Morgunblaðið - 19.04.1963, Síða 10
10
M OJt C V /V B L 4 Ð 1 Ð
Föstudagur 19. apríl 1963
PETUR OTTESEM SKRIFAR UM:
FÖR TIL LOFOTEN
Með Rögnvaldi jarli...
SIGLINGAR til hinna norð-
lægari byggða á vesturströnd
Noregs hefjast í Bergen. Sigl-
ingin frá Bergen til nyrztu
byggðar Noregs, Kirkenes, er
um 2000 km. Hún liggur um
8 fylki, og býr um hálf milljón
manna á þessari strandlengju.
Með þessari strandlengju allri
streymir kvísl af Golfstraumn
um og ver fyrir ísalögum og
gætir áhrifa Golfstraumsins
um 100 mílur norður fyrir
heimsikautsbaug. Daglegar
ferðir eru á þessari löngu
siglingaleið, og eru þar 14
skip í förum, hvert um sig
um og yfir 2000 smálestir, og
að útgerð þeirra standa 5 stór
útgerðarfélög.
Þessi 14 skip, sem ganga
milli Bergen og Kirkenes,
sigla samanlagt um 1,5 piillj.
km. yfir árið eða sem svarar
36 sinnum kringum jörðina.
Þessar samgöngur eru líf-
æð hinna dreifðu byggða,
enda fögnuður mikill við
komu skipanna, og flykkist
fólkið að, þar sem þau stinga
stafni við. Það eru 60 ár, síðan
ferðunum var komið í þetta
horf, og sá dagur, þegar þetta
gerðist var lengi kallaður 17.
maí Norðlendinga.
Leið okkar norður í Lófóten
er um 2/3 af þeirri vegalengd,
sem hér er lýst. Skipið sem
við tókum okkur far með frá
Bergen norður á bóginn, heit-
ir Rögnvaldur jarl. Það er
2200 smál. að stærð, og er
gánghraði þess 16 mílur á
vöku. Það er hið prýðilegasta
farþegaskip. Flæmstórir sal-
ir eru til afnota fyrir farþeg-
anna, alsettir hægindastólum,
og enn aðrir salir, þar sem
bornar eru krásir á' borð af
skipsjómfrúm, og var sveit
þeirra allfjölmenn. Svenher-
bergi í skipinu eru að vísu
alllítil og þröng, en öllu er
þar vel fyrir komið og hver
ferþumlungur notaður af
hagsýni. Svefnrúm eru góð.
Fyrsta og annað farrými er á
skipinu, en lítill munur er á
þeim gerandi.
Á fyrsta farrými hangir
uppi á þili fagurlega inn-
rammað lesmál varðandi
nafn skipsins, er meginefni
þess á þessa leið:
„Haraldur hárfagri lagði
undir sig allan Noreg á ár-
unum 860—932. Er hann fór
herferð um Mæri, gekk mikill
höfðingi þar, Rögnvaldur að
nafni, konungi á hönd án
andstöðu. Þetta launaði kon-
ungur með því að gera Rögn-
vald að jarli yfir Mæri. Skyldi
hann koma á friði og reglu í
héraðinu og halda þar uppi
II. grein
lögum og rétti. Á þéim árum,
sem Haraldur háði landvinn-
ingastríð sitt, bað hann ungr-
ar og fríðrar smákonungs-
dóttur sér til konu. En hún
veitti kóngi það stórmannlega
svar, að þá fyrst gæti til slíks
ráðahags komið, að Haraldur
hefði lagt undir sig allan
Noreg. Orð hinnar ungu og
fallegu stúlku juku á metnað
konungs til landvinninga, og
Bændahöllin í Bergen
hann steig á stokk og strengdi
þess heit að kemba hvorki né
skera hár sitt, fyrr en hann
væri orðinn einvaldskonungur
yfir öflum Noregi. Liðu svo
10 ár. En að þeim loknum
hafði Haraldur náð settu
marki. Þá vann hann loka-
sigurinn með Hafursfjarðar-
út og árið inn siglir skipi
sínu heilu í höfn á þessari
leið. Það virðist alls staðar
vera aðdjúpt í þessum eyja-
og skerjgkla^a, ella væri
þess enginn kostur að kpm-
ast þar leiðar sinnar. Það er
að sjá, að það sé nokkur byggð
í eyjum þarna, þó manni
sýnist, að þar sé víðast fárra
landkosta völ. En máske er
þarna sums staðar nokkurt
sjávargagn. En eins og trén
virðast víða í Noregi vaxa upp
Þar er einnig líkneski af
Vilhjálmi II Þýzkalandskeis-
ara, sem sýndi bæjarbúum
mikla hjálpsemi þegar stór-
bruni varð í Álasundi 1904.
Nú hefir nýlega verið
bygður flugvöllur í Álasundi,
en hann er á eyju, sem er í
nokkurri fjarlægð frá bæn-
um, og heldur stór yfir-
byggð ferja uppi stöðugum
ferðum mili lands og eyjar.
Annar staður fyrir flugvöll
var ekki til í námunda við
orrustu. Að lokinni þessari
orrustu gisti konungur hjá
Rögnvaldi jarli, og bað hann
jarlinn að skera hár sitt og
gerði hann það og gaf hann
konungi heitið „hinn hár-
fagri.“ Var þá skammt að
bíða kvonfangsins.
Frá Rögnvaldi jarli er kom-
inn Göngu-Iírólfur og margt
annað stórmenni í Noregi.“
Skipið lét úr höfn í Berg-
en nokkru fyrir miðnætti.
Hófst þá hin sérstæða og stór
fenglega strandsigling, sem
talin er af fjölfróðum mönn-
um, sem siglt hafa um öll
heimsins höf og meðfram
ströndum margra heimsálfa,
að eigi sér engan líka hvar
sem borið er niður.
Ekkert meginland er jafn-
vel varið fyrir hamförum út-
hafsins og vesturströnd Nor-
egs. Skerjagarðurinn er víða
mjög breiður. Fyrir stafni eru
jafnan endalausar breiður af
eyjum, hólmum og skerjum.
Þeim sem stendur í þilfari á
Kristiandssund
Dómkirkjan í Þrándheimi
þessari siglingaieið, er það
hreinasta ráðgáta, hvernig
takast meéi að komast út úr
þessu völundarhúsi. Alltaf er
land fyrir stafni og engu lík-
ara en á hýerri stundu megi
búast við því, að skipinu verði
siglt upp á þurrt land. En
þegar verst virðist gegna,
opnast allt í einu sund, oft ör
mjótt, svo kasta rnætti steini
í land, og inn í þetta sund er
ferð skipsins beint, og leikni
þeirra, sem skipinu stýra, að
þræða þessa krákustíga, er
svo mikil, að ekki er dregið
úr ferðinni. Það er aðeins þar,
sem þrengslin eru allra mest
og snarbeygja verður skipinu,
að maður verður þess var, að
ögn er dregið úr skriðnum.
Á allri þessari löngu leið
norður í Lófóten er aðeins á
þremur stöðum siglt fyrir
opnu hafi, en ekki nema
stiitta stund hvert sinn. Fyrst
í stað verður þeim, sem þetta
ber fyrir augu í fyrsta sinn,
harla starsýnt á þetta ferða-
lag, en þegar siglingin hefur
tekið nokkra daga og ekkert
skeður, fær þetta á sig snið
hversdagslegra viðburða, sem
enga undrun vekja. En það er
manni ljóst fyrr og síðar.^að
mikla siglingasnilli þarf sá
að hafa til að bera, sem árið
úr berri klöppinni er því lík-
ast, að nægjusemi fólksins
geri sér að góðu, þótt fátt sé
til fanga.
ÁLASUND.
Með morgunsárinu komum
við til Álasunds. Lítið hafði
verið um viðkomur um nótt-
ina, enda á þeirri leið fátt
fjölbyggðra staða.
Á hafsvæðinu milli Bergen
og Álasunds eru einhver stór-
gjöfulustu síldarmið við Nor-
egsstrendur, enda er Álasund
mikill síldarbær, þegar vel
lætur í ári í þeim efnum.
Álasund er reist á þremur
eyjum, sem teygja sig eins og
tunga til hafs og er byggðin
þéttust á tveimur þeirra. Ála-
sund er með yngri bæjum
Noregs. Fyrir nokkru var
minnzt aldarafmælis staðarins.
Bærinn er fjórði í röðinni um
fólksfjölda, en þar eru 25 þús-
und íbúar. Álasund er ein-
hver stærsti útgerðarbær í
Noregi. Auk síld- og þorsk-
veiða heima fyrir er þar mikil
útgerð á fjarlæg mið, við
Grænland, ísland, og úthafs-
veiðar eru þaðan mikið stund
aðar, selveiðar í íshafinu og
hvalveiðar. Á síldveiðar hafa
oft verið gerðir út þaðan um
500 snurpunótabátar og 2000
reknetabátar og er áhöfn
þessa flota um 25 þús. manns.
Á beztu síldaraflaárunum
eftir stríð komst síldaraflinn
þar upp í 10 millj. hl. og hrá-
efnisverðmætið í 160 millj.
norskra króna.
Árið 1951 var flutt út frá
Álasundi 16% af öllum fiskút
flutningi Noregs það ár, en
hlutur Álasunds er um 150
millj. norskra króna.
í Álasundi er mikil og marg
háttuð iðnaðarframleiðsla. þar
er mjög stórt mjólkurbú, og
er meira flutt út þaðan af osti
og smjöri en frá nokkrum
öðrum stað í Noregi.
Uppi á fjalli, sem gnæfir
yfir bænum, er hin dýrðleg-
asta útsýn bæði til hafs og
fram til fjalla. Er þar uppi
skemmtistaður mikill, og svip-
ar þessu mikið til þess sem
áður er frá skýrt um Bergen.
í skemmtigarði undir axlar
hyrnu þeirri, er fyrr getur,
er stórt líkneski af Göngu-
Hrólfi, syni Rögnvalds jarls
af MærL
Álasund, svo sem landslagi
jei þar háttað.
Við áttum tal við íslenzka
konsúlinn í Álasundi, Óskar
Larsen, útgerðarmann. Hon-
um var mikið áhyggjuefni hið
mikla fiskileysi, sem nú er
hvarvetna við strendur Nor-
egs. Óskar Larsen er maður
gjörfulegur að vallarsýn.
Hann er hinn mesti dugnaðar
og athafnamaður 'í sínum
verkahring. Á ísland góðan
fulltrúa, þar sem hann er.
Þetta er nú bara byrjun
á hinni löngu siglingarleið til
Lófóten, því æðiskammt er
komið áleiðis, þótt þessum
fyrsta áfanga sé náð.
Skipið heldur ferðinni á-
fram og hefir hvarvetna
hraðan á.
MOLDE.
Næsti viðkomustaður er
bærinn Molde með 7000 íbú-
um. Hann fékk kaupstaðar-
réttindi 1742. Langt er héðan
til sjósóknar og sækja bæjar-
búar vöxt bæjarins og þroska
því aðallega í aðrar lindir.
Þar er mikill iðnaður og
vaxandi, og að baki staðar-
ins eru mikil og góð sveita-
héruð, sem reka verzlun sína
og viðskipti. Þar fara 20 til
30 stórir fölksflutningabílar
um sveitirnar og flytja dag-
lega í bæinn um 1000 manns,
sem reka þar verzlunarerindi
sín, svo þar er fjörugt við-
skiptalíf og vöruframboð
mikið í fallegum búðum með
fjölbreyttri vöruskreytingu í
gluggum.
Molde galt, eins og fleiri
bæir norður þar, mikið af-
hroð í tríðinu. 200 hús í aðal-
hluta bæjarins voru gereyði-
dögð, þar á meðal landsþekkt
hótel, því mikill ferðamanna
straumur er um bæ þennan.
Átta hundruð manns höfðu
ekki þak yfir höfuð sér eftir
loftárás þessa. Búið er að
bæta tjón þetta. Upp eru ris-
ih stærri og traustari hús en
áður voru þar, við breiðar
götur og torg. Hið nýja hótel,
sem reist hefir verið á grunni
hins, laðar gestina úr öllum
áttum til sín. A
Norðurbyggjarar landsins
eru engir eftirbátar annarra
á framfarabrautinni og þeir
gera sér þess fulla grein eigi
Framhald á bls.