Morgunblaðið - 23.12.1962, Blaðsíða 14
14
MORGUIS BL AÐIÐ
Sunnudagur 23. des. 1962
Tilkynniog frtí bönkunum
Vegna vaxtareiknings verða sparisjóðsdeildir bank-
anna í Reykjavík lokaðar laugardaginn 29. desem-
ber og mánudaginn 31. desember 1962.
Auk þess verða afgreiðslur aðalbankanna og úti-
búanna í Reykjavík lokaðar miðvikudaginn 2. janú-
ar 1963.
Athygli skal vakin á því, að víxlar, sem falla í
gjalddaga laugardaginn 29. desember og sunnu-
daginn 30. desember, verða afsagðir mánudaginn
31. desember, séu þeir eigi greiddir fyrir lokunar-
tíma bankanna þann dag (kl. 12 á hádegi).
Landsbanki Islands
Búnaðarbanki Islands
Dtvegsbanki íslands
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Verzlunarbanki Islands h.f.
Móðir okkar og tengdamóðir
INGIBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR VALBERG
frá Minni-Mástungu,
lézt að Landasspítalnum 22. desember.
Adolf Valberg, Samúel Valberg,
Karólína Valberg, Guðný Valberg.
Móðir okkar
GUÐRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Mundakoti Eyrarbakka 20.
þessa mánaðar.
Sigrún Guðjónsdóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Magnús Guðjónsson, Ólafur Guðjónsson.
Eiginmaður minn
JÓN BERGÞÓRSSON
Hlíðarbraut 10,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
27. des. kl. 2 e. h.
Jóna Ágústsdóttir, börn og tengdabörn.
Eiginmaður minn
SIGURÐUR E. HLÍÐAR
fyrrv. yfirdýralæknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni kl. 10,30 f. h.
föstudaginn hinn 28. des.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðrún Hlíðar.
Faðir okkar
EIRÍKUR ÁSGRÍMSSON
skipasmiður,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni fimmtudaginn
27. desember kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afbeðin.
Sigurgeir Eiríksson, Haraldur Eiríksson,
Ása Eiríksdóttir.
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför sonar okkar
VIÐARS
Þuríður Björnsdóttir, Andrés Kr. Hansson.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð
og vinsemd vjð andlát og jarðarför sonar míns
GUÐMUNDAR H. B. MAGNÚSSONAR.
Anna Aradóttir.
Hjartans þakklæti til allra, nær og fjær, fyrir auðsýnda
samúð, vináttu og virðingu við fráfall og jarðarför
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR STEFÁNSSONAR,
Rauðagerði 16.
Jóna Árnadóttir.
Birgir Magnússon, Birna Ögmundsdóttir,
Árni Freyr Magnússon, Soffía Jónsdóttir,
Ingvi Hrafn Magnússon,
Stefán Örn Magnússon og barnaböm.
Björn Sveinsson
bókari - Minning
HANN andaðist föstudaginn 14
desember s.l. Útför hans fór fram
frá Dómkirkjunni viku síðar.
Undanfarin ár átti Bjöm við
vanheiisu að stríða og síðastliðið
eitt og hálft ár lá hann rúmfastur.
Björn Sveinsson var fæddur í
Stykkishólmi 20. ágúst 1882. For-
eldrar hans voru sæmdarhjónin
Sveinn Jónsson snikkari og Guð-
rún Björnsdóttir. Sveinn faðir
Bjöms var albróðir Björns ráð-
herra. Þeir voru komnir af hinni
þekktu Djúpadalsætt. Móðir hans
Guðrún var af merkum norð-
lenzkum bændaættum.
Hann óust upp á góðu heimili
Undir handleiðslu góðra foreldra
og í hópi glaðværra systkina mót
Skrifstofumaður
vanur bókhaldi óskast að stóm fyrirtæki út á
landi. Góð laun. Umsóknir með upplýsingiun um
fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt „Bókhald —
3145“ fyrir 29. desember.
Dansk Julegudstjeneste
afholdes i Domkirken 1. Juledag kl. 2 Em.
Ordinationsbiskop, Dr. teol Bjarni Jónsson,
prædiker. Ved Orgelet Dr. Páll Isólfsson. —
Alle velkomne.
Det Danske Selskab i Reykjavík.
Frá Stálstólum
BRAUTARHOLTI 4.
Nú eru síðustu forvöð að fá stálhúsgögn fyrir jóL
Höfum 15 sett af krómuðum eldhússtálhúsgögnum
sem verða tekin upp í dag. — Fáein sett ólofuð.
Seljum einnig straubretti á kr. 350.00 og innlenda
kolla á kr. 150.00 meðan birgðir endast.
Blómagrindum á kr. 340.00 og símaborð á kr. 685.00.
Ath. hversu verðið er hagstætt.
STÁLSTÓLAR
Brautarholti 4, 2. hæð.
aðist þessi óvenjulega prúði og
glæsilegi maður.
Systkini hans voru móðir mín
Kristín Möller sem andaðist árið
1925, frú Asta Sveinsdóttir og
Baldur Sveinsson bankafulltrúi
hjá Útvegsbankanum.
Um aldamótin fluttist Bjöm til
Reykjavíkur til föðurbróður síns
Björns Jónsson ritstjóra ísafold-
ar, og hóf nám í bókbandsiðn.
Síðar fór hann til Kaupmanna-
hafnar til framhaldsnáms. Er
hann kom til íslands aftur beind-
ist hugur Björns meir að verzl-
unarstörfum sem urðu hans ævi-
stÖrf. Fór hann nú til Stykkis-
hólms starfaði þar nokkur ár við
verzlunarstörf. Frá Stykkishólmi
fluttist hann til Eskifjarðar og
starfaði þar sem sýsluskrifari hjá
sýslumönnunum Guðmundi Egg-
erz og Magnúsi Gíslasyni en með
þeim tókst mikil vinátta sem
aldrei féll skuggi á.
Árið 1916 fluttist Björn til
Reykjavíkur og bjó síðan þar til
æviloka. Starfaði hann hjá Eim-
skipafélagi íslands h.f. síðar við
verzlunarstörf, lengst sem bókari
hjá Olíufélaginu Shell h.f., en sið-
ustu árin og á meðan heilsan
leyfði hjá Heildverzlun Sverris
Bernhöft h.f. Sá stóri hópur
manna sem í gegnum árin störf-
Hiigstæðir afborgunarskilmálar
5 ára ábyrgð
SNORRABRAUT 44 - SfMI 16242
uðu með eða undir stjórn Björns
minnist að þar fór drengur góð-
ur, traustur og hógvær. Prúð-
mennskan brást honum aldreL
Þeim fækkar nú óðum aldamóta-
mönnunum sem allt tii síðustu
ára settu svip á Reykjavíkurborg.
Hinn 7. júlí 1916 kvæntist
Bjöm eftirlifandi eiginkonu sinni
Ólafíu Bjarnadóttur Jakobssonar
snikkara og konu hans Sólveigar
Ólafsdótturl jósmóður. Ólafía
missti foreldra sína ung að aldri
og ólst upp á heimili Bernhöfta
tannlæknis. Hún er hin ágætasta
kona er reyndist manni sínum
ástkær og traustur förunautur.
Bjó hún eiginmanni og sonum
fallegt og gott heimili þekkt
fyrir myndarskap og gestrisni.
Þau eignuðust þrjá syni sem
allir eru dugandi menn sem fetað
hafa í fótspor góðs föður, Sveinn
stórkaupmaður, giftur Kristínu
Ingvarsdóttur Guðjónssonarí heit
ins útgerðarmanns, Bjarni for-
stjóri giftur Kristjönu Brynjólfs-
dóttur Jóhannessonar leikara og
Guðmundur Kristinn bókari hjá
Flugfélagi fslands h.f. Þeir for-
eldrar sem eiga því láni að fagna
að eignast mannvænleg og góð
böm, tengdabörn og barnabörn
hafa öðlazt mikla hamingju.
Hjónaband þeirra Björns og
Ólafíu var mjög gott.
í veikindum og sorg studdu
þau hvort annað. Á stund gleð-
innar voru þau samhentir þátt-
takendur.
Björn tók þátt í ýmsum félags-
störfum en mestu ástfóstri muu
hann hafa tekið við Oddfellow-
regluna en þar starfaði hann f
rúm 40 ár. Hann var söngmaður
og söngelskur, glaðvær í vina-
hóp, en hógvær og ávallt virðu-
legur. Aldrei heyrði ég hann tala
illa um aðra. Hann var mjög trú-
aður maður. Hann vissi að ham-
ingjuna er fyrst og fremst að
finna hið innra með hverjum
manni.
Megi fagrar og góðar minn-
ingar styrkja eftirlifandi ástvinl
í sorg þeirra og góður Guð gefa
honum og ástvinum hans ljói
og jólafrið.
Óttarr Möller. ’