Morgunblaðið - 07.02.1963, Síða 22
22
‘Fimmtudagur 7. febrúar 1963
M OR GV N BL AÐ1Ð
ridge
ÚRSLIT f 7. umferð i sveita-
keppni Bridgefélagi Reykjavík-
ur urðu þessi:
Sveit Einars vann sveit st.
Eg.grúnar................ 6-0
— Halls vann sveit Elínar 6-0
— Renedikts vann sv. Ólafs 6-0
— Þóris vann sv. Hjálmars 6-0
— Úlfs vann sveit Jóns 6-0
Staðan er þá þessi:
1. Sveit Einars Þorfinnss. 34 st.
2. — Þóris Sigurðssonar 33 —
3. — Halls Símpnars. 3il —
4. — Ólafs Þorsteinss. 2'6 —
5. — Benedikts Jóhannss. 26 —
6. — Úlfs Ámasonar 16 —
7. —Eggrúnar Árnad. 16 —
8. — Elínar Jónsdóttur 12 —
9. — Jóns Hjaltasonar 11 —
10. — Hjálmars Hjálmarss. 3 —
8. umferð verður spiluð í
kvöld.
Bikarkeppni Bridge-samibands
íslands hefst eftir nokkrar vik-
ur og skulu þátttökutilkynningar
hafa borizt fyrir 1S. febrúar n.k.
18. febrúar n.k. hefst hjá
Bridgefélagi Reykjaví'kur para-
keppni og í lok febrúar hefst
flökkakeppni Reykjaviíkurmóts-
ins og verða leiknar 7 umferðir.
Þátttökutilkynningar skulu ber-
ast til Brands Brynjólfssonar,
sími 17324 eða til Stefáns Guð-
jóhnsen, sími 10811.
Norskur
námsstyrkur
NORSK stjórnarvöld hafa ákveð
ið að veita íslenzkum stúdent
styrk til háskólanáms í Noregi
næsta háskólaár, þ.e. tímabilið
1. september 1963 — 1. júní 1964.
Styrkurinn nemur 700 norskum
krónum á mánuði, og er ætlazt
til, að sú fjárhæð nægi fyrir
fæði og húsnæði, en auk þess
greiðast 400 norskar krónur
vegna bókakaupa o.fl.
Umsækjendur skulu hafa
stundað nám a.m.k. tvö ár við
Háskóla íslands eða annan há-
skóla utan Noregs. Þá ganga þeir
fyrir um styrkveitingu, sem ætla
að leggja stund á námsgreinar,
er einkum varða Noreg, svo sem
norska tungu, bókmenntir, rétt-
arfar, sögu Noregs, norska þjóð-
menningar- og þjóðminjafræði,
dýra-, grasa- og jarðfræði Nor-
egs, kynna sér norskt atvinnu-
líf o.s.frv.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þennan, sendi
menntamálaráðuneytinu um-
sókn fyrir 20. marz n.k., ásamt
afritum prófskírteina og með-
mælum. Umsóknareyðublöð fást
í ráðuneytinu og hjá sendiráðum
íslands erlendis.
(Frá Menntamálaráðuneytinu)
Sundmót
KR.
verður haldið í Sundhöll Reykja
víkur, miðvikudaginn 27. febrú-
ar n.k. kl. 8,30.
Keppt verður i þessum grein-
um.
100 m bringusund karla. Sindra-
bikar.
200 m skriðsundi karla.
50 m baksundi karla.
50 m flugsundi karla.
100 m skriðstund kvenna. Flug-
freyjubikar.
100 m bringusundi kvenna.
50 m bringus-undi telpna.
50 m bringusund drengja.
50 m bringusund sveina.
3x50 m þrísund karla.
Þátttaka skal tilkynnt Jóni
Otta Jónssyni, Vesturgötu 36A,
simi 14061 í síðasta lagi 20. febr.
n.k.
lillWS
rgar nýjungar á Islandsmoti
í köríuknattleik
Hefst á laugardag
ÍSLANDSMÓT í körfuknattleik
hefst næstkomandi laugardag, 9.
febrúar, að Hálogalandi. Að þessu
sinni taka þátt 30 lið í 7 flokk-
um frá 8 félögum. Má gera ráð
fyrir að þátttakendur verði á
fjórða hundrað. Leiknar verða
tvær umferðir í meistaraflokki
en mótið stendur til 9. apríL
Að þessu sinni verður tekinn
upp sami háttur og tíðkast í hand
knattleik að hafa ekki sama leik
kvöld leiki yngri og eldri flokka.
Er þetta gert til að reyna að
skapa meiri áhuga áhorfenda.
Ennfremur verður tekin upp tvö-
föld umferð í meistaraflokki
karla, og er það von mótsstjóm-
ar að keppnin verði þannig enn
meira spennandi en ella, en þess
má geta að meistaraflokkur ÍR
tapaði í vetur fyrsta leik sínum
um árabil.
Tvö félög, sem ekki hafa áður
tekið þátt í íslandsmóti, keppa
nú í fyrsta flokki karla, en það
era ungmennafélagið Skalla-
grímur í Borgarnesi og Héraðs-
sambandið Skarphéðinn í Ölfusi.
Skallagrímur sendir ennfremur
lið í meistaraflokk kvenna. Þess
má geta að um nokkurra ára
skeið hefur verið háð árleg
bikarkeppni í körfuknattleik
milli Borgarness og Stykkis-
hólms.
Hins vegar hættir nú eitt félag
þátttöku í mótinu, en það eru
fyrstu íslandsmeistararnir,
íþróttafélag Keflavíkurflugvall-
ar. Leikmenn þess félags eru nú
svo ungir að það á ekki löglégt
lið í meistaraflokki.
förnum áram orðið vör við, að
áhorfendur kvörtuðu undan, að
reglur körfuknattleiksins væru
odE flóknar, og þeir gætu ekki
fylgzt með leiknum. Svíar hafa
orðið varir við þennan sama
vanda og brugðu þannig við, að
þeir gáfu út mjög stytta útgáfu
á leikreglunum í sambandi við
Polar Cup keppnina núna í haust.
KKf hefur nú látið þýða þennan
útdrátt úr leikreglunum og mun
hann fylgja leikskránni að mót-
inu.
Dómaravandamálið leyst?
Um tvær síðustu helgar hefur
staðið yfir dómaranámskeið, og
hefur Guðjón Magnússon úr Ár-
manni haft með höndum kennsl-
una. 10 piltar og ein stúlka hafa
Valbjörn
setur
Islandsmet
Á INNANFÉLAGSMÓTI
KR í gærkveldi setti Val-
björn Þorláksson nýtt ts-
landsmet í stangarstökki
innanhúss. Stökk hann 4,33
m., en fyrra metið, sem
hann átti sjálfur, var 4,30
m. íslandsmet Valbjarnar
utanhúss er 4,50 m.
nú þegar lokið prófi en 5 munu
reyna nú einhvern næstu daga.
Síðan er ætlunin að gangast
fyrir stofnun dómarafélags með
þennan hóp sem uppistöðu. Er þá
gert ráð fyrir að dómarafélagið
sjái um útvegun dómara að hverj
um einstökum leik, en oft hefur
það viljað ganga næsta brösugt
á undanförnum árum.
Nú þegar samstarf KKÍ við út-
lönd er að aukast, kemur í ljós
hver þörf sambandinu er á að
hafa á að skipa dómara með al-
þjóðaréttindi. Má geta þess að
í utanför landsliðsins í haust var
ætlazt til þess að íslendingar
legðu til einn dómara í Polar
Cup keppnina og auk þess varð
að kosta annan dómarann í lands
leiknum við Skota frá London.
Keppnisskírteini og aðrar
nýjungar
FIBA, alþjóðakörfuknattleiks-
sambandið gefur út keppnisskír-
teini, sem heimilar þátttöku í
milliríkjakeppnum, og hafa
körfuknattleikssambönd víða um
land tekið upp þennan sama sið.
Við þetta vinnst aðallega þrennt:
1. greitt er ákveðið gjald fyrir
skírteinið, og auðveldar það fjár-
öflun sambandanna, 2. Mun auð-
veldara verður að fylgjast með
hversu margir virkir þátttakend-
ur stunda íþróttina og 3. ísland
hefur hér enn meira not af þessu,
þar eð ríkjandi er lagaákvæði
innan ÍSÍ, sem skyldar keppend'-
ur til læknisskoðunar, en lítið
hefur verið framfylgt.
KKÍ hefur nú tekið upp þetta
skírteini og verður engum veitt
leyfi til keppni nema hann sé
handhafi skírteinis með undir-
ritun íþróttalæknis.
Breyting hefur verið á aldurs-
takmarki milli 1. og 2. flokks og
verður það framvegis miðað við
Fer
unglinga-
landsliðið
til Frakk-
lands ?
Á BLAÐAMANNAFUNDI
vegna íslandsmótsins í körfu-
knattleik í gær, skýrði Bogi
Þorsteinsson frá því, er gerzt
hefur í sambandi við þátttöku
íslendinga í Evrópukeppni
unglinga. Ekkert landanna
sem áætluð voru í riðli með
fslendingum treysti sér til að
sjá um framkvæmd keppninn
ar, en hins vegar hafa bæði
Frakkland og Spánn boðizt til
að halda hana. Ekki kom til
mála að senda lið til Spánar,
en Bogi hafði samband við
forseta FIBA og tjáði honum,
að íslenzka liðið skyldi koma 4
til Parísar, ef Frakkar vildu
sjá um ferðir þeirra þaðan
á mótsstað og aftur til París-
ar.
Bogi fékk loforð um að ef
framkvæmdastjórn Évrópu-
keppninnar, sem átti að koma
saman um mánaðamótin fe-
brúar — marz, gæfi neikvætt
svar yrði honum samstundis
sent símskeyti um svarið.
Skeytið hefur ekki komið,
en hinsvegar ekkert bréf til
staðfestingar heldur, og því
væru nú milflir möguleikar á
að unglingalandsliðið færi til
keppninnar í Frakklandi. Sá
galli er þá reyndar á gjöf
Njarðar, að liðið lendir í erfið-
ari riðli, en upphaflega var
ráð fyrir gert.
átján ára aldur í stað nítján áður.
Ennfremur verður tilfærsla milli
flokka miðuð við 1. september
í stað áramóta, en það hefur þótt
bagalegt að leikmenn gengu
milli flokka á miðju leikári. Mun
í ráði hjá handknattleiksmönn-
um að taka upp sama hátt.
KR—ÍS — KFR—-ÁRMANN
Fyrstu leikir íslandsmótsinS
verða á laugardagskvöld að Há-
logalandi og leikur þá KR gegn
ÍS og KFR gegn Ármanni. Dóm-
arar í fyrri leiknum verða Guð-
jón Magnússon og Björn Arnórs-
son, en í seinni leiknum Jón
Otti Ólafsson og Hólmsteinn
Sigurðsson.
Til hjálpar áhugadóihurum
á áhorfendapöllunum
Mótsstjórnin hefur á undan-
tslenzka landsliðið í hand-
knattleik, sem nú er á förum
utan til keppni við Spánverja
og Frakka. Fremri röð, talið
frá vinstri: Örn Hallsteinsson,
FH, Hjalti Einarsson, FH,
Karl Benediktsson, Fram,
fyrirliði, Birgir Björnsson,
FH, fyrirliði, Karl M. Jóns-
son, Haukum og Karl Jó-
hannsson, KR. — Aftari röð:
Ragnar Jónsson, FH, Kristján
Stefánsson, FH, Einar Sigurðs
son, FH, Ingólfur Óskarsson,
Fram, Pétur Antonsson, FH,
Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR,
Rósmundur Jónsson, Víking
og Matthías Ásgeirsson, ÍR. —
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)