Morgunblaðið - 28.12.1962, Side 22
22
MORGUISBLAÐIÐ
Fðstudagur 28. des. 1962
Hæfniskeppni, Rvíkurmót
og skíðakennsia hjá ÍR
Skíðadeild félagsins verður 25 ára
á þessum vetri
VETRARSTARFSEMI Skíða
deiídar ÍR mun verða einkar
fjölbreytt á þessum vetri en nú
eru liðin 25 ár frá
þvi að starfsemi deild
arinnar hófst .Af þessu tilefni
átti blaðið samtal við Þóri Lárus
son, formann deildarinnar, og
spurði hvernig störfum yrði hátt
að í vetur. Honum fórust orð
eitthvað á þessa leið:
— Segja má að vetrarstarfið
hefjist með skíðanámskeiði þvi,
sem stendur yfir í Hamragili frá
27.—30. desember. Þar eru tveir
kennarar, þeir Eiríkur Haralds-
son og Jakob Albertsson. Fólk á
þess kost að kaupa sér kennslu,
fæði og gistingu í hinum nýja
skála félagsins, hvort sem er
fyrir einn sólarhring eða allan
tímann, svo og að kaupa sér
kennslu eina saman og fæða sig
sjálft ef það ætlar ekki að vera
nema einn dag í senn. Nokkrar
skíðaferðir hafa verið famar, þar
sem af er vetrinum, þegar færi
hefur leyft.
★ Reykjavíkurmótið
Skíðadeild ÍR mun að þessu
sinni annast Reykjavíkurmótið,
sem fram fer um mánaðarmót
febrúar og marz. Keppt verður
IVIolar
— að utan
VALERI Brummel heimsmet-
hafinn í hástökki var á dög-
unum kjörinn „fþróttamaður
ársins“ I Rússlandi. Þetta er
annað árið í röð sem hann
hlýtur það sæmdarheiti, en
íþróttafréttamenn útvarps og
blaða kjósa. A listanum yfir
10 beztu voru engir nema
Evrópu, eða heimsmethafar
eða meistarar.
Pólski framvöi'ðurinn Jo-
sef Masopust, sem leikur með
Dukla í Prag hefur af franska
íþróttablaðinu „Fotbali“ verið
kjörinn knattspymumaður
ársins 1962. Það voru knatt-
spymublaðamenn í 19 lönd-
um sem þátt tóku í skoðana-
könnun blaðsins með þess-
um úrslitum. Portugalinn
Eusebio varð í 2. sæti í skoð-
anakönnuninni.
Sundmaðurinn Gerhard
Hetz og frjálsíþróttakonan
Jutta Heine vom í 1. og 2.
sæti í skoðanakönnun þýzkra
fréttamanna um „íþróttamann
ársins“.
Hollenzka Iiðið Feyenord
vann aukaleiik í keppninni
um Evrópubikarinn gegn ung-
verska liðinu Vasa með 1—0.
Liðin voro jöfn að mörkum
eftir fyrri tvo leikina svo
aukaleikur var nauðsynlegur.
Feyenoord er þá komið í 8
liða úrslit um bikarinn.
Brian Kilby, maraþonhlaup-
arinn og sundkonan Anita
Lonsbrough voru kjörin beztu
íþróttamenn ársins í Englandi
af enskum íþróttafréttamönn-
j um.
þar í svigi, bruni, stórsvigi, stökki
og göngu. í samibandi við þetta
mót verður sú nýjung upp tek-
in, að keppendur verðá ræstir
með sérstökum rafmagnsútbún-
aði (rafmagnsstarti). Þetta gerir
það að verkum, að keppnin geng
ur nú öll hraðar fyrir sig. !>á er
nú komin skíðalyfta í Hamragil
og hefur hún tvo möguleika, 150
metra og 300 metra. Nú þegar
er hafinn undirbúningur að þessu
móti. Ætlunin er að reyna að fá
erlendan gest til þess að keppa
á mótinu.
★ Hæfniskeppni.
Sú nýlunda mun upp tekin í
vetur, að starfræktar verða svo-
nefndar hæfniskeppnir. Fara þær
fram í öllum skíðalöndum erlend
is en eru óþekktar hér. Byrjað
Guðni Sigfússon
— 20 ár í fremstu röð
verður á þessu um mánaðarmót
in janúar-febrúar. Keppni verður
hagað þannig, að lagt er hlið efst
í tiltekinni brekku og marki er
komið fyrir neðst í brekkunni,
en leiðin þannig valin á milli, að
ekki er hægt að komast frá ræsi
hliði í mark nema sýna talsverða
leikni. Þessi keppni er fyrst og
fremst fyrir almenning. Tíminn
ræður úrsli'tum og verður á-
kvarðaður í fyrstu keppninni. Sá
sem nær tilskildum tíma fær
gullverðlaun, sá sem næstur verð
ur fær ' silfurverðlaun og sá
þriðji brons. Þannig getur hver
áhugamaður sem er spreytt sig
á þessari þraut og farið aftur og
aftur sömu eða svipaða braut
allan veturinn, því mörkin verða
ekki hreyfð frá því þau eru sett
niður og þar til þau verða tekin
upp, er snjóa leysir í vor. Getur
því hver maður gert allm-argar
tilraunir í vetur til þess að ná
sér í gullið. Þetta er því góður
mælikvarði á getu hvers og eins
sem kanna vill það hve leikinn
hann er orðinn á skíðum. Þraut-
in verður ekki erfiðari en svo að
skíðaikappar, sem eru í stöðugri
þjálfun og stunda keppni, munu
eiga tiltölulega auðvelt með að
vinna gullið, enda er þessi þraut
fyrst og fremst ætluð almenn-
ingi, en ekki skíðaköppunum.
Þrautirnar verða bundnar ákveðn
■um timum um helgar, sem nánar
verður getið síðar.
Þórir Lárasson,
form. Skíðadeildar ÍR.
■Á Afmælið.
Síðast en ekki sízt verður
svo haldið hátíðlegt 25 ára af-
mæli skíðadeildarinnar. í því
samlbandi verður afmælismót og
væntanlega einhver hátíðahöld.
Sjálft afmælið er hinn 10. marz
en aðstæður allar verða að ó-
fcveða nánar um hvenær mótið
fer fram, eða hátíðahöldin. Um
páskana verður haldið mót í
Hamragili og ýmislegt fleira
verður til skemmtunar fyrir þá
sem dveljast vilja í skála félags
ins þar efra þann tíma.
★ Önnur mót.
Vetrarstarfsemi Skíðadeildar
innar mun ljúka með því, að
deildin sér um hið svonefnda
Steinþórsmót, en þar er um að
ræða sveitakeppni sex manna
sveita.
Loks skal þess getið að í ár
hefur einn af félagsmönnum í
ÍR keppt á skíðum fyrir félagið í
samfleytt 20 ár. Er það Guðni
Sigfússon, sem enn er hinn frækn
asti skíðagarpur. Nú sem stend-
ur era þrír af fremstu skíða-
mönnum félagsins starfandi
skíðakennarar í Bandaríkjunum.
Eru það þeir Steinlþór Jakobs-
son, Úlfar Skæringsson og Ey-
steinn Þórðarson.
Þannig fórust formanni Skíða
deildar ÍR orð. Vonum við að
starfsemi Skíðadeildarinnar í
vetur megi vel farnast, enda eiga
skíðamenn Iþróttafélags Reykja
víkur vel skilið slíkan dugnað
og afreksgetu, sem þeir hafa
sýnt að undanförnu.
Nýiega tók Úlfur Skæringsson, sem nú stundar skíðakennslu
í U.S.A., þátt í móti skíðamanna í Aspen. Hér sést hann
lengst t. v. ásamt Roger Staub og Karl Burtscher.
Island gegn Frakk-
landiog Spániífeb.
— landslið valið
ÁKVEHjNIR eru nú tveir landsleikir íslands í handknattleik og
fara þeir fram í París 16. febrúar og í Bilbao á Spáni 19. febrúar.
Mótherjarnir eru Frakkar og Spánverjar. Landsliðsnefnd HSÍ hefur
nú endanlega valið lið það er utan fer til leikanna. — Er það
þannig skipað:
Hjalti Einarsson, F.H.
Karl Marx, Haukar.
IMýárskvöld
■ Jósefsdal
DVALIZT verður í Jósefsdal
milli jóla og nýárs og er þar
ráðskona með mötuneyti. Allir
beztu skíðamenn félagsins ann-
ast almenna skiðakennslu fyrir
unga sem gamla. Skíðabrekkan
verður upplýst. Dráttarvél á snjó
beltum nr.un flytja fólk og far-
angur á öllum auglýstum ferð-
um .Kvöldvökur öll kvöld. Ferð
ir frá B.S.R. á laugardaginn 29.
des. kl. 2 og 6. sunnudag 30. des.
kl. 10 og gamlársdag kl. 2.
Allar upplýsingar hjá Þórsteini
Bjamasyni og öðrum stjórnar-
meðlimum.
Skiðakennsla og göngu-
ferðir frá Skíðaskálanum
GÓÐUR snjór er nú við Skíða-
skálann í Hveradölum og þar er
tekið á móti gestum til lengri
og skemmri dvalar nú milli há-
tíða. Er margt gert til að gera
dvölina skemmtilega m.a. skipu-
lagðar gönguferðir frá skálan-
um, skíðakennslu haldið uppi,
skíðalyfta höfð í gangi og brekk-
ur flóðlýstar.
Gestgjafinn í skálanum ÓflLi
Ólason sagði að glatt væri á
hjalla og skemmtilegt þessa daga
í skálanum. Verði gistingar og
fæðis er stillt í hótf þannig að
allir geti veitt sér nokkurra daga
dvöl þar, og er unnt að fá bæði
herbergis- eða svefnpokapláss.
Skíðakennsluna annast kunn-
ur skíðamaður Og leiðsögn í
gönguferðum annast einnig fróð-
ir menn um umhverfið. Um ný-
árið er efnt til sérstakrar hátíðar
í skíðaskálunum og hetfur oft ver-
ið mannmargt þar efra á Gaml-
árskvöld og fólk notið dvalar
*þar.
Pétur Antonsson, F.H.
Einar Sigurðsson, F.H.
Kristján Stefánsson, F.H.
Birgir Björnsson, F.H.
Örn Hallsteinsson, F.H.
Gunnlaugur Hjálmarsson, Í.R.
Matthías Ásgeirsson Í.R.
Karl Jóhannsson KR.
Karl Benediktsson, Fram.
Ingólfur Óskarsson, Fram og
Rósmundur Jónsson, Víking.
Staðan
/ 7. deild
FYRIR jólin fóro fram fyrstu
5 leikir í íslandsmóti 1. deild-
ar í handknattleik karla 1963,
en keppnin hefst svo snemma
vegna þess að nú er í fyrsta
sinn upp tekin tvöföld um-
ferð i deildinni. Leikirnir og
úrslitin urðu þessi:
KR—'ÍR 315—29
FH—Þróttur 34—13
Víkingur—Fram 26—21
KR—Þróttur 30—21
ÍR—Víkingur 19—19
Mesta athygli vöktu Víking
ar með sigri ytfir íslandsmeist-
urunum Fram.
Eftir þessa 5 leiki er staðan
í mótinu því þannig.
LUJT Mörk St
KR...... 2 2 0 0 66—ÖO 4
Víkingur 2 1 1 0 45—40 3
FH...... 1 1 0 0 34—13 2
ÍR ...... 2 0 1 1 4)8—64 1
Fram .... 1 0 0 1 21—26 0
Þróttur .. 2 0 0 2 34—04 0