Morgunblaðið - 21.03.1963, Síða 14
14
MORGVTSBLAÐlh
Fimmtudagur 21. marz 1963
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem heiðruðu mig
á 70 ára afmælisdegi mínum 28. febrúar sl. með heim-
sóknum, veglegum gjöfum og heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Þórarinsdóttir,
Vagnsstöðum.
Aðstoðarstúlka
í eldhús óskast strsx eða um næstu mánaðamót á
bamaheimili í nágrenni bæjarins. Algeng mat-
reiðslukunnátta nauðsynleg. — Gott kaup. — Frí
aðra hverja helgi. — Stúlka yngri en 21 árs eða
með barn kemur ekki til greina. — Tilboð, merkt:
„Aðstoð — 6536“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir
sunnudagskvöld.
HINIR VINSÆLU
næfon- hand og fótholtar
KOMNIR AFTUR.
Ritfangaverzlun ÍSAFOLDAR
Eankastræti.
Jarðarför
VALTÝS STEFÁNSSONAR
ritstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni laugard. 23. marz kl. 10,30
fyrir hádegi.
Aðstandendur.
RAGNAR H. B. KRISTINSSON
forstjóri,
Frakkastíg 12,
sem andaðist 16. marz, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 22. þ.m. kl. 3 e.h.
Eiginkona, systkini og börn.
Útför
BRYNJÓLFS M. HANNIBALSSONAR
frá Meðaldal
búsettur að Amarholti 3, Akranesi,
verður gerð frá Fossvokskirkju föstudaginn 22. þ. m. kl.
10,30 árdegis. — Útförinni verður útvarpað.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minnast
hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Dóttir, stjúpsynir og systkini hins látna.
Kærar þakkir til allra þeirra, sem vottuðu okkur
samúð við andlát og jarðarför
INGVARS ÞORLEIFSSONAR
frá Neskaupstað,
Einnig okkar beztu þakkir til hjúkrunarfólks og annarra
þeirra, sem veittu honum aðstoð.
Eiginkona, böm, móðir og systkini.
Við þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við fráfall
og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
fósturföður og afa
SVEINS ARNGRÍMSSONAR
Guðrún Jónsdóttir,
böm, tengdabörn, fósturbörn,
og barnaböm.
Chevrolet
Steindór vill selja nokkrar Chevrolet fólksbifreiðar,
árg. 1947, ’48. — Til sýnis á
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS
Hafnarstræti 2. — Sími 18585.
Bifvélavirki
Maður vanur bifvélavirkjun óskast. Getum útvegað
húsnæði.
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS
Sími 18585.
Nauðungaruppboð
verður haldið að Þverholti 22 (húsakynnum Ölgerð-
arinnar Egill Skallagrímsson), hér í borg, eftir kröfu
Hilmars Garðars, hdl. föstudaginn 22. marz n.k. kl.
2 e.h. — Seldur verður stór kæliskápur (McCall)
tilheyrandi Ellabúð, hér í borg. Greiðsla fari fram
við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Námsvist í norræn-
um lýðháskólum
í VETUR stunda 58 íslenzkir ungl
ingar nám á Norðurlöíidum, fyrst
og fremst á lýðháskólum, fyrrr
milligöngu Norræna félagsins.
í Danmörku eru 14 nemendur
2 í Finnlandi, 20 í Noregi og 22
í Svíþjóð. Því nær allir nemend-
urnir njóta styrkja til nóms-
dvalarinnar.
Norræna félagið hefur eins og
undanfarfn ár milligöngu um
skólavist á norrænum lýðháskól
um á næsta skólaári og hafa ó-
venju margar umLSÓknar og fyrir
spurnir þegar borizt.
Umsóknir um skólavist næsta
vetur skulu hafa borizt Norræna
félaginu Box 912 Reykjavík fyr-
ir 1. maí n.k. og skal fylgja þeim
afrit af prófskírteini, upplýsing-
ar um aldur, fæðingardag og ár
(en umsækjendur mega eigi vera
yngxi en 17 ára, helzt a.m.k. 18
ára), meðmæli skólastjóra kenn-
ara eða atvinnuveitanda og
gjarnan einnig upplýsingar um
störf. Æskilegt er ennfremur að
tekið sé frarn í hveirju landanna
helzt sé óskað eftir skólavist, en
auk þess fylgi ósk til vara.
Nánari upplýsingar um skóla,
nárnstiiihögun o.fl. gefur Magnús
Gíslason, framkvæmdastjóri Nor-
ræna félagsins (sími 37668).
Bifreiðar
af ýmsum stærðum og gerðum til sölu. ,
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS
Sími 18585.
Verzlunarstjórar
Verzlunarstjóra vantar að matvörubúð nú þegar. —
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist Mbl., merkt: „6539“ fyrir 25. þ.m.
Innheimtumaður
Innheimtumann vantar sem fyrst, yfir
sumarmánuðina. — Þarf helzt að hafa
mótorhjól eða bíl. Umsóknir sendist afgr.
Mbl., merktar: „Innheimtumaður — 6124“.
ÞAKJÁRN
Þakjárn í stærðum 7—12 fet.
Verð kr. 13,95 fetið.
J.B. PÉTURSSON
BLIKKSMIÐJA • STAlTUNNUGLRÐ
JÁRNVORUVtRZLUN
Símil5300.
VETTVANGUR
Framhald af bls. 13.
andi sakamálasögu, fjörmikinn
gamanleik og margslungið drama
og ná á öllum greinum þess þeim
listatökum, sem sæma mundi
leikhúsum í stórborgum heims-
ins, þar sem aldrei sést neinum
verða fótaskortur. í heild er
þessi sýning afrek. Stærstu hlut-
verkin, leikin af Gísla Halldórs-
syni og Regínu Þórðardóttur, eru
flutt af fullkominni innlifun og
kunnáttu, eins og við eigum að
venjast í erlendum leiikhúsum.
Helgurnar tvær hafa sjaldan
sýnt fullkomnari leik, Helga Val-
týsdóttir aldrei snjallari gaman-
leik. Lárus Pálsson hefir notið
sín til fulls í þessum félagsskap.
Það er óheppilegt að dæma leik-
sýningar eftir frumsýningum,
nema gagnrýnendur hafi fylgst
með æfingum eins og títt er er-
lendis.
Höfundur Eðlisfræðinganna,
Durrenmatt,- telur sig ekki fiytja
neinn sérstakan boðskap. Hann
segir eins og Gröndal og Davíð,
mitt er að yrkja, ykkar að skilja.
Höfuðinntak leiksins er þó saga
hámenntaðs og ábyrgs snillings,
sem óttast að þekkingarleit sín
hafi leitt til uppgötvana er þjóð-
irnar hafi ekki siðferðisþroska
til að notfæra sér til blessunar
mannkyninu. Og hann ákveðmr
að eyðileggja lífsstarf sitt, brenna
það, og lifa sem óþekktur sjúkl-
ingur á geðveikrahæli, í stað
þe&s að njóta hamingju ag frægð-
ar. Boðskapur höfundar er því að
maðurinn verði að sýna ofur-
mannlega fórnarlund, leggja allt
í sölurnar til þess að mannkynið
fái notið hamingju.
En á leið mannsins til glötunar
ekki síður en á vegi hans upp á
hátinda frægðar og hamingju,
gerast mörg atvik skopleg. Og
þar sem efnið sem hér er að öðru
leyti fjallað um, nýja óbeizlaða
orku, sem hefir vald yfir öliu lífi
á jörð okkar, hlýtur sókn og
vörn að ná hámarki, enda er
einskis svifizt, fyrir augum okk-
ar eru framdir þeir svívirðileg-
ustu glæpir sem sagan þekkir,
lýst fláræði, soralegum njósnum,
lymskulegustu svikum og hroða-
legustu tælingum. Það sama hlýt-
ur að gerast í listinni og á vígvell
inum, ný sóknarvopn kalla fram
ný vopn til varnar.
Hér er á ferðinni eitt hið mesta
leikhúsverk, sem skrifað hefir
verið, verðugt framlag listsköp-
unar mannsins, til varnar mann-
kyninu gegn ofurveld.i þeirra
gerfitækja, sem „ógna göfgi þessa
kröfuharða starfs nú á dögum'
R. J.