Morgunblaðið - 28.12.1962, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 28. des. 1962
Marilyn Monroe
efiir Maurice Zolotov
aðra — og útgáfurnar voru marg
ar — skyldi Monroe ávallt hafa
eitthvað að athuga við smekk
hans. Hann reyndi að færa rök
fyrir dómum sínum með hægð-
inni, og Monroe hélt fram sinni
skoðun. Svo kom Miller með sitt
álit. I.oks hætti Cukor að verða
Milerhjónunum samferða og
horfði einn á sýnishornin, í há-
degisverðartímanum. Monroe
horfði svö á þau á kvöldin, þegar
upptökum dagsins var lokið;
Millei var einnig við hlið henn
ar, þegar hún skoðaði kyrra-
myndir, sem voru ætlaðar til
auglýsinga. Hún skoðaði hverja
mynd vandlega gegn um stækk-
unargler, rétt eins og hún hafði
skoðað fyrstu, klaufalegu auglýs
ingamyndirnar af sér, þegar hún
var fyrirsæta. Hún „dregur"
fleiri auglýsingamyndir en nokk-
ur annar. níu af hverjum tíu er
fleygt. Ljósmyndari, sem hefur
unnið með henni, segir, að hún
hafi gott vit á ljósmyndum, en
svo sé hún „svo fjandi vandlát,
að geti gert mann alveg vit-
lausan. Enginn vill vinna með
henni. Það er svo niðurdrepandi".
I hádegisverðartímanum í mat-
stofunni hjá 20th, voru allir sí-
skrafandi um Mönroe. „Það eru
sex myndir í srníðum hjá Fox“,
sagði einn leikari í maí 1960,“
en það eina, sem við minnumst
á, er Marilyn Monroe". Lausa-
fregnir ög kjaftasögur lágu í loft-
inu. „Monroe heimtaði, að svið-
inu væri lokað í dag .... Hvers
vegna loka því? .... Hún er að
rífast við Cukor .... Hún er að
rífast við Montand .... Nei, hún
er skotin í Montand .... Þau
eiga í ástarævint„ ri .... Hún
reifst við Miller .... Þau eru
alveg að skilja .... Hún er
skotin í Vaughan .... Hún skróp
aði tvo daga í vikunni, sem leið
.... Nei, það er bara lygi ....
Sviðið er harðlokað .... Myndin
fer milljón fram úr áætlun ....“
Algengt var að heyra athuga-
semdir um það, að Arthur Mill-
er væri að fara illa með hæfi-
leika sína, að eyða þeim í að
vera verndarvættur fyrir Mari-
lyn — væri það ekki alveg synd
og skömm? En maðurinn lifir
ekki til þess eins að þóknast
leikdómurum eða leggja til efni
ihanda leiklistarprófessorum að
halda fyrirlestra um. Og hver
getur um það sagt, hvort Miller
næði ekki einmitt hærra en
nokkru sinni áður, ef hann tæki
sig nú til og færi að semja
kvikmyndahandrit? Hvað ef
þessi samvera og samvinna Mon-
roe og Millers ætti eftir að ná
hámarki sínu í einhverju meist-
araverki kvkikmyndalistarinnar?
Og hver er kominn til að segja,
að Miller geti ekki samið eitt
hvert meistaralegt leikrit og
Monroe verði stjarna í því?
Aftur sótti í gamla horfið.
Eftir fyrstu upptökuvikuna,
varð Cukor þess var, að sög-
urnar um óstundvísina og skróp-
ana hjá Marilyn voru engar
þjóðsögur. Hvernig var hægt að
ljúka við „Let’s Make Love“ á
réttum tíma? Úrræði Logans í
„Bus Stop“ hafði verið það að
láta mýndavélina „standa á“
henni allan tímann. Cukor not-
aði tvær myndavélar. Aðra fyrir
meðalfjarlægð og hina fyrir nær
myndir.
Og öryggisleysið hjá MonrOe
var enn til staðar. Það sýndi sig
eftir hverja upptöku. Hún vildi
alltaf „reyna einu sinni enn“. ;
Cukor lét þetta eftir henni og
framkallaði myndirnar. Wilder
þótti Marilyn alltaf öruggari í
seinni upptökunum. Það fannst
Cukor ekki. Honum tókst að
„kveykja í“ henni strax og hún
varð bezt í fyrstu upptökunum.
Og þær voru oftast notaðar, þeg-
ar hann tók að klippa myndina.
Monroe var ein í hinum fá-
menna hóp „lukkulegra“ í kvik-
myndaíheiminum, að vera boðin
í veizluna, sem haldin var fyrir
Krúséff af Fox, 1959. Gestirnir
voru beðnir að vera komnir í
Café de Paris á hádegi. Billy
Wilder köm stundarfjórðungi
fyrir tólf og sá þá, að Marilyn
var þegar setzt.
„Þarna kemur loksins maður,
sem getur kennt Marilyn stund-
vísi“, sagði hann við þá, sem
sátu við borð með honum. „Nú
veit ég hver ætti að stjórna öll-
um myndunum hennar. Hann
heitir Nikita Krúséff".
Eftir nokkur orðaskipti milli
Spyros Skouras og Krúséffs um
frjálst framtak og kommúnisma,
stóða heiðursgestirnir upp og
gengu fram með borðunum á
útleið. Skouras stanzaði við borð-
ið hjá Marilyn. Hann kynnti
hana alvaldanum, sem hneigði
sig hofmannlega, en Marilyn
roðnaði. Þá sagði Skouras.
„Kysstu ha«ia! Kysstu hana!“
hvarf í skvaldrinu, og Ilrúséff
Útleggingin á þessari skipun
kyssti hana ekxi, en slíkt hefði
vel getað breytt gangi veraldar-
sögunnar. Fylgdarliðið fór fram
hjá. Þá var það, að Joshua
Logan, sem var við börðið, bar
kennsl á Mikhail Sjolokov, skáld
sagnahöfundinn. Sjolokov hafði
verið í fýlu, alla athöfnina á
enda, eins og reyndar í öllum
öðrum borgum, sem hópurinn
hafði heimsótt. Logan stöðvaði
hann. „Þétta er Marilyn Mon-
roe“, sagði hann. Sjolokov setti
upp hundshaus. „Hún er ein
okkar fremstu kvikmyndaleik-
kvenna, hr. Sjolokov“, bætti
hann við. Sjolokov setti bara
upp leiðindasvip.
En þá greip Marilyn allt í einu
fram í: „Maðurinn minn, Arthur
Miller, leikritahöfundur, sendir
yður beztu kveðjur sínar“.
Þetta var þýtt, og skáldsagna-
höfundurinn varð allur að einu
brosi framan í hana. Ó, æ ... já,
Arthur Miller .... maðurinn
yðar .... já .... það er mér
heiður .... mikill maður ....
hann er i miklu áliti í mínu
landi“.
Augun í Monroe ljómuðu.
Þarna var persónulegur sigur
yfir Hollywood.
Enn einn strengur frá fortíð-
inni hljómaði. Móðir Marilynar
var enn á lífi. Hún hér nú frú
Eley, en það var ættarnafn
seinna mannsins hennar. Við
réttarhald í Los Angeles 3.
desember 1959, var Inez Melson,
sem eitt sinn hafði verið ráðs-
kona fyrir Marilyn og var enn
vinkona hennar, útnefnd „for-
ráðamaður" frú Eley. Vitnisburð
ur kom fram um það, að Mari-
lyn samþykkti þessa ráðstöfun.
Frú MelsOn vottaði það fyrir
réttinum, að „frú Eley væri í
hæli og gæti ekki séð um fjár-
reiður sínar sjálf. Samkvæmt frá-
sögn frú Melson, dvelur frú Eley
í góðu yfirlæti í hæli noknru í
útjaðri Los Angeles, og er við
sæmilega heilsu.“
„Hún er vel hress“, segir frú
Melson, „en þó ekki nægilega
til að getá búið ein. Hún er ekki
í geðveikrahæli nú og þarfnast
ekki stöðugs eftirlits. Móðir
Marilynar vill gjarna lesa mikið,
og svo prjónar hún og saumar.
Marilyn heimsækir hana oft, en
ekki veit ég hve Oft. Hún er
glöð yfir velgengni dóttur sinn-
ar og er hreykin af henni“.
- Höllywood hefur aldrei skilið
Monroe. Hollywood hefur aldrei
heiðrað hana. En nú orðið virðir
hún hana og er hrædd við hana.
Dag og nótt hefur hún til um-
ráða skrautbíl og bílstjóra, sem
félagið leggur henni til. Þessi
Ég varð að.fá mér eitthvað í stíi við nýja bindið þitt.
bíll flytur hana í verið og
ekur henni alveg upp að hljóm-
upptökusalnum. Svo er honum
lagt svo nærri dyrunum, að það
er rétt svo, að hægt er að ganga
um.
„Eg held hann sé þarna, til
þess að Marilyn eigi alltaf ein-
hverja nærtæka undankomuleið",
segir aðstoðarmaður þarna. „Eg
held, að þessi skrautbíll sé tákn-
rænn fyrir löngun hennar til að
sleppa burt“.
Að dagsverki loknu, sleppur
hún ásamt eiginmanni sínum í
skrautíbúð, sem snýr út að garð-
inum í gistihúsi í Beverley Hills.
Félagið greiðir gífurlega leigu
fyrir þessa íbúð.
Nú, þegar Marilyn er 34 ára
gömul, hefur hún allt — Hótelið
í Beverley Hills, skrautbílinn,
stjörnutignina, frægðina, auðinn
og frægan eiginmann, sem til-
biður hana.
En engin þessara skreytinga —
jafnvel allar samanlagðar, eru þó
hinn raunverulegi sigur hennar.
Hið mikla afrek Marilynar Mon-
roe hefur verið hvernig hún skap
aði sjálfa sig og gerði alla ver-
öldina þátttakanda í draumum
sínum. Joseph Conrad segir ein-
hversstaðar, að þegar við fæð-
umst föllum við í draumadá.
Norma Jean Mortensön, kölluð
Norma Jean Baker, féll í furðu-
, W>
Varaliturirm
óvidjafnanlegi
er auðvitað
frá:
LÁNCÖME
! "Je vcTrfumeur cle Pcfíis "
Aðeins hjá:
Oculus — Sápuhúsinu og Tízkuskóla Andreu
KALLI KUREKI
~X
-X —
^HUH-UH, JOHWMtE s
Wh/LE OH THE T2A!L TO HAMPTO/0'5 CAMP-~'
Teiknari: Fred Harman
OH-OM THATS TH'
KIDMAPPEB- HAMPTOM ,
PAIMTEDf MO POUBT-
ABOUTIT/ BUTHE
DPN’T KWOWME/
) í felustaðnum á Illuvöllum.
— Losaðu mig, Pési, ég get hvort
eð er ekki flúið fótgangandi.
— Nei, Halli kallinn. Þú verður
ekki losaður fyrr en Ási kemur aftur
með lausnarféð. Þú ert of verðmætur.
Á meðan er Kalli kaldi á leið frá
tjaldbúð Halla hamps.
— Þú ert að hlusta eftir einhverju,
Elding. Þakka þér fyrir að vara mig
við.
— Nú já. Það er þá ræninginn sem
Hampur málaði, á því er engmn vafi.
En hanja þekkir mig ekki.
legasta draumadá, sem um get-
ur. Hún fékk draum til að rætast.
Hún lét hann rætast með því að
skapa sig sjálf. Hún gerði sjálfa
sig fallega. Hún gerði sjálfa sig
að listakonu. Hún sigraði á þeim
vettvangi, þar sem fegurstu kon-
ur heims berjast af grimmd um
sigurlaunin.
í einum skilningi er líf hennar
fullkomnað, af því að sál henn-
ar hefur mótazt og þróazt af
sjálfsdáðum. Sama hvaða óræðir
viðburðir kunna að vera fram
undan, geta þeir engu breytt um
það sem hún er Og hefur orðið.
Og verða áreiðanlega margar
breytingar og undrunarverðir
hlutir, fram undan.
En í hjarta hennar er leitandi
óró, sem gefur henni engan frið
— sem rekur hana áfram til að
berjast, leita og finna og síðan
halda áfram að berjast og leita.
Sál hennar verður ávallt hvíldar
laus og óróleg.
Eftirmáli.
.... hvíldarlaus og óróleg ....
Monroe og Miller voru gefin
saman í hjónaband föstudaginn
29. júní 1956. Fjórum árum,
þrem mánuðum og þrettán dög-
um síðar — á öðrum föstudegi,
11. nóvember 1960, skildu þau.
Þann dag lýsti talsmaður þeirra
beggja því yfir að leikkonan
Marilyn Monroe og leikritahöf-
undurinn Arthur Miller hefðu
skilið í vinsemd, og bætti því við,
að Marilyn mundi sækja um lög-
skilnað, enda þótt hún hefði eng-
ar fyrirætlanir um að tala um
að tala við lögfræðing, rétt i
bili.
Hinn 21. janúar 1961 var gerð-
ur lagalegur skilnaður þeirra i
Juarez, Mexikó. Monroe og
Miller voru ekki lengur hjón.
Sögulok.
SHUtvarpiö
Föstudagur 28. desemljer
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 „Við vinnuna“: Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum": Ævar
R. Kvaran les söguna ,,Jóla-
nótt“ eftir Nikolaj Gk>gol (5).
15.00 Síðdegisútvarp.
18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan":
Guðmundur M. Þorláksson tal«
ar um Pál Jónsson Skálholts-
biskup.
18.20 Veðurfregnir.
18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Eyjar viS ísland; XX. erindi:
Viðey (Dr. Guðni Jónsson próf-
essor).
20.25 íslenzk tónlist: Lög eftir Erail
Thoroddseh.
20.35 í ljóði, — þáttur í umsjá Bald-
urs Pálmasonar.
20.55 Píanómúsík: Sergej Prokofjeff
leikur eigin tónsmíðar.
21.05 Úr fórum útvarpsins: Björn Th.
Björnsson listfræðingur velur efn
ið.
21.30 Útvarpssagan: „Felix Krull“ eft-
ir Thomas Mann; XVII. (Kristj-
án Árnason).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Efst á baugi (Björgvin Guð-
mundsson og Tómas Karlsson).
22.40 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tón-
list. „Sound of Music“, söng-
leikur um Trapp-fj ölskylduna
eftir Rodgers & Hammerstein.
Kynnir: Magnús Bjarnfreðsson.
23.45 Dagskrárlok.