Morgunblaðið - 24.03.1963, Síða 20
20
MORGl’ NBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. marz 1963
DUNKERLíYS
Lurie oig Hesba stóðu nú upp
frá sínu borði, veifuðu hendi og
gengu svo áleiðis til kappleiks-
ins. Chrystal bað leyfis að
kveikja í pípunni sinni og svo
stóðu þau Grace líka upp og
gengu af stað. En ekki í sömu
áttina og hin. Þau gengu fram
og aftur fyrir framan húsið, Oig
Grace hélt uppi með vinstri
hendi slóðanum á svarta pils-
inu sínu, en í hægri' hendi hafði
hún sólhlíf, sem var þakin hálf-
gagnsærri svartri grisju. Aldrei
hafði songarbúningur verið bet-
ur borinn og með meiri yndis-
þokka.
Sir Daniel virðist vita sitt af
hverju á undan öllum almenn-
ingi, sagði Chrystal. Hann kom
hér í gær, skiljið þér....
— Já, með hr. Phyfe, tók
Grace fram í, ofurlítið illkvittin,
og minntist hinnar óánaagjulegu
lýsingar Isamabards á móttök-
unum.
— Já, það var einhver ungur
maður með honum, sem ég var
búinn að gleyma, saigði Theódór
hressilega. — Hvað sem um það
er, þá vissi sir Daniel um þetta
nýja embætti mitt. Ég varð að
biðja hann að þegja yfir því. En
hann virtist vilja hagnýta sér
það.
— Það kemur mér ekkert á
óvart, sagði Grace brosandi.
Upprennandi maður vekur eng-
an áhuga hjá frænda mínum,
nema hann sé hans megin.
— Já. Jæja.. ég skrifaði dá-
lítið fyrir hann, nafnlaust, fyrir
nokkrum árum. í „Blákaldar
staðreyndir“.
Grace horfði á hann með ódul-
inni undrun. — Það hef ég ekki
vitað fyrr, sagði hún. — Og ég
er dálítið hissa á þvi. Það er
ekki.... sérlega.... gott blað, er
það?
Theodór svaraði bliðlega:
— Maður var nú ungur þá og
ekki alltof efnaður, og prestur
hefur alltaf nóg að gera við pen-
inga. Vitanlega er „Dunkerleys“
allt öðruvísi en „Blákaldar stað-
reyndir.
— Hefur hann þá beðið yður
að skrifa í „ Dunkerlejys"?
— Já.
Þau voru nú komin aftur að
sedrustrénu og stönzuðu þar, og
Grace lagði aftur höndina á arm
hans, en andlitssvipur hennar
bar vott um skelfingu. — Eruð
þér búinn að lofa honum því?
spurði hún, alvörugefin.
— Ég hef lofað að athuga mól-
ið, svaraði Theó. — Hvað vild-
uð þér ráða mér, ungfrú Satter-
field? Finnst yður ekki Dunker-
leys vera fullgott blað?
Hún leit á hann, beint og frjáls
lega og hann varð hvortvegigja
í senn hrifinn og hræddur af
þessari þöglu skoðun bláu augn-
anna á honum. Hann var vanari
þvi, að konur yrðu óróleigar og
færu hjá sér, ef hann lét svo
lítið að tala við þær, en augna-
tillit Grace Satterfield var langt
og stöðugt, eins og sólskin á
sumarkvöldi. Loksins svaraði
hún, honum til undrunar: — Ég
vil ekki, að þér gerið það. Þá
fyrst roðnaði hún ofurlítið og
leit til jarðar.
Til hvers er ég að skipta mér
af þessu? Hvað varðar mig um,
þó að hann geri lítið úr sér?
spurði Grace sjálfa sig í hugan-
um og hjarta hennar óróaðist,
rétt eins og þegar hún hitti hann
í fyrsta sinn. — Fyrirgefið þér,
sagði hún, og röddin var ofur-
lítið skjálfandi og hikandi. — Ég
hafði ekkert leyfi til að segja
þetta við yður.
— Já, en góða ungfrú Satter-
field....við erum gamlir vinir,
og mér þykir ekki nema vænt
um að heyra afdráttarlausa skoð
un yðar. Hversvegna viljið þér
ekki, að ég skrifi í tímaritið hans
sir Daniels?
Nú var hún orðin óróleg svo
að um munaði. — Þér megið
ekki spyrja mig um það, sagði
hún. — Ég á svo erfitt með að
segja það sem mér býr í brjósti.
En ég þekki sir Daniel svo vel,
og enda þótt mér sé vel til hans,
þá þarf allt, sem hann kemur
nærri að gefa ágóða. Kannski er
það ekki nema rétt. Því ef út í
það er farið, þá hverfur allt úr
sögunni, sem ekki borgar sig.
Og ég má víst ekkert mikið um
þetta tala, sem er sjálf orðin rík
á þessu. Þér sjáið, hvað ég er
orðin ringluð. Én allt í einu var
eins og birti yfir henni og hún
bætti við: — En mér finnst bara,
að einstöku hlutir verði að vera
ofan við allt, sem heitir kaup
og sala.
— Og er ég þá einn þeirra
hluta?
— Staða yðar er í þeim flokki.
Dunkerleys er betra en nokkuð
annað, sem sir Daniel hefur
stofnað til. En engu að síður
er það bara gróðafyrirtæki. Það
var það, sem ég vildi sagt hafa.
— Það sem ég kynni að skrifa
kynni að verða súrdregið, sem
lyftir deiginu. Og ef sir Daniel
kann þá list að safna fjöldanum
saman, sæti ekki á mér að neita
að hjálpa til þess.
— Ég efast ekki um, að þér
.gætuð fært tíu þúsund ástæður
fyrir því, að þér ættuð að gera
þetta, og ég gæti ekki komið með
eina ástæðu til að sanna það
gagnstæða. Samt er það nú svo,
að ef þér tækjuð þetta að yður,
yrði ég fyrir vonbrigðum.
— Það er víst timi til kominn,
að ég fari að sýna mig við kapp-
leikinn, sagði Theó. Við skulum
fara þangað.
ÞRIÐJI KAFLI.
1.
Prófastshúsinu, Mandeville,
1. des. 1895.
Kæri Dunkerley!
Ég þakka þér fyrir bréfið þitt,
dags. 23. nóv. Og bið þig afsök-
unar á seinlæti mínu að svara
því. .
aiUtvarpiö
Sunnudagur 24. marz
8.30 Létt morgunlög.
9.20 Morgunhugleiðing um múslk:
„Johann Sebastian Bach, lif
hans og list“ eftir Nikolas
Forkel; III. (Árni Kristjáns-
son).
9.40 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prest
ur: Séra Óskar J. Þorláksson.
Organleikari: Dr. Páll ísólfs-
son).
12.15 Hádegisútvarp.
13.05 íslenzk tunga; IV. erindi: Ný
gervingar frá síðari öldum
(Dr. Halldór Halldórsson
próffessor).
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitiminn: a) Óskar Cortes
og félagar hans leika. b) Nor
man Luboff kórinn og RCA-
Victor hljómsveitin skemmta
16.40 Ræða á ársþingi Þjóðræknis-
félags íslendinga í Vestur-
heimi 18. febrúar s.l. (Dr.
Richard Beck forseti félags-
ins).
17.30 Barnatím HSkeggi Ásbjarnar-
arson): a) Hugrún skáldkona
ræðir við 9 ára telpu, Ástu
Berglind Gunnarsdóttur b)
Ólafur Ólafsson kristniboði
eftir Albert Ólafssón. c) Elfa
• les úr „Sögum frá íslandi"
Björk Gunnarsdóttir les sög-
ur og þulur eftir Guðrúnu
J óhannsdóttur frá Brautar-
holti.
18.20 Veðurfregnir.
18.30 „Vakna Dísa, vakna þú“:
Gömlu lögin sungin og leikin
19.00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Einsöngur: Joan Sutherland
syngur aríu úr óperunni „Ern
ani“ eftir Verdi.
20.10 Umhverfis jörðina: Guðni
Þórðarson virðir fyrir sér
fljótin helgu í Indlandi.
20.35 Tónleikar í útvarpssal: Sin-
fóníuhljómsveit íslands leik
ur sinfóníu nr. 100 í G-dúr
(Hernaðarhljómkviðuna) eft
ir Haydn. Stjórnandi: Jind-
rich Rohan.
21.00 Sitt af hverju tagi (Pétur
Pétursson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 25. marz
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Bændavikan hefst: a) Ávarp
búnaðarmálastjóra, dr. Hall-
dórs Pálssonar. b) Þáttur frá
búnaðardeild. Flytjendur: Dr
Björn Sigurbjörnsson, Ingvi
Þorsteinsson mágister og dr.
Bjarni Helgason. ,
14.00 „Við vinnuna": Tónleikar. I
14.40 „Við, sem heima sitjum": Sig-
urlaug Bjarnadóttir les skáld
söguna „Gesti" eftir Krist-
ínu Sigfúsdóttur (10). j
15.00 Síðdegisútvarp.
1.705 Sígild tónlist fyrir ungt fólk
(Reynir Axelsson).
18.00 Þjóðlegt efni fyrir unga hlust
endur (Stefán Jónsson rith.).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir.
18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Um daginn og veginn (Guð-
mundur Jósafatsson frá
Brandsstöðum).
20.20 Ástardúett úr óperunni „Trist
an og Isolde" eftir Wagner
(Frida Leider og Lauritz
Melchior syngja).
20.40 Spuringakeppni skólanem-
enda (10): Hagaskóli og Voga
skóli keppa í þriðju umferð.
Stjórnendur: Árni Böðvars-
son cand. mag. og Margrét
Indriðadóttir.
21.30 Útvarpssagan: „fslenzkur að-
all“ eftir Þórberg Þórðarson
XVI. (Höfundur les). --
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar.
22.20 Hlj ómplötusafnið (Gunnar
Guðmundsson).
23.10 Skákþáttur (Sveinn Kristins-
son).
23.45 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 26. marz
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Þáttur bændavikunnar: Frá
tilraunaráði búfjárræktar,
Flytjendur: Dr. Halldór Páls
son, Ólafur E. Stefánsson,
Pétur Gunnarsson, Páll A,
Pálsson og Jóhannes Eiríks-
son, sem stjórnar umræðum,
14.15 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum" (Sig
ríður Thorlacius),
15.00 Síðdegisútvarp.
18.00 Tónlistartími barnanna (Guð
rún Sveinsdóttir).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir.
18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Söngur í útvarpssal: Nokkrir
nemendur úr söngskóla Vinc-
Erlendsson, Matthías Matthí-
asson, Jóhann Pálsson, Hjálni
ar Kjartansson, Þórunn Ólafs
dóttir og Erlingur Vigfússoa
Við pianóið: Carl Billich.
20.20 Þriðj udagsleikritið -Skolla-
fótur" eftir Sir Arthur Con-
an Doyle og Michael Hard-
wick.
21.00 Tónleikar: Tvð verk eftir
Vlasov (Sinf óníuhlj óms v eit
rússneska útvarpsins leikurj
Alexander Gauk stjórnar).
a) Rapsódía yfir rúmensk
stef. b) Þáttur um slavnesk
stef.
20.15 Erindi á vegum Kvenstúdenta
félags íslands: Aðbúnaður
aldraðs fólks (Ragnhildur
Helgadóttir alþingismaður).
21.40 Tónlistin rekur sögu sína; X,
þáttur: Stærsti sigurinn (Þor
kell Sigurbjörnsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (38).
22.20 Lög unga lólksins (Bergur
Guðnason).
23.10 Dagskrárlok.
ALLTAF FJOLGAR YOLKSWAGEN
«8»
PANTIÐ
TÍMANLEGA
VORIÐ
ER í NÁMD
VOLKSWAGEN ER stTIÐ UNGUR
„BREYTINGAR" ti! þess eins „AÐ BREYTA TIL“
hefir aldrei verið stefna VOLKSWAGEN
og þessvegna getur Volkswagen elzt að árum
en þó haldist í háu endursöluverði. — Engu
að síður er Volkswagen í fremstu röð tækni-
lega, því síðan 1948 hafa ekki færri en 900
gagnlegar endurbætur farið fram á
honum og nú síðast nýtt hitunarkerfi.
■jc Gjörið svo vel að líta inn og
okkur er ánægja að sýna yður
Volkswagen og afgreiða hann
fyrir vorið.
Volkswagen er einmitt framleiddur fyrir yður
HEILDVERZLUNIN HEKLA HF
Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275.
KALLI KUREKI
Teiknari: Fred Haiman
— Þessir kauðar berjast víst ekki — Þú hefðir átt að halda áfram að — Heldurðu að þeir verði hengdir,
meira, en þeir geta heldur ekki geng-
Ið yfir eyðimörkina særðir á öxlinni.
, — Ég skal útbúa siúkrasleða, sem
L hestur getur dregið.
vera prófessor. Þú varst með byssu
og lézt skjóta þig niður með boga.
— Þú ert nú meiri hetjan, sem læt-
ur draug stokkva þér á flótta.
Kalli?
— Kannski ekki, ef Davíð sýslu-
maður hefur lifað af kúlu Bjama. En
þeir verða orðnir gamlir menn, þegar
þeir sleppa úr tugthúsinu í Yuma.