Morgunblaðið - 20.03.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.03.1963, Blaðsíða 20
20 MORCVNBL4Ð19 Miðvikudagur 20. marz 1963 — Þetta málverk myndi manninum mínum þykja fallegt. Hann elskar hrossakjöt. f>etta var ekki nema satt, en jþað eina, sem Hesba sagði Laurie var þetta: — Eftir þetta leið mér ágætlega. Hr. Verecker útvegaði mér atvinnu hjá frú Söru Army- tage. Já, það er sú eina sanna Sara, með framhaldssöguna í „Dunkerley, sem hlýtur að hafa kostað föður yðar dálaglegan skilding. Fyrst gerði ég allt, sem fyrir kom á heimilinu, en Sara gamla kunni vel við mig, og brátt varð ég ritari og félags- kona hennar. Það var skemmti- legt líf. Ég hitti allt mögulegt fólk og hafði nógan tíma til að laera. Eg rifjaði svo upp allt það gamla, sem ég hafði lært. Franskan og þýzkan komu fljótt aftur hjá mér, og það kom sér vel fyrir Söru, þegar við vorum á ferðalagi. Við flæktumst um allt meginlandið helmingin af hverju ári. Ég sparaði saman þegar ég var nítján ára fór ég peninga, eins og maurapúki, og frá henni og til Girton. Hún tók því ágætlega enda þótt hún yrði vond. Ef þér þekktuð Söru gömlu, munduð þér skilja, hvað ég á við. — Og hvað lögðuð þér aðal- lega stund á í Girton? — Grísku og latínu. Hún hoppaði upp úr bátnum um leið Og hann snerti bryggj- una við leiðarlok, og tók til fót- anna. Laurie fór hægt á eftir. Hebreska, gríska og latína! Franska og þýzka! Þetta var heilt ævintýri hjá tuttugu og tveggja ára gamalli stúlku. Jæja, guði sé lof og dýrð! hugsaði hann. Hann hafði aldrei vitað, að svona konur væru til í heimin- um. Sir Daniel kynni sannarlega að velja þær! ANNAH KAFLI 1. Sir Daniel Dunkerley sást sjaldan einn. Það var ekki nema eðlilegt, að maður, sem hafði með höndum svo margbrotinn atvinnurekstur, gæti hvenær sem var fengið snögga hug- dettu, en það kostaði aftur, að eihhver væri við höndina til þess að hlaupa, ef svo mætti segja, á hestbak og þeysa á sveittum hestinum frá Aix til Ghent. James Carmichael, taugaveikl- aður og afbrýðisamur eins og gömul piparkerling, sem fær að snúast krngum fræga leikkonu, var númer eitt í fylgdarliði hans, og hver sem var gat á ýmsum tímum og undir ýmsum kring- umstæðum verið númer tvö. Þeg ar þeim húsbónda hans kom vel saman, var hann, í munni Sir Daniels, Mike, en ef sir Daniel langaði til — og það var oft — að ná sér niðri á honum, var hann vanur að kalla á Isambard Phyfe — ritarans og kalla hann Izzy. Þetta þýddi það, að hr. Phyfe dansaði á þessum mjóu landamærum milli þess að vera númer eitt og númer tvö, en slík útskýring gat nú vel verið mis- skilningur. Sir Daniel gat vel verið að kalla hann Izzy, bara til að iáta James Carmichael kipp- ast við og minna hann á stöðu hans. Og svo var annað. Sir Daniel, sem var manna fróðast- ur um allt, sem var að vita um hvern, sem var í þjónustu hans, vissi, að Isambard Pfyfe hafði bara verið Sam Fife í fátækra- hverfisgötunni, sem hann ólst upp i. Hann hafði gaman af metorðagirnd þessa unga Lund- únabúa, sem hafði sótt að öllum bréfaskólum og öðrum mennta- stofnunum, eftir hverjum þeim ókeypis lærdómsmola, sem á boðstólum var og gjöfulir menn voru að strá fyrir spörfugla fá- tækrahverfanna. Já, honum var skemmt við tilihugsunina um, að Izzy Thyfe, hafði á þessu snapi sínu safnað sér meiri fróðleik en Laurie hinn ungi hafði náð sér í Beckwith og Oxford. Þeir voru álíka gamlir. Laurie virt- ist snúa sér beint til Phyfe, ef hann var í vafa um eitthvað. Ef „upprennandi menn“ og „upp rennandi konur“ í æðstu merk- ingu orðsins voru aðal-áhugamál sir Daniels, þá gat hann samt notað Phyfe áhugamálum sínum til fremdar. En það, sem Phyfe hefði viljað brjóta af honum, var ekki hornin heldur vissir 'broddar hörku og illgirni. Það varð að siða hann ofurlítið til. James Carmiohael var meistari frá sánkti Andrésar Háskólan- um, og stóra, hátíðlega sköllótta höfuðið á honum, ásamt gler- augum, stóð þarna til afnota, eins og réttur framborinn á borð. En að festa gaffalinn sinn í Is- ambard Phyfe fannst sir Daniel mundi verða álíka verk og að éta baunir úr kvikasilfri með gaffli. Honum leið betur í návist Phyfes, enda þótt hann vissi sig öruggari í návist Carmiohaels. 2. Eftir hádegisverð, daginn áður en Laurie fór út á bátnum með Hesbu, sagði sir Daniel: Izzy, við verðum að leggja af stað eftir hálftíma. Ungfrú Jekyl’l átti ekki að koma fyrr en seinna um daginn og það var alveg óhugs- andi, að sir Daniel hefði ekki annað að gera þangað til en bíða eftir henni. Svipurinn á Carmichael varð likastur og á uglu, sem hefur orðið fyrir óvæntum ástvina- missi. Hann flýtti sér að flytja sig inn í her-bengin, sem voru ætluð þeim af fylgdarliði sir Daniels, sem fylgdu honum til Dickons. Þarna voru tvö svefn- herbergi og bað og stór og þæ’gi- leg setustofa, sem var köl'luð skrifstofa. Hr. Carmichael gat því eftir vild farið í bað eða í rúmið eða sett sig niður og gert ekki neitt, eða þá hann gat verið síðara hluta dagsins við allt þetta þrennt. Sir Daniel var sama, hvað hann tók sér fyrir hendur. Hann ætlaði að fara að finna Theódór Chrystal, sem hafði verið aðstoðarprestur í Manohester, þegar fyrsta blað sir Daniels, „Blákaldar stað- reyndir" var stofnað þar og því minnti Chrystal hann jafnan á baráttuárin, þegar hann var ung ur. Annars var nú sir Daniel enn ekki nema fjörutíu cwg tveggja ára. Og þegar hann var í þessu skapinu, var Phyfe betri félagi en Charmichael. — Izzy, sagði sir Daniel, þegar vagninn ók burt frá húsinu, — þegar ég var ungur, var pabbi gamli vanur að segja: „Við get- um orðið það, sem við viljum verða“. — Alveg rétt hjá honum, sam- þykkti Izzy með ákafa. — Kolvitlaust, leiðrétti sir Daniel hann, rólega. — Við get- um orðið það, sem við höfum í okkur að verðá. Flestir menn verða ekki einu sinni það, og þá vantar býsna mikið upp á, að þeir verði það, sem þá langar til að verða. Það eina, sem við getum gert er að keppa að því að verða það, sem okkur langar til, og á þann hátt verðum við það, sem við höifum í okkur að verða. Fylgdarlið sir Daniels var vant þessum fyrirlestrum hans, og hr. Phyfe kinkaði kolli til samþykk- is þessari speki, sem honum hafði verið látin í té. — Við erum núna á leiðinni til manns, hélt sir Daniel áfram, — sem hefur vitað flestum mönn um betur, hvað hann vildi verða og keppt flestum mönnum meir að því að ná settu marki. Þar á ég við hr. Chrystal, skólastjór- ann í Beckwith. Það eru rétt tíu ár síðan „Blákaldar staðreyndir" voru stofnaðar í Manchester. Það vildi svo til, að strax fyrsta daginn þar, hitti ég hr. Chrystal. Hann var þá aðstoðarprestur í Levenshulme. Á þeim tíu árum, sem síðan eru liðin, hefur hon- um tekizt að giftast konu af aðalsætt, sem átti biskup fyrir bróður, grafa hana, erfa allveru- legar eignir eftir hana og breyta skóla fyrir magaveika prestlinga í allmerkan menntaskóla. Þetta er ekki ólaglega af sér vikið. Slllltvarpiö Miðvikudagur 20. marz 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Við vinnuna": Tónleikaf. 14.40 „Við, sem heima sitjum": Sig- urlaug Bjarnadóttir les skáld- söguna „Gesti“ eftir Kristinu Sigfúsdóttur (8). 15.00 Síðdegisútvarp. 17.40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Bond ola kasa“ eftir Þorstein Er- lingsson; IV. (Helgi Hjörvar). 18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing- fréttir. — 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Ólafs saga helga; XX. (Óskar Halldórs- son cand. mag.). b) Haraldur Guðnason bóka- vörður flytur síðari írásögu sína af náttúruhamförum í Landsveit: Jarðskjálftarnir 1896. 21.05 Föstumessa í útvarpssal. — Prestur: Magnús Runólfsson. Organleikari: Jón G. Þórar- insson. Stúlkur úr Miðbæjar- skólanum syngja. 21.45 íslenzkt mál (Dr. Jakob Bene diktsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar (33). 22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið" eftir Fred Hoyle; IX. (Örn- ólfur Thorlacius). 22.40 Næturhljómleikar: a) Concerto grosso nr. 7 1 B-dúr op. 6 eftir Handel. b) Sellókonsert í d-moll eftir Carl Philipp Emanuel Bach. 23.20 Dagskrárlok. Fimmtudagur 21. marz 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Á frívaktinni": sjómanna- þáttur (Sigríður Hagalín). 14.40 „Við, sem heima sitjum" (Sig- ríður Thorlacius). 15.00 Síðdegisútvarp. 17.40 Framburðarkennsla 1 frönsku og þýzku. 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna Margrét Gunnarsdóttir og Val borg Böðvarsdóttir). 18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing- fréttir. — 19.00 Tilkynningar, 19.30 Fréttir. 20.00 Af vettvangi dómsmálanna (Hákon Guðmundsson hæsta- réttarritari). 20.20 Tónleikar: Fantasía I c-dúr op. 131 eftir Schumann-Kreisl er. 20.35 Erindi: Skólakerfi á atómöld (Magni Guðmundsson). 21.00 Tónleikar Sinfóníuhljómsv. ísl, í Háskólabíói; fyrri hluti, Stj.: William Strickland. 21.45 Erindi: íslenzka sauðkindin. íslenzka ullin eftir Halldóru Bjarnadóttur (Óskar Ingi- marsson flytur). 22.00 Fréttir og veðurfregnir . 22.10 Passíusálmar (34). 22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið** eftir Fred Hoyle; X. (Örn- ólfur Thorlacius). 22.40 Djassþáttur (Jón Múli Árna- son). .23.10 Dagskrárlok. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEH © © © © VORIÐ ER í NÁIVID Eruð þér farinn að hugsa til sumarferða? Er það þá ekki einmitt VOLKSWAGEN, sem leysir vandann? PANTIÐ TÍMANLEGA VOLKSWAGEN er ódýr í innkaupi og rekstrL Verð frá kr: 121.525.— © VERIÐ IIAGSYN VinsæJdir VOLKSWAGEN hér á landi sanna ótvírætt kosti hans við okkar stað hætti. — VOLKSWAGEN er ekkert tízku fyrirbæri það sannar bezt hið háa endur- söluverð hans. VELJIÐ VOLKSWAGEN. HEILDVERZLUNIN HEKLA HF Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275. KALLI KUREKI * TeiknarÉ Fred Harman Bykkju-Bjarni er farinn að finna fyrir hitanum í eyðimörkinni. — Ekkert vatn og enginn hestur. Ég verð að hafa heppnina með mér, ef ég á að bjargast út úr þessu. Þarna indíána- — Heppinn! hestur. — Þetta er hesturinn indíána- stráksins, sem var með kúrekanum. — Og það hefur verið þessi kúreki, sem hræddi mig í gærkvöldi. Nú er bezt að snarast á bak, fara til baka og gera alvörudraug úr þessum þorpara. Ég læt engann gera mig að fífli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.