Morgunblaðið - 04.07.1963, Side 10
10
MORGVTSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. Júlí 1963
GÍSLI GUÐMUNDSSON:
FERÐASPJAU.
NORÐURLAND skartaði
sínu legursta um síðustu
helgi í sól og sunnan vindi.
Akureyrarbær var eitt haf af
blómstrandi reynitrjám, öll
tún á kafi 1 grasi og grænk-
an teygði mjúka fingur upp
að hæstu brúnum. Að mínu
áliti er Norðurland (Skaga-
fjörður, Eyjafjörður og Þing
eyjarsýslur) okkar framtíðar
túristaland með Akureyri
sem miðdepil. Þessi lands-
svæði hafa óumdeilanlega upp
á margt að bjóða, mikla nátt-
úrufegurð, margvísleg nátt-
úrufyrirbæri, fræga sögustaði
og yfirleitt hagstæðara veð-
urfar en aðri landshlutar. Enn
sem komið er er það aðeins
Akureyri og Mývatnssveit,
sem hafa notfært sér þessa
aðstöðu en vonandi vakna
Skagfirðingar og Norður-Þing
eyingar úr sínum þyrnirósu-
svefni sem fyrst. Um það mun
ég líklega ræða síðar því I
þetta sinn ætla ég að ræða um
Akureyri.
Akureyri er sérlega fall-
egur bær og umhverfi hans
ekki síður. Bæjarbúum er
þetta fyllilega ljóst og þeir
eru staðráðnir í því að gera
bæinn að mestu ferðamanna-
miðstöð landsins. Hið ytra er
bærinn mjög snyrtilegur og
hinn mikli trjágróður gefur
honum mikinn þokka. í gisti-
og veitingahúsamálum hefur
mikið verið gert undanfarið
og mun ég nú rekja hvað
bærinn hefur uppá að bjóða
í þeim efnum. Um næstu helgi
verður opnað nýtt og veglegt
samkomuhús, Sjálfstæðishús-
i». Ég skoðaði það hátt og
lágt um síðustu helgi og fannst
mikið til um öll salarkynni
og útbúnað. Forstjóri verður
Sigurður Sigurðsson bryti,
góður maður og gegn, sem
mun áreiðanlega takast að
skapa staðnum vinsældir. Hið
nýja Skíðahótel í Hlíðarfjalli
er einnig um margt til fyrir-
myndar. Gistiherbergi eru
þægileg og matsalur og setu-
stofa rúmgóð og aðlaðandi. I
kjallara er eftir að ganga frá
finnskri baðstofu sem verður
áreiðanlega vinsæl. Það er
tvennt sem þarf að fram-
kvæma til að tryggja rekst-
ur þessa staðar. Annað er að
leggja nýjan veg upp fjallið,
hitt að byggja fullkomna
skíðalyftu, helzt upp á fjalls-
brún. Þegar því er lokið ætti
Flugfélag íslands að hefja
beinar flugferðir til Akureyr-
ar frá London og e.t.v. öðrum
stórborgum Evrópu. í Heima-
vist Menntaskóla Akureyrar
hóf Ferðaskrifstofa ríkisins
rekstur á sumarhóteli í fyrra-
sumar og rekur það aftur í
ár. Þessi staður hefur náð
skjótum vinsældum enda er
forstjórinn, Þórður Gunnars-
son, sérlega þægilegur maður
í viðskiptum og sama má segja
um starfsfólk hans. Enn sem
komið er selur þessi staður
aðeins morgunmat en á næst-
unni mun einnig hægt að fá
þar kvöldmat. Hótel Varðborg
er rekið af Góðtemplararegl-
unni á Akureyri og forstjórinn
er Jón Þorsteinsson, hinn
vandaðasti maður. Ég hef
ekki gist þar en hefi heyrt
látið vel af staðnum. Á götu-
hæð í sama húsi er Café
Scandia, rekið af Jörgen
Lindeskow, mjög vistlegur
staður. Kaupfélag Eyfirðinga
rekur Matstofu KEA' (cafe-
taria) á neðstu hæð Hotel
KEA. Þetta er sérlega snyrti-
legur staður og mjög vinsæll.
Hotel Akureyri er rekið af
Brynjólfi Brynjólfssyni veit-
ingamanni. Það býður upp á
sæmileg gistiherbergi og nú
fyrir nokkrum dögum var
opnuð þar gríðarmikil cafe-
taria, sem tekur 150 manns
í sæti. Fyrir rúmú ári
tók Brynjólfur Hotel KEA á
leigu og hefur rekið það síð-
an. Þetta hótel hefur frá
fyrstu tíð notið mikillra vin-
sælda en ekki hafa þær auk-
ist undir stjórn hins nýja hús-
bónda, nema síður sé. Væri
óskandi að stjórn KEA sæi
sér fært að taka rekstur hót-
elisins aftur í sínar hendur.
Ykkur, sem akið austur um
sveitir frá Akureyri, vil ég
benda á eftirfarandi leið. Þeg
ar komið er nokkuð upp í
hlíðar Vaðlaheiðar liggur
Svalbarðsstrandarvegur út af
Austurlandsvegi til vinstri.
Hann liggur út um Svalbarðs-
strönd, fagra og grösuga sveit
og eitt mesta kartöfluhérað
landsins, út í Höfðahverfi
litla og ljúfa sveit við Fnjósk-
árósa. Innan ár stendur hið
forna prestsetur Laufás og
þar er mikill og reisulegur
torfbær í umsjá Þjóðminja-
safns íslands. Norðan ár er
landnámsjörð Þengils mjök-
siglanda, Höfði, og þar norð-
ur af handan við lágan höfða
er Grenivíkurþorp. Neðsti
hluti Fnjóskadals nefnist
Dalsmynni. Þarna er farið yf-
•ir ána, þar sem hún rennur
í þröngum gljúfrastokk, og
inn dalinn að austan. Hjá
bænum Garði þverbeygir
Fnjóskadalur til suðurs. Þarna
liggur Flateyjardalsheiði til
norðurs milli hárra fjalla og
norður af henni er komið nið-
ur í Flateyjardal. Þar eru nú
allir bæir I eyði en skammt
undan landi vakir Flatey á
Skjálfanda, iðjagræn og enn
í byggð. Á sumrin mun fært
á jeppum norður í Flateyjar-
dal. Frá Garði liggur vegur-
inn suður Fnjóskadal austan
ár og kemur á Austurlands-
veg neðan við bæinn Háls.
Það er vel þess virði að taka
á sig þennan krók.
Til sölu i Hveragerði
einbýlishús í smíðum. Uppl. á Bláskógum 3 eða í
síma 107, fimmtudag og föstudag, frá kl. 2—5.
Stúlka
óskast í skartgripaverzlun. Skemmtileð starfsað-
staða. Tilboð sendist Mbl. merkt: „A B“.
Umferðamiðstöðvarhúsið í VatnsmýrinnL Ljósm. Ol. K. Mog.
Umferðamiðstöðin mjak-
ast hægt og sígandi
Verbur væntanlega til næsta vor
UMFERÐAMIÐSTÖÐIN við
Hringbraut verður varla tilbúin
á þessu sumri, en verið er að
Danir sækja
þykkvalúru
til Eyja
FJÓRIR danskir bátar eru nú að
hefja flutninga á þykkvalúru,
sem Vestmannaeyingar selja til
Danmerkur og eru tveir farnir
þangað. Danir hafa tvö undan-
farin sumur keypt þykkvalúru af
Vestmannaeyingum, en þetta er
í fyrsta skipti sem þeir sækja
fiskinn sjálfir.
Þykkvalúran er flutt út ný og
ísuð. Ætla bátarnir, sem eru um
100 lestir að stærð, að fara tvær
ferðir hver og eru tveir þegar
farnir með fullfermi. — Friðrik
Jörgensen í Reykjavík kom á
þessari sölu á þykkvalúru til
Danmerkur á sumrin, og mun
fást sæmilegt verð fyrir hana.
Þá er norskt leiguskip í ferð-
um til Englands með kassafisk
frá frystihúsunum í Eyjum. Er
þetta fiskur sem frystihúsin hafa
ekki mannafla til að vinna.
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
var sagt upp að loknum nem-
er.datónleikum í Bæjarbíói, hinn
4. maí sl. Skólinn tók til starfa 1.
október, en var settur í Bæjar-
bíói 16. nóvember með stuttum
tónleikum kennaranna.
Ný deild fyrir 5—8 ára börn
tók til starfa 1. nóv., og var kennt
eftir aðferð Carls Orff. Tónlistar-
námskeið fyrir unglinga og full-
orðna var haldið á hverju mánu-
dagskvöldi allan veturinn. Að
vinna í henni og vonast bygg-
•ingarnefnd og samgöngumála-
ráðuneytið til þess að hægt verði
að taka hana í notkun næsta vor,
að því er formaður byggingar-
nefndar, Jón Sigurðsson, tjáði
blaðinu í gær.
Byggingin sjálf er nokkurn
veginn komin upp, en klætt er
þó ennþá fyrir suðurhliðina, sem
á að vera mikið úr gleri. Þar
fyrir innan verður stór afgreiðslu
Kenya £ær
sjálfstæði 12. des
London, 2. júlí AP.
• FRÁ því var skýrt af hálfu
brezku stjórnarinnar í dag,
að Kenya muni hljóta sjálfstæSi
12. desember næstkomandi. Hefur
verið gefin út „Hvít bók“ um
málefni Kenya og segir þar, að í
septemberlok verði haldin í Lon-
don ráðstefna, þar sem gengið
verði frá stjórnarskrá fyrir frjálst
og fullvalda Kenya.
Zanzibar, 2. júlí AP.
• ZOLDÁNINN af Zanaibar
Sir Abdulla Bin Khalifa
lézt í gær, 53 ára að aldri.
öðru leyti var kennslufyrirkomu
lag með svipuðu sniði og undan-
farin ár.
142 nemendur voru í skólanum
þennan vetur. Kennarar, auk
skólastjórans, Páls Kr. Pálssonar,
voru 5. Á nemendatónleikunum
komu fram nær fimmtíu nem-
endur með einleik og samleik
alls konar. Húsfyllir var og und-
irtektir áheyrenda mjög góðar.
Þetta var 13. starfsár skólans.
salur. Loftið er þó tilbúið og
póstafgreiðsla til.
Fræðimenn
á söp;uslóðum
í Kirkjuvogi
Á ÞESSU ári eru 700 ár liðin
síðan Hákon konungur hinn
gamli Hákonarson andaðist í
Kirkjuvogi á Orkneyjum, þar
sem hann hugðist hafa vetur-
setu. En vestur um haf hafði
konungur farið til þess að reyna
að afstýra því að Skotakonung-
ur næði undir sig skozku eyjun-
um, sem þá höfðu lengi lotið
norskum yfirráðum.
í tilefni af þessu sjö alda af-
mæli hins mikilhæfa konungs
hafa bæjarstjórn Kirkjuvogs
(Kirkwall) og héraðsráð Ork-
neyja efnt til samkomu, sem
sett var í Kirkjuvogi hinn 30.
júní og stendur til 5. júlí. Verður
samkoma þessi fyrst og fremst
fundur skozkra og norrænna,
einkum norskra fræðimanna,
og munu þeir flytja fyrirlestra
um sögu, fornleifafræði og bók-
menntir þeirra tíma, er Hákon
konungur var á dögum. Fundur-
inn hófst með minngarmessu i
hinni frægu Magnúsarkirkju.
Þegar á fundinn líður verður far
ið í margar ferðir til þeirra staða
sem norrænir menn gerðu fræga
á víkingaöld og á miðöldum,
merkilegir uppgreftir skoðaðir
og efnt til sýninga á sögulegum
minjum.
Meðal ræðumanna á minningar
hátíð þessari er Hermann Páls-
son, lektor í Edinborg, og próf-
essor Jón Helgason er einnig í
þeim fræðimannahópi, sem sam
an kemur í Kirkjuvogi.
(Frá Þjóðminjasafni tslands)
Halldóru Helga-
dóttur haldið sam-
sæti á Bolungarvík
Bolungarvík, 28. júní.
Nýlega hélt Sjálfstæðiskvenna
félagið ÞURfÐUR SUNDAFYLL
IR fyrrverandi formanni sínum,
frú Halldóru Helgadóttur, sam-
sæti.
Hafði hún verið formaður fé-
lagsins í sjö ár, en iét af störf-
um vegna brottflutnings úr bæn-
um. Núverandi formaður, Fríða
Pétursdóttir, þakkaði Halldóru
mikil og góð störf í þágu félags-
ins, en það hefur starfað af mikL
um dugnaði. Færði félagið frú
Halldóru að gjöf forkunnar fag-
urt gullúr fyrir vel unnin störf.
Hún flutti því næst ávarp og
þakkaði sóma sér sýndan og árn-
aði félaginu allra hexlla á kom-
andi árum.
Þessi mynd var tekin á nemendatónleikum Tónlistarféiags
Hafnarfjarðar í Bæjarbíói 4. maí síðastliðinn. Tóku þátt í þeim
um 50 nemendur, og á myndinni er einnig skólastjórinn, Páil
Kr. Pálsson, og þrír kennarar.
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar slitió