Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLA01Ð Föstudagur 28. des. 1962 Þota ferst eða á Græniandsjökii Tveir björgunarinenn og þrjú björgunartæki farast við leitartilraunir FRÉTTIR hafa fyrir nokkru borizt af því að þota frá bandaríska flughernum hafi farizt á Grænlandsjökli. Hins vegar niun ekki kunn- ugt hér að björgunar- og leitartilraunir hafa tekizt mjög slysalega og þremur farartækjum hlekkst á við þær að- gerðir. Blaðið átti í gær tal við Viktor Aðalsteins- son flugstjóra hjá Flug félagi íslands, en hann hefir að undanförnu haft flugstjórn á hendi á einni af vélum félags ins, sem flogið hafa á Grænland með bæki- stöð í Syðra-Straum- firði. Kom hann ásamt áhöfn sinni hingað heim aðfaranótt Þor- láksmessu. Viktor segir svo frá, að þota af gerðinni F 102 frá banda- ríska flughernum með bæki- stöð á Thule-flugstöðinni í Grænlandi hafi farizt eða nauðlent ekki langt frá flug- stöðinni á 76,5 gráðum n. br. og 69 gráðum v. 1. Nú er svart asta skammdegi norður þar, og lýsir ekki hið minnsta að degi til, svo erfitt er um alla leit. Þotunnar var saknað hinn 15. des. s.L Lentu lifandi Eftir að þotan fórst var haft lof tskeytasamba nd við flug- manninn, svo vitað er að hann hefir verið á lífi eftir slysið. Flugvél þessi er af sömu gerð og þotur þær ,sem staðsettar eru hér á Kefla- víkurflugvellL Þyrla hrapar Þegar var gerður út hjálp- arleiðangur og fór þyril- vængja með 3—4 mönnum að leita. Ekki tókst þó betur til en svo að þyrlan hrapaði en mennina sakaði ekki. DC 3 ferst í lendingu Næst var send flugvél af gerðinni Douglas DC 3. Var hún búin skíðum og lenti á jöklinum þar sem áhöfn þyrl- unnar hafðist við. Lendingin tókst þó svo slysalega að vélin fórst og tveir af fjögurra manna áhöfn létu lífið. Snjóbíll hverfur Næst var sendur mikill og voldugur snjóbíll búinn hin- um fullkomnustu tækjum, enda að verðmæti 100 þús. dollara virði. Ekki löngu eftir brottför hans slitnaði við hann aUt samband og hefir ekkert til hans spurst síðan. Er ótt- ast að hann hafi hrapað niður um sprungu þótt að sjálfsögðu verði ekkert um það fullyrt. Leitað hjálpar í Straumfirði Er hér var komið sögu leit- uðu stjómendur flugstöðvar- innar á Thule aðstoðar hjá flugvélum bandaríska hersins, sem bækistöð hafa í Syðra- Straumfirði. Eru þær af svo- nefndri Hercules gerð og not- aðar til birgðaflutninga tU veðurathugunarstöðva inni á GrænlandsjökU. Tvær þessara véla vora þegar sendar á vett- vang og lenti a.m.k. önnur hjá þyrluáhöfninni og hinum tveimur eftirlifandi mönnum af Douglasvélinni og tókst að bjarga þeim. 30 stiga gaddur Er Viktor og félagar hans fóm heim aðfaranótt Þorláks- messu var flakið af þotunni enn ófundið og ekkert vitað um snjóbUinn, eins og fyrr segir. Þarna norður frá er a.m.k. 30 stiga gaddur eða jafnvel meira. Svo lífsvon mannsins er orðin næsta lítil, þótt lif- andi hafi lent á jöklinmn. Þýzkur sjómaður stung- inn hnífi á Pafreksfirði PATREKSFIRÐI, 27. des. Föstudaginn 22. des. mUli kl. 17 og 18 varð sá atburður, að matsveinninn á þýzka togaran- um Freiburg frá Bremerhaven, var lagður hnífi af einum há- setanna. Togarinn lá, þá í höfn á Patreksfirði. Atvik að þessu eru með öllu ókunn að öðru leyti en því, að hásetinn hafði vcrið með morð hótanir við matsveininn þennan sama morgun, eftir að einhverj- ar ýfingar höfðu orðið með þeim. Þegar menn voru að matast í matsal skipsins, greip háisetinn flatningshníf og lagði honum í brjósthol matsveinsins, ofarlega vinstra megin, með þeim afleið- ingum að lungað særðist. Mat- Mikil kirkju- sókn um jólin MIKIL kirkjusókn var um jólin í Reykjavík og nágrenni. T.d. varð fólk sums staðar að hverfa frá á aðfangadagskvöld, svo sem frá Dómkirkjunni. Var þar Og víðar hvert sæti setið góðri stundu áður en aftansöngur hófst kl. 18. Messað var í fyrsta skipti í Kópavogskirkju eftir vígslu hennar kl. 23 á aðfangadags- kvöld, Var þar geysileg aðsókn, Og segja sjónarvottur, að tæplega hafi komizt nema helmingur þeirra, er vildu, í kirkjuna. Svipaða sögu er að segja um kirkjusókn um jólin úti á landi, þar sem færð og veður leyfði. sveinninn var tafarlaust filuttur í sjúkrahús og þar gert að sári hans. Gerði það Kristján Sigurðs son héraðslæknir. Þykir nokkuð örugg vissa fyrir því, að hann komist yfir þetta. Réttarnannsókn fór ekki fram hjá sýslumanni í sambandi við þetta, en aftur á móti var gefin skýrsla ti'l þýzku ræðismanns- Skrifstofunnar á Patreksfirði, og mun sú skýrsla send til réttra aðiilja í Þýzkalandi. Úr þeirrd skýrslu hefur ekkert verið lát- ið uppskátt. Matsveinninn er 31 áns að aldrL Það skal tekið fram, að skip- verjar voru ekki undir áhrifum áfengis, er atburður þessi átti sér stað. Nafn matsveinsins, sem stung- inn var, er Gúnther Tielke, en nafn hásetans hefur ekki fengizt gefið upp. — Trausti. Leyfi þarf til flugeldasölu SKV. 152. gr. brunamálsam- þykktar fyrir Reykjavík er sala flugelda bundin leyfi slökkviliðs- ins. Nokkuð hefur borið á því, að kaupmenn hafi selt flugelda, án þes«s að fá leyfi. Hefur lög- reglan þegar stöðvað slíka sölu. Brýnist því fyrir kaupmönnum að verða sér úti um leyfi, áður en þeir hefja sölu á þess konar vamingi, því að annars kostar er salan ólögleg. Á ANNAN jóladag var leik- ritið Pétur Gautur, eftir Henrik Ibsen, frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. Áhorfendur tóku leiknum mjög vel og klöppuðu óspart. bæði milli atriða og í leikslok. Þjóðleik- hússtjóri, Guðlaugur Rósin- krans, færði leikstjóranum, frú Gerda Ring, blómakörfu að lokinni sýningu Og þakk- aði henni vel unnið starf. Gerda Ring þakkaði Guðlaugi Og ávarpaði leikara og áhorf- endur og þakkaði samstarf og móttökur. — Á myndinni: Gunnar Eyjólfsson og Arndís Björnsdóttir í hlutverkum Péturs Gauts og Ásu, móður hans. Atriðið er dauði Ásu. Réttindalaus okumaður brýtur Ifósastaur Hljóp á brott ásamt farþegunum UM hálf þrjúleytið aðfaranótt jóladags var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt að varnarliðs bíl hefði verið ekið á ljósastaur við Rauðarárstíg, brotið hann en farþegar bílsins síðan hlaupið á brott. Lögreglan hóf þegar leit að mönnum þeim, sem í bílnum voru, og voru þeir, fjórir talsins, handteknir, er þeir komu aftur að bílnum kl. hálf fimm um morg uninn. Á daginn kom, að ökumaður- inn, sem reyndist íslenzkur, var ökuréttindalaus, og að auki skal þess getið að íslendingar mega ekki lögum samkvæmt aka bíl- um varnarliðsmanna, og eru bílar þessir aðeins tryggðir fyrir Bandaríkjamenn sjálfa. Bíllinn Xf'NA IShnuhr | þ/ SV 50 hnútar ¥ Snjikoma * ÚH V Skvrir K Þrumur W’Al Ku'Jaskit Hiitskif H Hmi L Lmgi mun hafa verið í viðgerð hjá ökumanninum. Auk þess leikur grunur á að einn farþeganna, sem allir voru drukknir, hafi ekið bílnum fyrr um nóttina og þá undir áhrifum. Ökumaðurinn sá, sem ók á ljósa- staurinn, mun hinsvegar hafa verið ódrukkinn. Róleg jól á Akureyri UM jólin var stillt veður hér á landi og bjart, því hæðin sem enn er skamt suður und- an, var þá yfir landinu og stóru svæði umhverfis. Hæst stóð loftvogin um hádegi á annan í jólum, eða 1044 millí- bör NA til á landinu. Frost var um allt land, víðast 4—10 st., mest 14—16 í innsveitum Þingeyjarsýslu. í gær var komin vestanátt, nær alskýjað og frostlaust vcstanlands. Þar gerði sums staðar snjómuggu fyrst, en lítils háttar súld eða rigningu seinna um daginn. Á Galtar- vita var hitinn orðinn 5 stig kl. 14. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi. SV-land: NV kaldi og skýj- að en úrkomulaust. SV-mið: NV kaldi, lítils háttar súld vestan til. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Vestan kaldi, súld með köflum. Vestfirðir og miðin: Vestan kaldi Og dálítil súld fyrst en NV kaldi og smáél á morgun. Norðurland og miðin: NV kaldi og þurrt að mestu í inn- sveitum vestan til en stinn- igskaldi og slydduél austan til og á miðum Og annesjum. NA-land. NV stinningskaldi, slydduél norðan til. NA-mið: Stinningskaldi eða allhvass NV, slydduél. Austfirðir, SA-land og mið- in: NV kaldi, léttskýjað. AKUREYRI, 27. des. — Veðrið var mjög gott hér um jólin. — Snjólaust hefur verið með öllu í byggð Og allir vegir færir. Frost hefur verið 7—11 gráður. Að sögn lögreglunnar hafa jól- in verið ákaflega róleg, engir árekstrar eða slys, og ekki ölvun svo orð sé á gerandi. Slökkviliðið hefur aldrei verið kallað út um jólin. Á jóladag fór Tryggvi Helga- sön flugmaður til Raufarhafnar og sótti þangað fársjúkt barn, sem þurfti að komast tafarlaust í sjúkrahús. Flugferðin gekk vel, en 18 tiga frost var í loftinu. — St. E. Sig. Erindi um Masfnús o Steph ensen f GÆR kl. 17.30 flutti dr. jur. Þórður Eyjólfsson, hæstaréttar- dómari, erindi um Magnús Step- hensen dómstjóra á fundi í Lög- mannafélagi íslands. Erindið var flutt í tilefni þess, að í gær voru liðin 200 ár frá fæðingu Magnúsar. Það var flutt í L kennslustofu Háskóla íslands, og má heita, að húsfyllir hafi verið. — Erindið verður síðar birt í Lesbók Morgunblaðsins. Rílslys í Ölfusi Á ÞRIÐJA í jólum varð það slys í ölfusi, á móts við Sandhól, að jeppi, sem var á austurleið, skrik aði út af veginum í hálku. Kom hann illa niður, og kurlaðist hús- ið af bílnum. Fjórir voru í bíln- um, og lágu þeir eftir í brakinu, en bílvagninn rahn lengra áfram. Fólkið slapp furðulega vel; þrennt skrámaðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.