Morgunblaðið - 23.12.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.12.1962, Blaðsíða 22
22 M O J* r tt m r> r 4 m Ð Sunnu'dagur 23. des. 1962 Séra Birgir Snæbjörnsson A jóladag verða messur fyr- ir og eftir hádegi. Klukkan ellefu um morguninn verður útvarpað messu úr Dómkirkj- unni, þar sem séra Jón Auð- uns, dómprófastur predikar fyrir altari, og Páll ísólfis- og Páll ísólfsson er organ- leikari. Eftir hódegi verður út varpað messu úr hátíðarsal Sjómannaskólans kl. 14.00. Prestur við þá messu er séra Jón Þorvarðsson en organleik- ari Gunnar Sigurgeirsson. Loks er útvarpað messu úx safnaðarheimili Langholts- sóknar kl. 11 á annan jóladag. Prestur þá er séra Arelíus Níelsscxn og organleikari Máni Sigurjónsson. TÓNLIST. Tónlist um jólin verður Pólífónkórinn í Kristskirkju um síðustu jól Helga Valtýsdóttir Reykjavík sé bara venjulegur bóndabær, en þegar þangað er komið komast þeir svo sannarlega að raun um að svo er ekki. Þeir lenda í alls kyns vandræðum; vegna hluta, sem þeir ekki þekkja. — Hér í Reykjavík fylgjast tvö systkin með ferðum þeirra og gegnum samskipti systkin- anna við jólaveinana kynn- ast börin ýmsu um jólin í gamla daga, um leið og jóla- sveinarnir kynnast nútíman- um. — í byrjun barnatímans er hátíðlegur leikþáttur, Jól í Bethlehem, en svo er strax brugðið á léttara hjal. í lokin fáum við svo heimsókn a-f Klifurmúsinni og refnum úr dýrunum í Hálsaskógi. Á sama tíma, kl. 17,31, á annan í jólum sér Anna Snorradóttir svo um barna- tíma, sem hún kallar Jól í Jólalandinu. Þetta er samfelld dagskrá fyrir börnin, og aðal- persónan er lítil stúlka, sem heimsækir jólalandið og ræðir á því ferðalagi við jólasveina og fleiri. SMÆRRI Þ/ETTIR. Loks er að geta nokkurra smáþátta. Á aðfangadagskvöld mun Guðrún Sveinsdóttir kynna jólalög og á jóladag mun Baldur Pálmason að venju fara með hljóðnemann í eitt sjúkrahúsið hér í borg- inni. Að þessu sinni hefur Landsspítalinn orðið fyrir valinu og mun hann þar ræða við sjúklinga, lækna og annað starfslið. Kl. 20 á 2. í jólum verða leiknar nokkrar gamanvísur frá fyrri árum úr safni út- varpsins. Þetta hefur löngum verið vinsælt efni, og að þessu sinni munu Alfreð Andrésson og Lárus Ingólfsson skemmta hlustendum. Dagskrárlok það kvöld verða kL 2 eftir miðnættL MORGUNBLAÐIÐ mun hér á sama hátt og í fyrra skýra nokkuð frá því sem hæst ber í jóladagskrá útvarpsins. Dag skráin í heild, jóladagana, mun hins vegar birtast á öðrum stað í blaðinu. ★ Segja má að jóladagskrá útvarpsins hefjist kl. 13 á aðfangadag með lestri jóla- kveðja til sjómanna á hafi úti. Sigríður Hagalín, sem hefur stjórnað sjómannaþætt- inum, mun lesa kveðjurnar og velja lög þau, sem verða flutt til að lifga upp á lesturinn. Á sama tíma á jóladag og öðrum degi jóla, verða síðan fluttar jólakveðjur frá íslend- ingum erlendis. Á jóladag verða fluttar kveðjur frá London, Stuttgart, Stavanger og Múnchen og á annan jóla- dag frá París og Stokkhólmi. í gær var enn von á fleiri kveðjum, og ekki fyllilega Ijóst hvorn daginn þær yrðu fluttar. MESSUR. Eins og venja hefur verið munu verða fluttar fjórar messur í jóladagskránni. Sr. Emil Björnsson Aftansöngurinn á aðfanga- dag verður að þessu sinni fluttur úr kirkju Óháða safn- aðarins. Prestur verður séra Emil Björnsson og organleik- ari Jón G. Þórarinsson. Seinna á aðfangadagskvöld mun séra Birgir Snæbjörns- son á Akureyri flytja jóla- hugvekju, og verður sá liður felldur inn í kirkjutónlistar- þátt úr DómkirkjunnL meiri og fjölbreyttari en á venjulegum dögum. Flutt verða bæði innlendar og erlendar tónsmíðar og flytj- endur eru jöfnum höndum innlendir og erlendir. Hæst ber þar sem fyrr jólaóperan, sem að þéssu sinni er Cosi fan tutte eftir Mozart. Eins og kunnugt er, er þetta meðal þekktustu og jafnvel vinsæl- ustu verka hans og upptakan, sem er hljóðrituð á tónlistar- hátíð í Wien, hefur meðal annars upp á að bjóða söng- konunni Elisabeth Schwarz- kopf, stjómandanum Karl Böhm, kór Ríkisóperunnar og fílharmóníusveit Vínarborgar. Til þess að óperan verði meira lifandi fyrir hlustend- um mun Þorsteimn Hannesson, söngvari, kynna óperuna og flytja með henni skýringar. ★ Á aðfangadagskvöld verða fluttir tónleikar úr Dómkirkj- unni þar sem Páll ísólfsson verður við orgelið en Þuríð- ur Pálsdóttir og Guðmundur Guðjónsson syngja einsöng. Kl. 15;15 á jóladag verðjur flutt Jólaoratoria eftir Bach og verða flytjendur þýzkir. Kl. 21,05 mun Liljukórinn sem er nýlega stofnaður, syngja jólalög undír stjórn Jóns Ásgeirssonar og kl. 22.00 verða fluttar tvennar hljóð- ritanir hérlendar frá síðast- liðnu árL Sú fyrri er frá síð- ustu jólum er Pólífónkórinn söng jólalög í Kristskirkju undir stjóm Ingólfs Guð- brandssonar, en hin frá hljóm leikum danska píanóleikarans Victors Schiölers og -Sinfóníu- hljómsveitarinnar fyrr í þess- um mánuði. Tónlistin skipar samt mest- an sess á annan í jólum Þegar um morguninn verða óvenjufjölbreyttir . tónleikar úr borgum og hirðsölum Evrópu á 18. öld. Kl; 14 um daginn verður svo flutt jóla- óperan, sem getið var um 1 upphafi og létt og vinsæl hljómsveitarlög verða leikin í miðaftanstónleikum kl. 18,30. Um kvöldið verða síðan kammertónleikar kl. 21,35, sem standa fram að fréttum ★ Loks er rétt að geta þess undir þessum lið, að kl. 20 á jóladag verður flutt samfelld dagskrá um dýrling tónlist- arinnar, hina heilögu Sesselju. Heilög Sesselja var af gamalli rómverskri höfðingja- ætt, sem átti heima á Via Appia. Hún gerðist kristin og dó píslarvættisdauða og var grafin í Katakombum. Hún hofur verið talin hafa fundið upp orgelið. Á gömlum mynd- um sést hún leika á orgel og þetta er orsök þess að hún var gerð að dýrlingi tónlist- arinnar. Nafn hennar er tengt nokkrum íslenzkum kirkju- stöðum og frásögn af henni er til í Heilagra manna sög- um. Kristján Eldjárn hefur tekið saman íslenzka efnið henni viðkomandi, Vilhjálm- ur Þ. Gíslason það rómverska og Árni Kristjánsson tón- listina. LEIKRIT. Tvö leikrit verða flutt um þessi jól. Hið fyrra er ítalskt verðlaunaleikrit úr sam- keppni, sem ítalska ríkisút- varpið í Róm efndi til. Það verður flutt kl. 20,25 á annan í jólum og leikstjóri er Helgi Skúlason. Við höfum snúið okkur til hans og beðið hann að segja okkur lauslega um hvað leikritð fjallar. Ilelgi Skúlason — Þetta er gamanleikrit en þó með þungum undirstraumL Aðalpersónur leikritsins er ungt par í litlum bæ á Ítalíu og er hann fjallahermaður í síðasta stríði. Þau verða fyrir því óláni að hann drukknar dag nokkurn, þegar þau láta sér líða vel þarna í nágrenni þorpsins við á. — Síðan fjallar það mest- megnis um viðbrögð hans að handan, því hann getur ekki vel sætt sig við að það komi aðrir í spilið í hans stað. — Það er sérstakt við flutn- inginn á þessu leikriti, að við fengum allar tónupptökur frá flutningnum í ítalska útvarp- inu að láni og notum þær náttúrlega í okkar flutningi. Þá er rétt að víkja nokkuð að jólaleikriti útvarpsins, enda þótt það sé ekki flutt fyrr en laugardaginn 29. desember. Jólaleikritið er að þessu sinni enskt, eftr Edward Sackville- Ward. Það heitir Frelsunin og er byggt á Hómerskviðum, eða nánar til tekið hrakning- um og frelsun Odysseifs. Aðalpersónur leikritsins eru Odysseifur og Penelópa, sem Róbert Arnfinnsson Og Guð- björg Þrbjarnardóttir leika. Mikil tónlist fylgir þessu leikriti og hefur Benjamin Britten samið hana en hún verður flutt með því af Sinfóníuhljómsveit Islands undir stjórn Williams Strick- lands. Leikstjóri er Lárus Pálssön. Lárus Pálsson Þetta er vafalaust með stærstu fyrirtækjum, sem út- varpið hefur ráðizt í, því þátttakendur eru ekki færri en 80. Leikritið tekur um þrjár klukkustundir í flutn- ingi, og útvarpsstjóri kvað í gær allar horfur á, að leikrit- ið yrði flutt með hléL BARNATÍMAR. Ekki má láta hjá líða að minnast á bamatímana. Það hefur orðið venja á undan- förnum árum að útvarpa á jóladag barnatíma beint úr útvarpssal. Að þessu sinni sjá þar Helga og Hulda Val- týsdætur um tímann og óhætt mun að fullyrða að þar beri hæst nýr leikþáttur eftir Jökul Jakobsson, sem gerður er með hliðsjón af jólasveina- kvæði Jóhannesar úr Kötlum, sem Hallgrímur Helgason hef- ur samið lag við. Við snerum okkur til Heigu Valtýsdóttur til að forvitnast um þennan leikþátt Jökuls og annað sem á góma ber í barnatímanum. — Þátturinn fjallar um það, þegar jólasveinarnir koma í fyrsta sinn til Reykjavíkur. Nafnið er þannig til komið, að jólasveinarnir koma saman á aðalfund, þar sem samþykkt er að þeir fari allir til Reykja- víkur. Þeir koma vitanlega hver atf sínu landshorni, og standa í þeirri meiningu að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.