Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 11
< Föstudagur 28. des. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 11 í tilefni ritdóms J>AÐ er vafalaust góð regla að ritdæma ekki ritdóma, svo vitnað sé í orð Nóbelsskáldsins, enda óvíst hvar slíkt myndi enda, ef það væri eitthvað að ráði. Frá því verður hér, því miður, að gera litla undantékningu. Ég hef lengi talið ávinning að því að fá vísbendingu hæfra manna um gæði þess lesmáls, sem gefið er út í bókarformi. Venju- legum mönnum er ofvaxið að liggja inni með það magn, sem boðið er upp á á því sviði og þakk samlega verður því að þiggja leiðbeiningar í þessu efni, þegar þær eru gefnar af heilum hug og viti. Tilefni þessara orða er það, að hastarlega hefur brugðizt einn þeirra manna, sem tekizt hefur á hendur að skrifa um bók- menntir. Mér krossbrá, er ég las í gær ritdóm í Vísi eftir Njörð P. Njarðvík um bók Stefáns fréttamanns, Mínir menn. Þá bók hafði ég lesið fyrir tveimur vik- um og opnað aftur nokkru síðar mér til ánægju. Svo les ég það í löngu máli í Vísi í gær, að þar hafi mér og fleirum skjátlazt hrapallega að hafa svo gaman af bók þessari. Er skemmst frá því að segja að ritdómarinn kemst hvergi nálægt því að skilja það ritverk, sem hann fjallar um. Veldur þar mestu, að fram hjá honum hefur farið sjálfur neisti verksins, sem er hinn dýrlegi húmor, er þar flæðir um allt. Ergelsi manns yfir því að skilja ekki fyndni er engin nýlunda, en flestir gera sér ljóst, að slíkt kemur ekki öðrum mönnum við. Að gera þennan skort að uppi- stöðu í opinberum ritdómi, án þess að tefla fram gildari rök- um, er ekki hægt að láta óátalið. Það er sjálft hugarfarið að baki gagnrýninnar sem er athugavert í þessu tilfelli. Höfundur hennar sér ekki til sólar fyrir einhverj- um ónotum, sem virðast ekki eiga sér önnur upptök en í mann inum sjálfum. Sá eiginleiki gæti ég trúað að væri algengur hjá þeim mönnum, sem á efri árum reynast erfið gamalmenni. Svo vikið sé nánar að bók Stefáns, þá er augljóst, að þar mætast miklir kostir ásamt greinilegum göllum. En hvernig hægt er að skrifa langloku í dagblað, án þess að örli á viður- kenningu fyrir áþreifanlega vel gerða hluti, fæ ég ékki skilið. Þessi athugasemd átti að verða stutt og verður því hér margt ósagt, sem tilefni væri til að nefna. Fæ ég þó ekki skilið við þetta efni án þess að minnast á for- dæmingu Njarðviks á stafsetn- ingu Stefáns. Það hefði hann helzt átt að leiða hjá sér. Þar upplýsist nefnilega betur en annars staðar hversu greinilega maðurinn tapar aðalatriðum fyrir aukaatriðum. Vissulega er stafsetningunni eða prófarkalestrinum ábótavant og verður því ekki bót mælt hér. En sjálft efni málsins hefur slík- an forgangsrétt umfram vafa- söm formsatriði á sviði málfræði, að óleyfilegt er að sjá ekki út fyrir þann ramma. Aðalefni þessa máls er ekki fyrst og fremst bók Stefáns frétta manns heldur hitt, að ritdómara ágæts blaðs hefur verið ; trúað fyrir hlutverki, sem hann kunni ekki með að fara. Slíkt slys verð- ur ekki skrifað á reikning annars en mannsins sjálfs, og væri æski- legt, að sú saga þyrfti ekki að endurtaka sig. Ljóskúlum stolið af jóla- trjánum AÐ fyrirmælum borgaryfirvalda hefur Hafmagnsveita Reykjavík- ur í ár og undanfarin ár séð um lýsingu á jólatrjám, sem sett hafa verið upp á torgum í hin- um ýmsu hverfum borgarinnar. Það hefur viljað koma fyrir, að einhverjir óráðvandir hafa hnuplað ljóskúlum af trjánum, sérstaklega þeim sem eru í seil- ingarhæð. Þannig hafa stunc\rm horfið frá 10—40 ljóskúlur af tré. Það skal tekið fram, að þessar ljóskúlur eru gerðar fyrir lága, hættulausa spennu, og þær er ekki hægt að nota í húsum fyrir venjulegar ljósalagnir. Ef þær eru skrúfaðar í lampa í húsum, sprengja þær öryggin. Jólatrén eiga að vera friðhelg, og helzt að vera augnayndi fyrir sem flesta. 20/ 12. ’62 Magnús Óskarsson SKODA DIESEL Leitið upplýsinga HÉÐINN vélaumboð. Sími 24-260. 5TR0JEXP0RT TIL LAIMDS TIL SJÁVAR SPARIMEYTIN GAIMGVISS VARAHLIiTIR SÉRLEGA ÓdVrIR Vörður — llvöt — lieimdallur — Óðinn Araiuótaspilakvóld Áramótaspilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður fimmtudaginn 3. janúar kl. 20,30 í Sjálfstæðishúsinu og Hótel Borg. Skemmtiatriði: S JÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: 1. Spiluð félagsvist. 2. Ávarp: Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra. 3. Spilaverðlaun afhent. 4. Dregið í happdrætti. 5. Spánska danstríóið „Queta Barcelo“ dansar spánska dansa. 6. Dans. Húsið opnað kl. 20.00. — Lokað kl. 21.30. HÓTEL BORG: 1. Spiluð félagsvist. 2. Ávarp: Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra. 3. Spilaverðlaun afhent. 4. Dregið í happdrætti. 5. Spánska danstríóið „Queta Barcelo“ dansar spánska dansa. 6. Dans. Húsið opnað kl. 20.30. — Lokað kl. 21.30. Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma. Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.