Morgunblaðið - 04.07.1963, Qupperneq 2
JUORCVTSBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 4. júlí 1963
Fundi menntamálaráðherra
Norðurlanda lokið
Næsti fundur verður i Finnlandi
FUNDI menntamálaráðherra
Norðurlanda lauk í gær í Rcykja
vík. Norski menntamálaráðherr-
ann Helge Sivertsen hélt heim-
leiðis í gær. Hinir fara í dag ti.I
Gullfoss og Geysis og halda heim-
leiðis á föstudagsmorgun.
í tilkynningu um fund ráðherr-
anna segir m. a. að rætt hafi
verið um norrænt hús 1 Reykja-
vík og komið hafi fram að ríkis-
stjórnir Norðurlanda séu nú sam-
þykkar því að húsið skuli reist
Nefnd hefur nú verið skipuð og
mun hún vinna að undirbúningi
málsins í öllum smáatriðum, en
sú nefnd hélt fyrsta fund sinn
í sambandi við ráðherrafundinn.
Þá ákváðu ráðherrarnir að
samþykkja reglugerð um norræn-
an búsýsluskóla og tekur reglu-
gerðin gildi 1. júlí þ. á. Fræðsla
Ovæntir fundir við hús-
leit hjá Wennerström
verður veitt í þessum greinum í
ýmsum háskólum á Norðurlönd-
um. Endanlega var ákveðið að
koma á fót norrænum framhalds-
lýðháskóla í Kungelv og mæltu
ráðherrarnir með því að bygg-
ingaframkvæmdum yrði hraðað
eftir megni.
Loks var rætt um norræna sam
vinnu á ýmsum sviðum vísinda
og æðri menntunar. Samþykkt
var að taka boði menntamálaráð-
herra Finna Arne Hosiar um að
næsti fundur yrði í Finnlandi.
Margþætt oðs/oð
SÞ v/ð Pakistan
Ivar Gubmundsson segir frá starfi
þeirra þar
Stokkhólmi, 3. júlL, — NTB.
SÍÐUSTU daga hefur staðið
yfir víðtæk leit I húsakynnum
Stig Erik Wennerströms, ofursta,
og margt óvænt komið í leitimar,
að þvi er ríktssaksóknarinn,
Werner Ryhninger, segir, — en
hann stjórnar húsrannsókninni.
Wennerström bjó I íburðarmiklu
Dregið hjá DAS
í gær var dregið í 3. flokki
Happdrættis DAS um 150 vinn-
inga og féllu vinningar þannig:
2ja herb. íbúð, Ljósheimum 22,
2. hæð D, tilbúin undir tréverk,
kom á miða nr. 57172. Umboð:
V estmannaeyj ar.
2ja herb. íbúð, Ljósheimum 22,
4 hæð B, tilbúin undir tréverk,
kom á miða nr. 4061. Umboð:
Hreyfill.
SAAB fólksbifreið kom á nr.
61864. Umboð: Aðalumboð.
TAUNUS fólksbifreið kom á nr.
38746. Umboð: Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali, kr. 120
þús., kom á nr. 26098. Umiboð:
Keflavík.
Bifreið eftir eigin vali, kr. 120
þús., kom á nr. 25094. Umboð:
Aðalumboð.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 10.000,00 hvert.
7503 14708 16983 21857 35582
38536 47456 50717 54972 59665
Eftirtalin númer hlutu húsbúnað
fyrir kr. 5.000,00 hvert:
533 851 1520 2088 2299 2333 2613 2634
2707 3398 5281 5574 5724 6094 6486 6891
8621 10410 10536 10727 11038 11156 11509
11670 11934 12436 13788 14604 15136 15501
15581 16206 17563 18442 18566 18770 19071
19706 20654 21060 21532 21742 22039 22336
24056 24222 24224 24550 24760 25158 25589
25986 26003 26219 26515 26956 27706 28485
29188 29264 29285 29327 29706 30724 31270
31534 31670 33206 33365 33516 33575 34539
34858 35303 36257 36735 37131 37502 37568
37911 38058 38193 38798 39238 39494 40760
41480 43094 44507 44672 44963 45850 46336
46798 47020 47663 48936 50127 50255 50476
50535 50677 50688 51260 51467 51594 52297
52498 52954 53274 53497 53900 54170 55234
55444 55456 56001 56241 56506 56848 56913
57654 58050 58596 59199 60026 61625 61782
61881 62675 63721 63961 64101.
(Birt án ábyrgðar).
VJslendingar
fara á föstudags-
kvöld
MISRITUN varð í frétt í blað
inu í gær um brottför V-íslenzku
ferðamannanna, sem hér eru
staddir. Þeir halda utan
á föstudagskvöld, en ekki
um morguninn eins og sagt
var. Eru þeir beðnir að
mæta við afgreiðslu Loft-
leiða í Lækjargötu kl. 9:30 um
kvöldið, en þeir, sem vilja fara
á eigin vegum suður á Keflavík-
urflugvöll, þurfa að mæta á vell-
inum eigi síðar en kl. 11 um
kvöldið.
einbýlishúsi á Djursholm, í út-
jaðri Stokkhólms, en húsið stend
ur nú autt, þar sem fjölskylda
ofurstans fluttist til sumarbú-
saðar síns úti í sveit, eftir að
hann var handtekinn. Hvorki
eiginkona Wennerströms né aðrir
úr. hópi fjölskyldu eða kunn-
ingja hafa fengið að heimsækja
hann, þar sem hann er í haldi í
einangruðum klefa á efstu hæð
nýja fangelsisins á Kungsholmen
í Stokkhólmi. Yfirheyrslur fara
fram tvisvar á dag og að því er
Ryhninger segir, er framkoma
fangans ætíð hin sama. Hann er
rólegur, og lætur engan bilbug á
sér finna við yfirheyrslurnar,
sem fara fram eftir ákveðinni
áætlun.
Haft er eftir Ryhninger, að það
sem skipti mestu máli sé að kom
ast að þvi, hvert tjón hefur orðið
af völdum njósnanna og nýtur
lögreglan því aðstoðar sérfræð-
inga úr hernum Og utanríkis-
ráðuneytinu.
Ryhninger segir, að lögreglan
verði að athuga gaumgæfilega
hvert einasta atriði, sem Wenner
ström upplýsi eða gefi til kynna,
því að hann hafi hvað eftir ann-
að verið staðinn að ósannsögli.
★
í Svíþjóð eru uppi háværar
kröfur um nánari upplýsingar
um mál Wennerströms og bent
er á, að vísbendingar, ráðherra
og annarra um að frekari stór-
tíðinda sé að vænta, hafi verið
heldur óheppilegar.
Aftonblaðið segir í ritstjórnar-
grein í dag, að afleiðingar vís-
bendinga Tager Erlander, for-
sætisráðherra og Andersons, land
varnarráðherra í gær, hafi orðið
öfgafullar vangaveltur og áköf
eftirvænting. Segir blaðið, að
gefa ætti jafnóðum allar upplýs-
ingum um mál þetta, aðrar en
sjálfsögð leyndarmál, er varða
öryggi ríkisins.
fVAR GUÐMUNDSSON, for-
stöðumaður upplýsingaskrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í Pakistan,
hitti blaðamenn að máli í gær
ásamt Jóni Magnússyni, hdl,
framkvæmdastjóra Félags Sam-
einuðu þjóðanna á íslandi. Eins
og áður hefur verið getið um í
blaðinu, er ívar hér í stuttri
heimsókn ásamt tveimur sonum
Tofiíarafréttir
SÍÐUSTU tvær vikur hafa ís-
lenzku togararnir verið að veið-
um á heimamiðum, svo og við
Nýfundnaland og Grænland.
Aflabrögð hafa alls staðar verið
með minnsta móti. Þó hafa nokk
ur skip fengið sæmilega veiði á
heimamiðum. Fjögur skip eru nú
að veiðum við Vestur-Grænland
en það eru togararnir Þorsteinn
Ingólfsson, Þorkell Máni og
Haukur, en þessi skip veiða öll
fyrir frystihús. Fjórða skipið er
togarinn Þormóður Goði en hann
veiðir í salt. Þormóður Goði er
nú að veiðum á Stóra Lúðugrunni
sem er fyrir norðvestan Holsteins
borg. Hin þrjú skipin hafa reynt
á öllum miðum frá Hvarfi norð
mannúðarstarfsemi, og sagði
ívar að í Pakistan mætti sjá
glöggt dæmi þess hvert mikil-
vægi er fólgið í þessum lið starf-
semi samtakanna. Sameinuðu
þjóðirnar hafa veitt Pakistönum
mikla tæknilega aðstoð, en hún
er veitt samkvæmt óskum við-
komandi ríkisstjórnar. Sendir
eru sérfræðingar annarra þjóða,
til að vinna með íbúum þeirra
landa, sem hjálpárþurfi eru, og
veita þeir þar aðstoð sína. Um
margs konar aðstoð getur verið
að ræða, t- d. í fiskveiðitækni og
hefur Guðjón Illugason starfað
að þeim málum í Austur-Pakist-
an. Sameinuðu þjóðirnar og ríkis
stjórn Pakistan greiða sameigin-
lega kostnað af starfi þessara
ráðunauta, sem vinna á mjög
margvíslegum sviðum, á vegum
ýmissa systurstofnana SÞ. —
Heilbrigðismálastofnun SÞ vinn-
ur mikið Og merkt starf í Pak-
istan. Helzta verkefnið er útrým-
ing malaríu, sem er mjög skæð á
Indlandsskaga. Þá er barizt við
útbreiddan sárasjúkdóm og hefur
verið lagt fram fé til byggingar
penicillin-verksmiðju, en þennan
sjúkdóm má lækna með penic-
illinsprautum. Barnahjálpin veit
ir mæðrum og börnum þeirra
margþætta aðstoð.
Ivar sagði, að vart væri finn-
anleg nokkur atvinnugrein, sem
ekki væri styrkt af SÞ. Danir
gefa ráð í mjólkuriðnaðinum og
Svisslendingur kennir úrsmíði.
Um afstöðu Pakistan til starf-
semi SÞ sagði ívar, að þeir hefðu
Orðið fyrir vonbrigðum er sam-
þykktir öryggisráðsins um at-
kvæðagreiðslu um stöðu Kasmír
hafi ekki verið virtar af Ind-
verjum, en eins Og kunnugt er
var Indlandsskaga skipt árið 1947
milli Hindúa og Múhameðstrú-
armanna og réðu fylkisstjórar
mestu um hvoru landinu um-
ráðasvæði hvers innlimaðist, Ind
landi eða Pakistan. í Kasmír
ræður Hindúi ríkjum, en mikill
meirihluti íbúanna eru Múha-
meðstrúar eins og Pakistanar.
Þrátt fyrir vonbrigði sín hafa
Pakistanar ekki látið í ljósi neina
vanþóknun á störfum Sameinuðu
þjóðanna, enda er ekki hægt að
hefur orðið vart við fisk svo saka þær um vanmátt eða van-
teljandi sé. Togarinn Maí kom
ívar Guðmundsson
sinum. Hann hóf starf sitt í Pak-
istan árið 1961 en hafði áður
gegnt ýmsum störfum fyrir SÞ,
m. a. við upplýsingaskrifstofuna
í Kaupmannahöfn.
ívar gat þess í upphafi að á
vegum SÞ væru nú starfandi 45
upplýsingaskrifstofur í mismun-
andi löndum. Tilgangur þeirra
er að kynna fyrir almenningi í
aðildarríkjum samtakartna mark-
mið og starfsemi SÞ, hvað þær
hafa gert, eru að gera, og hvers
muni að vænta af starfi þeirra
í framtíðinni.
Fyrir utan stjórnmálalega
starfsen SÞ, sem oftast er getið
í fréttum, reka þær sem kunnugt
er umfangsmikla menningar- og
ur á Litla Lúðugrunn en hvergi
til Hafnarfjarðar í gærmorgun
með 150 lestir af fiski af Ný-
fundnalandsmiðum. Maí er eini
íslenzki togarinn sem þar hef-
ur verið á umræddu tímabili.
Á heimamiðum hefur íslenzki
togaraflotinn haldið sig mest á
djúpmiðum út af Vestfjörðum, og
einnig fyrir norðurlandi. Afli
hefur yfirleitt verið tregur, þó
hafa nokkur skip íengið sæmi-
lega veiði. Togarinn Ingólfur
Arnarson kom til Reykjavíkur
í gærmorgun eftir 13 daga veiði-
för, með fullfermi.
Blómasýningin i blómaskálan-
um við Nýbýlaveg stendur.
yfir fram að helgi. Er þar mik
ið úrval fagurra blóma. Þessi'
mynd var tekin á sýningunni |
fyrir nokkrum dögum, og i
sýnir hún frú Helgu Sveins-
dóttur með þremur af hinum 1
fjölmörgu gestum, er sýning- I
una hafa skoðað.
íslendingur getur
fengið stöðu
ALÞJÓÐAVINNUMÁLASTOFN-
UNIN í Genf hefur tilkynnt fé-
lagsmálaráðuneytinu að ákveðið
hafi verið að ráða mann frá fs-
landi, Jamaica eða Uganda til
starfa í þeirri deild stofnunar-
innar, sem fjallar um samvinnu-
mál og málefni smáiðnaðar.
Umsækjendur skulu vera á
aldrinum 23 til 35 ára, hafa há-
skólapróf eða hliðstæða menntun.
Þekking á starfsemi samvinnu*
félaga, skipulagi þeirra og stjórn,
er æskileg. Góð enskukunnátta
er nauðsynleg og umsækjandi
sem ráðinn yrði til starfsins
mundi einnig þurfa að læra
frönsku ef hann ekki kann hana
þegar.
Nefnd sú sem velur úr um-
sóknum getur látið umsækjend-
ur ganga undir skriflegt próf.
Umsóknareyðublöð fást í félags
málaráðuneytinu, sem gefur nán
ari upplýsingar. Umsóknarfrestur
er til 9. ágúst n.k.
Stúdentamót
BORGARNES 3. júlí. — 11. sum-
armót Stúdentafélags Miðvestur-
lands verður haldið laugardaginn
6. júlí að Bifröst kl. 4. Aðalræðu
maður mótsins verður sr. Einar
Guðnason í Reykholti.
Mót þessi hafa gefið góða raun
og verið mjög fjölmenn.
efndir í þessum málum, þar sem
þar hafa fyrir löngu gert það
sem í þeirra valdi stendur að
gera samþykkt um málið og vísa
henni síðan til þeirra ríkja, sem
hlut eiga að máli.
Að lokum sagði ívar, að hann
kynni mjög vel við sig í starfi
sínu í Pakistan. Hann var ráðinn
þar í 2—4 ár, sefur þegar dvalizt
þar helming þess tíma og hefur
farið fram á að vera þar enn um
sinn til að fá betra tækifæri til
að kynnast landi og þjóð.
F'indur
norrænna
landlækna
DAGANA 4. — 7. þ. m. verður
fundur landlækna Norðurland-
anna haldinn í Reykjavík. Hafa
slíkir fundir undanfarið verið
haldnir árlega, en aldrei fyrr hér
á landi.
Erlendu fulltrúarnir, sem hing-
að munu koma til að sitja þennan
fund eru sem hér segir:
frá Danmörku:
Medicinaldirektþr Esther Am-
mundsen.
Kontorchef cand. jur. A. Skov
gaard.
frá Finnlandi:
Generaldirektdr NiiloPesonen.
Medicinalrád Vartianinen.
frá Noregi:
Helsedirektdr Karl Evang.
frá Svíþjóð:
Generadirekt0r Arthur EngeL
Medicinalrád K. E. Linder.
Af íslands hálfu mun Sigurður
Sigurðsson landlæknir sitja fund-
inn auk nokkurra annarra full-
trúa heilbrigðismála hér.
Fundurinn verður haldinn f
húsakynnum Hæstaréttar að
Lindargötu og hefst kl. 10 á
fimmtudag.