Morgunblaðið - 13.12.1962, Síða 10
10 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 13. des. 1962
Landið
okkar
ungarfullir hér á okkar ey-
landi.
— Og jarðir eru þá ekki að
fara í eyði hér í sveitinni í
stórum stíl?
• Þrjú nýbýli.
Fjós og hlaða í Haukholti. Fjós, hlaða og votheysgeymsla í Tungufelli.
Þar eru í smíðum 7 íbúöarhús
Nýtt íbúðarhús að Berghyl.
FYRIR um mánuði mátti
lesa í Tímanum langt og
mikið viðtal við Helga Har
aldsson, bónda á Hrafn-
kelsstöðum í Hrunamanna-
hreppi. Af því samtali varð
ekki annað séð en Hruna-
mannahreppur væri nán-
ast að leggjast í auðn, þar
væri allt komið á heljar-
þrömina, raunar ekki ein-
asta þar, heldur í öllum
byggðum landsins. Bændur
væru komnir á hreinastu
vonarvöl og engir nýir
gætu tekið við af „alda-
mótamönnunum", eins og
hann sjálfur nefnir sig. Að-
gerðir viðreisnarstjórnar-
innar var sú mikla „plága“,
er var að leggja byggðir
landsins í auðn.
Orðrétt sagði Helgi: „Ég
’hef búið af þrjár fjárpestir
og niðurskurð — allt var
þetta illt, stórillt, svo að lá
við að manni félli allur ketill
í eld, en 'þó fullyrði ég, að
„viðreisnin" svonefnda er
versta landplágan og hegggur
stærsta skarð í hlut bóndans."
• OrðUm aukið.
f tilefni þessara gífuryrða,
brugðu fréttamenn blaðsins
sér austur í Hrunamanna-
farepp í von um að þar væru
einlhverjir eftir sem hægt væri
að ná tali af og spyrja um
hin vofveifilegu tíðindi. Þótt
nokkuð væri umliðið, frá þvi
er þessar óskapafréttir birt-
ust í Tímanum, vonuðum við
að ekki hefðu allir bændur
í Hrunamannahreppi flúið af
búum sínum, heldur myndu
einbverjir sitja enn, þótt við
þröngan kost og kvöl væri.
Ekki höfum við lengi ferð-
azt um hreppinn er við kom-
umst að því, að allmikið voru
þessar fréttir Helga Haralds-
sonar orðum auknar. Enn
sem fyrr er Hrunamanna-
hreppur mesta framleiðslu-
sveit landsins og þar munu
vera meiri framkvæmdir og
framfarir en í nokkurri ann-
arri sveit einni. Hvergi á land
inu átti því jafnilla við, að
fulltrúi einnar sveitar skyldi
bera aðra eins þvælu á borð
fyrir lesendur sem þessi aldni
bóndi úr Hrunamannahrepp
gerði.
• Glæsibýli.
Á leið okkar upp hreppinn
litum við inn á glæsibýlinu
Syðra-Langholti og heilsuð-
um upp á Sigmund bónda Sig-
urðsson. Hjá honum var þá
brezkur sérfræðingur að skoða
fjósið hans og vega og. meta
favernig hagkvæmast mætti
koma þar fyrir nýjum vél-
mjaltatækjum, sem byggjast
á því að fötur eru niður lagð-
ar, en pípur flytja mjólkina
frá kúnum og inn í mjólkur-
hús. Enginn barlómur var í
Sigmundi og virtist hið hroða-
lega ástand og hin mikla
heljarplága hvergi hafa kom-
ið nærri garði hjá honum.
Hann benti okkur strax á, að
við skyldum halda lengra
upp í hreppinn, og sækja
heim einhvern af bændum
þeim, sem þessa dagana standa
í því að reisa glæsileg íbúð-
arhús, eða þá einhvern þeirra,
sem er að byggja eða hefur
nýlokið við að byggja stór og
voldug peningshús. Við vent-
um því hinum f jórthjólaða fáki
vorum og stefndum upp á
Skollagróf, þar sem býr ung-
ur og framtakssamur bóndi,
sem um langt árabil hefur
getið sér orð fyrir mikinn
þrifnaðarbúskap.
Við hi'ttum Jón bónda þar
sem hann er að koma úr
hestíhúsi, því hann er hesta-
maður góðlur. Hann hlýtur
ekki einasta verðlaun árlega
fyrir gott mjólkurinnlegg,
heldur hefur hann hlotið verð
laun og viðurkenningar fyrir
góð og glæsilég hross, sem
hann elur upp og temur. Hann
er nú þegar með tvo eða þrjá
hesta á járnum og á húsi. Er
hann að liðka þá fyrir hest-
eigendur héðan úr Reykjavík.
— Okkur virtist einna helzt
mega skilja á grein Helga á
Hrafnkelsstöðum, að hér í
Hrunamannahreppi væri allt
að leggjast í auðn, segjum
við, þegar við höfum heilsað
Jóni.
• Eins og á Húsavík.
— Eymdartónninn í orðum
Helga á Hrafnkelsstöðum, vin
ar míns, er svo gegnumsker-
andi, að það er líkast sem
hann sé staddur norður á Húsa
vík en ekki í höfuðstaðnum,
þegar viðtalið er tekið, svar-
aði Jón og brosir hógværlega.
— Þetta er þá eitthvað orð-
um aukið hjá honum, bless-
uðum gamla manninum?
— Ég er hræddur um það.
Satt er það raunar að árferð-
ið í ár er fremur erfitt og þar
sem við bændur eigum allt
undir sól og regni, þá veltur
á miklu fyrir okkur að veður-
guðirnir séu okkur hliðhollir.
Þeir eru hins vegar, bæði að
Æornu og nýju, dálítið duttl-
— Ekiki get ég komið þvi
fyrir mig, hvaða jarðir það
eru sem Helgi segir að hafi
farið í eyði í þessari sveit á
umræddu timabili, „allt jarð-
ir sem mjög lengi eru búnar
að vera í byggð“, ekki nema
ef tína á það tilvik, þegar
fjallkóngurinn okkar fyrr-
verandi „dó frá dagsláttunni
sinni“. Hins vegar hefur fall-
ið úr ábúð eitt nýbýli, sem
stofnað var fyrir um 20 árum,
en nýbýlin munu hins vegar
• vera þrjú en. ekki ei'tt, sem
stofnuð hafa verið á því ára-
bili, sem Helgi vinur minn
er að eymslast yfir.
— Ég sé, Jón, að þú ert að
fayggja myndarlegt hús. Ert
þú sá eini i þinni sveit, sem
ert svo bjartsýnn að þora að
leggja út í að byggja yfir þig
á þessum tímum „plágu“ og
„móðuharðinda" viðreisnar-
stjórnarinnar?
— Nei, ég er ekki sá eini.
Auðvitað hef ég ekki tölur
við höndina, en ég held mér
sé samt ófaætt að fullyrða, að
byggingarframkvæmdir í þess
ari sveit eru frekar með meira
móti í tíð núverandi stjórnar.
Ég get til dæmis getið þess,
að það eru sjö íbúðarhús í
byggingu, einnig hefur mjög
mikið verið byggt af fjósum
og hlöðum, einnig nokkuð af
fjárhúsum.
— Og fleiri framikvæmdir
á sveitinni, Jón?
• Rafmagn á flesta bæi.
— Rafmagn er nú um það
bil að koma hér á milli 15
og 20 býli. Þegar þeim áfanga
er náð, sem væntanlega verð-
ur á öndverðu næsta ári, verða
ekki eftir nema sex búendur
í minni sveit, sem ekki hafa
rafmagn frá samveitu.
— Og eru þessar fram-
fcvæmdir þá ekki að sliga
bændur?
— Auðvitað eru allar þess-
ar framkvæmdir dýrar og
þungar í skauti, en það er
engan veginn nýr söngur að
dýrt sé að byggja. Það er svo
sem ekki nema von að þeir
tali mikið um dýrtíð og verð-
bólgu í Tímanum, því bjarg-
ráðavdrðbólgan skolaði þeim
Hermanni og Eysteini fyrir
borð á stjórnarskútunni á jóla
föstu 1958. Hermann hélt að
vísu í lengstu lög traustum
mundum í borðstokkinn og
hét nú á' Hannibal að duga
vel í austrinum, en þá bann-
aði Einar, Hannibal öll aust-
urtrog og með handapati mátti
Nýtt íbúðarhús í Hólakoti.
Nýtt íbúðarhús á Hrafnkelsstöðum.
Nýtt íbúðarhús að Galtafelli.