja er rangt. Ekkert hátala-
kerfí hefur verið lagt í skólann,
og engu fé varið til slíkra fram-
kvæmda, hvorki frá ríki né
sveitafélögum.
Laugalandi, 13. nóv. 1962.
Skólanefnd Laugalandsskóla, '
Benedikt Guðjónsson, form.,
Hannes Guðmundsson, ritari,
Sigurjón Sigurðsson, /
ölvir Karlsson, '
Guðmundur Þorleifsson,
Trausti Runólfsson,
Sigurjón Pálsson.
Hafnarfjörður
Til sölu er fiskhjallur, ásamt tilheyrandi lóðarétt-
indum við Garðaveg. — Upplýsingar gefur
KRISTINN Ó. GUÐMUNDSSON, HDL.
Hafnarstræti 16 — Sími 13190 kl. 3—6.
Skrifstofustúlka
sem getur annast enskar bréfaskriftir, sjálfstætt,
óskast til starfa hjá stóru innflutnings- og iðn-
aðarfyrirtæki. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt:
„Framtíð — 3066".