Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 24
VOLVO
K
envwood
CHEF
Frá Tfeklu
Mynd þessi er tekin framarlega á Battaríisgarðinum (Ingólfsgarði) i fyrrakvöld og sýnir hluta
mannfjöldans, sem samankominn var á hafnarbakkanum, þegar varðskipið Oðinn og skoz-ki
togarinn Milwood sigldu inn í höfnina. — Ljósm. Sv. Þ.
Brotsjór kastaði 2 varðskips-
mönnum fyrir borð úr gúmbáti
Skolaði upp í fjöru hellum á húfi
E R fjórir af áhöfn varðskips-
ins Óðins fóru í gúmbát á
sumardaginn fyrsta til að
kveikja á Hlöðuvita, sem er
á Breiðdalsvík, vildi það ó-
happ til, að brotsjór reið á
bátinn með þeim afleiðingum
að tveir varðskipsmenn köst-
uðust fyrir borð og skoluðust
þeir upp í fjöru ásamt gúm-
bátnum.
Á sumadaginn fyrsta fóru fjór
ir menn af Óðni, þeir Helgi Hall-
varðsson, 1. stýrimaður, Jón
Eyjólfsson, 3. stýrimaður, Guð-
mundur Hallvarðsson, háseti og
Andrés Bertelsen, háseti, til að
kveikja á Hlöðuvita, sem er á
skeri nokkru í mynni Breiðdals-
víkur. Við skerið er mikið sog
og þarf því að saeta lagi til að
komast upp í það.
Við fyrstu atrennu komst 1.
stýrimaður upp í skerið, en þeg-
ar báturinn gerði aðra atrennu
til að komast að því og 3. stýri-
maður hugðist stökkva upp á
það, reið skyndilega brotsjór
yfir gúmbátinn, sem kastaði
stýrimanni fyrir borð og hvarf
hann í sælöðrið. Brotsjórinn hélt
áfram með bátinn upp í litla vík
á sketinu, en rétt áður en þang-
að var komið kastaðist Guð-
mundur Hallvarðsson, háseti,
fyrir borð. En Andrés, sem
stjórnaði utanborðsvél bátsins,
hélt sér dauðahaldi í stýrishald-
ið og forðaði sér þannig frá því
að kastast einnig fyrir borð.
Báturinn kastaðist upp í vík-
ina og skorðaðist þar af svo að
útsogið tók hann ekki með sér
aftur.
Þegar sogið var farið út var
þurrt umhverfis bátinn, þar sem
ins og hélt sér I fangalínu hans,
sem hann hafði tekið í hönd sér
rétt áður en hann ætlaði að
stökkva upp á skerið. Hafði hann
haldið sér í fangalínuna allan
tímann og dregizt þannig með
bátnum. Þetta varð honum til
lífs.
Stýrimaður er talsvert meidd-
ur, m.a. hafði hann brákast á
viðbeini og fengið höfuðhögg.
Hinir bátsverjar sluppu ómeidd-
ir, en voru að sjálfsögðu renn-
blautir og slæptir.
Skipverjar á Óðni höfðu fylgzt
með óhappinu og sendu þegar
vélbát og héldu til skersins hið
bráðasta til hjálpar.
Helgi Hallvarðsson, 1. stýimað
ur, sem var á skerinu og hafði
horft á atburðinn, kveikti á vit-
anum og luku Óðinsmenn því
ætlunarverki sínu.
1. maí ávarp
1 Alþjóðasambands fijdlsra verkalýðsfélagc
VERKAMENN allra landa!
Alþjóðasamtök frjálsra
verkalýðsfélaga (ICFTU) send
ir ykkur sínar innilegustu
bróðurlegar kveðjur á þessum
alþjóðlega sameiningardegi
vorkamanna. í dag er fyrsti
maí, hátíðisdagur verka-
mánna: 1 dag minnumst við
brautryðjendanna, sem færðu
okkur fyrri sigra, í dag rann-
sökum við mátt okkar og
styrk fyrir baráttuna, sem enn
er framundan.
Aðal vandamál ICFTU er
meir en nokkru sinni fyrr,
hungur mitt í allsnægtunum.
Helmingur allra íbúa jarðar-
innar fær aldrei nóg að borða,
hvað þá að þeir lfi við mann-
sæmandi kjör. Gjá sú, sem er
á milli þeirra þjóða, sem
„hafa' og þeirra, sem „ekki
hafa“ breikkar stöðugt og mun
halda áfram að breikka, ef
ekki verður gripið í taumana.
Hættan er, að vonir hinna
hungruðu milljóna reynist tál-
vonir einar. Þetta skapar
óánægju fjöldans og þjóðfé-
lagslegt umrót, og þá er ein-
ræði skammt undan, annað
hvort af hendi kommúnista
eða hernaðarsinna.
Við fögnum fyrstu skrefun-
um — þótt hikandi og ófull-
komin séu — sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa tekið til að
leysa þetta frumvandamál,
sem skapazt hefur í fjármála-
ruglingi heimsins. Samtök
frjálsra verkalýðsfélaga mun
veita virka aðstoð til að stuðla
að þvi, að ráðstefnur um við-
skipti og efnahagsþróun beri
árangur.
Það, sem við þurfum, er
meiri hreyfanleiki í auðlind-
um iðnaðarþjóðanna til að
hjálpa vanþróðuðum löndum.
Hinar fyrrnefndu eiga einnig
við þjóðhagsleg vandamál að
etja, en þær munu aldrei ná
fullum árangri og vinnu fyrir
alla, ef þær snúa baki við hin-
um fátækari frændþjóðum, því
varanleg velmegun er eins og
friðurinn, ódeilanleg. Þær eru
enn langt frá því marki að
nota 1% þjóðarteknanna til
efnahagsþróunar. Til þess að
ná þessu nauðsðnlega marki
ættu hinar auðugari þjóðir að
opna dymar að auknum við-
skiptum, ekki aðeins með hrá-
efni heldur einnig með full-
unnar vörur þeirra þjóða, sem
á þróunarstigi eru. Ef ekki er
hægt að veita nægilega fjár-
hagslega aðstoð, ætti að
minnsta kosti að gera viðskipt-
in frjáisari.
En hvemig er hægt að veita
nægiiega fjárhagslega aðstoð,
þegar risastórum upphæðum
er eytt til framleiðslu gesreyð-
ingartækja? Frjálsa verkalýðs
sambandið hefur háð óþreyt-
andi baráttu fyrir varanlegum
friði, fyrir því að frelsa þjóð-
irnar undan martröð kjarn-
orkusjálfsmorða, fyrir því, að
billjóniraar, sem þannig
myndu sparast, yrðu notaðar
til friðsamlegrar uppbygging-
ar.
Verkamenn allra landa.
Ömggasta vamarvirkið til
varðveizlu friðarins er frjálsa
verkalýðssambandið, sem kem
ur fram fyrir hönd allra verka
manna í óskum þeirra um frið.
ICFTU stendur að baki rétti
verkamanna til að stofna,
ganga í og starfrækja félags-
samtök eftir eigin ósk, án utan
aðkomandi hindrana. Við mun
um verja þessi réttindi eins og
við höfum gert hingað til gegn
hverjum, sem ógnar þeim,
hvort sem það em nýlendu-
veldi eða einræðishverrar
kommúnista eða fasista.
Gerum frjálsa verkalýðs-
sambandið að enn þýðingar-
meira tæki til varðveizlu frið-
ar, frelsis og þjóðflagslegs rétt-
lætis. Göngumst fyrir aukinni
menntun, vinnum starfandi
konur og ungmenni á okkar
hand, því það mun tryggja
framtíð sambandsins.
Verkamenn heimsins.
Sameinumst um samband
frjálsra verkalýðsfélaga.
Stefnum fram með ICFTU
fyrri brauði, friði og frelsi
handa öllum verkamönnum,
hvar sem þeir eru.
Dularfullt
hvarf
brezks tog-
aramanns
Akureyri, 30. apríl.
I DAG barst símskeyti til |
Jóns Egilssonar, umboðs- J
tnanns brezkra togara á Ak-J
ureyri, frá útgerðarfélagi |
Hull togarans Colvin Bay þar
sem beðið var um að grennsi-
azt yrði eftir skipverja, sem
saknað var eftir .að togarinn
hafði látið úr Akureyrarhöfn
Sl. sunnudag.
Ekki var nafn skipverjans
tilgreint í skeytinu né heldur
Staða hans á skipinu. Lög-
reglan hefur haldið uppi
spurnum um manninn í dag,
bæði hjá Bretum búsettum á
Akureyri og í gistihúsum, en
einskis orðið vísari.
Er því enn allt á huldu um
bvarf mannsins. — Sv. P.
Islendingur hlýtur
á sýningu 1000 húsgagnaarkitekta
hann lá í fjörunni. Sást þá, að
Guðmundur hafði náð í líflínu
bátsins og hélt sér þar.
Stýrimaður lá við hlið báts-
Merhi dagsins
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélag-
anna, heildarsamtök verkalýðs-
félaganna í Reykjavík, selja
1. maí merki í dag.
Kommúnistar selja sitt sundr-
ungarmerki — svarið klofnings-
tilraunum kommúnista með því
að kaupa merki fulltrúaráðsins.
DÖNSK blöð skýra frá því að
ungur húsgagnaarkitekt, Gunnar
Magnússon, hafi fengið verðlaiun
á alþjóðlegu húsgagnssýning-
unni í London, þar sem yfir
þúsund húsgagnaarkitektar frá
33 löndum sýna muni sína. Kalla
þau hann danskan, en Gunnar er
íslendingur, sonur Magnúsar
Gamalielssonar frá Ólafsfirði.
Vann Gunnar fjórðu verðlaun-
in á þessari miklu ensku hús-
gagnasýningu, sem húsgagnafram
leiðendur héldu í Earls Court í
London í samvinnu við stórblaðið
Daily Mail.
Gunnar Magnússon er 29 ára
gamall, en hefur dvalið 4 ár er-
lendis, fór utan árið 1953. Hann
stundaði nám í Kunsthandværk-
erskolen í Kaupmannahöfn og
eftir að hann lauk prófi með
mjög góðri einkunn í fyrra, hefur
hann unnið hjá dönskum hús-
gagnasmiðum og húsgagnaverk-
smiðjum. Á húsgagnasýningu
snikkarasamtakanna dönsku í
Listiðnaðarhúsinu vann hann
verðlaun fyrir nokkur húsgögn,
sem sýnd voru á vegum fyrir-
tækis Anders Svendsen.
Verðlaunin í Looidön fékk
Palliser til
Orkneyja
Einkaskeyti frá AP 30. apríl.
BREZKA herskipið Palliser
er væntainlegt til Orkneyja
í fyrramáilið, 1. maí. Þar fara
Smitlh skipstjóri togarans Mil-
wood og átta aðrir menn af
áhöfn togarans í land. Strax
eftir komuna til Orkneyja
halda Smith skipstjóri og
menn hans flugleiðis til
* Aberdeen.
verblaun
Gunnar fyrir svefnherbergishús-
gögn, sem enskt fyrirtæki hafði
látið gera eftir teikningu Gunn-
ars. Hann fékk fjórðu verðlaun.
Fyrstu verðlaun hlaut Englend-
ingurinn Clive Latimer, 2500
sterlingspund, önnur verðlaun
500 pund, Hollendingurinn S. M.
Pruys, þriðju verðlaun 250 pund
vestur-þjóðverjinn Helmut Kell-
er, en ekki er blaðinu kunnugt
um hver upphæð fjórðu verðlaun
anna var.
í viðtaU við KvöldberUng segir
professor Arne Jacobsen frá Dan
mörku, sem sæti á í dómnefnd-
inni í London, að það hafi verið
skemmtilegt að Dani skyldi vera
einn af fjórum beztu húsgagna-
arkitektunum og á þar við Gunn-
ar Magnússon.
Þrátt fyrir slæmt veður sóttu
165 þús. manns húsgagnasýning-
una í London, til að skoða hin
fjölmörgu svefnheirbergishús-
gögn, sem þar voru til sýnis. Alla
tóku yfir 1000 húsgagnsarkitekt-
ar frá 33 löndum þátt í sýning-
unni.