Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 10
10 MORCVTS BLÁÐIÐ Fostudagur 28. des. 1962 Kristinn Þorbergsson 30. sept., 1921 — 18. des., 1962 ÞAÐ var skýjaS loft en inndælis veður er ég sem, sex ára patti, gekk dag nokkurn sumarið 1927 út á svalir heimilis míns að OHverfisgötu 30 og sá bezta vin eldri bróður mins önnum kafinn Við Iagningu járnbrautarteina um allan húsagarð heimilis síns. Hjá ihonum stóð lítill hnokki og stjórn aði verikinu. Hver var þessi mikli sevintýraprins, sem fluttur var í næsta hús? Slíka dýrð hafði ég aldrei augum litið fyrr um mína daga. Ég flýtti mér því til þess litla og spurði hvað hann héti. „Ég heiti Kiddi og er fimm ára. Pabbi gaf mér þessa járnbraut þegar hann fór út í sjó. Ég á að eiga heima hjá honum Gæja“, var hið skilmerkilega og tæm- andi svar. Ég kynnti mig líka og þar með var ævilöng vinátta innsigluð. Samband okkar slitnaði, að minsta kosti í bili, síðastliðið Iþriðjudagskvöld, er Kiddi dó Ökyndilega úr hjartasjúkdómi Iþeim, sem hefur þjáð hann nú um nokkur ár. Vinur minn Kiddi hét fullu nafni Kristinn Þorbergsson. Hann fæddist vestast í vestur- Ibænum, á Bræðraborgarstígnum, svo enginn getur efast um að hann er eðalborinn Reykvíking- ur. Foreldrar hans voru hjónin Þorbergur Jónsson, sjómaður og kona hans Sigríður Eyvindsdótt- ir. Móður sína missti hann sum- arið 1026, er hann var aðeins fjögurra ára gamall, og mundi (hann því aðeins óljóst eftir Ihenni. Hún mun hafa verið mjög glaðlynd kona og hrókur alls fagnaðar hvar sem hún kom og sérstaklega fögur ásýndum, sem svo margar af kynsystrum henn- ar úr þessari ætt. Hún dó úr krabbameini. Hlálfsystur átti Kiddi samfeðra, 'Svölu Ingihjörgu. Hún er nú gift verkfræðingi í Ameríku og búa þau í New York. Þorbergur faðir Kidda átti, sem sjómaður, mjög örðugt með heim ilislhald, eftir að hann missti konu sína. Hann kom því hinum unga syni sínum í fóstur til Hólmfríðar Oddsdóttur (hún og Kiddi voru systrabörn) og manns Ihennar Guðjóns Jónssonar, skip- stjóra. Hólmfríði kallaði Kiddi alla táð „frænku“, og í byrjun með þeim áherzlum að helzt var að skilja að engin önnur frænka væri til undir sólinni. Eimlestin mikla, með átta vögnum og hinurn löngu teinum var gjöf föðurins til hins unga sonar — gefin í því augnamiði einu að létta hið þunga högg um skiptanna, sem urðu við móður- missinn, af þessari ómótuðu barns sál. Upp frá þessum degi var mikið ráp milli heimila þeirra sem að okkur stóðu. Var ekki það eitt að við hefðum gerst miklir vin- ir, heldur var og eldri bróðir minn og uppeldisbróðir Kidda perluvinir, og eru enn. Þessi upp eldisbróðir Kidda er Garðar Ól- afsson, tannlæknir í Keflavík. Ekki er ég grunlaus um að fyrirferðin hafi verið meiri á okkur yngri piltunum, en þeim eldri, enda fengum við oft óblíð orð í eyra. Við vorum báðir fyrir ferðamiklir og skapstórir og brölluðum ýmislegt saman. Mein laus prakkarastrik voru þá mjög í tízku hér í borg og var mikið á sig lagt til þess að eiga að jafn aði einhvern forða smábrellna, Man ég til dæmis að eitt sinn, ekki löngu eftir að Kiddi flutti í hrverfið, tókst okkur svo vel til með gfænsápu á hurðarhún, að hláturinn clraup að síðustu nið- ur buxnaskálmarnar. Leizt okk- ur sá árangur svo ókarlmann- legur að við hímdum heldur berrassaðir meirihluta dags nið- ur í þvottahúsi, meðan flíkur okkar þornuðu, heldur en að opinbera ættingjunum þennan lítt glæsilega árangur. Við áttum saman margar sælu stundir í bernsku, og mörg voru okkar sameiginlegu Skipbrot. Þó má enginn ætla að sambúðin hafi verið ein sæluvíma. Það var mik ið rifist og slegist, klórað og spark að, hótað og blótað. Eftir slík skapgos var oft sætzt með því að fara í kálgarð foreldra minna til þess að stela sér rófu, en eft- ir veizluhöldin var öll sút jafnan fokin veður og vind Af eðlilegum ástæðum sá Kiddi lítið af föður sínum í bernsku og æsku, þar sem hann var sjómaður. En alltaf var til- hlökkunin sú sama, þegar hann kom í land, enda var Þorbergur honum mjög góður. Þeir kynnt- ust fyrst til fulls eftir að hann hætti sjómennsku og fór að vinna í landi. Fór alla tíð hið allra bezta á með þeim feðgum. Hjálp aði Þorbergur syni sínum oft af föðurlegri óeigingirni við upp- byggingu hins unga stóra heim- ilis, enda er hann sæmilega vel efnum búinn eftir langt og erfitt starf á sjónum. Kunni Kiddi og vel að meta hjálpsemi föður síns. Fráfall Kidda er mikið áfall fyr- ir Þorberg, þennan gæflynda, piúða fasmikla sjómann, og ekki hvað sízt fyrir þá sök að hann mun ekki ganga heill tli skógar, enda þótt aldrei minnist hann á það sjálfur. Hólmfríður „frænka" bar hita og þunga uppeldis Kidda á sín- um herðum, þar sem Guðjón maður hennar var einnig sjó- maður. Hólmfríður er einn mesti kvennskörungur, sem ég hefi kynnst. Hún kollvarpaði fyr ir mér öllum þeim hugmyndum, sem ég áður hafði látið mér detta í hug um kvennskörunga. Ég hélt að kvennskörungur hlyti að vera úrill kerling, ljóbari en sjálf erfðasyndin, skapvond, nísk og nánasarleg. Öllu öfugri í lýs- ingu er varla hægt að gera á „frænku". Hún er mikill höfð- ingi í lund, skapgóð, hrein og bein og alveg gullfalleg, þótt ár- in færist yfir. Hún hlýtur að hafa verið fögur og tíguleg sem drottningin af Saba á sínum æskuárum. En hún er einbeitt og áfcveðin. Hólmfríður missti mann sinn í hinu hörmulega slysi er togar- inn Reykjaborg var skotinn nið- ur í marz, 1941. Var það þungt áfall fyrir heimilið, sem svo mörg önnur, en engri konu var fjær að leggja árar í bát en henni. Hún hefur til þessa dags rekið umfangsmikla matsölu, og hafa færri komist að en vildu, því ekki er það eitt að hún sé af- burða matreiðslukona, heldur og hitt að hún laðar mjög að sér fólk með framkomu sinni, og er það ekki óalgengt um fasmikið og skapheitt fólk. Hún hefur rejmzt Kidda ómetanleg stoð í blíðu og stríðu allt til hinztu stundar og ekki er að efa að hún, ásamt Þorbergi föður hans, muni, Nægur jarðhiti í Ungverjalandi til a.m.k. þúsund ára Stutt spjall við prófessor Tibor Boldizsdr UNDANFARNA daga hef- ur dvalizt hér á landi ung- verskur prófessor, dr. Tih- or Boldizsar að nafni. Er- indi hans hingað var að kynna sér, hvernig íslend- ingar hafa hagnýtt jarð- varma, því að komið er á daginn, að geysilegt magn jarðvarma er í Ungverja- landi, á 1500—3000 metra dýpi. Dr. Boldizsar er jarðeðlis- fræðingur að mennt, búsettur í Búdapest. Hann er forseti námadeildar tækniháskólane í Miskolee, sem er um 290 km frá Búdapest. Skólinn er einn hinn elzti sinnar tegundar í Evrópu, var stofnaður af Maríu Theresu, keisaradrottn- ingu, árið 1763. Upphaflega var hann aðeins miðaður við nám í námuvinnslu — Og málmfræðum, en nú er þar einnig vélaverkfræðideild. Um fjögur þúsund stúdentar stunda nám við skólann. I viðtali við fréttamann Morgunblaðsins skýrði prófes- sor Boldizsar frá því, að hann hefði komizt að raun um jarðvarmann í Ungverjalandi fyrir fimm árum, er hann vann að mælingum á hita- straumi úr iðrum jarðar til yfirborðsins — en Ungverja- land er eina landið í Evrópu, þar sem sá hitastraumur hef- ur verið mældur á skipulags- bundinn hátt. Prófessorinn kvaðst hafa lagt árangur rann sókna sinna fyrir ungversku stjómina og ynni nú flokk- ur vísindamanna og sérfræð- inga undir hans stjóm að frekari rannsóknum til undir- búnings nýtingu jarðvarmans. — í jarðvarmanum eiga Ungverjar vafalaust geysilega mikilvæga auðlind, sagði pró- fessor Boldizsar. Að því er bezt verður séð, er jarðvarmi í nær öllu landinu, en við þurfum að bora nær helmingi dýpra eftir honum en þið hér á íslandi, eða að meðaltali um 2000 metra, hann virðist vera á 1500—3000 metra dýpi. Að þessu leyti erum við verr settir en íslendingar, en á hinn bóginn er sá mikli og óvenjulegi kostur fyrir hendi í Ungverjalandi, að í tveim þriðju hlutum landsins virð- ist sama hvar niður er borið til þess að ná í heita vatnið. Það sem eftir er landsins, er mest fjalllendi, kalksteins- fjöll — en í kalksteininum earu víða sprungur og þarf að hitta á þær til iþess að finna varmann, og er það ekki ólíkt því, sem er víða á Islandi. Eftir þvi, sem næst verður komizt, af mælingum undan- farinna ára, heldur prófessor- inn áfram, virðast vera fyrir Dr. Tibor Boldizsar hendi fimm þúsund rúmkíló- metrar af heitu vatni, um 100 stiga heitu að meðaltali — og við gerum ráð fyrir, að það verði nægilegt til notkunar næstu þúsund árin. — Til hvers er fyrirhugað að nota jarðvarmann? — Til upphitunar húsa og verksmiðja, til notkunar í sundlaugum og böðum og til reksturs gróðurhúsa, sem er mjög mikilvægt í Ungverja- landi, þar sem næturkuldar á haustin og vorin valda oft erfiðleikum við garðrækt og ávaxtarækt. Ennfremur kem- ur til greina að hagnýta hann til iðnaðar, en virkjunarfram- kvæmdir munu taka langan tíma. — Hve mikill hluti lands- búa kemur til með að hafa gagn af jarðvarmnum? — Ætla má, að um helm- ingur þeirra njóti góðs af þessari áuðlind við upphitun híbýla, eða rúmar fimm milljónir manna. Jarðvarma- hitun kemur til með að valda geysilegum breytingum, því að megnið af ungverskum hús um eru kolakynt. Það hefur í för með sér mikil óhreinindi og óheilnæmt loft og auk þess er áætlað að hitakostnaður muni lækka nær því um %. Það er því ekki svo lítið hagsmunamál fyrir 10 millj. þjóð að virkja þessa auðlind. Ég hefi haft geysimikið gagn af dvölinni hér, þótt stutt væri, því að jarðvarma notkunin á íslandi er einstök í sinni röð og allt skipulag hennar afbragðs gott. -— Hve mikinn hluta ársins þarf að hita upp hfbýli í Ung- verjalandi? — Hitunartímabilið er um það bil sex mánuðir á ári. Loftslagi er þannig háttað í Ungverjalandi, að á sumrin verður mjög hlýtt, líkt veður- far og á Ítalíu, og getur hiti verið allt upp í 35 stig á Celsíus. En vetumir eru kald- ir, oft 20—25 stiga frost — hitastigsmunur á nóttu og degi getur orðið 10—15 stig og þó næturnar kaldastar. — Meðalhiti í janúarmánuði er líkur því sem gerist á Is- landi, en febrúar er kaldasti mánuðurinn. Segið mér, prófessor, hafði aldrei verið athugað fyrr, hvOrt jarðhiti væri í Ung- verjalandi — og sáust þess engin merki, hvergi hverir eða heitar uppsprettur? — Það hefur ekki verið rannsakað fyrr, en sums staðar eru heitar uppsprettur, t. d. í Búdapest. Þar eru heit- ar laugar og var þegar fyrir mörgum öldum komið á fót böðum, sem urðu víðfræg. Enn eru starfandi þrjár stórar og góðar baðstofnanir í Búda- pest, sem settar voru á lagg- irnar í stjórnartíð Tyrkja, hin elzta er frá miðri 17. öld. — Vitið þér til þess, að jarðvarmi sé í fleiri Austur- Evrópu-ríkjum? — Nei, en ég tel það ólík- legt. Það hefur að vísu ekki verið rannsakað, en lega Ung- verjalands er í jarðfræði- og landfræðilegu tilliti alveg sér stök. Sá hluti landsins, þ^r sem jarðvarminn er mestur, er eins og kvos milli fjall- garða og hedta vatnið liggur eins og stöðuvatn milli laga í þessari kvos. mbj. reynast eftirlifandi konu hans og fimm börnum þeirra sú trausta hjálparhella, sem þeim nú er nauðsyn að fá að styðja sig við, til þess að tryggja þeim gæfu og gengi um ókomna daga. Kiddi hefur lagt gjörva hönd á margt um sína stuttu lífdaga. Við vorum, um tima, hásetar saman á Reykjaborginni, er við byrjuðum sjómennsku. Fékk ég þá grillu í höfuðið að ég væri þeim kostum búinn að geta orð- ið dugandi sjómaður, en gafst síðar upp vegna stöðugrar sjó- veiki. Kiddi fór fljótlega á tog- arann Egil Skallagrímsson, og var á honum mestan hluta sjó- sóknartíma síns. Eftir að hann hætti sjósókn árið 1944 vann hann um nokkur ár í Kjötbúðinni Borg, jafnhliða sem matgerðarmaður og af- greiðslumaður í búðinni. Var oft gaman að koma í þá verzlun er Kiddi var þar við afgreiðslu, því hann var bæði glaðlyndur og fyndinn og kom oft fullri búð viðskiptavina til þess að hlæja dátt að glettni sinni. Þá eru mér minnisstæð þau mörgu góðu orð sem hann hefur látið falla um vinnuveitanda sinn þar, sem hann mat mest fyrir vandvirkni og samvizkúsemi í matgerðinni, en á því sviði taldi hann ekki allsstaðar gæta þeirrar ráðvendni sem skyldi. Síðustu árin hefur Kiddi unn- ið hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. Pyrst sem bílstjóri, en síðan hann kenndi hjartasjúkleika þess, sem dró hann til dauða, sem eftirlitsmaður. Kiddi vaT mjög vel liðinn af öllum sem kynntust honum, enda mjög vinsæll. Hann var sí- kátur og glaðvær, fyndinn og spaugsamur og kom öllum í gott skap. Hann var afar félagslyndur og vildi helzt alltaf hafa hóp vina í kring um sig. Hann gekk í Oddfellowregluna fyrir nokkrum árum og hreifst mjög af því fé- lags- og líknarstarfi, sem þar er unnið, enda var hann vel met- inn þar. Hann var allra manna hjálp- samastur þeirra sem ég hefi kynnst. Hann mátti aldrei neitt aumt sjá öðruvísi en rétta fram hjálpathönd, og var þar oft betup gert en efni stóðu til. Eins og títt er um óeigingjamá ‘hjálpsama og félagslynda menn, þá safnaðist Kidda enginn auð- ur, og óttast ég að lífsviljinn og glaðværð hugarins hafi glapið fyrir honum að nokkru, enda varla von að hann, frekar en aðra, hafi grunað að svo skammt væri ólokinna lífdaga. Kiddi kvæntist eftirlifandl konu sinni Pálínu Gunnarsdótt- ur hinn 6. febrúar, 1943. Hún er dóttir Gunnars Ingimundarson ar og SVeinfríðar Guðmundsdótt ur, en ólzt upp hjá móður sinni og föðurbróður, Pálma Ingimund arsyni í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust sex börn, en misstu einn son sinna, Sigurð, sem ungbarn. Eftirlifandi böm þeirra eru: Þorbergur, prentnemi, 19 ára, Páll Sævar 14 ára, Hólm- fríður Sigurrós 12 ára, Jón Krist inn 9 ára og einar Valur 8 ára. Öll em börn þessi hin myndar- legustu og mannvænlegustu og lætur það að líkum, að þeim, svo ungum, er mjög sár föðux- Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.