Morgunblaðið - 20.04.1963, Síða 6

Morgunblaðið - 20.04.1963, Síða 6
6 MORCVNBLABtD Latigaráí:2ur ?0 apríl 1963. Skilyrðislaus aðild kemur ekki til greina. Loks tók ég svo til orða i ára- mótagrein í Morgunblaðinu 31. desember 1961: „Efnahagsbandalag Evrópu er í örri uppbyggingu. Fleiri og fleiri þjóðir sækjast eftir aðild í því, annað hvort sem fullgildir félagar eða aukaaðilar. Ef úr aðild allra þeirra verður, sem nú hugleiða hana, er ótvírætt, að Islendingum skapast mikill vandi. Innan bandalagsins myndast þá markaður, sem íslandi er höfuð- nauðsyn að útilokast ekki frá. Jafnframt er alveg ljóst, að full, skilyrðislaus aðild íslands kemur ekki til greina. Munur á mannmergð og ailri aðstóðu er slíkur, að íslendingar geta ekki undirgengizt að láta öðrum í té þau réttindi, sem fullri, skilyrðis- liausri aðild eru samfara. Því meira ríður á, að rétt sé með farið. Á þessu stigi hljótum við að fylgjast náið með því, sem gerist innan bandalagsins sjáifs og í samningum þess við þá, sem nú æskja aðildar. Jafnframt verð um við að kynna öðrum afstöðu okkar, annars vegar þorf á eðli- legu samstarfi og þvi að atilok- ast ekki frá nauðsyniegum mörkuðum, og hms vegar, að þessu fylgi engir þeir kostir, sem skaðlausir eru fyrir stærri og öflugri þjóðir, en rnundu verða afarkostir fyrir okkar fá- mennu þjóð, sem enn er að mestu háð harla óvissum fiski- miðum umhverfis landið“. Þessar tilvitnanir sýna, að rík- isstjómin hefur frá upphafi fylgt í þessu vandasama máli stefnu fyrirhyggju og varúðar. Málið liggur nú ekki fyrir 1 þeirri mynd, sem ráð hafði verið fyrir gert. Um lausn vandans verður ekki dæmt fyrr en sést hvort hann skapast og þá hvers eðlis hann verður. Ef víðtæk efna- hagsbandalög myndast, má svo fara, að ákvarðamr þeirra ráði úrslitum um okkar hag, svo smá- ir sem við erum, jafnt, hvort sem við verðum aðili eða ekki. Kynni þá að vera eina ráðið til þess að hagsmunir okkar verði ekki þver- brotnir, að við tengjumst þess- um samtökum með einhverjum hætti, en þá má aldrei láta af þeirri varúð, sem við Sjálfstæð- ismenn höfum viljað gæta gegn Efnahagsbandalagi Evrópu og c g hefi hér að framan rifjað upp. Afsal lands eða landhelgi kemur ekki til mála. Hér er um þvílíka lífshagsmuni íslenzku þjóðarinnar að tefia, að þá má aldrei gera að leiksoppi. Sízt af öllu villa um fyrir mönn- um mðð því að búa til deilur út af því, sem a.m.k. allir lýðræð- issinnar eru sammála um í meg- inatriðum. Hvað þá að skrökva því upp, að til standi að afsala rétti yfir landi eða landhe.gi. Og er þá ónedtanlega ólíklega til log- ið, þegar lótið er í það skína, að ríkisstjómin hafi í hyggju að gera sinn mikla sigur í landhelg- isdeilunni að engu með því að veita erlendum þjóðum veiðirétt- indi innan fiskveiðilögsögunnar eftir að fullar sættir hafa náðst við Breta með endalegri viður- kenningu þeirra á 12 mílum og okkar nýju ómetanlegu grunn- línum. í>eir, sem slíkar sögur semja, sanna einungis, að þeir óttasí um ræður um hin raunverulegu úr- lausnarefni, og viðurkenna þar með, að ríkisstjóminni hefur tekizt svo vel í gerðum sínum, að þeir vilja umfram allt hindra, að kjósendur kveði upp sinn dom á þeim grundvelli. Þess vegna er þrautaráðið að gera okkur upp vondan viija, sem er í algerri andstóðu við allar okkar athafnir og það, er á unnizt hefur íslenzkri þjóð til heilla eftir að viðreisnin hófst. Ingi R. skákmeisfari íslands 7963 — Ræða Bjarna Framhald af bls. 5 með öllu er óvíst til hverra það nær og hversu víðtækt það kann að verða, er þýðingarlaust að tala um einstök efnisatriði, hvað þá form. En meginstefnan er ljós, það er sama stefnan, sem við höfum frá upphafi fylgt gagn vart Efnahagsbandalaginu. Ég skal því rekja hana nokkuð, og því fremur, s«n andstæðingar okkar hafa þar mjög hallað réttu máli. >ví erum við raunar svo vanir, að ég mundi láta mér það 1 léttu rúmi liggja, en um leið og ég hrek ásakanir þeirra geri ég samtímis grein fyrir fram- tíðarstefnu okkar, hvenær sem á reynir. Eftir að Bretar höfðu sótt um aðild að Efnahagsbandalaginu, var það almenn skoðun seinni hluta sumars 1961, að öll eða nær öll Evrópuríki vestan járn- tjalds myndu með einum eða öðr um hætti reyna að tengjast þessu bandalagi og öruggasta leiðin til þess að ná hagkvæmum samn- ingum við það væri að sækja um aðild. Með öðrum hætti yrði ekki kannað til . hlítar, hvaða kostir væru í boði, enda væri hægurinn hjá að leita lausari tengsla eða hætta samningsgerð, ef aðgengileg kjör fengjust ekki. Vildu kanna skilyrðin. Þessi skoðun kom fram hjá samtökum allra meginatvinnu- vega íslendinga, sem ríkisstjórn- in leitaði álits hjá sumarið 1961 nema Alþýðusambandi Islands. Það eitt lagðist gegn þvf, að við sæktum um aðild. Hin öll, þar á meðal Samband fsl. samvinnu- félaga og bændasamtökin voru hlynnt því, að við legðum fljót- lega fram inntökubeiðni f Efna- hagsbandalagið. Undir þessa skoðun tók Morgunblaðið hinn 19. ágúst 1961, og sagði hana rétta, „.... einkum þegar það er haft í huga, að við getum á hvaða stigi sem er hætt samn- ingaumræðumUm þetta meginatriði þegja Framsóknar- menn, þegar þeir vitna í þessa Morgunblaðsgrein. Þessi skoðun sem flestir aðrir en kommúnist- ar höfðu þá, var skýrt orðuð í samþykkt, sem gerð var á þingi ungra Sjálfstæðismanna, sem haldið var á Akureyri fyrri hluta september 1961. Samþykkt hinna ungu manna hljóðar svo: „Þingið telur rétt, að ísland sæki um upptöku í Efnahags- bandalag Evrópu, svo að unnt sé að fá sem gleggstar upplýs- ingar og viðræður um réttindi og skyldur vegna slíkrar upp- töku. Síðan skuli metið, hvort æskilegt sé að óska aðildar að þessu bandalagL" Rétt eftir að þessi samþykkt var gerð, eða um miðjan sept. 1961, tók ég við 'störfum for- sætisráðherra og gegndi þeim f forföllum Ólafs Thors til ársloka. A þessu tímabili gafst mér nokkr um sinnum færi á að ræða um afstöðu Islands til Efnahags- bandalagsins opinberlega og setti þar fram skoðun rfkisstjórnar- innar á málinu, sem Sjálfstæð- isflokkurinn hefur óhikað fylgt. Það fyrsta, sem ég sagði um þessi efni var við norskan blaðamann, er talaði við mig hinn 20. sept. 1961. Samtal þetta birtist m.a. í Sunnmörsposten í Álasundi 26. september, þ. e. tveimur dögum áður en samráðherrar mínir áttu viðtölin í Bonn, sem stjórnar- andstæðingar hafa hér á Alþingi fullyrt að gerbreytt hafi afstöðu ríkisstjórnarinnar til þessa máls, og geta ummæli mín með engu móti verið tilorðin vegna áhrifa af þeim samtölum, sem síðar fóru fram. Sunnmörsposten hef- ur þetta eftir mér m.a.: Eng’inn getur sagt skilyrðislaust já. „ísland hefur enn ekki gert sér ljóst, hverja afstöðu við eig- um að taka til Efnahagsbanda- lagsins. En mikill áhugi er fyrir málinu, bæði meðal stjórnmála- manna og almennings. Greini- legt er, að margir erfiðleikar eru á því fyrir okkur að ganga í bandalagið eftir því sem málin liggja nú fyrir. En það eru einn- ig miklir erfiðleikar á því að vera utan við.------— Þetta er ein af viðurhlutamestu ákvörðunum, sem ísland hefur þurft að taka lengi. En við er- um ekki komnir svo langt að við getum sagt hver úrslitin verða að lokum. — — — Enn hafa hvorki flokkarnir" — (nema kommúnistar) „— né rík- isstjórnin myndað sér neina skoðun um hvernig við eigum að meta málið.--------- Fyrir Noreg er erfitt að taka ákvörðun um aðild að Efnahags- bandalaginu, það skiljum við. En það er ennþá erfiðara fyrir ís- land.--------Noregur hefur náð miklu lengra í uppbyggingu at- vinnu og efnahagslífs. Það er erfiðara fyrir okkur, sem ekki erum komnir jafn langt. --------Ég vil ekki segja neitt jákvætt, hvorki með eða á móti aðild að Efnahagsbandlaginu. — — Hefur hlutleysið, hreint pólitískt, nokkra þýðingu? spyr blaðamaðurinn. — Það hefur hvergi nærri sömu þýðingu eins og í Svíþjóð. Það eru önnur atriði sem munu vega þungt, t. d. rétturinn til at- vinnurekstrar. Á íslandi geta lif að miklu fleiri menn en nú. Frjáls vinnumarkaður í svo litlu landi sem íslandi er ekki jafn einfaldur eins og f landi, sem þegar áður hefur náð langt i iðnvæðingu. — Hinn mikli fiskútflutning- ur frá íslandi mun sennilega hafa mikla þýðingu, þegar þið takið afstöðu? spyr blaðamaður- inn. — Já, ef Ísland yrði útilokað frá hinum stóru mörkuðum í Efnahagsbandalagslöndunum mundi það verða alvarlegt áfall fyrir landið. Við höfum haft sterkast viðskiptasamband við löndin í Vestur-Evrópu, svo verð ur og sennilega í framtíðinni. --------Við seljum einnig til Sovét og annarra landa í austri. — — — Enginn getur sagt skilyrðislaust já við Efnahags- bandalaginu í dag.--------“ Mikill vandi á höndum. Nokkrum dögum eftir að ég átti þetta blaðaviðtal vék ég að sama efni í ræðu, sem ég hélt hinn 24. september á samkomu í hátíðasal Óslóarháskóla og sagði m.a.: „Enn í dag hefur fordæmi ykk ar ómetanlega þýðingu fyrir okk ur. Aðild Noregs að Atlantshafs- bandalaginu hafði úrslitaáhrif á íslandi. Eins kann að verða um þau miklu efnahagssamtök, sem nú er verið að efna til. Er ljóst, að gallamir við frjálsan vinnu- markað og rétt til stofnunar og rekstrar atvinnutækja eru því meiri, sem þjóðin er minni og land hennar minna nýtL En hætt an á einangrun ef til vill einn- ig meiri. í þessum efnum er bæði Noregi og Islandi mikill vandi á höndum. Islendingar hafa þess vegna ríkan áhuga fyr ir nánu samráði við Norðmenn um lausn þessa vanda." Raunar hafði ég fyrr í þessu erindi vikið að ýmsum þeim atr- iðum, sem úrslitaþýðingu hafa um afstöðu okkar til Efnahags- bandalagsins. T. d. spurði ég: „Getur svo fámenn þjóð hag- nýtt svo stórt og erfitt land þannig, að það verði henni ekki ofviða? Og þá ekki síður: Get- ur svo fámenn þjóð haldið sinni eigin menningu, byggt upp nú- tímaþjóðfélag og haft sitt eigið ríki með öllum þeim kvöðum og skyldum er slíku fylgja? Um þetta er það eitt að segja, að okkur kemur ekki annað til hugar en að gera það. Við segj- um, eins og Lúther forðum: „Hér stend ég, ég get ekki annað.“ Ekki nýjar ríkisheildir. Síðar held ég áfram og segi: „—- —■ — meirihluti íslenzku þjóðarinnar veit, að hún lifir ekki ein í heiminum og verður að taka þátt i þeim alþjóðasam- tökum, sem nútíminn krefst. Öll vitum við, að þröunin sæk ir í þá átt, að stærri og stærri samtök ríkja myndist. Án slíkra samtaka verða möguleikar tækn innar ekki nýttir, enda krefst afnám fjarlægðanna nánara sam starfs en nokkru sinni fyrr. Sam tínrtís því, að þessi nauðsyn verð- ur æ augljósari, fer fram splundr un gamalla ríkisheilda, því að hver þjóð fyrir sig vill ráða sín- um örlögum. Saga íslands og raunar einnig Noregs er dæmi þessarar þróunar. Þarna sýnist hvort stríða á móti öðru. Þegar betur er skoðað eru and stæðurnar ekki eins miklar og í fljótu bragði virðist. Samstarf frjálsra manna hvílir á því, að það sé í raun og veru frjálsir menn, sem ákvarðanirnar taka. Skilyrði þess samstarfs, sem nú stefnir að, er, að hver þjóð hafi frelsi til ákvörðunar um, hvort hún tekur þátt í því eða ekki. Það tjáir ekki að beita kúgun, heldur verður frjáls ákvörðun hvers um sig til að koma. A- kvörðun, sem byggist á því, að eigin hagur, ásamt réttmætu til- liti til annarra, ráði því, sem gert er. Sumir tala um nauðsyn þess að mynda nýjar stórar ríkisheild ir. En aílt slíkt, sem hefur þving un I sér fólgna, er orðið úrelt, heyrir til liðinni tíð. Sannmæli er það, sem ég heyrði banda- rískan fræðimann, sem sennilega er betur en nokkur annar að sér um þýðingu þjóðernis fyrir fram vindu síðustu alda, segja á al- þjóðafundi í fyrra: „Hugsið ekki um nýjar ríkis- heildir, lítið til Norðurlandanna og lærið, hvernig þjóðir geta unnið saman“.“ Án ákvæða. sem hér geta ekki átt við. Ég vek enn athygli á því, að allt var þetta sagt áður en við- ræðurnar í Bonn áttu sér stað hinn 28. september 1961. Eru því staðlausir stafir fullyrðingar hátt virtra stjórnarandstæðinga hér á Alþingi um, að íslenzka ríkis- stjórnin hafi fyrst eftir þær við- ræður horfið frá því að þvinga ísland inn í þá ríkisheild, sem þeir segja Efnahagsbandalagið vera. Allt, sem ég sagði síðar í málinu var í fullu samræmi við þéssar fyrstu yfirlýsingar mín- ar og get ég því farið fljótar yfir það og einungis minnt á niður- stöðurnar. Á landsfundi Siálfstæðisflokks ins 1961 komst ég 19. okt. m.a. svo að orði: „Af þeim sökum getur skil- yrðislaus aðild íslands að þessu bandalagi ekki komið til mála. Og hætt er við að skilyrðin verði svo mörg og skapi slík fordæmi, að aðrir aðilar eigi erfitt með að una þeim.“ Ályktun sú, sem landsfund- urinn gerði um þetta mál, er mjög í samræmi við það, sem sagt var í ræðu minni og er ályktunin á þessa leið: „Þjóðir Vestur-Evrópu, sem íslendingar hafa frá fornu fari haft mest og bezt viðskipti við, efla nú mjög samvinnu sína í efnahagsmálum, og er íslandi brýn nauðsyn á að slitna ekki úr tengslum við þá þróun. Þess vegna ber að leitast við að tryggja aðild okkar að Efnahags bandalagi Evrópu, án þess að undirgangast samningsákvæði, sem hér geta með engu móti átt við.“ Sama skoðun kom enn fram í ræðu, sem ég hélt á samkomu stúdenta í 'Háskólanum hinn 1. desember sama ár. Þá sagði ég m.a.: „Með þessu er ekki sagt að við eigum ekki að taka þátt í efnahagssamstarfi nágranna okk ar og vina. En við getum því aðeins gert það, að tekið sé rétt- mætt tillit til okkar óumdeilan- legu sérstöðu og sérþarfa.*' SKÁKÞINGI Islands lauk um sl. •helgi og varð Ingi R. Jóhanns- son skákmeistari Islands. Hann sigraði í landsliðsflokki hlaut 9 vinninga af 11 mögulegum. Úr- slit í einstökum flokkum mótsins urðu þessi: Landsliðsflokkur Ingi R. Jóhannsson 9 v. Jón Kristinssón 8% v. Magnús Sólmundar 7 v. 4—6 Freysteinn Þorbergsson, Benoný Benónýsson og Jónas Þor valdsson með 6 vinninga. Þeir 3 verða að tefla um 4. sætið því það veitir rétt til áframhaldandi veru í landsliðsflokki. Fer sú keppni fram væntanlega á Siglufirði í sumar. Meistaraflokkur Gisli Pétursson og Hilmar Viggósson 6Vi vinning hvor. Flytj ast þeir báðir upp í landsliðs- flokk. 3. Benedikt Halldórsson 6 vinninga, 4—6 Haukur Angan- týsson, Magnús Gunnarsson og Bjöm V. Þórðarson 514 vinning hver. í höfnina RÚMLEGA sextugur maður kast aði sér í sjóinn af Battaríisgarði um kl. hálfsex á þriðjudag eftir páska. Honum var bjargað í land, en var þá meðvitundarlaus. Hann var síðan fluttur í Slysa- varðstofuna, þar sem tókst að koma honum til meðvitundar með súrefnisgjöif. — Maðurinn var ódrukkinn. Á skírdagskvöld féll ölvaður maður í sjóinn af togarabryggj- unni. Skipverjar um borð í bv. Aski björguðu honum, og mun honum hcifa orðið lítið meint af volkinu. 1. —2. flokkur 1. Ólafur Bjömsson 514 vinn- ing af 7 mögulegum. 2. Sævar Einarsson 5. 2. flokkur 1. Andrés Fjeldsted og Helgi Hauksson 414 vinning hvor. Unglingaflokkur 1. Jón Briem 614 af 7 mögu- legum. 2. Guðjón Magnússon 5 vinninga. 3. Garðar Sigurðsson 414 vinning. Árekstur á Akranesi AKRANESI, 16. aprfl. í DAG varð árekstur á mótum Vitateigs og Vesturgötu. Gunnar H. Bjarnason, sem heima á á Vesturgötu 111, kom akandi á Opel Caravan sínum, E 376, vest- ur Vitateig i dag milli kl. 3 og 4. í því kom Ford vörubifreið Sigurðar Hallbjamarsonar h.f. niður Vesturgötu. Laust þeim óþyrmilega saman. Fordbilinn sakaði ekki, en höggvörn og aur- bretti á Opelnum skemmdust. Enginn meiddisL — Oddur. Afli top;ara góður, MIKIL vinna er nú við togara- uppskipun og fiskvinnu bæði i Reykjavík og Hafnarfirði, en vegna manneklu koma togararn- ir sjaldnar inn en ella. Á II. í páskum kom b.v. Geir til Reykjavikur með 240 tomn frá miðum við A-Graenland, mest megni3 karfa. Bv Þormóð- ur goði kom á þriðjudag með 230 tonn og pv Júpíter með full- fermi, 250 tonn, aðallega karfa og þorsk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.