Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 8
8
unnnrNRL4ÐIB
Miðvikudagur 1. maí 1963
1. maí ávarp
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganua
í Reykjavík
40 AR hefur Fulltruarað
verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík gengist fyrir hátíðahöld-
um verkafólksins í höfuðborg-
inni 1. maí, eða allt frá því
er dagurinn var fyrst hátíð-
legur haldinn hér á landi, hinn
1. mai 1933.
Þennan dag hefur launafólk
ið gert hlé á daglegum störf-
um til þess að bera sameigin-
lega fram kröfur sínar um
bætt kjör og aukin réttindi, á
sama hátt og verkamenn í
öllum frjálsum löndum heims
hafa gert ár hvert frá því er
verkamenn í Bandaríkjum
Norður-Ameríku helguðu kröf
um sínum þennan dag árið
1886.
Á þessum tímamótum minn-
umst við þaklátum huga þjirra
karla og kvenna sem fyrir
fjórum áratugum hófu merki
verkafólksins á loft, allra
þeirra sem með starfi sínu
ruddu brautina og lögðu grund
völl að þeim þjóðféiagsum-
bótum sem orðið hafa hér á
landi síðustu 40 árin. Við
m innu rr.it margra og merkra
sigra sem unnist hafa á liðn-
um árum í hagsmunabarátt-
unni fyrir styrk samtaka
launafólksins, jafnframt því
sem við fögnum margháttaðri
löggjöf sem tryggir rétt verka
fólks og stuðlar að meiri jöfn
uði og auknu félagslegu rétt-
Iæti.
Fyrir 40 árum var ein meg-
inkrafa alþýðunnar: Fullnægj
andi alþýðutryggingar. — Nú
getum við verið stolt af því
að á sviði félagsmálalöggjafar
eru íslendingar í hópi þerira
þjóða sem fremst standa. —
Þannig hafa flestar kröfur,
senr. settar hafa verið fram 1.
maí orðið að veruleika í einni
eða annarri mynd. Þessa minn
umst við í dag.
TJm leið og við fögnum unn-
um sigrum eflum við styrk
okkar til framhaldandi bar-
áttu. Þar sem lýðræði ríkir
verður ekki lát á bará.ttu
frjálsra samtaka verkafólks-
ins fyrir aukningu þjóðarfram
leiðslunnar, síbatnandi lífs-
kjörum, auknum afrakstri
vinnunar og réttlátrar skipt-
ingu þjóðarteknanna.
1. maí er okkur það efst
í huga að þótt nú séu liðin
20 ár fra því er 8 stunda í
vinnudagurinn var viður- /
kenndur, skortir enn sem fyrr S
mikið á að dagvinna gefi þær I
tekjur sem nauðsynlegar eru (
til menningarlífs í nútíma 1
þjóðfélagi. Launafólkið þarf /
að vinna óheyrilega langan i
vinnudag til þess að hafa sóma 1
samlegar tekjur. Þessa öfug- i
þróun, sem átt hefur sér stað /
í hálfan annan áratug, verður /
þegar í stað að stöðva og Ieita 1
allra tiltækra ráða til að t
tryggja verkafólki þau laun k
sem nægja til menningarlífs I
fyrir hóflegan vinnutíma. /
Þetta er unnt að gera, annars S
vegar með beinni kauphækk- I
un, sem aukin þjóðarfram- \
leiðsla og bætt afkoma at- í
vinnuveganna getur borið, en /
hins vegar með styttingu I
vinnuvikunnar án skerðingar i
launa. Jafnfran?.t þarf að i
koma á í vaxandi mæli nýj- <
um launagreiðslukerfum, taka /
upp ákvæðisvinnu við öll störf t
þar slíkt er hagkvæmt og auka í
hagræðingu í öllum greinum í
ativnnulífsins.
Launafólkið krefst raun- i
hæfra kjarabóta — varan- /
legra kjarabóta — sem ekki S
verði aftur teknar í hækkuðu I
verðlagri. t
Við heitum á allt launafólk l
að sameinast um þá stefnu /
sem hér er mörkuð með því »
að fylkja liði 1. maí undir
merkjum Fulltrúaráðsins —
á Lækjartorgi.
Látum ekki annarleg sjón-
armið „forystumanna“ verka-
lýðsfélaga, sem vilja flokks-
nýta 1. maí, en hafa kjara-
baráttuna að yfirvarpi, sundra
röðum verkafólksins.
Launfólk er mikill meiri-
hluti Reykjavíkinga. Sýnið í
verki að þið fordæmið sundr-
ungariðju kommúnista.
Fjölmennið á útifund Fuli-
trúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík á Lækjartorgi kl.
2 í dag.
Með 1. maí kveðjum,
stjóm Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík,
Óskar Hallgrímsson,
Gu^jón Sv. Sigurðsson,
Sigfús Bjarnason,
Guðnv B. Hersir,
Gísii Gíslason.
Ávarp stjérnar BSRB
STJÓRN Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja sam-
þykkíi einróma á fundi sín-
nm s.l. mánudag eftirfarandi
á.varp:
Á HÁTÍÐIS- og baráttudegi laun
þegasamtakanna sendir stjóm
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja meðlimu.m samtakanna og
öllum launþegum landsins kveðj
ur og árnaðaróskir.
Það ár, sem liðið er síðan
samtök opinberra starfsmanna
fengu samningarétt, hatfa þau
haft til meðferðar mikil og vanda
söm viðfangsefni.
Á síðastliðnu hausti markaði
fjölmennt þing fulltrúa þeirra
fimm þúsund starfsmanna, sem
aðild eiga að samtökunum, þá
meginstefnu, sem kröfur banda-
lagsins hafa verið byggðar á.
Vegna síversnandi launakjara
opinberra srtarfsmanna er fyrir
nokkrum árum hafinn flótti úr
opinberum störfum. Hafa opin-
berir starfsmenn dregizt aftur
úr í launakjörum, auk þess sem
sihaekkandi verðlag rýrir að
sjálfsögðu kjör þeirra eins og
annarra landsmanna. Launakjör
crpinberTa starfamanna eru af
þessum ástæðum orðin með öllu
óviðunndi.
Launakröfuir samtakanna miða
að því
að starf'ímennirnir geti lifað
aif föstum launum sinum,
án þess að aukagreiðslur
og yfirvinna komi tjl,
að við ákvörðun launa sé tek-
ið tillit til menntunar,
ábyrgðar og sérhæfni í
starfi,
að laun hinna lægst launuðu
verði lífvænleg.
að opiniberir starfsmenn hafi
sambærileg laun og aðrar
hliðstæðar stéttir.
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja þakkar félögum
og einstaklingum innan samtak-
anna fyrir mikið starf og góða
samstöðu í þeirri kjarabaráttu,
sem samtökin eiga í, og skorar
á menn að láta ekkert verða til
að rjúfa þessa einingu.
(Frá stjórn B.S.R.B.).
Frú Audrey Perri og hr. Frank Perri.
100 manna enskunámskeið á Akureyri
UNDANFARNAR vikur hefur
staðið yfir enskunámskeið á veg-
um Íslenzk-ameríska félagsins á
Akureyri, sem lauk nú um pásk-
ana. Þátttaka var geysimikil, og
komust færri að en vildu. Kenn-
arar á námskeiðinu voru hjónin
Audrey og Frank Perri frá Cali-
forniu, en þau dveljast um þess-
ar mundir hér á landi á vegum
Fulbright-stofnunarinnar í Banda
ríkjunum í því augnamiði að
kenna enskt talmál í íslenzkum
framhaldsskólum og skipuleggja
framhald slíkrar kennslu á kom-
andi árum.
Þegar Íslenzk-ameríska félagið
á Akureyri auglýsti námskeið
þeirra hjóna, bárust strax um-
sóknir frá nær 200 Akureyring-
um um þátttöku, en þar sem tími
var naumur að þessu sinni, varð
að takmarka nemendafjölda við
100 manns, sem kennt var í sex
deildum um þriggja vikna skeið
með mjög góðum árangri.
Kennsluaðferð sú, sem Perri-
hjónin styðjast við, er hin svo-
nefnda „audio-lingual“ aðferð, en
hún er í þ'ví fólgin, að menn læra
að tala erlent tungumál á sama
hátt og ungbörn læra að tala,
eðlilega og áreynslulaust. Þátttak
endur í námskeiðinu voru mjög
hrifnir af þeim árangri, sem náð-
Gestaboð
LAUGARDAGINN 2. marz sl.
bauð Þorkelshólshreppur í Vest-
ur-Húnavatnssýslu Þverhrepp-
ingum til „Víðihlíðar". Mættu
þar milli 50—60 Þverhreppingar,
•auk fjölmargra Þorkelshóls-
hreppsbúa. Hófið setti Ólafur
Daníelsson, oddviti, Sólbakka og
stjórnaði því. Spiluð var félags-
vist undir- stjórn Helga Axelsson-
ar, Valdarási. Ávörp fluttu Jó-
hannes E. Levy, oddviti, Hrísa-
koti, sr. Sigurður Norland, Hind-
isvík og sr. Robert Jack, Tjörn,
Vatnsnesi. Sigvaldi Jóhannesson,
Enniskoti, flutti frumvort kvæði
í tilefni dagsins. Halldór Gísla-
son, Kambhól, Baldur Skarphéð-
insson, Króki og Helgi Aexlsson,
Valdarási, sungu ljóð er ort var
í tilefni þessa heimboðs, með
undirleik Guðmundar Árnason-
ar, Neðri-Fitjum. Að lokum var
stíginn dans frameftir nóttu af
miklu fjöri, við undirleik hinn-
ar alkunnu hljómsveitar „Rómó“.
Gestaboð þetta var mjög á-
nægjulegt í alla staði og ógleym-
anlegt þeijp er það sóttu.
Þáðu gestir rausnarlegar veit-
ingar, sem er þeim er að því
stóðu til fyrirmyndar og færa
Þverhreppingar þeirr þakkir fyr-
ir það. Gestaboð þetta, á milli
sveita, er nýlunda í Vestur-Húna
vatnssýslu. X.
ist á svo stuttum tíma, og fyrir-
hugað er að halda slíkum nám-
skeiðum áfram á vegum félags-
ins, þar sem vonir standa til, að
Fulbright-stofnunin muni aftur
senda hingað kennara næsta
haust. Mun þá námskeiðið vænt-
anlega standa í 8 til 10 vikur.
Perri-hjónin létu mjög vel af
dvöl sinni á Akureyri. Þau héldu
Arshátíð
Skógaskóla
Borgareyrum, 20. apríl.
ÁRSHÁTÍÐ Skógaskóla var hald
in þann 9. þ. m. Nemendur höfðu
með aðstoð skólastjóra og kenn-
ara undirbúið fjölþætta og vand-
aða dagskrá er hófst með sam-
söng nemendakórs skólans undir
ágætri stjórn Þórðar Tómassonar
rithöfundar, þjálfara kórsins.
Þá söng tvöfaldur kvartett
stúlkna með gítarundirleik. —
Fimleikaflokkur pilta og stúlkna
sýndu undir stjórn Snorra Jóns-
sonar íþróttakennara. Þá var
sýndur listdans. Stuttur leik-
þáttur: Ráðskonan í Seli eftir
Björn í Mörk, vakti hann dill-
andi hlátur og náði þar með til-
gangi sínum. Við varðeldinn.
Söngur stúlkna með gítar undir
leik. Fjallkonan, geðug stúlka í
skrautbúningi las ísland ögrum
skorið. Sundsýnimg pilta undir
stjórn Snorra Jónssonar vakti
athygli.
Skólastjóri Jón R. Hjálmars-
son flutti snjallt ávarp og
kynnti dagskráratriði. Að lokum
var stiginn dans.
Hátíðina — sem var með hin-
um mesta glæsibrag og öllum til
sóma er að henni stóðu — sóttu
3—4 hundruð manns.
— Markús.
flugleiðis til Reykjavíkur eftir
páskana, en þar munu þau kenna
enn um skeið við framhaldsskóla.
(Fréttatilkynning frá fslenzk-
amerískafélaginu á Akur-
eyri).
Olli ótta
og öng-
þveiti
Stokkhólmi, 24. apríl, NTB
Það bar við á Strandvágen
í Stokkhólmi í morgun, þar
sem hundruð borgarbúa gengu
um og nutu vorsólarinnar, 1
eftir harðan vetur, að sjald-
séður vegfarandi skaut mörg- !
um skelk í bringu og skapaði i
mikið umiferðaröngþveiti. !
Stór og mikill hestur kom i
á harðaspretti eftir götunni í ]
áttina að Nybroplan, geyst-
ist milli sporvagna og bifreiða 1
og mátti minnstu muna, að i
hann hlypi fjölda manns um |
koll. Fólk hljóp hljóðandi og 1
skelfingu lostið, í allar áttir,1!
en hesturinn linnti ekki sprett l
inum fyrr en hann rakst á |
fóiksbifreið og steyptist um 1
koll. í fallinu tók hann með |
sér lítinn dreng, er hafði ver- j
ið þar á hjóli. Hestur og strák |
ur voru fluttir í sjúkrahús, j
en hvorugur meiddist mikið.
Hesturinn, sem heitir j
„Darco“, hafði verið inni í, i
1 búri í Djurgárden. Hann sleit j
sig burt, rauk út úr búrinu i
yfir Djurgárds-brúna og inn 1
á Strandvágen, sem er með i
meiri umferðargötum Stokk- j
hólmsborgar.
I
Ingólfur Kristjánsson for-
maður Fél. ðsl. rithöfunda
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
rithöfunda var haldinn laugar-
daginn 20. apríl að Hótel Borg.
Á fundinum var lögð fram
staðfest skipulagsskrá Bók-
menntasjóðs félagsins, sem stofn
aður var fyrir rúmu ári, og sam-
þykkti fundurinn að verja 5000
krónum af tekjuafgangi siðasta
árs til sjóðsins, en hann nemur
nú rúmum 45 þúsund krónum.
Tilgangur sjóðsins er að veita
rithöfundum bókmenntaverðlaun
í viðurkenningarskyni fyrir
ákveðin ritverk eða bókmennta-
afrek. Sjóðnum hafa þegar bor-
izt nokkrar gjafir, þar á meðal
25 þúsund króna gjöf frá göml-
um Reykvíking, en sjóðurinn
veitir viðtöku gjöfum frá ein-
staklingum, fyrirtækjum og fé-
lögum, sem styrkja vilja rithöf-
unda og efla með því íslenzkar
bókmenntir.
í stjórn Félags íslenzkra rit-
höfunda voru kjörnir:
Formaðwr Ingólfur Kristjáns-
son, ritari Þóroddur Guðmunds-
son, gjaldkeri Ármann Kr. Ein-
arsson og meðstjórnendur Gunn-
ar Dal og Stefán Júlíusson, og i
varastjórn Jón Björnsson og
Indriði G. Þorsteinsson.
Fulltrúar i stjórn Rithöfunda-
sambands íslands fyrir næsta ár
voru kjörnir Guðmundur G.
Hagalín og Stefán Júlíusson og
til vara Indriði Indriðason ag
Ingólfur Kristjánsson. I stjórn
Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins
var kjörinn Helgi Sæmundsson
og til vara Guðmundur G. Haga-
lín.