Morgunblaðið - 21.03.1963, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.03.1963, Qupperneq 24
Máni frá Skaga- strönd strandar — losnaði óskemmdur á flóði Skagaströnd, 20. marz. tJM KLDKKAN 20.20 í gær- kvöldi strandaði vélbáturinn Máni HU 5, héðan frá Skaga- strönd, á grynningum um 150 faðma fram af bænum Skeggja- stöðum á Skagaströnd, er hann var að koma úr róðri. Máni er 43 tonn og með 9 manna áhöfn. Hann losnaði á flóði á öðrum tímanum um nóttiiia, lítið - eða ekkert skemmdur og engan mann sakaði. í stuttu samtáli við formann- inn Gunnar Sveinsson, kjom þetta fram: ,Við fórum frá Skagaströnd í gærmorgun að vitja um neta- trossur, sem við áttum út við Skallarif og einnig átbum við tvær trossur vestur í Miðflóa. >að gekk vel að draga trossum- aT við Skallarif og fórum við siðan að leita að þeim, sem við áttum í Miðflóanum. Veðrið var þá NNA golukaldi og gekk á með dimmum édjum. Við fundum aldirei trossuirnar og haettum leitinni og settum á tfulla ferð heim kl. 18.40, og kallaði ég þá í talstöðina að ég yrði heima um kl. 21. Skipverjar voru allir frammi í lúkar, þegar báturinn strand- aði, nema stýrimaður og vél- stjóri, sem voru á vakt. Við þust- um allir upp á dekk og stuttu seinna þekktum við hvar við vorum strandaðir, en einn há- setinn er uppalinn á Skeggja- stöðum. Nokkru síðar náði ég sambandi við Skagastrandar-radíó, sem þegar sendi björgunarsveit á strandstaðdnn og einnig kxwnu þrír vélbátar, Stágandi HU 9, Vísir HU 10 og Svanur HU 4. Þegar báturinn strandaði var lágisjávað og taldi ég strax mjög miklar líkur fyrir því að hann 'bærist á flot með flóðinu, lítið eða ekkert skemmdur, því hreyf- ing var mjög Mtil þótt bátur- inn hallaðist nokkuð. Nokkru síðar var settiur vir um borð í vélbátinn Svan og hann látinn keyra fulla ferð og einnig notaði ég eigið vélarafl. Báturinn losnaði svo af strand staðnum kl. 1.40 og virtist vera óskemmdur með öÚu. Var síðan haldið til hafnar og gekk það prýðilega". Máni var í þessari ferð að diraga upp net sín vegna afla- leysis hér um slóðir að undan- fömu og ætlar að haida á ver- Fræðslufundur í Valhöll FKÆÐSLUNÁMSKEIÐIÐ um atvinnu- og verkalýðsmál heldur í^gáfram í Valhöllí ^ kvöld kl. 8,30. Á þeim fundi mun H Sveinn Björns- I son, verkfræð- Kur, flytja fyrir- ::i lestur um kjara- ? bætur, fram- | leiðni og hag- j ræðingu. Þáttakendur ern beðnir nm að mæta vel og stundvislega. tið fyrir sunnan. Þegar suður kemur verður .báturinn teHnn í slipp og gengið úr skugga um hvort nokikrar skemmdir ha.fi orðið, en við skoðun 1 dag virt- ust þær engar. Sjóréttur verður ekki haldinn vegna strandsins. —Þórður. * Var á leið að Bravo ætlaði að nauðlenda a sjónum LEITINNI að flugvél Flug- sýnar var haldið áfram í gær. í gær hafði Verið flogið vegna leitarinnar í samtals rúmar 80 klukkustundir og svæði sem er um 4000 fermílur að stærð verið rannsakað. Leitarlínan var frá 55,55 gráður norður breiddar og 55.18 vestur lengdar að 55,06 norður og 53,05 vestur. Leitaðar voru 20 mílur báðum megin þess- arar línu. Blaðið hefir nú fengið þær upplýsingar um fjarskiptin milli flugvélarinnar og veðurskipsins Bravo, sem er strandgæzluskip úr bandaríska flotanum og bex nafnið Spencer, af flugniennirn ir höfðu beðið skipið um upplýs- ingar um skilyrði til nauðlenu- ingar á sjónum við skipið, vind- Kraða og ratsjárrmðun. Þá var svo komið að vélin hafði misst vélaafl og því ekki um annað að gera en nauðlenda. Á meðan veðurskipið athugaði þær upplýsingar, sem flugvéiin bað um, hvarf hún al radarskífu skipsins, en það hélt þegar á þann stað, sem það hafði miðað flugvélira. Eftir þessum upp'.ý-'ingum virð ist ekkert vafamál að flugvé'in hefir lent í sjónum x 27 mílxia fjarlægð frá Bravo. Engar fréttir hafa borizt um það að brak hafi fundizt úr vél- inni eða annað lausiegt. Vitað er að flugmennirnir néldu réttri stefnu og útreikningar þeirra og staðsetningar voru allar réttiir. Ætluðu þeir sem fy:r segir að nauðlenda við vaðarskipið, en náðu ekH alla leið að þvL Sem fyrr segir var enn í gær leitað að vélinni og sýnir það að leitarstjórnin hefir ekki enn se.n komið er gefið upp alla von. Á þeim tíma sem vélin hverfur er svartamyrkur á þeim slóðum, mikill sjór og skilyrði oll mjög slæm til nauðelndinga-r. Hættir hernaðarað- stoð við Norðmenn? Washington, 20. marz. — (AP-NTB) —- HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum í Washington, að stjórn Noregs hafi boðizt til þess að auka innflutning á bandarískum varningi til land varna, gegn þvx, að Banda- ríkjastjórn falli frá þeirri fyrirætlun sinni að taka fyrir alla hernaðarlega aðstoð við Noreg á næstu tveim árum. Halvard Lange, utanríkisráð- herra Noregs, varnarmálaráð- herrann Gudmund Harlem og yfirmaður hersins, Bjarne Öen, hershöfðingi, eru um þessar mund ir staddir í Washington og hófu þeir í dag viðræður við fulltrúa Bandaríkj ast j órnar. Talsmaður norska sendiráðsins í Washington staðfesti við frétta- menn í dag, að Bandaríkjastjórn Framh. á bls. 2 'l'- ' ‘ - v „ '' -■ ■■ •• v ’• ••• - x. UNDANFARNA daga hefur 1 verið einmuna veður, að i minnsta kosti hér sunnanlands | eins og þessi mynd sýnir, en hún var tekin þegar verið var ! að taka ofan af skorsteinun- I um á hvalveiðibátunum og búa þá að öðru leyti undir átök sumarsins, eftir að þeir hafa „legið í dvala“ í vetur. I Á undanförnum árum hefur j hvalveiðiflotinn verið endur- nýjaður, enda mun hann hafa 1 fært drjúgmiklar tekjur í þjóð I larbúið. , Kópavogur SPILAKVÖLD í Sjálfstæðishús- inu í Kópavogi anuað kvöld kL 20,30. Drakk hann ólyfjan? Á TÍUNDA tímanum á þriðju- dagskvöld var komið að manni, sem lá ósjálfbjarga og mjög þungt haldinn á Óðinsgötu. Hann var fluttur á Slysavarðstofuna, þar sem hann fékk súrefnii^jöf, enda virtist honum liggja við köfnun. Talið var, að hann hefðj sett einhverja ólyfjan ofan í sig. Síðan var maðurinn fluttur i sjúkrahús, og mun hann enn hafa verið þungt haldinn í gær. Skrifað á báðum vitunum „HÉR angar allt af málningu“ sagði Óskar Aðalsteinn vitavörður á' Galtarvita, þegar blaðamaður Morgun- blaðsins hringdi í hann í gær og spurði tíðinda. „Það er kominn vorhugur í strá'kana mína og þeir keppast við að mála allt fyrir sumarið, grænt gult og blátt. Helzt vilja þeir mála mig líka.“ „Hvernig er veðrið hjá ykkur núna?“ „Veturinn hefur verið góð- ur og blessuð blíða í seinni tíð. Þó er umhverfið heldur kuldalegt, snjóbarðar hlíðar og úfinn sjór, enda varla við öðru að búast á góunni. Ljós- ið er með alira minnsta móti — ég á við rafmagnsljósið — því vatnsvélin bilaði og við verðum að notast við lítinn rafmagnsmótor, já það er vatnsvirkjun í lækjarspæn- unni hérna, 18 kílóvatta stöð, og venjulega höfum við nó.g rafmagn, en stöðin er biluð í augnablikinu.* „Hefurðu eitthvað samið í vetur?“ „Já, já, ég er alltaf að semja.“ „Óg hvað helzt, skáldsög- ur?‘ „Við getum kallað það skáld sögu eða hvað sem vera vill. Ég vonast til að ljúka við eina áður en sláttur byrjar, og ef ég verð ekki búin með hgna þá, verður henni áreiðanlega lokið þegar ég er búinn að slá túnið eða með haustinu.* „Eru drengirnir þínir ekki í skóla?“ „Nei, ég kenni þeim hér heima, nema einum sem er á Núpsskóla. Þeir eru þrír, strák arnir. Svo eru þeir sendir til Suðureyrar í próf.“ „Ertu með einhvern bú- skap?“ „Það er beljan og hesturinn. Þið ættuð annars að koma í sumar og heilsa upp á mig, ég hefði gaman af að taka á móti ykkur. Þá get ég kynnt ykikur fyrir kálfinum, það er stórvitpr sikepna, fallegt og skemmtilegt dýr. Og þá get- um við spjallað betur saman.“ ★ ★ ★ Það er afleitt veður héma hjá mér núna, sagði Jóhann Pétursson á Hornbjargsvita, þegar við náðum sambandi við hann í gær. Það hefur verið stanzlaus norðanátt í viku eða hálfan mánuð og kyngt niður snjó, en jafnframt verið koldimm hafþoka. Ann- ars var veðrið ágætt áður en ‘þetta hret kom, svo að segja stanzlaust þíðviðri frá hátíð- um og út febrúar, en svo fór hann að hreyta úr sór. — Hvað hefur þú að dunda við þarna? — Til dundurs segirðu. Þegar ég fór hingað voru all- ir að hafa áhyggjur af því hvað við mundum geta gert okkur til dundurs og að við mundum að lokum sitja uppi auðum höndum. En reyndin hefur nú orðið önnur, því við hjónin höfum aldrei séð út úr verkunum. Við erum að taka allt í gegn hérna og þegar laus stund gefst tekur frúin til við sauma en ég sezt niður og skrifa skammargrein ar gegn allri vitleysunni, sem þið eruð alltaf að birta. Ann- ars hef ég nú ekki séð Morgun blaðið í heilan mánuð, en ég lifi það nú af — hef nógar skammir að skrifa samt. — Já, ekki er samgöngun- um fyrir að fara hjá ykkur? — Það hefur verið slæmt núna. Ég er hérna með bilað senditæki og það hefur ekki verið hægt að koma því hérna á land hátt á aðra viku síðan það bilaði. Þeir hafa ekki getað lent hérna fyrir fram- an og héðan er ekH einu sinni hægt að komast niður í HornvilHna. Þegar þokan grúfir sig yfir hjarnið sér maður ek-H handa skiL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.