Morgunblaðið - 12.12.1962, Side 1
24 slður
49 árgangur
279. tbl. — Miðvikudagur 12. dcsember 1962
Prentsmiðja Morgwnblaðsins
Framkvæmdastjóri IATA
kallar Loftleiðir ,sníkjudýr‘
IATA veitir SAS frest til janúarloka
S I R William Hildred, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasam-
bands flugfélaga (IATA) er
nú staddur í Stokkhólmi, þar
sem hann ræðir við yfirmenn
SAS um. ágreininginn, sem
risið hefur vegn hinna lágu
fargjalda Loftleiða yfir Norð
ur-Atlantshaf.
í dag ræddu sir William og
Karl Nilsson, aðalforstjóri
SAS, við fréttamenn í Stokk-
hólmi. Á fundinum var skýrt
frá því, að fresturinn, sem
IATA veitti SAS til þess að
falla frá fyrirvaranum, sem
félagið setti á ráðstefnu IATA
í haust, hefði verið fram-
lengdar frá 15. des. til janúar-
loka. Einnig var skýrt frá
því að í byrjun janúar yrði
haldinn í París fundur þeirra
aðildarfélaga IATA, sem
fljúga yfir Norður-Atlants-
haf og á honum yrði rætt
mál SAS og Loftleiða og far-
miðaverð yfir Norður-At-
lantshaf.
Á fundinum með frétta-
mönnum fór sir William mjög
lofsamlegum orðum um SAS
og starfsemi þess, en um Loft-
leiðir sagði hann, að hinar ó-
dýru ferðir félagsins yfir At-
lantshaf væru hreinn og
beinn þjófnaður. Loftleiðir
væru „óþjóðfélagslegt stund-
arfyrirbrigði“ og „umferðar-
letjandi sníkjudýr.“ Þrátt
fyrir þetta stingur sir Willi-
am upp á þeirri lausn, að
Loftleiðir gerist aðili að
IATA.
Annars staðar á forsíðunni
birtast ummæli Kristjáns Guð-
laugssonar, stjórnarformanns
Loftleiða, en hér fara á eftir
skeyti frá' fréttariturum Mbl.
í EXNKASKEYTI, sem Mbl. barst
í gaer frá fréttaritara sínum í
Kaupmannahöfn, segir m.a.:
Sir William Hildred, yfirmað-
ur IATA, stakk upp á þeirri
lausn á máli SAS og Loftleiða,
að reynt yrði að fá Loftleiðir
til þess að gerast aðila að IATA.
Sir William skýrði frá pessu á
fundi með fréttamönnum í Stokk
hólmi í dag. Sagðist hann ekki
trúa því, að til fargjaldastríðs
Framh. á bls. 23.
Ný stjorn
í Bonn
Bonn 11. des. (NTB-AP).
f DAG náðist samkomulag í
Bonn um embættaskipun í hinnl
nýju samsteypustjórn Kristilegrra
demókrata og Frjálsra demó-
krata undir forystu Konrads
Adenauer. Verða jafn margir
ráðherrar frá hvorum flokki í
stjórninni og voru í síðustu
stjóm, 15 kristilegir demókratar
og 5 frjálsir demókratar.
Við embaetti landtvarnarráð-
herra, sem Franz Joseph Strauss
Framh. á bls. 23.
Vilja drepa Loftleiðir til
að geta hækkað fargjöldin
Ummæli sir Williams barnaleg,
segir Kristján Guðlaugsson
Morgunblaðið fékk þessa myn d símsenda í gærkvöldi. Sýn-
Ir hún sir William Hildred (t. h.) og Karl Nilsson (t. v.) á
fundi með fréttamönnum í Stokkliólmi — (AP)
MBL. átti í gær samtal við
Kristján Guðlaugsson, stjórn-
arformann Loftleiða, um um-
mæli sir William Hildred,
framkvæmdastjóra Alþjóða-
sambands flugféiaga (IATA)
í Stokkhólmi í gær, en þar
fór hann mjög hörðum orðum
um Leiftleiðir, sem hann
ásakaði um „þjófnað“ og
nefndi „sníkjudýr." Kristján
Guðlaugsson sagði að þessi
ummæli sir Williams væru
barnaleg, „og raunar álíka
gáfuleg og fyrri ummæli
þessa manns“.
„Ég veit ekki betur,“ sagði
Kristján, „en SAS flytji far-
þega frá Bandaríkjunum til
skandínavísku landanna og
áfram þaðan. Um þetta hefúr
staðið ágreiningur milli
bandarísku flugmálastjórnar-
innar annars vegar og SAS
hins vegar. Bandaríska flug-
málastjórnin hefur rætt sér-
staklega um málið við SAS,
sem svaraði því til að banda-
rísku flugmálastjórninni
kæmi það ekki við hvert far-
þegarnir væru fluttir frá
Skandinavíu. Á þessu lifa öll
flugfélög í heimi; flytja far-
þega annarra þjóða, ekki
endilega til ákvörðunarstaðar
í heimalandi viðkomandi
flugfélags heldur áfram, eins
og farþegarnir óska.“
„Um þjófnaðarkenningu sir
Williams vil ég segja að hún
er lagaleg vitleysa, eins og
þegar hann bjargaði sér á því
í sambandi við bandarísku
auðhringalögin að Loftleiðir
væru ekki í IATA, og af þeim
sökum væri IATA ekki auð-
hringur. I>á hló allur flug-
málaheimurinn.“
„Ég vísa öllum þessum um-
mælum sir Williams til föð-
urhúsanna. Þau eru álíka
gáfuleg og fyrri ummæli
þessa manns.“
Kristján Guðiaugsson
„IATA-félögin keppa að því
að drepa Loftleiðir til þess að
geta hækkað fargjöldin enn
frá því sem þau eru nú sam-
kvæmt IATA-töxtum,“ sagði
Kristján. „Það eru uppi um
þetta háværar kröfur frá
mörgum félögum innan
Framh. á bls. 23.
Bretar
tóku Seria
Brunei, London 11. des.
(NTB-AP).
BREZKIR hermenn náðu horg-
inni Seria í dag úr höndum upp
reisnarmanna í Brunei. Þó er
lögreglustöð borgarinnar enn á
valdi uppreisnarmanna og þar
haida þeir 9 Evrópumönnum í
gislingu.
Framh. á bls. 23.
NOBELSHÁTÍÐ
sjá 2. síðu
Kaupmáttur atvinnutekna
vaxið um 10% frá 1958
Hlutur launþega ■ þjóðarframleiðslunni fer vaxandi
VIÐ umræður á Alþingi í gær
gaf Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðlierra upplýsingar um at-
vinnutekjur og kaupmátt
kvæntra verkamanna, sjómanna
og iðnaðarmanna frá 1950, en
þær upplýsingar eru byggðar á
útreikningum Efnahagsstofnunar-
innar.
Leiddu þeir m. a. í ljós, að
kaupmáttur atvinnutékna þess-
ara stétta er nú 42,8% meiri en
1950 og 10% meiri en 1958, síð-
asta ár vinstri stjórnarinnar.
Þá hefur og hlutur þessara laun
þegastétta í þjóðarframleiðslunni
farið vaxandi siðustu ár og er nú
nokkru hærri en í byrjun síðasta
áratugs.
Hinar raunverulegu
atvinnutekjur
Kvað ráðherrann nauðsynlegt,
ef menn vildu gera sér grein
fyrir breytingum á lífskjörum
launþega á ákveðnu tímabili, að
bera breytingar atvinnutekna
saman við breytingar á fram-
færslukostnaði. Svo vel vildi til,
að frá 1949 hefðu verið gerðar
rannsóknir á atvinnutekjum
kvæntra verkamanna, sjómanna-
og iðnaðarmanna í sambandi við
ákvörðun á verðlagi landbúnaðar
vara. Kvaðst ráðherrann hafa
beðið Efnahagsmálastofnunina að
gera skýrslu um niðurstöðu þess-
ara rannsókna frá 1950 og áætl-
un um tekjur þessara sömu stétta
á yfirstandandi ári. Við tekjurnar
hefur Efnahagsstofnunin síðan
bætt áhrifum skattalækkana og
aukningu beinna persónulegra.
styrkja frá og með 1960 og loks
borið niðurstoðuna saman við
breytingar á vísitölu neyzluverð-
lags. Koma þá hinar raunveru-
legu atvinnutekjur fram, en þær
verður að telja mælikvarða á lífs
kjörin, meðan ekki verða telj-
andi breytingar á lengd vinnu-
tíma.
Atvinnutekjumar 1950—1962
Atvinnutekjur kvæntra verka-
Framh. á bls. 23.