Morgunblaðið - 17.04.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.04.1963, Blaðsíða 20
20 MUKUUIVULAOIO Miðvikudagur 17. apríl 1963 Eitt af því fáa, sem þekkjan- legt var í brunarústum flugvél- arinnar, var lítill tréhestur, um 25 sentimetra langur og skaer- rauður á lit. Lá hann innan um brauðsnefðar, er kastazt höfðu til hliðar út úr brakinu. Var í fyrstu ekki fullvíst hvort ein- hver börn hefðu verið með vél- inni, en seinna kom í Ijós að svo var ekki, heldur er það algengt að leikföng séu geymd í flugvél- um til afnota fyrir börn farþeg- anna. Birti til eftir slysið Eldur logaði í brakinu í um klukkustund eftir að slysið varð. Eftir það steig aðeins reykur upp úr brakinu, og megna eldsneytislykt lagði yfir svæðið. Slysstaðurinn er í réttri fluglínu að Fornebu flugvelli frá Oslóar- firði, og aðeins um 3 kílómetra frá brautarenda. Tíu mínútum áður en slysið varð hafði slyddu- hrið verið á slysstaðnum, en Stéiið á „IIrimfaxa“. Norskur slökkviliðsmaður við brakið úr „Hrímfaxa". — Hrlmfaxi Framhald af bls. 24. 115 hulið eldi. Við hlupum á slys- staðinn. Allt virtist gjörsamlega ^yðilagt. Frú Hassel segir að slys- staðurinn sé rétt við húsa- þyrpingu, og hús hennar að- eins um 300 metra frá brak- inu. „Húsið okkar var í beinni fluglínu vélarinpar, Og á vissan hátt var eins og flugstjórinn beindi vélinni til jarðar til að forðast að lenda á húsunum," segir Mary Hassel. övenju mikill hávaði Annar sjónarvottur, I. Bach, segir -að Hrímfaxi hafi komið mjög bratt niður úr skýjunum. „Engin sprenging varð fyrr en vélin lenti á jörðinni," segir Bach, sem var á göngu rétt hjá slysstaðnum. ',En óvenjumikill hávaði frá hreyflunum orsakaði það að ég leit upp. Broti úr sekúndu seinna sá ég vélina koma niður úr skýjunum. Sýndist mér hún koma nærri lóðrétt niður. Rétt áð- ur en hún lenti á jörðinni Virtist sem flugmaðurinn væri «ð reyna að ná henni út úr hrapinu, því nokkuð dró úr brattanum. En það var of seint. Flugvélin lenti á jörð- inni, og eldtungur og reykský teygðu sig upp fyrir trjátopp- ana.“ stytt hafði upp. En mjög var lágskýjað. Seinna um daginn birti til, og mátti þá sjá farþega- flugvélar á ferð aðeins 100 fet- um fyrir ofan brunnið flakið, og voru þær á leið til lendingar á flugvellinum. Þegar Hrímfaxi fórst, átti hann aðeins eftir einnar mínútu flug til lendingar. Strax var haf- in leit að líkum í rústunum, og fannst það síðasta eftir fimm klukkustunda leit Mörg likanna voru óþekkjanleg, og var rann- sókn á þeim ekki að fullu lokið á þriðjudagskvöld. Telur lög- reglustjórinn í Asker að unnt verði að senda jarðneskar leifar hinna látnu til ættingja einhvern næstu daga. Dönsku blöðin Dönsku síðdegisblöðin, B. T. og Ekstrabladet, skýrðu á mánudag frá slysinu á forsíðum og nánar inni í blöðunum. Bæði birta blöðin í opnu stórar myndir og frásagnir. B. T. rekur nokkuð sögu Flugfélags íslands, sérstak- lega að því er varðar Grænlands flug, og segir að engum sé flug- ið jafn tamt og íslendingum. Um slysið segir B. T. m. a.: Birgir Þorgilsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags ís- lands í Danmörku, mun seint geta glaymt þessum páska- degi. Það varð hans þunga raun, þegar fréttin barst um slysið frá Osló, að láta að- standendur hinna látnu 1 vita um það, þeirra á meðal Poul Reumert. — Ég hef ávallt litið á Poul Reumert sem reglulagt karlmenni, sagði Birgir áður en hann hélt í gærk.völdi flug- leiðis til Osló til að skoða slysstaðinn. Þennan skilning fékk ég að nýju staðfestan þegar hann tók þessum sárs- aukafullu fréttum með jafn mikiíli stillingu og unnt er að krefjast við svo sorglegar kringumstæður. Vélln hvarf í eldhafi Á öðrum stað segir B.T. eftir sjónarvotti: —• Ég heyrði dunur, sagir fröken Bess Castberg, skrif- stofustúlka hjá SAS, en hún býr ’handan við Nesöya. Vélin kom lágt inn yfir eyjun^, en sneri svo skyndilega nefinu til jarðar. Hvarf vélin í eldhafi milli trjánna. Flugumferðarstjóri á Forn- ebu segir blaðinu svo frá: Það hefur ekki orðið flug- slys við Osló síðan 1946. ís- lenzka vélin átti að taka einn farþega hér í Oslo og þrjá í Bergen áður en stefna yrði tekin á Reykjavík. Hvað kom fyrir í FI 221, vitum við ekki. Þetta hefur fengið mjög mik- ið á okkur. Ekstrabladet birtir einnig við- töl við sjónarvotta, m. a. við Josef Eriksen, sem á búgarð um 150 metra frá brekkunni þar sem flugvélin fórst. Eriksen segir svo frá: — Ég stóð við húsið mitt, sem hristist eins og það væri að hrynja þegar flugvélin skall á jörðina. Hlutar úr vél- inni þayttust í loft upp, og ég hljóp að brekkunni, en hörf- aði undan þegar nokkrar sprenginigar urðu. Ég skynj- aði hinn ótlalega harmleik. Ég gat ekkert gert, allir hlutu að vera látnir. Svipað og í Varsjá Seinna segir blaðið: Slysið er hið alvarlegasta, sem komið hef- ur fyrir íslenzka fiugfélagið. Aldrei fyrr hefur félagið orðið fyrir slysi í utanlandsflugi, þótt félagið hafi orðið fyrir skakka- föllum innanlands. Flugvélagerð- in Viscount er að öllu leyti tal- in mjög örugg í rekstri. Samt sem áður varð síðasta Viscount- slysið, þótt einkennilegt megi virðast með líkum hætti og slys- ið á páskadag. Það varð hjá pólska flugfélaginu LOT hinn 19. desember 1962, þegar Vickers Viscount. í aðflugi að flugvellin- um í Varsjá rakst á nokkur Ijós- möstur. 33 manns létu lífið í það skiptið. Sýningu aflýst Blaðið Politiken skýrir frá því í gær að Stefán Jóhann Stefánsson sendiherra hafi heimsótt Poul Reumert á pásk unum til að votta honum sam úð sína. Reumert átti á mánu dag að leika hlutverk Levins gamla í leikritinu „Indenfor murene" eftir Henri Nathan- xSen í 200. sinn móti Clara Pontoppidan. Leiksýningunni var aflýst. _ 1 leiðara segir Politiken að slysið við Oslo sé á ýmsan hátt líkt slysi, sem varð á Kastrup flugvelli við Kaupmannahöfn fyrir páska, þegar flugvél frá Sterlimg Airways skemmdist mikið í lendingu og þrír af á- ’höfninni möiddust. Eitt er sam- eiginlegt með þessum slysum, segir Politiken, sem þrátt fyrir allar framfarir í flugi verður að taka tillit' til, en það er hættan á röngu mati eða mælaskekkju varðandi lendingarhraða flúg- vélarinnar. — Leiðarahöfundur Politiken bendir einnig á að aukinn hraði þotualdarinnar 'krefjist aukinna öryggisráðstaf- ana. Flugið er nauðsyn í Kristeligt daigblad ritar Bent A. Koch ritstjóri grein um slysið. Hann segir m. a.: í fimmtán ár hefur ekkert slys hent Flugfélag Islands. Viss metnaður var tengd ur þessu flugfélagi, sem, eins og 'hitt íslenzka flugfélagið, Loft- 'leiðir, var þekkt fyrir óvenju færa flugmenn og mjög fá slys. Eins og íslenzku þjóðinni hafa frá alda öðli verið siglingar nauð synlegar, er henni nú flugið nauðsynlegt. Og hún hefur snúið sér að því með dugnaði og í stærra mæli tiltölulega en nokk- ur önnur þjóð. Þessvegna hljóta Tréhesturinn hangir I rjóðrinu. áhrif fluigslyssins að vera enn sárari á íslandi. Þeim hefur verið nauðsyn- legt að fljúga — já og er, Lífið verður að halda áfram, og mun gera það. En í augum margra Dana og enn fleiri ís- lendinga mun hvíla langur, svartur skuggi yfir páskadeg- inum 1963. — Askenazy Framh. af bls. 2 ráðuneytisins skýrði frá þessu og bætti við: „Samkvæmt venju felur það einnig í sér landvistar- leyfi fyrir Askenazy.“ Talsmaður innanríkisráðuneyt isins sagði, að Askenazy, kona hans og sonur þeirra, byggju nú í London, emheimilisfangi þeirra væri haldið leyndu. Askenazy er þekktastur á Vesturlöndum fyrir frábæra túlk un á verkum Chopins, Liszts, ’Rachmaninovs og Prokofievs, Hann er þriðji mikilhæifi lista- maðurinn frá kommúnis^aríkjun um, sem sÍ5tt hefur um hæli í 'Bretlandi frá 1958. Hinir eru ungi kínverski píanósnillingur- inn, Fou Tsong, sem flýði til London frá Varsjá 1958 og eina aðaldansari Leningradballettsins, Rudolf Nureyev, sem yfirgaf ballettinn í París 1961, en kom síðan til London og dansar nú við konunglega ballettinn í borg- inni. Kona Askenazys heitir Dodi« (Þórunn) Tryggvason. Þau kynnt ust í Moskvu þegar þau tóku bæði þátt í alþjóðlegri Tschaik- Ovsky-samkeppni. Skömmu síð- ar, T960, fór Þórunn aftur til Moskvu til náms í píanóleik við tónlistarskóla borgarinnar, ea þar voru þau Askenazy skóla- systkin. Sonur þeirra Þórunnar og Askenazys er nú eins árs. Hann heitir Vladimir 1 höfuðið á föð- ur sínum. Askenazy hlaut fyrstu verð- laun í alþjóðlegri Tschaikovsky- samkeppni í Moskvu í maí sL ásamt Bretanum John Ogdon. 1959 hlaut hann önnur verð- laun í Chopin-samkeppni í Var- sjá og 1960 einnig önnur verð- laun í slíkri samkeppni, sem þá var haldin í Brússel. Askenazy kom til Bretlanda 3. marz sl. til þess að halda 'hljómleika í Albert Hall og Royal Festival Hall í London. í byrjun apríl lék hann með á- ’hugamannahljómsveit í Muswell Hill undir stjórn tengdaföður síns, Jóhanns Tgyggvasonar, i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.