Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 1
V
24 siður
Talið, að Venus hafi lítið
eða ekkert segulsvið
Hugsanlegi, að óæðri lífverur kunni
að finnasf þar, þar eð hiti er minni
en talið var — Litið segulsvið talið
leiða til mikillar geimgeislunar
Washington, 27. nóv. — fNTB)
UPPLYSINGAR þær, sem
borizt hafa frá gervihnettin-
um Mariner II, er hann fór
fram hjá Venus 14. desember,
í 32.000 km fjarlægð, henda
til, að þar geti verið um að
ræða óæðri lífverur. Er hita-
stig á Venus mun lægra, en
áður hafði verið talið.
Frá þessu skýrði prófessor
Paul J. Coleman, við Kali-
forníuháskóla, er hann flutti
erindi á ráðstefnu Bandaríska
vísindafélagsins í gærkvöld.
Coleman skýrði enn frem-
ur frá því, að ekki væri loku
fyrir það skotið, að menn
Albert Schweitzer.
Jólcskveðja
frá Albert
Schweitzer
F Y R IR jólin sendi Mbl.
Albert Schweitzer sím-
skeyti og lagði fyrir hann
eftirfarandi spumingar:
Hvað ber kristnum mönn-
rnn helzt að hafa í huga
þessi jól og hver er aðal-
tilgangur kristninnar?
Svar frá Schweitzer
barst á jólimum og hljóðar
svo:
„Um þessi jól eigum við
öll að bera í hjörtum okk-
ar jólaboðskapinn um frið
| á jörðu. Aðalatriði kristin-
dómsins er: að fylla ein-
staklinga og þjóðir af anda
Jesús Krists.
gætu lent á Venusi. Þá lýsti
prófessorinn því yfir, að ekki
hefðu fundizt þess nein merki
að Venus hefði segulsvið.
Sæsím-
inn til
Kanada
reyndur
ÁÆTLAÐ er að reyna nýja
sæsímann Icecan í dag, en
hann liggur frá Vestmanna-
eyjum til Hamden í Nýfundna
landi og þaðan landveg til
Cornebrook.
Icecan tengist sæsímanum
frá Skotlandi sem liggur til
Vestmannaeyja. Hann er kall-
aður Scotice.
Verið var að ganga frá rás-
um í gær, en ætlunin er að
reyna sæsímalínuna í dag, ef
undirbúningi í London og
Kanada verður lokið.
Icecan er 1658 sjómílur að
lengd.
Opinber opnun fer fram í
byrjun næsta árs. í
Er gervihnötturinn var næst
Venusi, kom ekki fram á tækjum
hans neitt, er benti til, að segul-
magn þar væri meira, en verið
hafði ,er hnötturinn var á ferð
sinni um geiminn. Eru þó tæki
Mariners II mjög næm.
Sé um að ræða segulsvið á
Venusi, er það svo vægt, að ekki
keraur fram á venjulegum tækj-
um til slíkra mælinga. Vísinda-
menn álíta nú, að það sé segul-
svið jarðar, sem leitt hafi til
þess, að geimgeislar ná ekki til
jarðar, en stöðvast að miklu
leyti í Van Allen beltinu svo-
kallaða. Hafi Venus ekkert seg-
ulsvið, þá verður hún fyrir
beinni geislan frá sólinni. Því sé
þykkt „íóna“-lag umhverfis
hnöttinn.
Sé þessi skoðun rétt, þá muni
það lag vera orsökin til þess, að
menn hafi hingað til álitið hita-
stig á Venus vera um 315 stig á
celsíus. Þær mælingar voru gerð-
ar með sérstökum útvarpstækj-
um, og mun „íóna“-lagið hafa
ruglað mælingarnar.
Þá hefur komið í ljós, að Ven-
us mun hreyfast mun hægar um
sinn eigin möndul en jörðin. —
Þykja þær upplýsingar, sem
bent hafa til þessa, styðja mun
meir sjónarmið bandariskra vís-
indamanna en rússneskra. Þeir
fyrrnefndu hafa talið Venus snú-
ast einn hring um sjálfa sig á
225—227 jarðardögum. Rússnesk-
ir vísindamenn hafa hins vegar
talið Venus snúast um 22 sinn-
um hraðar.
Prófessor Coleman benti á, að
plánetur og reikistjörnur, sem
hafa lítið eða ekkert segulsvið,
muni snúast mjög hægt um eig-
in möndul. Áður en upplýsing-
arnar bárust frá Mariner II hafði
Coleman sjálfur aðhyllzt þessa
kenningu.
Enn er langt frá því, að full-
unnið sé úr þeim upplýsingum,
sem aflað hefur verið með
gervihnettinum. Á morgun, föstu
Framhald á bls. 23.
W.NS ' ...... MÍi&Í S W. '' V‘"*Wf«S\O.W
Helgispjöll ■ Stokkhólmi
MBL. fékk í gærkvöldi þessa
mynd símsenda frá Stokk-
hólmi. Er hún tekin í kirkju-
garðinum við Lovísukirkjuna
þar í borg, en um jólin safn-
aðist þar saman ölóður ungl-
ingaskari, sennilega milli 500
og 600 manns, og reif niður leg
steina og braut allar rúður
kirkjunnar. Myndin sýnir
(neðst) lukt, sem brotin var
niður og eyðilögð, en auk þess
má greina í snjónum brot úr
ýmsu, sem eýðilagt var, auk
flöskubrota. Athæfi þetta hef-
ur vakið mikla athygli, og
þykir með ólíkindum, að slíkt
skuli geta átt sér stað.
Telur tilboð USA
um Polaris gildru
Ummæli eins kunnasta hernaðarsér-
fræðings Frakka
París, 27. nóvember. — (NTB)
EINN þekktasti sérfræðingur
Krúsjeff tekur Berlínar-
malið á dagskrá á ný
Endurtekur fyrri kröfur, og sakar
V~bjóðverja um að vilja nýja
heimsstyrjöld
MosTcva, Bonn, 27. des.
— (AP-NTB) —
KRÚSJEFF, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sendi í dag
Adenauer, kanzlara Vestur-
Þýzkalands, bréf, þar sem
hann heldur því fram, að
friðarsamningar við Þýzka-
land sé cina lausnin á Berlín-
armálinu.
Engar heinar ógnanir er að
finna í bréfi forsætisráðherr-
ans og engar nýjar tillögur.
Hins vegar gætir þar per-
sónulegra ásakana á hendur
Adenauer. Segir Krúsjeff
Adenauer hollt að minnast
þess, að Þjóðverjar hafi
hrundið af stað tveimur
heimsstyrjöldum — og svo
virðist, sem þeir séu nú að
reyna að hrinda af stað þeirri
þriðju.
Lýsir Krúsjeff velþóknun
sinni á friðaröflunum, og
minnist þar m. a. á ræðu Jó-
hannesar páfa nú um jólin.
Páfinn bar þar lof á þá, sem
gætt hefðu friðarins.
Kveðst Krúsjeff ekki geta
annað en tekið undir orð
páfa. Segist Krúsjeff sjálfur
vera kommúnisti og trúleys-
ingi, en undir orð friðarsinna
taki hann.
Framh. á bls. 23.
Frakka um kjarnorkuvopn,
Pierre Gallois, hershöfðingi,
lýsti því yfir í dag, að tilboð
Bandarikjamanna um að af-
henda Frökkum Polariseld-
flaugar, sé gildra. Sé tilboðið
fram komið í þeim tilgangi að
leggja hindrun í veg Frakka,
á leið þeirra til að koma sér
upp eigin kjarnorkuher.
Skoðun Gallois kemur fram í
tímaritinu „Candide“. Heldur
hann því jafnframt fram, að
stjórn Kennedys, Bandaríkjafor-
seta, hafi nú horfið frá fyrri
skoðun sinni, þess efnis, að verði
gerð árás á eitthvert NATO-
ríkjanna, hafi það í för með sér
kjarnorkustyrjöld.
Gallois segir McNamara, land-
varnaráðherra Bandaríkjanna,
vera þeirrar skoðunar, að Polaris
eldflaugar séu einungis hugsað-
ar sem vopn, er nota skuli til
árása á borgir. Með því að leggja
slíka áherzlu á vígbúnað með
Polaris-flaugum séu Bandaríkja-
menn að stefna að því að ráðast
gegn borgum, komi til stórátaka,
en ekki gegn eldflaugastöðvum
Rússa.
Gallois var einn nánasti sam-
starfsmaður Eisenhowers í styrj-
öldinni.