Morgunblaðið - 20.04.1963, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.04.1963, Qupperneq 9
IjátSg'i! dojíur £0. aprll 1963. M O R CV N R L 4 fí I » 9 Friðhelgi heimilanna nauðsyn krefur. Atvinnulíf landsmanna er í meiri blóma en lengi hefir þekkst. Stofn- lánasjóðir atvinnuveganna í mikilvægri eflingu. Sparifjár- söfnun landsmanna meiri en nokkru sinni áður — og með henni lagður grundvöllur að vaxandi velmegun og öryggi í frair.tíðinni í auknum íbúða- iánum, lánum til raforkufram- kvæmda og hitaveitufram- kvæmda og annarra uppbygg ingar. Endurvakið er fjár- málatraust þjóðarinnar út á við og tekist hefir í fyrsta sinn frá stríðslokum að ná greiðslujöfnuði við útiönd. Eitt af því, sem menn í dag komast þó ekki hjá að hafa á- Ihyggjur af, er það, hvort við höfum nógu margar hendur til þess að vir>na þau mörgu verk og framkvæmdir, sem allsstaðar eru á prjónunum. Okkar fá- mennu þjóð skortir vinnuafl. Kjósendur eiga valið og vald- ið á kjördegi. Við Sjálfstæðis- menn leggjum aðgerðirnar ör- uggir undir dóm þjóðarinnar. — Rœða Ingólfs Eramhald bls. 7. fé til vegaframkvæmda. Ríkis- stjórnin vinnur að því að svo megi verða. Milliþinganefnd vinnur að endurskoðun vega- laganna og má gera ráð fyrir að þeirri endurskoðun ljúki í sum- ar, þannig að leggja megi fram frumvarp til nýrra vegalaga á næsta hausti. Þegar Framsóknar- menn og Kommúnistar ræða um íamdrátt í framkvæmdum, þí eiga þeir erfitt með að finna orðum sínum stað. Sannleikurinn er að aldrei hafa framkvæmdir verið meiri í landinu heldur en nú. Aldrei hefur atvinna verið betri heldur en nú er, og horfur eru á að svo geti orðið áfram. Rafvæðingu landsins miðar vel áfram. 10 ára áætluninni mun verða lokið á næsta ári eins og ákveðið var árið 1955, þegar 10 éra áætlunin var gerð að 11 ára éætlun. Unnið er að fram- Ihaldsáætlun, sem miðast við það að allir landsmenn hafi fengið raforku ekki seinna en árið 1970. pert er ráð fyrir að framhaldsáætlunin verði full- búin á næsta hausti. Verður þá unnt að gera sér grein fyrir því, hversu margir geta komizt inn á samveitukerfi. Vitað er að margir bæir eru þannig í sveit settir að þeir geta ekki fengið raforku nema frá diselstöðvum. í athugun er með hverjum hætti unnt er að veita þeim aukna aðstoð vegna aðstöðumunar. Rík- isstjórnin hefir lagt fram þjóð- hagsáætlun, sem gerð hefur ver- ið itarleg grein fyrir. Með Þjóð- hagsáætluninni er gert ráð fyrir aukinni uppbyggingu og fram- kvæmdum eins miklum og fjár- hagskerfið og mannafli leyfir. Atvinnuvegir landsmanna ganga vel, framleiðslan eykst í land- búnaði, sjávarútvegi og iðnaði. Uppbygging, og bætt lífskjör fyrir almenning mun örugglega halda áfram, ef haldið verður þeirri stefnu, sem farið hefur verið eftir síðan viðreisnin hófst. Stjórnarandstaðan vill víkja af þessari leið og taka upp stefnu vinstri stjórnarinnar að nýju. Nauðsynlegt er að íslendingar geri sér grein fyrir öllum stað- reyndunrr og láti eigin dómgreind ráða, þegar valið verður á milli stefnu ríkisstjómarihnar og þeirra sem vilja rífa niður og eyðileggja þann árangur, sem náðst hefur í efnahagslegri upp- byggingu þjóðarinnar. — Ræða Magnúsar Framihald af bl's. 4 um stófellt atvinnuleysi vegna stjórnarstefnunnar, allt talið um eamdrátt í atvinulífinu og síðast en ekki sízt, hin einstæða yfir- lýsing formanns Framsfl. að hann muni segja upp iandhelgis- samningnum við Breta, ef hann fær aðstöðu til, þótt þeir verði endanlega farnir úr landhelginni samræmi við þá utanrikismala- stefnu, sem annar þm. Framsfl. markaði á þann veg, að heppileg- ast væri að semja ekki við aðrar þjóðir, því að þá gætu menn ekki samið af sér. Hamingjan hjálpi þjóð, sem nú á dögum hefði slík'a utanríkismálastefnu. En stj órnarandstæðingar xreysta á, að þjóðin sé gleymin. Nýju moldviðri er blásið upp I mál- efnafátæktinni, staðreyndum er mótmælt, reynt er að hræða með um efnahagsastandið er og afflutt. — En kjarni áróðurs- ins er þó sá, að stjórnaiflokk- arnir ætli að ofurseija þjóðina erlendu peningavaldi, fram- lengja landhelgissamninginn við Breta og með þessum aðgerðum raunverulega tortíma sjálfstæði þjóðarinnar. Virðingin fyrir dóri greind almennings hefur sannar- lega ekki aukizt í þeim herbúð- um. Val kjósenda hefur sjaldan verið einfaldara en nú. Annars vegar er fastmótuð stefna stjórn- arflokkanna og árangur hennar, sem ekkert moldviðri fær dulið. Hins eru mennirnir, sem gáfust upp 1958, hafa ekki gert annað síðan en reyna að torvelda upp- byggingarstarfið og biðja nú um traust með áuróðri, sem ekki sæm ir ábyrgum mönnum. Annars vegar er áframhaldandi uppbygg ing á traustum efnahagsgrund- velli, hins vegar upplausn og vissa, sem hin dæmalausa ræða formanns Framsfl. hér í kvóld var glöggt dæmi um, því að þar örlaði ekki á öðrum úrræðum í vandamálum þjóðarinnar en að lækka vexti og ausa út gjald- eyrisvarasjóðnum, sem er örugg- asta leiðin til fuilkominnar upp- lausnar. Leiðin til bættra lífs ■ kjara hefur verið mörkuð. Efna- hagsleg undirstaða áframhald- andi uppbyggingar og framfara hefur verið lögð og það er vissu- lega ástæða til þess að líta björt- um augum á framtíðma, ef pjóð- in kann fótum sínum forráð og lætur staðreyndir og raunsæi ráða afstöðu sinni við næstu kosningar. — Góða nótt. Hriiigurinn þakkar B ARN ASPÍTALASJ ÓÐ Hrings- ins hefur borizt eftirtalin minn- ingargjöf, arfur, áheit og aðrar gjafir: 1. Minningargjöf um frú Soffíu Haraldsdóttur frá Kvennadeild Sálarrannsóknaféiags íslands kr. 10.000.00. 2. Arfur frá Ragnhildi Runólfs- dóttur, kaupkonu, Hafnarstræti 18, kr. 15.000.00. 3. Gjöf frá Lions-klúbbnum Baldri í áhaldasjóð Barnaspítal- ans, kr. 27.500.00. 4. Gjöf frá Björgvin Jónssyni, kaupmanni, (vinningur er hann fékk á Pressubailinu), kr. 5.900.00 5. Áheit frá Dýrfinnu Oddfreðs- dóttur, kr. 500,00. Samtals kr. 58.900,00. Kvenfélagið Hringurinn þakkar af alúð allar þessar rausnarlegu gjafir, arf og áheit. Athugasemd FÓLKIÐ, sem var á leið frá Selfossi til Reykjavíkur á þriðju daginn fyrir páska, til að sjá leikritið ,,Hart í bak“, og lenti í árekstrinum við Rauðavatn, hef ur beðið Mbl. að geta þess, að því miður hafi það aldrei kom- izt á sýninguna, elns og skilja mátti á frásögn blaðsins. Árekst- urinn og slysið töfðu svo fyrir fólkinu, að það kom allt of seint niður í Iðnó, og treystist þá ekki til þess að horfa á leik- inn. Rómar fólkið mjög viðtökur í Iðnó, þar sem því var boðið upp á veitingar. SEXTUGASTA og sjötta grein Stjórnarskrárinnar hljóðar svo: „Heimilið er friöheilagt. Ekki má gera húsleit né kyrrsetja bréf og önnur skjöl og rannsaká þau nema eftir dómsúrskurði, eða eft ir sérstakri lagaheknild". ÖllUm þeim sem heimilum unna, mun vera hlýtt til þessarar greinar og virða boð hennar svo sem verða má. Það er því ekki nema eðlilegt þótt sumum verði illa við, þegar þeir telja sig heyra ^ að gegnum viðtæki sín, að varðstaða hennar um okkar frið helga reit, heimilið, hafi verið rýrð. En þannig fór fyrir mér, og sennilega mörgum öðrum, þann 26. janúar sl. Þá var tilkynnt í innheimtuauglýsingu útvarpsins, að innheimtumönnum þess væri heimilt að fara „tálmunarlaust um lönd manna og hús i rannsókn arskyni“. Þar sem ég hélt að auglýsingu þessa skorti. stoð í lögum, eins og hún var orðuð, bjóst ég við að hún mundi verða þegar leið- rétt, en mér vitanlega kom ekki leiðrétting. Svo ég fór þá að hug- leiða hvort einhver undanþága hefði verið veitt frá lögum um útvarpsrekstur, á þá leið að inn- heimtumenn útvarpsins hefðu al- gerlega verið undanþegnir því að virði friðhelgi heimilanna, og mættu vaða um þau, hvar og hvenær sem þeim eða yfirboður um þeirra sýndist, enda benti orðalag umræddrar auglýsingar eindregið til þess að svo væri, þar sem sagði: „tálmunarlaust". En að kvöldi þess 28. sama mánaðar, var í fréttaauka lesin upp lög um útvarpsrekstur, það ákvæði þeirra var þá enn óbreytt, sem gerði innheimtumönnum út- varpsins skylt að virða friðhelgi heimilanna, svo sem öðrum inn- heimtumönnum, að því leyti, að ekki má vaða inn á þau tálmunar laust hvenær sem er, heldur með þeirri tálmun, að ekki má um Lélegur afli Ólafs- víkurbáta í apríl Ólafsvik, 17. apríl. HEILDARAFLI Ólafsvíkurbáta frá áramótum til 15. apríl er 5137 tonn í 386 róðrum. Me3tan afla hefir Hrönn SH 897 tonn í 68 róðrum, þar af eru 183 tonn línufiskur í 25 róðrum. 2. er Bárður Snæfellsáss 732 tonn í 65 róðrum, 188 tonn línu- fiskur í 26 róðrum. 3. Sæfell 722 tonn í 59 róðr- um, 147 tonn á línu í 20 róðtum. 4. Steinunn 692 tonn í 39 róðr- um, aðeins á netum. 5. Jón Jónsson með 598 tonn í 37 róðrum, á netum. Á þessum tíma hafa róið héð- an 8 bátar. Hér hefir verið treg- ur afli ffá síðustu mánaðamót- um. — Hjörtur. Svíar fljuga frá Akureyri til Noregs AKUREYRI, 16. april. í DAG lauk heimsókn um 60 manns frá vinabæ Akureyrar í Svíþjóð, Vesterás. Voru þetta að- allega m.enntaskólanemendur, kennarar þeirra, og fólk frá borg aryfirvöldunum. Hér dvöldust Svíarnir í boði bæjarfélagsins og Menntaskólans á Akureyri. Komu þeir hingað á föstudaginn langa, en flugu héðan beint til Noregs síðdegis í dag. — Sv. P. þau fara í þessum erindum, nema á rúmhelgum dögum, og aðeins frá kl. 8 að morgni til kl. 22 að kvöldi. Ekki varð ég þó var við að auglýsingin frá 26. janúar væri leiðrétt, eða beðið afsökunar á henni. Öll höfum við svo mikið gott og skemmtilegt þegið frá útvarp- inu, svo að þessi að ég meina mis tök, munu vera gleymd og fyrir- gefin, sem og sjálfsagt var. Það sem gefur mér tilefni til að rifja þetta upp, er grein í Morgun blaðinu 1. febrúar, skrifuð af hæstvirtum útvarpsstjóra sjálf- um, og vil ég með grein þessari skýra það fyrir honum, hvað það var, sem mér og öðrum sárnaði við umrædda auglýsingu, því það virðist hann ekki vita, ef dæma á eftir spurningum hans í um- ræddri grein. Greinin virðist skrifuð í tilefni af afstöðu Morgunbiaðsins til þessa máls, og fram kom í leiðara blaðsins 31. janúar. Þar bendir blaðið á leið sem líklegt er að tekin verði upp fyrr eða síðar, og þá losa marga við leiðinda atvik, sem núverandi fyrirkomu- lag á innheimtunni leiðir af sér. í grein sinni segir útvarpsstjór inn meðal annars: „En hvers- SUMARÁÆTLUN er nú að hefj- ast hjá Flugfélagi íslands. Sum- aráætlunin gekk í gildi 1. apríl í utanlandsflugi, en í innanlands- flugi gengur hún ekki í gildi fyrr en 1. maí. Með sumaráætluninni fjölgar ferðum milli landa og innanlands, og brottfarar- og komutimar breytast. Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frétta- tilkynning frá Flugfélaginu um sumaráætlunina. Innanlandsflug: Sumaráætlun innanlands- flugs gengur í gildi um næstu mánaðamót. í höfuðdráttum er ferðum hagað með svipuðum hætti og sl. sumar. Það nýmæli er, að teknar verða upp hringferðir, þe.. frá Reykja- vík tiL ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða, Hornafjarðar, Fagur- hólsmýrar í öræfum, og þaðan til Reykjavíkur. Frá 1. júni til 1. sept. verður farmiði allan hringinn fáanlegur fyrir 2000,00 krónur. Þá verða hin vinsælu sumar- fargjöld, sem fyrst voru tekin upp í fyrrasumar, til sölu á nokkrum flugleiðum, þar sem hægt er að nota stórar og af- kastamiklar flugvélar að stað- aldri. Sumarfargjöldin ganga í gildi 1. júní og gilda til 30. sept. á leiðunum Reykjavík — Akur- eyri — Egilsstaðir, og Akureyri — Egilsstaðir. Eftirtaldir viðkomustaðir verða í súmaráætlun Flugfélags ís- lands í sumar: Reykjavík, Akur- eyri, Kópasker, Þórshöfn, Sauð- árkrókur, Húsavik, ísafjörður, Vestmannaeyjar, FaguiLóls- mýri, Höfn Hornafirði, Egils- staðir, Hella á Rangárvöllum og Skógarsandur. Þær breytingar verða á flugi til ísafjarðar, að þangað mun Viscount-skrúfuþota fljúga tvisv ar í viku auk sex ferða DC-3. Til Egilsstaða, Hornafjarðar og Fag- urhólsmýrar bætist við ein ferð á viku, þannig að til Egilsstaða verða átta ferðir , til Hornafjarð- ar fjórar og til Fagurhólsmýrar þrjár ferðir vikulega. Til Akur- eyráf verða þrjár ferðir á dag á vegna þarf að óskapast yfir ein* faldri og sjálfsagðri gjaldheimtu útvarpsins fremur en annarra aðila?“ Skýringín er sú, að það er ekki gjaldheimtan sjálf sem „óskapast“ er yfir heldur þeirri ógn sem okk- ur fannst friðhelgi heimilanna stafa af því valdi sem útvarpstil kynningin frá 26. janúar boðaði. Setningin: „tálmunarlaust um Lönd manna og hús“, kemur illa við þá sem lýðræði unna. Útvarpsstjórinn lýkur grein sinni með þessum orðum: „Ríkis útvarpið þarf að geta haldið af- notagjöldum sínum til til haga, og reynir að gera það með vin- samlegri samvinnu við hlustend- ur sína um skrásetningu tækja og greiðslu gjaldanna“. Undir þessi lokaorð geta að sjálfsögðu allir tekið, að öðru leyti en því, að það var engin vinsamleg samvinna, sem auglýs- ingin í hádegisútvarpinu 26. jan- úar boðaði, heldur reiddur hnefi valdsins, að friðhelgi heimilanna, og hlýtur því að hafa komið illa við marga, ekki sízt þá sem alltaf hafa greitt sín afnotagjöld skil- Ivislega og með ánægju. Látrum 12. febrúar 1963. Þórður -Tónsson. mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum, en tvær ferðir aðra daga. Til Vest- mannaeyja verða tvær ferðir virka daga og ein ferð á sunnu- dögum. Tvær ferðir í viku verða til Sauðárkróks, Þórshafnar, Kópaskers og Húsavíkur. Frá Akureyri verða þrjár ferðir til Hellu og Skógasands, ein viku- leg ferð til hvors staðar. Flugvélar í innanlandsflugi í sumar verða DC-3, DC-4 og Vis- count. Millilandaflug: Sumaráætlun millilandaflugs hófst 1. april og um leið gengu hin ódýru vorfargjöld í gildL Með þeim gefst farþegunum kostur á 25% afslætti af far- gjöldum milli landa miðað við einmiðagjald. Þessi afsláttur er í gildi mánuðina apríl og maí. Með tilkomu sumaráætlunar fjölgar ferðum í áföngum í 13 ferðir á viku frá Reykjavík og flugvélarnar fljúga fram og aft- ur samdægurs, nema flugvélin sem flýgur til og frá Færeyjum. Brottfarartímar frá Reykjavík verða frá kl. 8.3(1—12.30, en komutímar frá útlöndum frá kL 16.55—22.40. Hinar vinsælu Viscount-skrúfu þotur félagsins munu sem fyrr bera hita og þunga áætlunar- flugsins milli landa, en Cloud- master-flugvél mun fljúga ein- stakar ferðir. Nýr þáttur í sumaráætlun millilandaflugs, er flug til og frá Færeyjum, sem gert er ráð fyrir að hefjist snemma sumars. Flug- vél í Færeyjafluginu mun verða Douglas D-3. Skrifstofur Flugfélags fslands í Kaupmannahöfn, Hamborg, Glasgow, Olsó, London og Berg- en, munu sem fyrr greiða fyrir ferðafólkinu og veita því að- stoð og upplýsingar. Um þessar mundir er unnið að dreifingu sUmaráætlana Flugfé- lags íslands fyrir millilandaflug og innanlandsflug, en áætlanirn- ar eru sem fyrr vandaðar, prent- aðar á myndapappír í fjórum litum. I og efna þannig til nýs ófriðar. Er þetta að visu í næsta góðu j gengisbreytingu og hlutlaus og raunsæ skýrsla Seðlabankans Sumaráætlun Flug- félagsins að byrja Hiingferðir teknar upp um Island

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.