Morgunblaðið - 01.05.1963, Qupperneq 11
Miðvikudagur 1. maí 1963
MORCVNTiLAÐIÐ
11
J>að er stundum talað um aS
landið okkar haíi færzt nær um-
faeiminum og er þá einkum átt
við samgöngurnar. En það eru
fleiri stoðir sem renna undir
J>essa kenningu, >ótt í dálítið ann
arri merkingu sé. Hin stóraukna
ræktun og fjölbreytni í þeim efn
um hefur vissulega sett sinn suð-
læga svip á landið okkar, og ekki
er þáttur hinna fjölmörgu skrúð-
garðaeigenda hvað minnstur að
þessu leyti, því svo mjög hafa
þeir stuðlað að því að fegra
landið, til sjávar og sveita og
ekki sízt í höfuðborginni. Má
sem dæmi nefna að fyrir 30 árum
voru aðrar trjátegundir óþekkt-
ar í skrúðgörðum bæjarins en
birki; reynir og víðir og runnar
eð undanskildum rifsi, óþekktir
með öllu. Nú má segja að trjá-
tegundimar skipti tugum og
runnarnir hundruðum, sem hald-
ið hafa innreið sína í ísl. skrúð-
garða, ekki sízt í Beykjavík.
Fólk hefir komizt að raun um að
það getur ræktað hinar fegurstu
rósir í garði sínum, og fjölbreytn
in eykst með hverju árinu. Engu
að síður er nauðsynlegt að vanda
val hina einstöku tegunda og af-
brigða vel, og í þeim efnum er
faið bezta og ræktunarfasta aldrei
of gott. f>ví ber að bannfæra
„köttinn í sekknum" í þessum
efnum, vanda valið vel og um-
fram allt þekkja kröfur plantn-
anna og haga ræktuninni í garð-
inum í samræmi við þær.
i Ýmsir velunnarar verða gjarn-
Frá Austurvelli í Keykjavík.
Sœmningsslitin í Brussel
rædd í Evrópurúðinu
RÁÐHERRANEFND Evrópuráðs I
ins heldúr fund í Strasbourg 6.
maí nk. Verður Sviss þá form- |
lega aðili að ráðinu.
Síðdegis sama dag hefjast
jfundir 15. ráðgjafarþings Evrópu
ráðsins. Hefur fjöldi ráðherra frá
hinum 17 aðildarríkjum tilkynnt,
að þeir muni sækja þingið.
Framkvæmdastjóri Evrópuráðs
ins, Lodovico Benvenuti, mun
flytja skýrslu um Evrópuráðið
og afleiðingar samningsslitanna
í Brússel um aðild Bretlands að
Efnahagsbandalagi Evrópu. Ben-
venuti hefur gert að tillögu
sinni, að Evrópuráðið beiti sér
fyrir því, að aftur verði teknir
upp samningar milli Bretlands
og EBE. Þá hefur hann látið í
ljós þá skoðun, að mikil hætta
sé í því fólgin að ala til lengdar
á ósamkomulagi milli Bvrópu-
manna um ýmis mikilvæg, en þó
minni háttar, vandamál. „Þau
vandamál, sem allan heiminn
varða og við og næsta kynslóð
þurfum að fást við, eru miklu
alvarlegri en þeir framkvæmda-
örðugleikar, sem við var glímt í
Brússel! Telur framkvæmda-
stjórinn ógerlegt fyrir Vestur-
Evrópu að standast það, sem
framundan er í átökum milli
menningar frjálsra þ jóða og
kömmúnismans, nema hún öll,
þar á meðal bæði meginlands-
ríkin og Bretland, sameini
krafta sína og verði jafnoki
Bandaríkjanna og jafnframt nán
asti bandamaður þeirra. Fram-
kvæmdastjóri Evrópuráðsins tel-
ur, að hættulegt sé að draga úr
starfinu að æ nánari samvinnu
sexveldanna í EBE, en vill, að
jafnframt sé unnið að því, að
Bretland gerist aðili bandalags-
ins Oig að komið sé á nánu sam-
starfi við Bandaríkin.
Á ráðgjafarþinginu verður
sérstök umræða um stefnu
Evrópuráðsins og efnahagssam-
vinnu Evrópuríkja. Framsögu-
maður verður brezki ráðherrann
Heath, aðalsamningamaður lands
síns í Brússel. Utanríkisráðherra
Luxemborgar, Schaus, mun flytja
skýrslu sem formaður ráðherra-
nefndar Evrópuráðsins, en hann
er jafnframt formaður ráðherra-
nefndar EBE.
Af öðrum dagskrármálum á
ráðgjafarþingi Evrópuráðsins
má nefna skýrslu um ráðstefnu
menntamálaráðherra Evrópu,
og skýrslu um starfsemi Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
í Paris.
(Frétt frá upplýsingadeild
Evrópuráðsins 16. apríl ’63).
Skruðgarðurinn :
Þú getur líka ræktað rdsir
an á vegi þeirra sem ná beztum
árangri í skrúðgarðræktinni og
eiga fegursta garðinn. Hér skal
fólki bent á einn slíkan, en hann
munu margir garðeigendur þegar
þekkja, en það er Hallgrrmur
Egilsson, garðyrkjueigandi í
Hveragerði. Hann elur upp í
garðyrkjustöð sinni ýmsan þann
garðagróður sem nú er hvað
eftirsóknarverðastur í skrúðgörð
um borgarinnar og landsins alls,
því hann á viðskiptavini á hverju
landshorni. Það er að vísu rétt
að taka það fram að þetta er
hans „lifibrauð‘!, hann er „at-
vinnumaður" í garðrækt og rósa
runnar og ýmis konar skrúð-
garðjurtir er einn liður í rækt-
un hans.
Ég var staddur í plöntuuppeld-
isstöð Hallgríms á dögunum og
lét hann mér í té upplýsingar
um nokkrar tegundir runna og
skrúðjurta er ég benti á, að vísu
nokkuð af handahófi, því af
miklurn fjölda tegunda er að
taka, en þó valdi ég öðrum
þræði þær tegundir, sem mér
þótti vænlegar til fróðleiks, þrif-
legar og gróskuvænlegar. Fer sú
upptalning hér á eftir, ef það
mætti verða einhverjum garðeig
endum til leiðbeiningar og upp-
örvunar, nú þegar vorstörfin
fara að standa sem hæst, ef tíð-
*rfar leyfir.
RÓSIR:
Ofkrýnd skráprós (Rósa rug-
©sa hybrida Hansa) er mjög harð
ger rósarunni sem verður um það
bil 2 metrar á hæð. Blómin rauð,
fyllt og verða mjög stór, geta
orðið 12—15 sm í þvermál. Ein
allra harðgerasta og árvissasta
rós, sem ræktuð er í görðum hér
é landi. Fögur, ilmandi og ár-
viss um allt land. Blómstrar
lengi að sumrinu og dæmi eru
til að einn einasti runni hefir
blómstrað einum 150 blómum í
einu, nokkurn tíma sumars. Eina
stöðin sem framleiðir þessa rós
til sölu ennþá er stöð Hallgríms,
og er hún mjög eftirsótt.
Fjallarós (Rós:- pendulina).
Mjög harðger og verður allt
eð 2 metrum á hæð. Ljósrauð
blóm, falleg planta. Þolir vel
vinda og veður.
Sweigensowirrós (Rósa sweg-
ensowii) getur hér orðið 5 metrar
é hæð eða meir. Fögur rós með
rauðum blómum. Mjög harðger,
hálfklifandi, og getur þakið
veggi.
Merkurrós (Rósa Woodsii).
Gróskumikil, verður um 1 meter
á hæð. Blóm Ijósrauð.
Eplarós (Rósa eglanteria
magnificia.) Verður á annan
metra á hæð og verður eitt
blómahaf. Blóm ljósrauð.
KVISTIR:
Margaritakvistur (Spirea
Margaritae) er harðger, fagur
með ljósrauðum blómum. Verð-
ur upp undir einn metri á hæð.
Kvistarnir eru mjög fallegar
plöntur.
Bumaldakvistur (Spiera Bum-
alda). Rósrauð blóm. Verður Vz
til 1 metri á hæð. Þarf skjól.
Kínakvisturinn er mjög svip-
aður áðurnefndum hálfbróður
sínum.
GEITBLÖÐUNGAR (topar):
Gulltoppur (Lonicera deflexi-
calyx). Mjög harðger og fljót-
vaxinn runni, sem verður 2—3
metrar á hæð. Gullgul blóm og
mjög góð skjólplanta í limigirði.
Vaftopur (L. peryclymenum),
er fallegur vafningsrunni.
ÝMSIR BLÓMRUNNAR:
Fagurlaufamispili (Cotonester
acutifolia) hefur reynst hér á
landi fullkomlega harðger og ör-
uggur í ræktun. Ágætur í lim-
gerði. Er fallegur runni, með sin
um ljósrauðu blómum og dökk-
um berjum. Blöðin gullfalleg
sem standa í fegursta skrúða í
gulum og rauðum skærum litum
er líður að hausti.
P*
M.l. Dronning
Alexandrine
fer frá Reykjavik til Færeyja
og Kaupmannahafnar þann
15. maí. Pantaðir farseðlar
óskast greiddir fyrir 4. maí,
þannig að eftir það sé hægt
að afgreiða farseðla til fólks,
sem er á biðlista eftir því sem
pláss leyfir.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Ilin snækóróna (Philadelphus
hybrida) Mjög harðgerður runni
með hvítum appelsínuangandi
blómum. Verður 1—IV2 metri á
hæð.
Hornviður (Cornus stoloni
fera). Hvítir blómklasar og rauð
ir leggir enda fallegur sumar og
vetur.
— xxx —
Þannig hefði mátt halda áfram
lengi dags og langt fram á kvöld,
því það kennir margra grasa í
plöntuuppeldisstöð Hallgríms
Egilssonar í Hveragerði.
Stefágn Þorsteinsson.
&
EnTímtífí
Herðubreið
RIKISINS
fer austur um land í hring-
ferð 6. þ. m. — Vörumóttaka
á fimmtudag til Hornafjarðar,
Djúpavögs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar og Kópaskers. —
Farseðlar seldir á mánudag.
Samkomur
Almenn samkoma
Boðun fagnaðarerindisins
Hörgshlíð 12, Reykjavík kl.
8 í kvöld — miðvikudag.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld
kl. 8.30. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Engin samkoma á fimmtud.
Almenn samkoma föstudag
kl. 8.30. Kapt Ástrós Jóns-
dóttir stjórnar.
Samkomuhúsið Zion
Óðinsgötu 6 A.
Á morgun: Almenn sam-
koma kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Heimatrúboð leikmanna.
K.F.U.M.
AD fundur annað kvöld
(fimmtudag) kl. 8.30. Bjarni
Eyjólfsson talar: Frá erlend-
um vettvangi. Allir karlmenn
velkomnir.
ÚTSÝN
til onnorra
landa — og
ferðinni er
Munið hinar hagkvæmu, vinsælu hópferðir:
Bretlandsferð með Gullfossi 15.—27. júní
Kaupmannahöfn, Rínarlönd, Sviss, París
10.—27. ágúst.
Spánarferð 10.—27. september.
Austurlandaferð í október.
Tryggið yður sæti, og pantið strax. Kaupið farseðl-
ana hjá UTSÝN, og við veitum yður hvers konar
upplýsingar og fyrirgreiðslu endurgjaldslaust. —
Athugið, að skrifstofan er flutt og er nú opin kl.
9—18 á virkum dögum.
Ferbaskrifstofan Útsýn
Hafnarstræti 7. — Sími 2-35-10.
Rýmingarsala
á
greiðslu-
sloppum
heldur áfram
á morgun.
Margar gerðir.
Mikill afsláttur.
Marfeinn Einarsson & Co.
Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816