Morgunblaðið - 20.03.1963, Síða 24
Kostnaðaráætlun um
Álftanesflugvöll
MORGUNBLAÐIÐ hefur fregn-
að, að í fyrradag hafi verið hald-
inn fundur með flugmálaráð-
herra, borgarstjóranum í Reykja-
vík, flugráði og forystumönnum
heggja flugfélaganna og rætt um
framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Jafnframt var tekin ákvörðun um
það á fundi þessum, að láta gera
kostnaðaráætlun um Álftanesflug
völl. Eins og kunnugt er, hafa
verið mjög skiptar skoðanir um
gerð flugvallar á Álftanesi, en
nú er talið nauðsynlegt að fá úr
því skorið, hvað slíkur flugvöllur
mundi kosta, ef lagður væri.
Ýmsar tölur hafa verið nefndar
í því sambandi, allt frá 300 milij.
upp í 800 millj. kr.
Morgunblaðið talaði i gær við
Ingólf Jónsson, flugmálaráðherra,
og spurði hann um mál þetta.
Ráðherrann sagði; „Ég hef áður
látið í ljós mína skoðun á þessu
máli, en tel eigi að síður nauð-
synlegt að fá úr því skorið, hvað
flugvöllur á Álftanesi mundi
kosta“.
Óhemjuafli
Ólafsvíkurbáta
Löndunarstöðvun — Mikil
atvinna
ÓLAFSVÍK, 19. marz.
Hér er nú landburður ai
fiski, og koma bátarnir að
með óhemju afla, 20—40 tonn
á bát eftir nóttina. Löndunar-
stöðvun er nú hjá Kirkju-
sandi h.f., sem vísar bátum
sínum til Keykjavíkur. Hrað
frystihús Ólafsvíkur, sem
einnig hefur á leigu Hróa h.f.
hefur enn undan. Mikil at-
vinna er hér um þessar mund
ir og engin móðuharðindi á
neinu sviði. Vandræði eru
helzt af vinnuaflsskorti.
Átta bátar eru á þorsikanetum,
og hafa þeir fengið 1890 tonn
í 118 róðruim frá 1. marz. Hafa
þeir fengið að meðaltali 16 tonn
í sjóferð. Aflahæstur það sem
af er marzmánuði, er vb Jón
Jónsson með 261 tonn í 16 róðr-
uim, en bátarnir eru mjög jafn-
ir. Hefur svona almenn aflahrota
ekki þekkzt hér áður. Á laugar-
Frakkar
sprengja
Algeirsborg, 19. marz.
STJÓRNIN í Alsír skýrði frá
því í tilkynningu, sem birt
var í dag, að Frakkar hafi í
gær (mánudag) sprengt
kjarnorkusprengju neðanjarð
ar á Saharaauðninni í til-
raunaskyni. Hefur Alsír-
stjórninni borizt opinber til-
kynning frönsku stjórnarinn-
ar þessa efnis.
Alsírska stjórnin birti til-
kynningu sína eftir sérstakan
ráðuneytisfund, og segir þar
að tilraun Frakka hafi skap-
að alvarlegt ástand. Hefur
alsírska þingið verið kvatt
saman til aukafundar á morg-
un til að ræða málið og mun
Ben Bella forsætisráðherra
flytja mjög þýðingarmikla
ræðu á fundinum.
Frönsku stjórninni hafa
borizt harðorð mótmæli víða
að. —
dag komu hér á land 225 tonn.
l>á var meðalafli 28 tonn á bát
og aflahæstur vb Valafell, sikip-
stjóri Jónas Guðmundsson, sem
fékk 41,5 tonn. Á sunnudag var
aiflinn 202 tonn, og var þá vb
Jón Jónsson hæstur með rúmar
37 leistir.
Aflahæsti bátuirinn frá ára-
mótum (bæði á línu og net) er
Vb Hrönn með 518 tonn í 50
sjóferðum. Skipstjóri á Hrönn
er Rafn Þórðarson.
Hér er blómleg atvinna, eins
og fyrr segir, og allir að ham-
ast í fiski. Danskt skip er hér
í dag að taka saltsíld til útflutn-
ings. Tvö skip bíða þess að kom-
ast að, vs Drangjökull, sem tek-
ur fisk á Ameríkumarkað, og
olíuskip. — Fréttaritari.
Þessi mynd sýnir danska slökkviliðsmenn berjast við eldinn um borð í Gullfossi.
Slökkviliðsmennirnir fara heim eftir erfitt starf.
Guflfoss mjög illa útleikinn
Dönsku blöðin segja:
Ovarlega farið með eld
hjá Burmeister & Wain
MORGUNBLAÐIÐ átti I gær símtal við Viggo Maack, skipaverk-
fræðing Elmskipafélagsins, en hann er nú staddur í Kaupmanna-
hofn eins og skýrt er frá annars staðar í blaðinu. Viggó Maack
mun fyrstur IsXendinga hafa orðið eldsins var í Gullfossi. Þegar
hann var að ganga frá borði heyrði hann allt í einu að -ödd hróp-
aði' Udebr. nd; þ e. eidur! Viggó segist þá hafa orðið eldsins var
í afturhlutu skipsins og hlaupið að brunaboða og kallað á slökkvi-
liðið „Ég ýtti á hnappmn í brur.aboðanum,“ sagði hann, „og mér
fannst líða eilífð meðan ég stóð þarna.“
Fréttaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn, Rytgárd, símaði
í gær, að kl. 4 á þriðjudagsmorgun hafi loks tekizt að slökkva
eldinn í Gullfossi. Hann segir að skipið sé mjög illa útleikið. Aft-
an til er allt brunnið innan úr því, og auk þess gat á síðunni, sem
slökkviliðið varð að skera til þess að komast að eldinum, þar
sem hann var mestur. Brunnir þilfarsplankar, undnar járnplötur
var það sem mest bar á. Tvær kælilestir, mikill hluti af káetum
2. farrýmis og klefar vélamanna er brunnið innan. Helzt lítur út
fyrir að byggja þurfi upp allan afturhluta skipsins, segir Rytgárd,
fréttaritari Morgunblaðsins ennfremur.
Samtalið við Viggo Maack
í fyrrnefndu samtali Morgun-
blaðsins við Viggó Maack, sagði
hann m. a. þetta:
„Eldurinn byrjaði, eins og
blöðin segja, í dokkunni, en við
vitum ekki nákvæmlega hvernig
upptökin voru, því enn er málið
ekki rannsakað niður í kjölinn,
en þau hafa verið rakin til koks-
ofna 1 dokkinni.
Ég hef verið að líta ofan í
lestina í dag og það er hroða-
legt að sjá, hvernig þar er um-
horfs. Nú er verið að grafa þar |
og rannsaka, hvað gerzt hefur.
Ég hafði skroppið niður í skip
og vorum við á leið frá borði,
þegar við heyrðum allt í einu
að kallað vax: „Eldur!!“ í>á van,t-
aði klukkuna 15 mínútur £ 11 um
morguninn. Ég hljóp strax að
brunaboðanum. En skipstjórinn
og 1. stýrimaður hlupu um skip-
ið og ræstu alla sem þar voru,
Framh. á bls. 23
2,4 millj. aukin fram
lög til bókasafna
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram frumvarp á Alþingi, sem
felur í sér stórkostlega hækk-
un á framlögum ríldsins til al-
menningsbókasafna og er gert
ráð fyrir, að sú hækkun muni
nema alls 2.351.696 kr. á næsta
ári og verður fjárveitingin þá
samtals 3.792.946 kr.
Þannig hækka framlög rík-
isins til bæjar- og héraðsbóka-
safna úr 675.000 kr. í 2.362.946
kr. framlög til sveitarbóka-
safna og lestrarfélaga úr 485
þús. kr. í 750 þús. kr. til bóka-
safna í heimavistarskólum og
öðrum opinberum stofnunum
úr 115 þús. kr. í 180 þús. kr.
og loks framlag til húsabóta
úr 166.250 kr. í 500 þús. kr.
eða alls um tæpar 2,4 millj.
kr.
Þeirri aðalreglu er fylgt í
frumvarpinu að tvöfalda fram
lög til almenningsbókasafna,
sem kveðið er á um í núgild-
andi lögum, þó með allmiklum
frávikum til leiðréttingar á
misrétti, t. d. hvað viðvíkur
héraðsbókasöfnum, og til frek
ari úrbóta, þar sem þess er
brýn þörf.
Sjá nánar bls. 8.