Morgunblaðið - 28.12.1962, Blaðsíða 24
MíSSI mynd var tekin, þegar
húsiff Friffheimar í Blesugróf
var aff brenna á annan í jól-
um. (T.iósm. Sv. Þ.).
Húsbruni
i Blesu-
gróf
RÓLEGT var hjá Slakfcviliði
Reykjavíkur urn jólin. Kl.
rúmlega 16 á annan jóladag
var það kvatt að húsiniu Frið-
heimum í Blesugróf, ibúðar-
húsi og geymislum úr timbri.
Mikill eldur var í húsinu,
þegar slökkviliðið kom á vett-
vang. Þurfti að rífa húsið tölu
vert, því að eldur hafði kom-
izt í millivegg og tróð. Þegar
eldurinn hafði verið slökktur,
höfðu mjög miklar skemmdir
orðið á húsinu, svo að það var
ekki talið íbúðarhæft.
• J5 > 1
Bjargaoi telaga
sínum úr reyknum
Einn maður lézt og jbr/r liggja i
sjúkrahúsi eftir eldsvoða
i brezkum togara
SNEMMA á jóladagsmorgun
kom upp eldur í káetu brezka
togarans Wyre Majesty frá
Fleetwood, sem lá á Dýrafirði.
Fjórir menn sváfu í káetu
þeirri, sem eldurinn kom upp
í og komust þrír þeirra út.
Þar af var einum bjargaff
mjög naumlega, en einn kafn-
aði í reyknum. Þrír mannanna
liggja nú í sjúkrahúsinu á
Þingeyri, einn meff brunasár
og tveir meff kolsýringseitrun,
Annar hinna síðarnefndu fékk
einnig lungnabólgu upp úr
eitruninni.
Þorgeir Jónsson, héraðslækn
ir á Þinéeyri, tjáði Mbl. í gær
að mönnunum þremur liði vel
eftir atvikum.
Nánari atvik voru þau að
togarinn kom inn í mynni
Dýrafjarðar seint á aðfanga-
dagskvöld. Ákvað skipstjóri að
leggjast þar við akkeri og nota
góða veðrið til þess að gefa
áhöfninni jólamatinn daginn
eftir. Eftir að akkeri hafði ver
ið varpað gekk áhöfnin til
hvílu.
Tekið skal fram að enginn
hafði neytt áfengis enda hafði
tollur skipsins ekki verið
hreyfður.
í fyrrnefndri káetu sváfu
fjórir menn, John Morley,
Harry Southen, Ronald Atthey
og Thomas Wade. Sá síðast-
nefndi vaknaði fyrstur undir
morgun við það að káetan var
full af reyk. Vakti hann
Atthey þegar í stað og komust
þeir upp á þilfar.
í samtali við Mbl. í gær
sagði Atthey að Wade hefði þá
þegar gert tilraun til þess að
bjarga félögum þeirra tveim-
ur, sem eftir voru í káetunni.
Náði hann Southen, sem þá
hafði brennzt töluvert á hönd-
um og í andliti. Taldi Atthey
ekkert vafamál að Wade hefði
bjargað lífi Southens. „Hann
hefði ekki enzt í mínútu leng-
uir“, sagði hann.
Ekki tókst Wade að bjarga
Morley, þar sem reykurinn
var orðinn svo mikill að ekki
varð inn komist, og mun Mor-
ley hafa kafnað í káetunni.
Hann var aðeins 23 ára gamall,
kvæntur og átti þrjú börn.
Togaramenn tóku þá það til
bragðs að loka káetunni og
sigla hraðbyri til Þingeyrar.
Slökkviliðinu þar tókst að
ráða niðurlögum eldsins og ná
Morley, sem þá var látinn.
Hinir þrír voru fluttir í
sjúkrahúsið á Þingeyri. Er
Southern töluvert brunninn,
Atthey með kolsýringseitrun
og Wade sömuleiðis, auk þess
sem hann fékk lungnabólgu
upp úr eitruninni.
Togarinn sigldi til Englands
í fyrradag, þar sem gert verð-
ur við skemmdirnar á káet-
unni, sem munu vera talsverð-
•ar.
Ms. SÓLRÚN var aflahæst
afffaranótt þriðja í jólum, fékk
2.500 tunnur af síld. Hér er
hún aff koma inn í Reykja-
víkurhöfn á tíunda tímanum
í gærmorgun. (Ljósm. Sv. Þ.).
Sítdin :
Gott útlit í
gærkvöldi
FYRSTU síldveiðibátarnir fóru
að kasta um miðjan dag í gær.
T.d. var Víðir II. lagður af stað
kl. 17 með 1800 tunnur, en hann
hafði komið að með 1700 tunnur
um morguninn. Þá var Haraldur
búinn að fá 1600 mál. Kl. að
verða 23 höfðu um 6 bátar til-
kynnt sig til Reykjavíkur með
500 til 1400 tunnur. Veiðiútlit
var þá gott, þó að ekki væri bú-
izt við, að það yrði eins fjörugt
og nóttina áður.
ÞÚFUM, N-ísf., 27. des.
Hér hefur verið hið bezta jóla-
veður undanfarna daga. Snjó-
laust er að kalla. Vegir eru greið-
færir alls staðar í byggð og sam-
göngur allar í bezta lagi.
— P.P
Tvær fjölskyldur
misstu húsnæðið
/ eldsvoða á ísafirði
AKRANESI, 27. des. Landburð
ur af síld, meiri en dæmi eru
til áður á einum degi, barst háng
að núna á þriðja jóladag af
fjórtán bátum, alis 16.600 tunn-
ur. Síldina veiddu þeir rúmlega
30 sjómílur VNV héðan. Veður
var stillt, og síldin mun hafa
haldið sig ofarlega í sjónum. Óð
hún meira að segja ofan sjávar
um tíma í gærkvöldi. Einn
fimmti hiluta aflans fer í vdnnslu,
hitt í bræðslu. Aflahæstur var
Haraldur með 2.300 tunnur, þá
Náttfari og Skírnir með 1600
hvor, Sigrún 1500, Heimaskagi
1200, Sigurvon 1100, Reynir og
Höfrungur I. hvor með 1000,
Fiskaskagi, Sigurfari, Skipaskaigi’
Sveinn Guðmundsson og Sæfari
900 hver og Ver 800 tunnur. í
aflanum flýtur kræða, en megn-
ið er allstærra. — Oddiuir.
ÍSAFIRÐI 27. des.
UM klukkan hálf þrjú á jóla-
dag kom upp eldur í húsinu
Vailarborg hér í bæ, sem er
fj ölbýlishús með sex íbúðum,
Andaðist
í fanga-
klefa
SÁ atburffur varff austur á
Seyffisfirffi afffaranótt þriðja
í jólum, aff ungur maður, sem
var í fangageymslunni þar um
nóttina, andaffist. Taliff er, aff
hann hafi kafnaff í reyk, þeg-
ar eldur kom upp í dýnu
hans.
Morgunblaffiff átti tal viff
Erlend Björnsson sýslumann
og bæjarfógeta á Seyffisfirffi í
gær. Kvað hann rannsókn
málsins ekki lokiff, enda hefði
krufning ekki veriff gerff á
líkinu enn.
eign bæjarins. Er húsið tvílyft,
úr steini en innréttingar úr
timbri. I eldinum stórskemmid-
ust tvær íbúðir og varð fólk að
flytja úr þeim til ættirugja og
vina í bænum.
Kvi'knað mun hafa í út frá
kolaeldavél á efri hæðinni, þar
sem Torfi Bjarnason býr áisamt
fjölskyldu sinni. Mun Torfi hafa
Framh. á bls. 23.
Metafli í fyrrinótt:
Um 90000 fimnur
METAFLI var hjá sfldveiði-
bátunum hér sunnanlands og
vestan aðfaranótt þriðja í
jólum. Kl. átta í gærmorgun
höfðu 73 bátar tilkynnt sam-
tals 86.400 tunnur, en um miðj
an dag í gær voru enn að tín
ast inn skip, sem ekki munu
hafa verið búin að tilkynna
aflabrögð. Mun heildaraflinn
um nóttina ogmorguninnhafa
orðið um 90.000 t. Seinni
hluta dags í gær voru fyrstu
skipin þegar fari að kasta.
Síldin fékkst um 30 sjómíl-
ur VNV af .Skaga.
Afl-i skipanna var frá 2.500
tunnum og niður í 150 tunnur.
Þessi skip fengu yfir 2.000 tunn-
ur: Sólrún 2.500, Hafrún 2.400,
Steingrímur trölli 2.300 og Sigur
karfi og Helga 2.200 tunnur
hvort.
HAFNARFIRÐI. — Fyrrinótt
var sú lamgbezta hjá síldarbát-
unium hingað til og síldin bæði
stór og feit. Hingað komu í gær
morgun 12 til 14 bátar og flestir
þeirra með fullfermi eða aillt
að því. Eldborgin og Auðunn
höfðu mestan afla, um 1900 mál
hvor. Bátarnir fengu síldina um
fjögurra táma héðan í NV að N.
Hún var í þykkum torfum frá
2 föðmurn og allt upp í 60. —
Veður var ágætt og fóru bát-
arnir jafnóðum út þegar þeir
höfðu verið losaðir. — Síldin
er pöbkuð og söltuð, og einnig
verður Júní látinn sigla með
síld. — G.E.
REYKJAVÍK. Til Reykjavíkur
bárust móilii 25 og 30 þús. mál.
11