Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 16
16 MORCUISBLAÐIÐ Föstudagur 28. des. 1962 Bygging verknámsskóla hefst á næsta á» hann nauðsynlegt að hraða sem mest byggingu verknámsskólans og bæta um leið aðstöðu ttl verlt legs náms í öðrum gagnfræða- skólum. Loks kvað hann það álit sitt, að hefja yrði þegar byggingu æfingaskóla Kennaraskóla íslands og Ijúka henni sem fyrst. ÓLAFUE J. OLAFSSON löggiltur endurskoðandi. Bókhald — Endurskoðun Tjarnargötu 4. - Sími 20550. ★ Hafin er nú vinna við teikn- ingar af hinum nýja verknáms- skóla, og verða frumdrög þeirra vaentanlega lögð fyrir fræðsluráð Reykjavíkurborgar um mánaða- mót janúar-feþrúar n.k. Ætti því að vera hægt að hefja fram- kvæmdir við skólann á næsta ári. ★ Gert er ráð fyrir, að end- urskoðun á áætlun um skólabygg ingar í Reykjavík, sem nú er unn ið að á vegum fræðsluráðs og fræðslustjóra borgarinnar, verði lokið á fyrra helmingi ársins 1963. Er hér um að ræða endur- skoðun á byggingaáætlun þeirri, sem samþykkt var fyrir frum- kvæði borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn árið 1957, og síðan hefur verið unnið eftir. >essar upplýsingar komu fram í ræðu, sem frú Auður Auðuns (S) flútti á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur sl. fimmtudag í til- efni af ályktunartillögum Alfreðs Gíslasonar og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um skóla- mál. Frú Auður rifjaði í ræðu sinni upp höfuðatriði þeirrar stefnu, sem fylgt hefur verið í skóla- byggingamálum borgarinnar á undanförnum árum. í fyrsta lagi hefur verið við það miðað, að unnt sé að mæta eðlilegri fjölg- un nemenda. í öðru lagi hefur verið að því unnið að útrýma þrí setningu í bamaskólum og tví- setningu í efstu bekkjum gagn- fræðastigsins. f þriðja lagi hefur verið lögð á það áherzla að losa leiguhúsnæði það, sem borgin hefur tekið til af nota til bráða- birgða. Og í fjórða lagi hefur verið að því unn ið að koma upp sérstökum stofn- unum til kennslu þeirra barna, — Þingeyri Framhald af bls. 6. dag vinna að framleiðslu smiðju sinnar, ásamt forstjórastörfum, fullan vinnudag og jafnvel meir. Segja má, að það sé lítill við- burður þó að ein lítil smiðja eigi 50 ára starfstímabil að baki. En þegar haft er í huga, að þetta tímabil er hið mesta framfara- tímabil, sem gengið hefur yfir þjóð vora, og ekki hvað sízt á sviði allrar vélvæðingar, þá verð ur ekki hjá því komizt að leiða hugann að því, að þessi smiðja á sína sögu, þó ekki sé hún stór á nútímamælikvarða. í okkar fámenna byggðarlagi hefur smiðjan jafnan verið einn af máttarstólpum hreppsfélags- ins, bæði beint og óbeint með starfsemi sinni. Munu því allir hreppsbúar taka undir þá ósk, að vegur hennar megi enn vaxa, til hagsbóta fyrir hana, hreppsfé- lagið og þjóðina alla. Ólafur R. Hjartar. sem af einhverjum ástæðum geta ekki átt samleið með öðrum börn um í námi. Hefur góður árangur náðst við framkvæmd allra þess- ara atriða. Skólabyggingar hafa gert mun betur en mæta fjölgun nemenda, nú sér fyrir endann á þrísetningu í barnaskólum og tvísetningu í efstu bekkjum gagn fræðastigsins, og leiguhúsnæði er rýmt eftir föngum. Upp hefur verið tekin kennsla fyrir afbrigði leg börn, að vísu í smáum stíl fyrst í stað, en unnið er að því að auka þá kennslu. — Þá hefur með námskeiðum og styrkveitingum verið að því stefnt að auka mennt un kennara, svo að unnt sé að hagnýta nýjungar í námi og kennslutækni og auka fjölbreytni í námsefni, og skólabyggingum eftir aðstæðum hagað í samræmi við það. Lagði frú Auður til með tilvís- un til þessa, að fyrrnefndum til- lögum þeirra Alfreðs Gíslasonar og borgarfulltrúa Framsóknar- flokksins yrði vísað frá. Sam- þs'kkti borgarstjórn frávísunartil lögu hennar. Þá vék frú Auður sérstaklega að byggingu hins nýja verknáms skóla, sem ætlaður er staður á lóð Kennaraskólans nýja. Hefur bygging hans dregizt talsvert vegna anna þess arkitekts á skrif stofu húsameistara ríkisins, sem sjá hefur átt um teikningu skól ans. Þar sem verknámsskólinn á a$ standa á lóð Kennaraskólans hefur húsameistari talið nauðsyn legt, að sami arkitekt teiknaði hann og annaðist teikningu Kenn araskólans. En sá arkitekt hefur verið störfum hlaðinn vegna bygg ingar síðarnefnda skólans. Nú hef ur húsameistari hins vegar falið öðrum arkitekt að gera teikning ar af verknámsskólanum, og má því búast við, að skriður geti kom izt á byggingu hans. Er gert ráð fyrir, að frumdrög arkitektsins að teikningunum liggi fyrir um mánaðamótin janúar-febrúar n.k. Ætti því að vera hægt að hefja framkvæmdir við skólann á næsta ári. Óskar Hallgrímsson (A) hafði flutt tillögu um, að byggingu verknámsskólans yrði hraðað eft ir föngum, en dró tillögu sína til baka að fengnum þessum upplýs ingum fru Auðar. Alfreð Gíslason (K) sagði í ræðu þeirri, sem hann flutti með ályktunartillögu sinni um skóla- mál, að óhjákvæmilegt væri, að áherzla yrði á það lögð að hefja byggingu nýrra skólahúsa og hraða framkvæmdum þeim, sem yfirstandandi eru. Sérstaka á- herzlu lagði hann á, að hafin yrði bygging skólahúss fyrir Háaleitishverfi og skólahúss við V esturvallagötu og Hringbraut. Lnnfremur kvað Oviðjafnanlegt uppþvottaefni Engin fyrirhöfn-Ekkert erfiöi FITUBLETTIR HVERFA SEM DÖGG FYRIR SÓLU Diskar yðar, glös og borðbúnaður verður tandurhrelnn og gljáandi. ENGIN ÞÖRF Á SKOLUNI Hvergi blettur— hvergi nein óhreinindi. LTJX LIQUID er drjúgt-aöeins fáeinir dropar úr plastflöskunni nægja til að fullkomna upppvottinn. Fáeinir c’ropar af LUXLEGI og uppþvotturinn er búinn X-L.L 2/IC-M45-S0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.