Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 20
20 MORCVNBLAÐtO r Miðvikudagur 1. maí 1963 DUNKíRLfYS Alec langaði mest til að kyrkja 'hann. •— Blómstrandi og ljóm- andi bætti hann við. Það var eins og loftið væri glóandi, þar sem hún gekk. — Hún er auðvitað ánægð að vera ekki ein, sagði Hesba og tók málið raunsæari tökum. — Það eru til konur, sem er sama þó að þær séu einar, og ég er sjálf ein þeirra. En það er Elsie ekki. — Jæja, sagði Laurie, — ég vona nú samt, að þér farið ekki einar í hádegisverð. Ég er sjálf- ur víst orðinn of seinn í morgun- fyrirlesturinn minn og svo er ekki sérlega langt í matinn. Drengurinn er farinn að vakna til lífsins, hugsaði Alec, en upp- hátt sagði hann og í formlegum tón: — Sir Daniel bað mig að fara með yður út, að borða, ung- frú Lewison. Það eru eitt eða tvö atriði, sem við þurfum að ræða nánar um.... — Ég veit ekki til þess, greip Laurie fram í, — að pabbi gamli eða neinn annar hafi neitt vald til að segja ungfrú Lewison hvar *hún borðar eða með hverjum. TJnglingsandlitið var allt í einu orðið rautt og skuggi hafði færzt yfir andlitið á Alec. Það var eins og loftið væri glóandi..“ Hann mundi annað tækifæri — örlagaríkt atvik — þegar þessi orð hefðu átt bókstaflega við. Hesba leit af öðrum unga manninum og á hinn, og fann ’þessa spennu, sem þarna var komin. Hún dró loðhanzkana sína hægt gegnum greipina. Hún ætlaði að fara að tala og Alec og Laurie stóðu þarna eins og leikarar á sviði og biðu eftir lausnarorðinu, en þá opnuðust dyrnar, eins og fyrir fellibyl og sir Daniel kom þjótandi inn, og geislaði frá sér dugnaði, sem var algjör andstæða við eftirvænt- ingarsvipinn á þeim, sem þarna voru fyrir. Honum duldist ekki, að þarna var einhver spenna, sem lá í loftinu. Hann hægði á sér, stóð kyrr í þykkum yfir- frakkanum með hvítan trefil um hálsinn og silkihattinn í hend- inni og leit af einu andlitinu á annað. Hann ásetti sér að rjúfa ■þetta, sem hélt þarna öllu í spennu, hvað svo sem það kynni að vera. — Já, ungfrú Lewison! sagði hann innilega, — þarna var ég heppinn. Ég var að vona að geta boðið yður út í hádegisverð í dag, en svo kom upp leiðinda- mál, sem gerði það ómögulegt. En sem betur fer, er því nú lok- ið. Ég var hræddur um, að þér væruð þegar farin. Hann opnaði dyrnar fyrir hana. — Komið “þér nú. Við skulum koma okkur af stað. En þá fyrst tók hann eftir Laurie, sem stóð þarna unglingslegur og vonsvikinn. Hann var góður drengur. Um 'það var Dan ekki í neinum vafa. En hann hafði átt of náðuga daga, en lífið sjálft gat nú bætt úr öðru eins og þvi. Laurie mundi lagast með tímanum. Dan fann til einhverrar velvildar gagnvart honum. — Þú, Laurie, viltu koma með okkur? — Já, annaðhvort væri! flýtti Laurie sér að segja, feginn því, að þarna var faðir hans að bjóða honum út á óformlegan hátt, eins og maður manni — en slíkt hafði aldrei áður gerzt. Þau voru nú komin út að dyr- um, öll þrjú. Alec stóð og sneri 'baki í arininn. Hann var ein- mana og fannst hann vera settur hjá. Hann var alls ekki meðlim- ur í þessu samfélagi hinna þriggja. Hún getur nú enn sagt nei, hugsaði hann, — og sagzt ætla að borða með hr. Dillworth. Hún getur sýnt honum á einn eða annan hátt, að hún sé ekki 'þræll þessa mannskratta, heldur ein þeirra, sem hann lifir á, eitt 'þeirra hjartna og heila, sem hann græðir á. Hesba og Laurie gengu út, hlið við hlið, en Dan hélt hurðinni uppi af mikilli kurteisi. Þegar dyrnar höfðu lokazt, tók Alec að hugleiða, að hún hafði ekki einu sinni litið um öxl. 8. Það hefði getað verið erfitt að ákveða nákvæmlega stöðu Izzy 'Pfyfe hjá Dunkerley-fyrirtæk- inu. Hann var „ráðherra án stjórnardeildar“, en án alls vafa ráðherra. Hann var sá maður, sem undirmennirnir reyndu að koma sér við, ef þeir á annað borð vildu koma sér vel við sir Daniel — og hver vildi ekki það? Það var vitað, að sir Daniel hlustaði á tillögur hans, og hinir feimnari, að minnsta kosti, trúðu því, að hann talaði fyrir munn sir Daniels. Sjálfur vissi hann manna bezt, að höfuðskilyrðið fyrir gengi hans hjá húsbóndan- um var það að hafa enga skoðun sjálfur. En sem betur fór lang- aði hann ekkert til þess. Yfirleitt sóttist hann ekki eftir nema tvennu: öryggi og völdum. Hann vissi mætavel, að eins og ástand- ið var nú, var vald hans ekki ótakmarkað. Öll orð hans, hugs- anir og gjörðir voru undirgefin vilja kraftmikils og duttlunga- fulls húsbónda, en sú staðreynd sjálf, að húsbóndinn þurfti ein- mitt að hafa svona liðlegan högg dayfi, til þess að gerast meðal- gangari milli hans sjálfs og raun veruleikans, gaf einmitt Izzy þetta vald, sem hann sóttist eftir og nægði til að gera hann ánægðan. Hann gat átt von á því, á hverri stundu, sem væri, að fá skipun um að taka saman föggur sínar og fara til Dickons, borða kvöldverð við Manchestertorgið, þjóta til Manchester til þess að koma einhverju þar í lag,. eða gista í Dunkerleyhúsinu. Og þeg ar daglega snattinu var lokið, vildi sir Ðaniel hafa einhvern til að kjafta við. í setustcrfunni sinni gat hann talað í belg og biðu, án þess einu sinni að taka eftir, þegar Izzy var öðruhverju að jánka. Þá gat hann sagt: — Afsakaðu andartak..og þotið inn í svefnherbergið. Izzy var farinn að kunna þetta utanbók- ar. Hann vissi, að eftir fimm mín útur, myndi Meaker birtast í dyr unum og segja: — Sir Daniel biður yður að tala við sig í her- berginu hans. Ég ætla að fara í háttinn. Góða nótt, herra minn. Og þegar í svefnherbergið kom, sat sir Daniel þar með kodda við bakið, klæddur eins og kóngur í náttserk úr finu lérefti og náttjakka utan yfir. — Seztu niður, Izzy. Eins og ég var að segja.... Og svo hélt bunan áfram. Klukkan var oft orðin fjögur, þegar Izzy hneig örmagna niður á legubekkinn í sinni eigin skrifstofu, vel vit- andi, að sir Daniel mundi búast við honum til morgunverðar klukkan hálfníu, og eins, að hann iþá væri búinn að lesa öll morg- unblöðin og romsa upp úr sér innihaldi þeirra. Þetta var erfitt líf, líkamlega,. en andlega lifði Izzy vel á því. Af þessum endalausu eintölum lærði hann margt um viðskipta- mól og menn. Hann hefði alltaf getað sagt — hefði hann kært sig um — sem ekki var — í hve mikilli náð eða ónáð hver ein- stakur maður var hjá sir Daniel, þá stundina. En hann var hrif- inn af að vera svona „leyndar- ráð koungs" og hann var þag- mælskur eins og gröfin. Sjálfur vissi hann ekki, hve margar gildrur sir Daniel hafði lagt fyrir hann, í þessum langlokum sínum. En hann gekk, að minnsta kosti aldrei í þær, og sir Daniel var farinn að vita, að honum var óhætt jafnvel að móðga sjálfa hátignina í áheyrn Izzy, því að hann mundi aldrei kjafta frá. Ef til vill hefur það verið ör- yggisþráin, öllu framar en valda fíknin, sem hafði gert Izzy að því, sem hann var. Hann hafði aldrei þekkt föður sinn, sem hafði verið hafnarverkamaður í London. Móðir hans hafði alið hann upp á ást, útþynntri með dyggð. Ástin kom fram í nægju- semi þeirri, sem sumir fátækl- ingar hafa til að bera, og fús- leik á að slíta sig inn í kviku, til þess að hafa þak yfir höfuð drengsins. Dyggðin helltist í stríð um straumum í eyru hans ef hann leitaði félagsskapar við óknyttaormana í götunni, þar sem hann ólst upp. Hann hafði lært, að inni ætti hann að vera en ekki úti á götunni, nema þá móðir hans væri með honum. Þannig varð hann einmana, og fór þá að lesa, sem einskonar vörn gegn einmanaleikanum. Izzy gat enn munað daginn, þegar hann varð fjórtán ára. Han var þá í vinnu í Smith- field-kjötmarkaðnum, og eitt ætlunarverk hans var að sópa saman blóðinu og beinunum og kjöttutlunum. Þessu var öllu fleygt út um dyrnar og út í göturæsið, og það var gleðistund, því að þá var dagsverki hans lokið. Þá læsti hann dyrunum, gekk inn, fór í yfirfrakkann og setti upp hattinn sinn, Og hugs- aði með gleði til herbergjanna tveggja, sem hann og móðir hans höfðu í Whitechapel. Annað var setustofa, sem var jafnframt eld- hús og borðstofa og svefnstaður Izzys — hitt var ofurlítil kompa, sem var svefnherbergi móður hans. Þetta eftirminnilega kvöld var ískalt vetrarkvöld. Þegar sólin fcætti að skína, hafði hert frost- ið, sem verið hafði allan daginn. Jafnvel inni á vinnustað hans, var kuldinn afskaplegur. Dreng- urinn var að hlakka til kvölds- ins, sem framundan var. Þarna yrði mamma hans og þarna yrði hiti og svo bókin, sem hann hlakkaði svo til að lesa. Og eng- ir kinnhestar. Mamma hans og hann voru orðin sátt, og þeim — Það er komið skeyti frá mömmu. leið vel, hvoru hjá öðru. Hann hugsaði mest um það, þegar hann yrði sjálfur fyrirvinnan, og mamma hans gæti verið heima — kannski í litlu húsi, sem þau ættu sjálf. Önnur eins kraftaverk gátu gerzt. Nú skyldi hann á leiðinni heim, kaupa eitt- hvað gott í kvöldmatinn — kartöflur eða steiktan fisk. Þeg- ar hann var tilbúinn að leggja af stað, stakk hann hendini í 'buxnavasann og fann, að shill- ingurinn hans Var horfinn — þarna var ekkert nema gat á vasanum. Peningurinn var hvergi að sjá og því gerði hann það, sem hann hafði aldrei gert óður: hann opn- aði aftur dyrnar, sem hann var búinn að læsa, og hann hryllti við því, sem þá bar fyrir augu hans. Á ísköldum hellunum úti fyrir, u-ndir bjarmanum fró gas- ljósinu, sá hann tötrumklædd börn og gamlar, útslitnar kerl- ingar, með grátt, óhreint hár, gamla menn, sem héldu að sér tötrunum með annarri hendinni, meðan þeir tíndu saman leifarn- ar með hinni — allt þetta fólk var að tína saman leifarnar, sem höfðu fallið af nægtaborði kjöt- markaðarins. Fife hinn ungi áttaði sig sam- stundis á því, að þessi fátækt, sem yfirgekk svo langsamlega allt, sem hann hafði gert sér í hugarlund, væri sí-nálæg, að kvöld eftir kvöld biðu þessir gammar í holum og skúmaskot- um eftir því, að hann læsti dyr- unum, áður en þeir tækju að hamast við þessa hreinsunar- starfsemi sína. Ein gömul kerl- ing, sem ekki hafði gleymt allri gamansemi, kallaði til hans: — Hæ, herra minn, ætlarðu að gefa okkur sneið af læri? ajtltvarpiö Miðvikudagur 1. maí 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Við vinnuna": Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börn in í Fögruhlíð" eftir Halvor Floden; XIII. (Sigurður Gunn arsson). 18.30 Lög úr söngleikjum. 18.50 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Hátíðisdagur verkalýðsins. — Samfelld dagskrá: a) Ing- ólfur Kristjánsson ritstjóri ræðir við forystumenn verka- lýðsins frá fyrri tíð. b) Gunn- ar Eyjólfsson les ljóð. c) Al- þýðukórinn syngur undir stjóm dr. Hallgríms Helga- sonar. d) Jón Sigurbjörns- son les úr endurminningum Ágústs Jósefssonar. _,.10 Danslög, þ.á.m. hljómsveit Hauks Morthens. 01.00 Dagskrárlok. Fimmtudagur 2. maí 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Á frívaktinni"; sjómanna- þáttur (Sigríður Hagalín). 15.00 Síðdegisútvarp. 18.30 Danshljómsveitir leika. 18.50 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Af vettvangi dómsmálanna (Hákon Guðundsson hæsta- réttarrritari). 20.20 íslenzkir söngvarar syngja lög eftir Schubert; III. — Sig urveig Hjaltested syngur. — Við píanóið: Ragnar Björns- son. 20.45 Raddir skálda: Þorsteinn Valdimarsson og Jóhannes Helgi. 21.35 Tónleikar í útvarpssal: Sin- fóníuhlj ómsveit íslands. Jind richr stjórnar. a) Pizzini: Scherzo. b) Mozart: Sinfónía nr. 31 í G-dúr, K.297 — „Par- ísarhljómkviðan". 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Svarta skýið“ eftir Fred Hoyle; XVII. (Örn ólfur Thorlacius). 22.40 Harmonikuþáttur (Reynir Jón asson). 23.10 Dagskrárlok. 16250 VINNINGAR! Fjórði hver miði vinnur að meðaltali! Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur. Lægstu 1000 krónur. Dregið 5,'hvers mánaðar. KALLI KÚREKI — * — -K — TeiknarL Fred Harman COBYSfl — ÞJÓhlUSTA SAlflHf| .fpö/V'SK ÞjÓNUófA andlitsböS liandsnurting Uarqreiðsla CejHeint met i/al SnyrtÍiAöru. valhöll ***** \Hhsimi 22/38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.