Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 1. maí 1963 Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Að\lstræti«6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakió. ÁTTI AÐ SKJÓTA ? F’ngum blandast hugur um^-—----------- óbilgirni brezka skipstjór | íslandi en nokkru sinni fyrr. ans, John Smiths, eftir viður- eign Óðins við hann. En hvers vegna hggur máhð svo ljóst fyrir? Þeirri spurningu er auð- svarað. Þórarinn Björnsson, skipherra, og menn hans á Óðni komu fram af varúð sam fara fullri festu í viðskiptum við þennan lögbrjót. Þeir gerðu ekkert það, sem stofn- að gat lífi eða limum manna í hættu, en tókst samt að stöðva skipið og hefðu flutt það ásamt skipstjóranum í land, ef ekki hefðu komið til afskipti brezks herskips. Vegna stillingar og skyn- samlegrar framkomu Óðins- manna er ennþá augljósara, hvar sökudólgana er að finna. Þess vegna hljóta allir rétt- sýnir menn, erlendir sem inn lendir, að taka málstað ís- lendinga. En hversu furðulegt er þá ekki, að blað, sem telst styðja íslenzkan lýðræðisflokk, skuli hneykslast á því að varðskips menn beittu ekki skotvopn- um, sem hefði getað kostað fleirl eða færri mannslíf. Menn imdrast ekki slíka af- stöðu kommúnista, en menn munu taka eftir þessum orð- um, sem stóðu í gær á forsíðu Tímans: „Skipstjórinn hefur gengið íslenzku landhelgisgæzlunni úr greipum hvað eftir ann- að, enda fengu varðskips- menn ekki leyfi til þess að sýna landhelgisbrjótnum það eina, sem þessir herrar venju lega skilja: föst skot.“ Það var sómi landhelgis- gæzlunnar og íslendinga allra, hvemig á málum var haldið í landhelgisdeilunni við Breta. Þeim sóma hafa ís- lendingar enn haldið, þótt of- stækismenn, sem þrá það heitast að til nýrra árekstra og deilna sé stofnað við Breta, láti sér um munn fara þau orð, sem áður var vitnað til. Þau fordæmir íslenzka þjóð- in. HÁTIÐISDAGUR VERKALÝÐSINS ÍDAG minnist verkalýður- ^ inn um allan heim unn- inna sigra í baráttunni fyrir bættum lífskjörum og mark- ar jafnframt stefmma gagn- vart framtíðinni. Verkalýður og launþegar íslands hafa sérstaka ástæðu til þess að fagna því, sem áunnizt hef- ur á undanförnum árum. At- vinnuöi yggi er í dag meira á Versta óvini verkalýðsins, at- vinnuleysinu, hefur verið bægt frá, viðreisnarstefnan hefur tryggt blómlegt at- vinnulíf og að verkalýðurinn fái stækkandi hluta af arði þ j óðarf ramleiðslunnar. Alvarlegasta áhyggjuefni verkalýðs- og launþega á ís- landi í dag, er hin samvizku- lausa misnotkun Framsóknar manna og kommúnista á verkalýðssamtökunum í þágu pólitískra einkahagsmuna þessara flokka. Það er þess vegna óhjákvæmilegt að finna nýjar leiðir til þess að tryggja vinnufrið og koma í veg fyrir að hið mikla vald verkalýðssamtakanna sé mis- notað til þess að grafa undan heilbrigðu efnahagslífi og hrinda af stað verðbólgu og dýrtíð. Mörg önnur verkefni bíða einnig launþegasamtakanna. íslenzka þjóðin óskar verka lýð sínum og launþegastétt til hamingju með hátíðisdag þeirra. EINHUGA FLOKKUR Landsfundur Sjálfstæð- • isflokksins bar í senn vott um hinn mikla styrk flokksins og þann einhug og samheldni, sem ríkir innan raða hans. í stjómmálayfir- lýsingu Landsfundarins var lýst yfir eindregnum stuðn- ingi við þá viðreisnarstefnu, sem núverandi ríkisstjóm hefur markað. Sjálfstæðis- mönnum er það að sjálfsögðu ljóst, að margt er ennþá eftir að gera til þess að bæta stjórnarfar þjóðarinnar og hrinda nauðsynjamálum í framkvæmd. En það sem Við reisnarstjómin hefur þegar gert felur í sér stórfellda fram för og leggúr grundvíJll að blómlegri efnahagsþróun, batnandi lífskjömm og far- sælli framtíð þjóðarinnar. Breytingaraar, sem orðið hafa á þjóðarhag síðan viðreisnar- stefnan var mörkuð, em ótrú lega miklar. Það er til dæmis staðreynd, sem allir fslend- ingar hljóta að fagna, að í stað erlendra lausaskulda em nú komnir gildir gjaldeyris- sjóðir. Lánstraust þjóðarinn- ar út á við hefur verið end- urreist og skapað henni stór- aukna möguleika til þess að fá fjármagn til þjóðnýtra framkvæmda. Hin mikla efl- ing almannatrygginganna hef ur einníg stórkostlega þýð- ingu fyrir allan almenning í Kúbanskir útlaear reiöir landaríkjastjóm EINS og skýrt hefur verfð frá í fréttum, hafa Bandaríkja- ríkjamenn og Bretar tekíff höndum saman um aff reyna aff reyna að hindra, aff kú- banskir útlagar geri árásir á föðurland sitt frá Bandaríkj- unum effa Bahamaeyjum. Bandaríkjastjóm hefur lýst ]>ví yfir, að þessar smáárásir komi ekki aff hinu minnsta gagni í baráttunni gegn komm únistum á Kúbu. Kúbanskir útlagar reiddust, sem vænta mátti, mjög ákvörðun Banda- ríkjastjórnar um að reyna að hindra árásirnar. Auk þess bera þeir Kennedy Bandaríkja forseta á brýn, að hann hafi svikið loforð um að styðja nýja innrás í Kúbu, eftir að Svínaflóainnrásin mistókst. Töluverður ágreiningur ríkir því nú með leiðtogum kú- banskra útlaga, sem aðsetur hafa á Florídaskaga og Banda- ríkjastjórnar. José Miro Card- ona formaður byltingaráðsins, stærstu samtaka flóttamanna í Bandaríkjunum, sagði af sér fyrir skömmu vegna ágrein- ingsins. Um leið og hann fór frá, birti hann skýrslu, sem vakið hefur reiði í Bandaríkj- unum. í henni stáðhæfir Card ona m. a., að Kennedy Banda- ríkjaforseti hafi oft látið á sér skilja, að aBndaríkin myndu styðja nýja innrás kúbanskra útlaga í föðurland sitt. Kúbanskir útlagar halda sér í þjálfun. José Miro Cardona Cardona var ráðherra 1 fyrstu stjóm Fidels Castros á Kúbu, en þeir urðu brátt ósáttir og Cardona fór til Bandaríkj anna. í fyrrnefndri skýrslu Card- ona, er yfirlit yfir þær sam- ræður, sem hann hefur átt við Bandaríkjaforseta undan- farin tvö ár. Hann segist hafa verið þeirra skoðunar, að Bandaríkjamenn myndu styðja innrás kúbanskra út- laga í Kúbu s.l. haust í sam- bandi við aðflutningsbannið, sem sett var á eyjuna, en þá hafi stefna Bandaríkjanna ger hreytzt skyndilega. Cardona vísar á bug full- yrðingum um, áð innrás í Kúbu geti leitt til kjarnorku- styrjaldar og segir, að Krú- sjeff muni ekki beita atóm- vopnum því að Kúba sé ekki á áhrifasvæði Sovétríkjanna. Takmark Krúsjeffs séu bylt- ingar og þegar hafi stuðnings- menn Castrós í Venezúela næg vopn undir höndum. Áhrif marxista í öðrum Mið- og Suð ur-Ameríkulöndum bendi til þess, að ekki muni langt þar til ógæfan dynji yfir. Bandarikjastjóm neitar Af opinberri hálfu í Banda- ríkjunum hefur verið neitað harðlega, að styðja hafi átt innrás í Kúbu. Enda hefur verið ljóst, að undanförnu, að slíkt kæmi ekki til greina. Kúbönsku útlagarnir gerðu sér flestir grein fyrir þessu og ekki kom til alvarlegs ágrein- ings með þeim og Bandaríkja- stjórn fyrr en hún ákvað að Framh. á bls. 17. landinu, svo aðeins fátt eitt sé nefnt af þeim fjölmörgu umbótum, sem þessi ríkis- stjóm hefur komið fram á kjörtímabilinu. Lækkun skatta og tolla er einnig al- menningi og atvinnurekstri landsmanna til mikilla hags- bóta. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, benti á það, er hann sleit Landsfundinum, að Sjálf- stæðismenn yrðu að hafa í huga, að þótt málefnaleg að- staða flokks þeirra væri nú sterk, þá væri óhyggilegt að vera fyrirfram viss um úr- shtin í kosningunum, sem framundan væm. Hann kvað úrslitin í þessum kosningum mest fara eftir því, hvort menn vildu frelsi eða ófrelsi. Óhætt mundi þó að fullyrða, að meginhluti Islendinga að- hylltist frelsi og manndáð. „En enginn sigur vinnst án fyrirhafnar,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins. „Sigur- inn vinnst því aðeins að við leggjum okkur öll fram. Við skulum stíga á stokk og strengja þess heit að vinna frægan sigur í kosningunum 9. júní,“ sagði Bjarni Bene- diktsson. Undir þessi orð munu Sjálf stæðismenn um land allt taka einum rómi. Kosningabarátt- an er hafin, framundan er mikið starf. Sj álfstæðismenn munu boða stefnu sína og úr- ræði í þjóðmálum íslendinga af einurð og drengskap. En í þessari baráttu má enginn liggja á liði sínu. Mikið er í húfi. Velferð íslenzku þjóð- arinnar er í veði. Uppbyggingar- og viðreisn- arstefnan verður að sigra. Á hinu leitinu er haftastefna og stjórnleysi, sem hlyti að fylgja í kjölfar þess, að Fram sóknarmönnum og kommún- istum tækist að fá aðstöðu til stjórnarmyndunar eða ná stöðvunarvaldi á Alþingi, A :

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.