Morgunblaðið - 20.03.1963, Síða 23
Miðvikudagur 20. marz 1963
MORCUNBL4ÐIÐ
23
Fjórir brunar hafa
orðið í Gullfossi
BRUNINN í Gullfossi I þurr-
kví Burmeister og Wain sL
mánudag og er sá fjórði, sem
hefur orðið í skipinu. Þrívegis
kom upp eldur í því árið 1949
á rneðan það var í smíðum.
í tvö fyrstu skiptin varð tjón
smávægilegt, en í því þriðja
fórust 4 menn, hinn 21. des-
ember 1949. í öll skiptin kvikn
aði í, þegar verið var að vinna
við korkeinangrun í lesL
Þegar flett er upp í Morg-
Iunblaðinu hinn 22. desember
1949 má sjá eftirfárandi frétt
á forsíðu frá Páli Jónssyni.
„Hryllilegur eldsvoði í
„Gullfossi" — Tveir menn fór
ust, en 4 brenndust mjög mik-
ið. — Eldurinn kom upp í tjöru
í lest skipsins.
Einkaskeyti til Morgunbl.
KAUPMANNAHÖFN, 21. des.
— Mikill eldsvoði varð í Gull-
fossi hinum nýja í skipasmíða-
stöð Búrmeister & Wain í
morgun. Fórust tveir danskir
verkamenn í eldinum en fjór-
ir fluttir mikið brenndir og
meðvitundarlausir í sjúkra-
hús.
Kviknaði í tjöru í lest
Eldsupptök voru þau, að
neisti úr rafmagnsáhaldi
kveikti í einn lest skipsins.
Þar voru menn að vinna við
einangrun, en það er gert á
þann hátt að tjöru er sprautað
á einangrunina. Yið sprauting
una myndast eldfim gufa. Hef
ur það komið tvisvar sinnum
fyrir áður á meðan smíði Gull
foss hefur staðið, að kviknað
hefur í á líkan hátt, þótt ekki
yrði slys af í þau skipti eins
og nú.
Lestin fylltist af reyk
á svipstundu
Lestin fylltist af reyk á svip
stundu og eldblossar stóðu frá
öllum hliðum.
Ofsahræðsla greip verka-
mennina, sem voru í lest-
inni og reyndi hver, sem
betur gat að forða sér upp
mjóan lestarstigann og
gekk þeim því ver að kom-
ast upp. Nokkrir verka-
menn misstu meðvitund af
reyknum í lestinni og duttu
þeir út af i eldhafið á lest-
argólfinu.
Slökkviliðsmenn með reyk-
grímur og asbest-búningum,
sem ekki getur kviknað i, fóru
niður í lestina og tókst að ná
mönnunum upp á þilfar.
Tveir voru látnir og fjórir
voru fluttir hryllilega brennd-
ir í sjúkrahús.
Erfitt björgunarstarf
Ofsahræðsla grein einnig
um sig meðal verkamannanna,
sem voru að vinna annars
staðar í skipinu, er þeir heyrðu
neyðaróp félaga sinna í brenn
andi lestinni.
Allt björgunarstarf reyndist
erfitt vegna reyks og ofsa-
hræðslu verkamannanna, en
þó tókst furðu fljótt að ráða
niðurlögum eldsins.
Ekki er talið að bygging
skipsins tefjist að ráði, þar
sem skemmdir urðu ekki telj-
Emdi á sjálfu skipinu".
Á aðfangadag jóla, 24. des-
ember, birtist eftirfarandi
skeyti frá fréttaritara blaðsins
í Kaupmannahöfn:
„Fjórir fórust í Gullfossbrun
anum“.
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 23. des.
— Tveir þeirra manna, sem
skaðbrenndust er eldur kom
upp í Gullfossi á dögunum,
hafa látizt í sjúkrahúsi. Hafa
þá fjórir dáið af afleiðingum
þessa eldsvoða. Tveir dóu
strax.
Tveir menn liggja enn í
sjúkrahúsi mikið brenndir. —
Páll“.
Loks birtist frétt á gamlárs-
dag, laugardaginn 31. desem-
ber, sem fjallar um rannsókn
eldsupptakanna:
„Eldsupptökin í Gullfossi
kunn“.
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 30. des.
— Rannsóknarlögreglan 1
Kaupmannahöfn hefir rann-
sakað eldsupptökin í Gullfossi
á dögunum og komizt að raun
um, af hverju þau stöfuðu.
Raftaug, sem var í lestinni
í sambandi við handlampa,
hafði skemmst við núning og
varð skammhlaup af þeim
ástæðum.
Neistar frá leiðslunni, þar
sem skammhlaupið varð í raf-
tauginni, kveiktu í hinni eld-
fimu lofttegund, sem var í
lestinni. — Páll“.
— Gullfoss
Framhald af bls. 24.
suimir skipverja voru í fasta
svefni. Þegar þeir höfðu gengið
úr skugga um að enginn var eftir,
þar sem hættan var mest, var
eldurinn orðinn mjög magnað-
ur“.
Síðan skýrði Viggó Maack frá
því, að dönsku blöðin segðu, að
eidsupptök megi rekja til koks-
ofna, sem settir voru undir skip-
ið til að koma í veg fyrir að
dokkin frysi. „En viS getum ekk-
ert um það fullyrt, það mál
bíður rannsóknar".
Ógætilega farið með eld
í þessu sambandi má geta þess,
að dönsku blöðin fullyrða, að
ekki hafi verið farið nógu gæti-
lega með eldinn í ofnunum.
Extrabladet segir t d. í gær-
imorgun (þriðjudag):
„Vélamenn og verkamenn
halda því fram, að hægt hefði
verið að koma í veg fyrir þenn-
an bruna. Þeir telja að bruna-
varzla um borð í skipinu hafi
verið ófullnægjandi. Þeir stað-
hæfa ennfremur, að farið sé gá-
leysislega með eld í öðrum skip-
lim hjá skipasmíðastöðinnL
Framkvæmdastjóri skipasmíða
gtöðvarinnar, J. M. Barfoed, hefur
lýst því yfir, að honum sé með
öllu ókunnugt um, að vélamenn
«ða verkamenn hafi kvartað und
«n ónógri brunavörzlu“.
Politiken segir:
‘ „Fulltrúi vélamanna og verka-
manna hefur snúið sér til Poli-
tiken og skýrt frá því, að kom-
ast hefði mátt hjá brunanum. . . .
Það er skipasnáðastöðin sjálf,
aem annast branavörzlu skip-
anna. . . . En það er ekki aðeins
á Gullfossi, sem óvarlega sé farið
sneð eld og tilgreinir fulltrúinn
tvö rússnesk systurskip, sem
hleypt var af stokkunum í janú-
ar s.L Kveðst hann hafa séð
snarga verkamenn reykja um
borð í skipunusn, þótt bannað sé“.
Blaðið segir ennfremur, að Bar
foed fullyrði hins vegar, að hann
hafi ekki í eftirlitsferðum sín-
um um skipasmíðastöðina séð
nein merki þess, að þar væri
reykt, en að öðru leyti vilji hann
ekkert um málið segja á þessu
stigi.
Berlingatíðindi segja m. a.:
„Á laugardagskvöldið varð vél
stjóri var við að olían, 50 tonn,
hafði runnið úr botngeymum
skipsins í botn þurrdokkarinnar.
Tilkynnti hann þetta stjórn
skipasmíðastöðvarinnar, sem gaf
skipun um að slökkt væri á koks-
hiturunum, sem notaðir eru til
að verja dokkina frosti. Var það
þegar gert, en á mánudagsmorgun
voru eldglæður í þeim. Var
slökkviliði Kaupmannahafnar og
brunaliði skipasmíðastöðvarinnar
þá þegar gert viðvart, en áður
en það kæmist á vettvang varð
sprengingin........
Logarnir voru svo miklir að
málning flagnaði af mastri og
óttast var að eldurinn breiddist
út til nýrrar ferju, Danmark, sem
lá þar rétt hjá. Þó vildi svo vel
til, að dráttarbátur var skammt
undan, og tókst að draga ferjuna
úr allri hættu“.
Og Berlingatíðindi halda
áfram:
„Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang var aftasti hluti skipshlið-
arinnar rauðglóandi og var í
fyrstu ekki annað unnt að gera
en sprauta vatni á járnplöturnar
til þess að kæla þær. Skömmu
síðar hafði kviknað í korkein-
angrun kæliskipsins. Þegar svo
var komið, var ákveðið að kalla
til fleiri reykvarða brunaliðs-
menn og ennfremur sent eftir
fleiri slöngum og meiri slökkvi-
froðu. Komnir voru á vettvang
um 20 bílar slökkviliðs, lögreglu
og björgunarsveita.
Um kl. 2 e.h. kom E. S. Ryger,
slökkvistjóri, á vettvang og
ákveðið var að sjóða göt á skips-
hliðina til að komast að eldinum
í lestarrúmum. Ennfremur var
ákveðið að áhöfn skipsins skyldi
ekki sofa um borð um nóttina,
jafnvel þótt tækist að slökkva
eldinn og var hún flutt á hótel
„Kongen af Danmark“.
í brunanum sprakk súrefnis-
flaska og þegar súrefnið náði aft
asta björgunarbátnum kviknaði í
nokkrum rauðum neyðarrakett-
um, sem þutu í loft upp og komu
niður I annarri deild skipasmíða-
stöðvarinnar, en þar var slökkt
á þeim“.
Blaðið segir að lokum, að
bruni þessi líkist mest bruna,
sem varð 21. febrúar s.l., þegar
kviknaði í skipinu m/s Falstria,
en þá hafði olía lekið út í þurr-
dokkina á Refshaleöen.
Þess má að lokum bæta
við, að fréttaritari Morgun-
blaðsins í Kaupmannahöfn,
símar að fulltrúar verka-
manna í Burmeister & Wain
skipasmíðastöðinni, hafi lýst
því yfir, að manntjón hefði
orðið, ef þeir GO verkamenn,
sem unnu daglega við Gullfoss,
hefðu ekki verið við morgun-
verð, þegar eldurinn kom upp.
Að Iokum segir fréttaritarinn,
að tjónið af brunanum hafi ekki
enn verið full-komlega áætlað, en
tölurnar 2—10 milljónir (dansk-
ar) hafi heyrzt nefndar.
Stjórnarandstaðan
STJ ÓRNMÁLANÁMSKEIÐ
Heimdallar heldur áfram í kvöld
kl. 20.30 í Val-
höll. Þá flytur
Ingólfur Jónsson,
landbúnaðar-
ráðherra, erindi,
sem hann nefnir:
„Stjórnarand-
staða Framsókn-
ar og kommún-
ista“.
Námskeiðið hefur verið fjöl-
sótt. Nýir þátttakendur geta enn
látið skrá sig í síma 1 71 02.
Fulltrúar Sjóvú fylgjast
með rannsókn
Gullfoss-krunans
MORGUNBLAÐIÐ -félkk þær
upplýsingar hjá Eimskipafélag-
inu í gær, að Yngvi Pálsson
fulltrúL sem hefur með trygg-
ingar félagsskipanna að gera,
fari utan til Kaupmannahafnar,
vegna brunans á Gullfossi. Jafn
framt skýrði Stefán G. Björns-
son, forstjóri Sjóvátryggingarfé-
lagsins, Morgunblaðinu frá því
í gær, að Gullfoss hafi verið vá-
tryggður hjá félaginu, og fari
þeir utan til Kaupmannahafnar á
vegum félagsinS' Sigurður Egils-
son og Ágúst Fjeldsted, hæsta-
réttarlögmaður. Munu þeir fylgj
ast með rannsókn þessa máls,
fyrir hönd félagsins, en Reum-
ert, sonur Pouls Reumert, leik-
ara, af fyrra hjónabandL þekktur
lögfræðingur í Kaupmannahöfn,
annast lögfræðistörf fyrir félagið
þar í borg. Steíán sagði enn-
fremur, að Hallgrímur Thomsen,
sonur Ditlevs Thomsens, fyrr-
um kaupmanns í Reykjavík, sé
lögfræðingur Eimskipafélagsins
í Kaupmannahöfn.
GERT VERÐUR VIÐ SKIPIÐ.
Þá skýrði Stefán Morgunblað-
inu ennfremur frá þvL að ákveð
ið hafi verið að gera við skipið.
Viðgerð fer fram í Burmeister
& Wain og vonast til þess, sagði
Stefán, að henni verði lokið í
júlímánuði næstkomandL og
— Flugvélin
Framhald af bls. 1.
um radarmiðun, vindstöðu og
sagðist vera að missa vélarafl.
Bravo náði vélinni í radar sinn
og miðaði hana 186 gráður rétt-
vísandi í 27 mílna fjarlægð en
missti hana síðan af radarnum
og hélt þá þegar á þann stað
er það hafði miðað hana. Eftir
þessari miðun takmarkaði skipið
leitarsvæði sitt og flugvélanna.
Ástæðan til þess að ekki var
óskað fleiri flugvéla við leitina
var þessi nákvæma miðun skips-
ins svo og það, að leitarskilyrði
voru mjög slæm í fyrradag og
skipið varð að stjórna leit vél-
anna með radar sínum.
Það sem einnig staðfestir fjar-
lægð flugvólarinnar frá skipinu
eru fjarskipti hennar og skipsins
á VHF, en litlar líkur eru til að
þau fjarskipti hefðu getað farið
fram á lengri veigalengd en sem
svarar 100 mílum miðað við að
vólin var í 13000 feta hæð.
Sem fyrr segir hefir ekkert
fundizl sem bendir til þess hver
afdrif flugvélarinnar hafa orðið.
Leit var enn haldið áfram í
gær, en ekki hafði borizt svar
frá yfirstjórn leitarinnar í Tor-
bay hve lengi hún myndi standa.
Leitarskilyrði voru allgóð í gær.
jafnvel fyrr ef skipasmíðastBð-
inni tekst að £á nægilegan mann
skap til að annast viðgerðar-
störfin.
Að lokum sagði Stefán G.
Björnsson, að lausleg áætlun í
gær, þ.e. þriðjudag, á skemmd-
um skipsins, gerði ráð fyrir þvi
að viðgerðin muni kosta sem
svarar þriðjungi vátryggingar-
upphæðar skipsins, eða um 3.
rnillj. d. krónur.
En á öðrum stað í blaðinu er
það hsift eftir fréttaritara þess
í Kaupmannahöfn að sérfræðing.
ar telji að tjónið sé einhvers-
staðar á milli 2—10 milljónir
króna (danskar).
— Tónlistarskólar
Framh. af bls. 8.
sambandi og við aðra fram-
kvæmd laganna kvatt til að-
stoðar sérfróða menn í tónlistar-
málum. Þá kveður frumvarpið
á um, að ráðuneytið skuli í sam-
bandi við undirbúning fjárlaga
hverju sinni gera tillögur um
fjárveitingu til hvers tónlistar-
skóla um sig með hliðsjón af
starfsemi og fjárhagsafkomu
hans síðasta starfsár.
Styrkur skal veittur tónlistar-
skólum til hljóðfærakaupa eftir
því sem fé er veitt til í fjár-
lögum, en má þó ekki nema
hærri upphæð en Y3 a-f andvirði
hljóðfærisins.
Loks er heimilt að veita styrki
til tónlistarkennslu á stöðum,
sem ekki fullnægja skilyrðum
um rekstur tónlistarskóla, en
styrkhlutafall má þó aldrei vera
hærra en gildir um tónlistar-
skóla.
— Grænland
Framih. af bls. 2
getrm farið í nokkurra daga
veiðiferðir á hundasleðum.
Að lokum nittum við að
máli Winther, sem er verk-
fræiingur að mennt og hefur
nú eftirlit með öllum veður-
athugunarstöðvunum á aust’jr
stronó Grænlanus.
— Hvað eru margir menn í
stóðvunum á austurströnd-
inni’
— Það eru i.18 menn I 8
stöðvum.
— Þetta eru allt Danir, er
ekki svo?
— Jú, allt Danir.
— Eru þetta mikið sömu
menuirnir sem eru þama ar
eftir ár?
— Já, langsamlega flestir,
iem einu sinni hafa gefið sig
í þetta, koma aftur. Það »a:
eins og þeir kunni ekki við sig
til lengdar í fjölmenninu eftir
vistina á Grænlandi.
Hárgreiðslukona óskast
á Keflavíkurflugvöll. Uppl. í síma 7170.
(eignalóð) við Laugarnesveg til sölu. — Tilboð
óskasL Upplýsingar í Fasteignasölunni, Óðinsgötu 4.
Sími 15605.
Fermingarkápur
Ný sending enskar fermingarkápur.
L A U F I Ð, Austurstræti 1«