Morgunblaðið - 20.03.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.03.1963, Blaðsíða 17
Miðvíkudagur 20. marz 1963 MORCl’TSBL 4ÐÍÐ 17 Verkkúgun? Þrettánda þessa mánaðar birti dagblaðið Tíminn grein á for- 6Íðu undir yfirskriftinni: „Eru húseigendur beittir verkkúgun?" Grein þessi fjallar um málefni sem varðar mjög iðnmeistara og viðskiptamenn þeirra og því nauðsynlegt að gera almenningi grein fyrir þeim á gleggri hátt, en gert er í grein þessari, enda munu réttar upplýsingar vera hlutaðeigendum gagnlegri, en fljótfærnislegar ályktanir og til- gátur. Það er almennt viðurkennt af þeim, sem kunnugir eru verkleg- um framkvæmdum, að mikið ó- hagræði er að því að skipta um menn í miðju verki og má benda á mörg dæmi því til sönnunar, að mannaskipti hafa valdið verk- kaupanum verulegum fjárútlát- um. Þegar reyndir aðilar bjóða út verk, leggja þeir mikla á- herzlu á, að verktaki geri sarnn- ing um fullunnið verk, en fari ekki frá því hálfunnu. Jafnvel í þeim tilfellum, sem ekki hefur verið hægt vegna ó- nógs undirbúnings, að bjóða út nema fyrsta áfanga verks, hefur raunin oftast orðið sú, að heppi- legra hefur þótt að semja við eama verktakann um áframhald- ið, þótt hagstætt tilboð stæði til boða við endurútboð. Svo mikil hefur áhættan þótt vera við verk takaskiptin. Jafnframt má benda á, að iðn- meistarar eru ábyrgir fyrir verk- um sínum og sinna manna, en vafasamt að slíkri ábyrgð sé hægt að koma við, ef skipt er um meistara í miðju verki. Að því er varðar hagsmuni iðn meistarans er það augljóst, að geti hann ekki gert ráð fyrir að ljúka þeim verkum, er hann hef- ur vinnu við, skapar slík óvissa óþolandi öryggisleysi og getur valdið vandræðum í sambandi við mannaráðningar og útvegun efnivara til framkvæmdanna. En þetta tvennt eru forsendur þess að hægt sé að framkvæma verk nokkurn veginn snurðulaust. Af þeim ástæðum, sem hér hafa verið tilgreindar, auk ann- arra smærri atriða, hafa samtök iðnmeistara beitt sér fyrir því, að félagsmenn færu ekki inn í verk hvers annars, nema sérstakar á- stæður væru fyrir hendi, svo sem vanræksla á framkvæmd eða ósætti á milli verkkaupa og verk taka. í þessu efni verða iðn- meistararnir að treysta á rétt- vísi hvers annars og sín eigin samtök, en tilgangslaust og alveg út í hött, að þeim gagni að kæra slíkt ti!i dómstólanna. Aftur á móti getur verkkaupinn snúið sér til dómstólanna með skaðabóta- kröfur, telji hann sig órétti beitt- an eða verða fyrir tjóni af völd- um meistarans eða samtakanna. Á undanförnum árum hefur það orðið algengara, að óánægðir verkkaupar hafa snúið sér til stjórnar viðkomandi meistarafé- lags vegna ágreinings við meist- ara og hafa slíkar málaleitanir í flestum tilfellum, leitt til þeirrar lausnar, sem báðir aðilar hafa getað sætt sig við. Ég hef ekki orðið þess var, að verkkaupar hafi talið rétt sinn fyrir borð borinn í þeim við- skiptum. í þeim tilfellum, sem meisturum hefur haldizt uppi að beita yfirgangi og órétti, munu verkkauparnir ekki hafa haft vit á að leita aðstoðar samtakanna og er þá engum um að kenna, þótt illa fari, nema þeim sjálfum, Að sjálfsögðu hljóta iðnmeist- arar að vera misjafnir, sem aðrir menn og hafa mismunandi rétt- sýni til að bera, en verkkaupar ættu að hafa það hugfast, að hlutverk samtaka iðnmeistara er tvíþætt, annars vegar að gæta hagsmuna félagsmanna sinna, en hins vegar og engu síður að gæta þess, að félagsmennirnir gangi ekki á rétt þeirra, sem þjónust- una kaupa. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir vinnuafli verið mun meiri en framboðið og af þeim sökum hefur skapazt það ástand, að verkkaupar hafa orðið að bíða eftir verktökum og jafn- vel sætt sig við ýmsan órétt og yfirgang af hræðslu við að drátt- ur yrði á framkvæmdum. Þegar slíkt ástand hefur staðið lengi, má búast við, að ýmislegt mis- jafnt viðgangist, á sama hátt og ámóta vandræði geta skapazt gagnvart verktökunum, þegar minnkar um verklegar fram- kvæmdir. Líklegasta ráðið til þess að ráða bót á vandamálum þeim, sem hér hefur verið minnzt á, er að samstarf takist með sambökum iönmeistara og þeirra aðila, sem tekið hafa að sér það hlutverk að gæta hagsmuna verk kaupa. Ekki er að efa að samtök iðn- meistara myndu taka slíku sam- starfi fegins hendi og svo mikið er víst, að kvartanir til slíkra að- ila myndu vera árangursríkari, en lítt rökstuddar upphrópanir í dagblöðunum. Árni Brynjólfsson. V erzlunar starf Maður óskast til afgreiðslustarfa í verzlun vora. Slippfélagið í Reykjavík hf. Dömur - saumaskapur Dömukjólar saumaðir eftir máli. Einnig tekið í sníðingu. SAUMASTOFAN Sólvallagötu 45, Sími 17055. AUSTLRRISKU SEMPERIT hjólbarðarnir eru komnir aftur. Verðið er ótrúlega lágt. 640x13 6 strigal. nylon. 670x15 6 strigal. nylon 560x13 4 — — 710x15 6 — — 590x13 4 — — 760x15 6 — — 590/610x14 6 — — 600x16 6 — — 750x14 4 — — 650x16 6 — — 560x15 4 — — 750x20 10 — — 640x15 6 — 825x20 12 — — Einkaumboðsmenn: G. HELGASON & IVIELSTED HT Hafnarstræti 19, Rauðarárstíg 1. Sími 1-16-44. Útsölustaðir í Reykjavík: HJÓLBARÐAVIIMIMUSTOFA OTTA SÆIVIUIMDSSOIMAR, Skipholti 5. NÝKOMNIR enskir vor og sumorkjólor Fyrir fermingarstúlkur kjólar, hvítir hanzkar, blúndu vasaklútar. 3-5 herb. íbúð óskast fyrir hjón (sem bæði vinna úti) með 13 ára bam. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í síma 24595 eftir kl. 7 á kvöldin. Hólel Veitingur Óska eftir duglegum, reglusömum manni, sem gæti lagt fram fé eða útvegað, til veitingareksturs, sem gæti verið í bænum og utanbæjar. Þagmælska. — Tilb. merkt: „Hótel — 6529“ sendist afgr. Mbl. Ceymslupláss Óska að taka 30—40 ferm. geymslupláss á leigu, fyrir húsgögn. Þurr og góður bíl- skúr kemur til greina. Leigutími verði til 1. október í haust. — Uppl. í síma 13410. Tveir til þrír laghentir menn helzt vanir járnsmíði óskast strax. — Upplýsingar í símum 33767 og 37467 milli kl. 7 og 8 á kvöldin. Framtíðaratvinna <• Kaupmannasamtök íslands óska eftir að ráða til sín starfsmann, sem auk almennra skrifstofustarfa getur tekið að sér ritstjórn „Verzlunartíðindanna". — Skriflegar um- sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til skrifstofunnar fyrir 25. þessa mánaðar. Kaupmannasamtök íslands. Klapparstíg 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.