Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 23
^ Miðvikudagur 1. maí 1963 MORGUNBLAÐ1Ð 23 „Frjáls verka- lýðshreyfing" — nýtt tímarif um launa og atvinnumal ' FRJÁLS verkalýðshreyfing I nefnist nýtt timarit um launa- og atvinnumiál, sem Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík gefur út Ritið, sem er vandað að öllum frágangi, mun koma út ársfjórð- ungslega eða oftar ef ástæða þyk ir til. Af efni 1. tölublaðs má nefna m.a. „Árangur af 40 ára starfi", eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson, „Kjarbaetur á tæknigrundvelli", eftir Svein Björnsson, verkfræð- ing, „Hagstofnun vinnmarkaðar- ins“, eftir Pétur Sigurðsson, „Tryggingamál", eftir Guðjón Hansen og „Hvers vegna ekki endurskoðun", eftir Eggert. G. Þorsteinsson. í ávarpi stjórnar Fulltrúaráðs Nasser á leið til Alsír Alexandrfa, 30 apríl (AP) GAMAii Abdel Nasser, forseti Egyptalands, lagði í dag af stað frá Alexandríu áleiðis til Alsír og er væntanlegux þangað á laug ardaginn. Mun forsetinn dvelj- ast í Alsír í viku í boði Ben Bella, forsætisráðlierra. Nasser ferðasit með skemmti- gnekkju og með honum í för- inni eru sjö helztu ráðgjafar hans. verkalýðsfélaganna í Reykjavík varðandi hið nýja tímarit segir m.a.: „Með útgáfu þessa tímarits er að því stefnt að bæta úr brýnni þörf fyrir hlutlægar um- ræður um atvinnu- og launamál, með flutningi fræðandi greina um þau margvsílegu viðfangs- efni sem verkalýðshreyfing í nú. tíma þjóðfélagi hlýtur að fást við.“ __r F.I. stækkar af greiðslusal sinn á Rvíkurflugvelli FLUGFÉLAG íslands hefur far- ið framkvæmdir við stækkun á farþegaafgreiðslu sinni á Reykja víkurflugvelli og verða enn- frernur gerðar ýmsar breytingar á afgreiðslustalnum. Stækkun þessi er til bráða- birgða, þar sem alls óvíst er um hver framtíð Reykjavíkurflug- vallar verður. Afgreiðslusalurinn verður stækkaður til suðurs, eða byggð- ur út þar sem tollafgreiðslan fer nú fram. Sökum sívaxandi og umfangs- meiri starfsemi Flugfélagsins er stækkun þessi nauðsynleg og verður allt kapp lagt á að henni ljúki fljótlega. Anastas Mikoyan, aðstoðarforsæ tlsráðherra Sovétríkjanna (t.v.), heilsar Fidel Castro, forsætisr áðherra Kúbu, við komu hans til Murmansk. Castró fagnað í Sovétrikjunum Moskvu 30. apríl (AP). EINS og skýrt hefur verið frá kom Fidel Castro, forsætisráð- herra Kúbu, ril Murmansk í So- vétríkjunum s.l. laugardag. Frá Murman.sk hélt Castro til Moskvu og kom þangað á sunnu- dag. Mikill viðbúnaður var í borginni Castro til heiðurs og gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman á götum til þess að fagna honum. Krúsjeff forsætisráðherra So- vétríkjanna, ávarpaði mannfjöld ann frá grafhýsi Lenins og að ræðu hans lokinni tók Castro til máls. Hann talaði blaðalaust og hóf mál sitt með því að af- saka að hann kynni ekki rúss- nesku. „Það gerir ekkert til,“ hrópaði mannfjöldinn. í dag heimsótti Castro Krús- jeff á sveitasetri hans nálægt Moskvu og ræddust þeir við klukkustundum saman. Ekkert hefur verið skýrt fré hvað þeir ræddu. Frá því að Castro kom til So- vétríkjanna hefur heimsókn hans verið aðalefni blaða þar í landi. Fréttaritari AP í Moskvu segir, að fleiri og stærri myndir hafi birst í blöðum af Castro og ferð- um hans um Moskvu en nokkru sinni af einum manni, þegar frá eru taldir geimfarar Sovétríkj- anna. Castro verður heiðursgestur við 1. maí hátíðahöldin í Moskvu á morgun. FEGAR 15. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins hafði verið slitið kom flokksráð flokksins saman tU fundar til þess að kjósa tvo menn í miðstjórn flokksins. Var þessi mynd tekin við það tækifæri Kínverjar dreifa áróðursritum meOal sfúdenta í Moskvu Moskvu, 29. apríl (AP). Kínverskir stúdentar við Moskvu háskóla hafa að undanförnu út- 'býtt hundruðum áróðursrita með ai rússneskra félaga sinna, og er stefna Sovétríkjanna harðlega gagnrýnd í ritum þessum. Segja talsmenn rússneskra stúdenta að í bæklingum Kínverja sé kalda- stríðs-stefna Krúsjeffs sérstak- 'lega gagnrýnd og að mörg hundruð eintök af áróðursritum þessum hafi verið gerð upptæk. Á fundi kómmúnistafélags stúdenta, sem haldið var í Moskvu háskóla nýlega, var öil- um meðlimum Komsomol (félags imgra kommúnista) fyrirskipað að afhenda öll þau áróðursrit, sem þeim berast í hendur. Einn- ig er rússnesku stúdentunum fyrirskipað að hafa vakandi auga með erlendum skólafélögum són- um, og gefa upp nöfn þeirra, sem hafa áróðursrit um hönd. Endanlegt vopna- hlé í Laos Vientiane, 30. apríl (AP) SOUVANNA Phouma, forsætis- ráðherra Laos ræddi í dag við fulltrúa kommúnista á Krukku- sléttu og náðist samkomulag um endanlegt vopnahlé í Laos. Var samþykkt, að stofnuð yrði nefnd, sem í ættu sæti fulltrúar komm- únista og hlutlausra. Hlutverk nefndarinnar er, að gera tillög- ur um hvernig bezt má vernda hlutleysi Laos og mun hún ræða ástandið í landinu með tilliti til Genfarsáttmálans. Ekki hefur Sovétstjórnin boð- að neinar aðgerðir gegn kín- versku stúdentunum, og er or- sökin talin sú að máiið sé allt London 30. apríl (AP). f DAG varð kunnugt, að fyrir 10 dögum, 20. apríl s.l. gerði hópur manna aðsúg að Freder- iku Grikklandsdrottningu og dóttur hennar írenu, er þær voru á leið frá gistihúsi sínu í Lond- on. Mennirnir, sem réðust að mæðgunum, höfðu safnazt saman fyrir utan gistihúsið til þess að krefjast, að vinstrisinnaðir póli- tískir fangar í Grikklandi yrðu látnir lausir. VERKFALL OG VERKBANN Frankfurt, 29. apríl (AP). VINNUVEITENDUR í málm- iðnaði vestur þýzka liéraðsins Baden-Wurttemberg hafa til- kynnt algjört verkbann í hér- aðinu. Nær verkbannið nú til um 320 þúsund verkamanna, en búizt er við að fleiri vinnu- veitendur fylgi á eftir og bann ið nái þá til 500 þúsund verka manna. Áður höfðu 100 þús- und málmiðnaðarmenn boðað til verkfalla til stuðnings kröfu um hærri laun. of viðkvæmt til að gera það að opinberu deiluefni. Áráðursritin eru prentuð í Pekirag, og segja talsmenn Komsomol að margar vikur séu síðan þau sáust fyrst í háskól- anum. Þegar drottningin og dóttir hennar komu út úr gistihúsinu í fylgd með lífverði og bílstjóra, greip einn úr hópnum, sem var fyrir utan í ermina á kápu drottningar. Lífvörðurinn kom drottningunni til hjálpar og tókst að fá árásarmannin til þess að sleppa henni, en þá réðst hópur manna á lífvörðinn. Honum tókst að komast undan með aðstoð bíl stjórans, en á meðan að þeir áttu við árásarmennina hlupu drottn ingin og dóttir hennar inn í næstu bliðargötu, en árásar- mennirnir fylgdu eftir og mæðg- urnar sáu þann kost vænstan að leita skjóls í einhverju húsi við götuna. Þær börðu að dyr- um húss bandarískrar leikkonu, sem þarna býr og hún veitti þeim húsaskjól þar til árásar- mennirnir hurfu á brott. í dag fóru mæðgurnar flugleið- is heim til Grikklands og var öflugur vörður við göturnar, sem þær óku um. Frederika og dótt- ir hennar komu til London til þess að vera viðstaddar brúð- kaup Alexöndru prinsessu af Kent og Angus Ogilvie. Aðsúgur oð Grikkja- drottningu Ráöherrafundur CENTO í Karachi Karadhi, 30. aprfil (AP) ELLEFTl ráðherrafundur Mið- Asíubandalagsins (CENTO), hófst í Karachi í dag. Aðilar að bandalagiun eru Pakistan, íran, Tyrkland og Bretland, en Banda- ríkin eru í nánum tengslum við bandalagið. Meðal þeirra, sem fundinn sitja eru Home, lávarð- ur, utanrikisráðherra Breta og Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandarikjanna. Vöruðu þeir báð- ir við hættunni, sem stafaði frá kommúnistum í heiminum og lögðu áherzlu á mikilvægi banda- laga eins og CENTO. Home lávarður benti á, að meðlimdr slíkra bandalaga hefðu ekki orðið fyrir árásum af hálifu kommúnista eins og t.d. hinir hlutlausiu Indverjar. UtainríikisráðlherTar Pakistan og íran, lögðu báðir áherzlu á, að bandalagið yrði einnig að vera á verði gegn árásum frá itlkjum þar sem kommúnistar færu ekki með völd. Utanríkis- ráðherra íran nefndi í þessu sam- bandi hið nýstofnaða arabiska saimbandslýðveldi, en utanríkis- ráðberra Pakistan lét í l'jósi á- hyggjur vegna vígbúnaðax Ind- verja. Mótmæla ákvörð- un útvarpsráðs Á FUNT>I stjórnar Bandalags starfsmanna ríikis og bæja s.l. mánudag var samþykk't með 10 atkvæðum gegn 1 svohljóðandi tillaga: „Stjórn B.S.R.B. mótmælir harðlega þeiiri ákvörðun meiri- hluta útvarpsráðs að bregða út af þeirri venýu, að farmaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og forseti Alþýðusambands íslands flyti ávörp í dagskrá út- varpsins 1. maí. Stjórn B.S.R.B. telur þessa ákvörðim freklega skerðingu á þeim réttindum launþegasamtak- anna, sem þau hafa notið um langt skeið.“ (Frá stjórn B.S.R.B.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.